Fréttablaðið - 13.04.2019, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 13.04.2019, Blaðsíða 10
Ég hef nú þegar unnið þessar kosningar en þið þarfnist mín. Maneka Gandhi, jafnréttismála ráðherra Loforð hersins dugar ekki til að lægja öldurnar. SÚDAN Almennir borgarar munu skipa næstu ríkisstjórn Súdans en ekki hermenn. Þetta sagði Omar Zain al-Abidin hershöfðingi sem situr í herforingjastjórninni er tekið hefur við eftir að herinn gerði valdarán og steypti Omar al-Bashir af stóli í vikunni. Sá hafði setið í þrjátíu ár en alþjóðleg handtöku- skipun hafði verið gefin út á hendur honum vegna meintra stríðsglæpa og glæpa gegn mannkyninu. Moammed Awad Ibn Auf, varn- armálaráðherra Súdans og fyrr- verandi hershöfðingi, er yfir her- foringjastjórninni. Hann sagði á fimmtudag að nú tæki við aðlög- unartímabil sem gæti varað í tvö ár. Skemur ef hægt er að komast hjá ringulreið í landinu. Almenningur hafði lengi þrýst á afsögn al-Bashir og mótmælt honum mánuðum saman. Þótt honum hafi verið steypt af stóli standa mótmælin hins vegar enn yfir. Mótmælendur gáfu lítið fyrir orð al-Abidin um stjórn almennra borgara í gær, samkvæmt Reuters. Samtökin SPA, sem hafa talað fyrir mótmælendur, sögðu að herfor- ingjastjórnin væri ófær um að koma á kerfisbreytingum í landinu. Ibn Auf steig óvænt til hliðar seint í gær- kvöldi eftir mótmælin. „Þið munuð fá að leysa úr öllum efnahags- og stjórnkerfisvandamál- unum. Við höfum enga hugmynda- fræði heldur erum við nú við völd til að tryggja stöðugleika og öryggi og tryggja það sömuleiðis að súdanska þjóðin geti komið á breytingum,“ sagði al-Abidin. – þea Almennir borgarar munu stýra Súdan en ekki her SVÍÞJÓÐ Hæstiréttur Svíþjóðar úrskurðaði í gær að Julian Assange, stofnandi WikiLeaks, skyldi sjálfur greiða um 115 milljónir króna í málskostnað vegna rannsóknar á kynferðisbrotamálum gegn honum. Ákvörðunin er sögð ótengd því að Assange var sviptur hæli sínu í ekva- dorska sendiráðinu í Lundúnum og handtekinn á fimmtudag. Rannsókn var hætt fyrir tveimur árum og þrjú mál af fjórum eru nú fyrnd. En fyrst Assange hefur nú verið sviptur hæli íhuga Svíar, sam- kvæmt BBC, að taka fjórða málið upp á ný. Það gæti hins vegar reynst erfitt. Sven-Erik Alhem, fyrrverandi saksóknari, sagði við sænska mið- ilinn TT að vitnisburður í tíu ára gömlum málum gæti einfaldlega reynst of óáreiðanlegur. Bandaríkin hafa farið fram á að Assange verði framseldur. Þar er hann sakaður um að skipuleggja tölvuinnbrot í samráði við Chelsea Manning, sem lak leyniskjölum til WikiLeaks. – þea Rukka Assange um málskostnað Nýskráður í okt 2007 | Keyrður 121,474km | Skipt um tímareim í 103,287km Verð 400.00 staðgreitt | Upplýsingar í síma 618-9236 Til sölu ný og lítið slitin dekk Nafn stærð fjöldi gerð verð ástand Coper 205/55/R16 2 heilsársdekk 5,000 kr. nýleg Kingstar 185/65/R14 3 vetrardekk 5,000 kr. nýleg Kingstar 195/65/R15 2 vetrardekk á felgum 5,000 kr. nýleg Michelin 175/65/R14 2 Sumardekk nánast ný 10,000 kr. ný Hankok 175/65/R14 2 