Fréttablaðið - 13.04.2019, Page 96
Eitt mest áberandi trendið í vor og sumar er ljóm-andi húð. Glansinn er tekinn upp á næsta stig og púður-highlighterinn lagður á hilluna í bili.
Í staðinn sjáum við kremkennda
highlightera og jafnvel í glossformi
sem notaðir eru á kinnbeinin, niður
nefið, fyrir ofan efri vör og á við-
beinin. Hugmyndin er að líta út eins
og glamúrútgáfa af sjálfri þér eftir
góðan jógatíma.
Sólarpúður og gloss
Við munum líka sjá mjög skæra liti
á augum og vörum, þó ekki á sama
tíma. Best er að halda húðinni mjög
náttúrulegri ef farið er út í sterka liti
á varir eða augu. Neonlitirnir sem
hafa verið vinsælir í fatnaði færa
sig yfir á andlitið og það getur verið
gaman að leika sér með liti í vor og
sumar. Það er fátt sumarlegra en sól-
kysst húð og appelsínurauður vara-
litur, til dæmis. Í öðrum fréttum á
sólarpúðrið einnig endurkomu
með næntís-tískunni sem tröll ríður
tískuheiminum og gamla, góða
glossið snýr aftur en nú má einnig
nota það á augun.
Beislitur allsráðandi
Beislitur er allsráðandi í fata-
tískunni og það trend nær einnig
yfir í förðunartískuna. Vinsælt er
að nota sama litinn eða svipaðan
tón á augu, kinnar og varir. Lituðu
augnskuggagrunnarnir frá bare-
Minerals eru fullkomnir í þetta útlit
en þeir búa til fallega náttúrulegan
skugga á augnlokið sem endist allan
daginn.
Skin Love Glow Glaze Stick er
glosskenndur highlighter sem er
fullkominn í ferska förðun sum-
arsins.“
Ódýr en frábær farði
Hver er uppáhaldsfarðinn þinn á
vorin?
„Ég þreytist ekki á að mæla með
Pharmaceris-farðanum en hann
er borinn á eins og krem en hylur
fáránlega vel allar litabreytingar og
roða. Hann inniheldur líka sólar-
vörn SPF 20 og kostar ekki nema
um 3.000 kall og fæst úti í apóteki.
Ég hef ekki tölu á öllum þeim vin-
konum sem hafa fallið fyrir þessum
pólska farða eftir meðmæli frá mér.“
Hvaða sólarvörn mælir þú með til
að nota dagsdaglega?
„Ég elska Complexion Rescue frá
bareMinerals en þetta litaða dag-
krem gerir húðina svo ferska og er
með sólarvörn SPF 30. Maður slær
tvær flugur í einu höggi og er sætur
með sólarvörn!“
Hvaða húðvörum mælir þú með?
„Ég hef lengi vel elskað að nota
EGF-dropana frá Bioeffect en
nýverið kynntist ég töfratvennunni
svokölluðu frá þeim og nota hana
hvern morgun.
Rolls Royce kremanna
Á kvöldin hef ég verið að nota það
sem húðlæknar kalla Rolls Royce-
inn í kremum en það heitir A.G.E.
Interrupter og er frá SkinCeuticals
sem er bara selt í gegnum húðlækna
á Húðlæknastöðinni.
Annars elska ég að prófa nýjar
vörur og hef verið heppin að í gegn-
um vinnuna mína hef ég fengið að
prófa flestallt sem kemur á markað
og er nýtt og spennandi. Ég er kol-
fallinn aðdáandi húðvara sem inni-
halda retínól, enda er það eitt af
fáum innihaldsefnum sem sannað
hafa virkni sína gegn hrukkum og
flestu því sem við höfum áhyggjur
af þegar kemur að húðinni.“
Næntís
tískan
tröllríður
heiminum
Helga Kristjáns, förðunarritstjóri
Glamour, gefur góð ráð og rýnir í
strauma og stefnur í förðun
fyrir vorið. Náttúrulegt útlit og
ljómandi húð eru lykilatriði.
„Best er að halda húðinni mjög náttúrulegri,“ segir Helga, förðunarritstjóri Glamour. MYND/ALDÍS PÁLSDÓTTIR
Beislitur á augum, kinnum og
vörum fyrir náttúrulegt útlit hjá
Philosophy Di Lorenzo Serafini.
HUGMYNDIN ER AÐ LÍTA
ÚT EINS OG GLAMÚR-
ÚTGÁFA AF SJÁLFRI ÞÉR
EFTIR GÓÐAN JÓGATÍMA.
Fallegur ljómi á kinnbeinin og fleiri staði með Becca Glow Glaze Stick.
Þessi ó
dýri en
góði f
arði fæ
st í
mörgu
m apó
tekum
hér á l
andi o
g að sö
gn
Helgu
felur h
ann ve
l
roða o
g misf
ellur í
andlit
i.
Til vinstri. bare- Minerals litað dagkrem með SPF
30, Helga mælir með
þessu kremi sem daglegri
sólarvörn. Augnskugga-
grunnur í beislit til hægri.
Fyrirsætan Vittoria Ceretti á pöllunum hjá
Max Mara á tískuvikunni í Mílanó með fal-
lega og náttúrulega förðun í beige-tónum.
Helga prófar sig áfram þessa dagana með svokallaðan Rolls Royce kremanna, A.G.E. Interrupter frá SkinCeuticals.
1 3 . A P R Í L 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R36 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
3
-0
4
-2
0
1
9
1
1
:2
4
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
C
F
-A
6
F
C
2
2
C
F
-A
5
C
0
2
2
C
F
-A
4
8
4
2
2
C
F
-A
3
4
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
2
8
s
_
1
2
_
4
_
2
0
1
9
C
M
Y
K