Fréttablaðið - 13.04.2019, Blaðsíða 89
Á þak húsanna eru settar rennur og rör
sem leiða rigningarvatn yfir í fjögur
þúsund lítra vatnstank sem reistur er
við hlið húsanna. Fjölskyldurnar geta þá
nýtt tímann til annars en að fara eftir
vatni.
Fólkinu er veitt fræðsla um hvernig
koma má í veg fyrir ýmsa sjúkdóma með
hreinlæti. Fólkið lærir að koma upp
þurrkgrindum fyrir ílát og að strengja
snúrur fyrir blautan þvott sem áður var
lagður á jörðina til þerris en við það
gátu skordýr verpt í fötin.
Til að koma í veg fyrir sjúkdóma eru
reistir kamrar sem fólkið notar í stað
þess að gera þarfir sínar úti við. Fræðsla
er veitt um mikilvægi handþvottar fyrir
allt heilbrigði.
Við hlið múrsteinshúsanna eru reistir
eldaskálar með eldstæði sem sparar
eldiviðinn og minnkar mengun. Mikill
tími fór áður í að safna eldivið og meng-
unin af völdum opins eldstæðis inni í
skálum olli áður öndunarfærasjúkdóm-
um.
Fjölskyldurnar fá líka þrjár til fimm
geitur hver og geta hafið geitarækt.
Geitur fjölga sér hratt og fólkið getur
selt kiðlinga á markaði og keypt lyf, mat,
fatnað og skólagögn fyrir peninginn
sem fæst fyrir þá. En það verður að fara
sparlega með og því er komið á laggirn-
ar sparnaðarhópum þar sem fræðsla er
veitt um hvernig sé best staðið að rækt-
uninni.
Fjölskyldurnar fá líka aðstoð við að
koma sér upp matjurtagarði. Þær fá
fræ, áhöld og fræðslu um ræktun og
mikilvægi þess að börn jafnt sem full-
orðnir borði næringarríkan mat.
Verkefnið er unnið í samstarfi við Lúth-
erska heimsambandið í Úganda og sam-
tökin Rural Action Community Based
Organization, RACOBAO.
Bestu þakkir fyrir
stuðning við starfið!
Við messu þann 16. desember síðastliðinn afhentu Jón Björnsson og Guðrún Laufey Ólafs-
dóttir úr ungmennastarfi Hallgrímskirkju Bjarna Gíslasyni framkvæmdastjóra Hjálparstarfs
kirkjunnar rösklega sex milljónir króna til að styrkja ungmenni á Íslandi til náms og til að
ungmenni í Kampala, höfuðborg Úganda, fái betra líf. Með þeim á myndinni er Ásta Bryndís
Schram fulltrúi Kristniboðssambandsins sem einnig hlaut styrk. Bestu þakkir til Hallgríms-
sóknar fyrir rausnarlegt framlag til starfsins!
Tumusiime Janepher og börnin hennar þrjú bjuggu í moldarkofa sem var að hruni kominn, þau höfðu mjög takmarkað aðgengi að drykkjarvatni og neyttu ekki tveggja máltíða á dag. Í nóvember 2018
fengu þau múrsteinshús til að búa í ásamt rúmum með moskítóneti og teppum. Þau fengu þvottabala og vatnsbrúsa til að nota undir bununa úr vatnstankinum sem var í byggingu við hlið hússins.
Hjálparstarf kirkjunnar er sjálfseignar-
stofnun sem er háð framlögum frá
einstaklingum, félagasamtökum, kirkju-
sóknum, fyrirtækjum og opinberum
stofnunum um að sinna hjálparstarfi
innanlands og utan. Stuðningur við
starfið kemur úr ýmsum áttum.
Á hverju hausti ganga börn í fermingar-
fræðslu þjóðkirkjunnar í hús í hverfi
sínu og safna fé til verkefna Hjálpar-
starfsins í Afríku. Haustið 2018 söfnuðu
fermingarbörn alls 7.517.505 krónum en
kostnaður við fjáröflunina nam 465.805
krónum. Prestar, annað starfsfólk
kirkna, foreldrar og síðast en ekki síst
börnin sjálf lögðu á sig mikla vinnu við
söfnunina og er framlag þeirra ómetan-
legt. Bestu þakkir til allra sem tóku þátt
í verkefninu!
Hjálparstarfið safnaði fyrir vatnsverk-
efnum í Eþíópíu og Úganda með því að
senda valgreiðslu í heimabanka í des-
ember 2018. Heildarsöfnunarfé í des-
ember og janúar að meðtaldri sölu
gjafabréfa á gjofsemgefur.is nam 71
milljón króna en þar af renna 27,3 millj-
ónir til aðstoðar innanlands.
Öflugur hópur um 20 kvenna vinnur í
sjálfboðavinnu við fatamóttöku og fata-
úthlutun í viku hverri og er framlag
þeirra ómetanlegt. Síðast en ekki síst
ber að nefna ört stækkandi hóp Hjálp-
arliða sem styrkja starfið með reglulegu
framlagi. Stuðningur þeirra rennir
styrkum stoðum undir starfið.
Margt smátt ... – 7
1
3
-0
4
-2
0
1
9
1
1
:2
4
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
C
F
-E
7
2
C
2
2
C
F
-E
5
F
0
2
2
C
F
-E
4
B
4
2
2
C
F
-E
3
7
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
2
8
s
_
1
2
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K