sumardekk 7,500 kr. nýleg Michelin 195/65/R15 4 sumardekk 30,000 kr. ný Continental conti eco 195/55/R16 4 sumardekk 40,000 kr. ný Bridgestone Duler 225/55/R18 4 sumardekk 40,000 kr. nýleg Michelin ( Traffic) 195/75/R16c 4 á felgum vetrardekk 10,000 kr. Kango álfelgur 175/65/R14 4 álfelgur 5,000 kr. Kango stálfelgur 175/65/R14 4 stálfelgur 5,000 kr. Kango stálfelgur 175/65/R14 4 stálfelgur 5,000 kr. Kapnor 185/65/R14 3 5,000 kr. nýleg Toyo 175/65/R14 3.5 Vetrardekk 5,000 kr. nýleg Dunlop 265/65/R17 á felgum Toyota 50,000 kr. nýleg Kumo 235/65/R17 4 sumardekk 30,000 kr. nýleg Hankok 225/60/R17 4 sumardekk 30,000 kr. nýleg Dunlop 235/55/R19 4 sumardekk 30,000 kr. nýleg Michelin 195/65/R15 4 sumardekk/ný 10,000 kr. ný Michelin 195/55/R16 16 sumardekk/ný 15,000 kr. ný Til Sölu Renault Kangoo árgerð 2007 E F L U M M I Ð B O R G I N A . A U G L Ý S T E R E F T I R U M S Ó K N U M U M S T Y R K T I L V E R K E F N A Ú R M I Ð B O R G A R S J Ó Ð I . Miðborgarsjóður WWW.RVK.IS/ MIDBORGARSJODUR Markmið sjóðsins er að stuðla að fjölbreytni, frumkvæði, nýsköpun og rannsóknum til að efla miðborgina. Við hvetjum alla til að sækja um! Umsóknir þurfa að berast til og með 29. apríl nk. INDLAND Kjörsókn fyrstu tvo daga stærstu kosninga mannkynssög- unnar virðist með ágætum. Þetta kom fram á Reuters í gær en Indverj- ar kjósa nú nýtt þing. Kosningarnar standa yfir í 39 daga. Narendra Modi forsætisráðherra, BJP-flokkur hans og samstarfsflokk- ar freista þess að halda meirihluta sínum á þingi og benda kannanir til þess að það takist. Kosningabar- áttan er því afar hörð og þrír fram- bjóðendur BJP vöktu athygli fyrir ummæli sín á baráttufundum í gær. Amit Shah, forseti flokksins, sagði á fundi í Vestur-Bengal að ólöglegir innflytjendur væru „eins og termítar við Bengalflóa“. Hann lofaði því þess vegna að ríkisstjórn BJP myndi tína innflytjendurna upp af jörðinni og kasta þeim, hverjum á fætur öðrum, í Bengalflóann. Þar átti hann við innflytjendur frá grannríkinu Bangladess. Flestir íbúa Bangladess eru múslimar en BJP hefur verið kenndur við hindúa- þjóðernishyggju. Shah sagði aukin- heldur að BJP myndi veita hindúum, búddistum, jaínistum og síkum frá Bangladess og Pakistan ríkisborg- ararétt. Sanjay Jha, einn talsmanna Con- gress-flokksins, andstæðinga BJP, sagði í svari við ræðu Shah að hann væri að reyna að sundra þjóðinni eftir trúarlínum. „Pólitískt við- skiptamódel BJP gengur út á að kynda undir átök í samfélaginu. Halda því á suðupunkti.“ Maneka Gandhi, ráðherra jafn- réttismála og BJP-liði, sagði svo á fundi með múslimum í Sultanpur að þeir þyrftu að kjósa hana. Ann- ars myndi hún ef til vill hafa minni áhuga á að hlusta á þá. „Ég hef nú þegar unnið þessar kosningar en þið þarfnist mín. Þetta er ykkar tækifæri til að byggja upp samband,“ sagði ráðherrann, sem er tengdadóttir Indiru Gandhi, fyrsta kvenforsætis- ráðherrans. Þá sagði Sakshi Maharaj, þing- maður BJP-flokksins og frambjóð- andi í Unnao, að kjósendur þyrftu að greiða honum aktvæði sitt ellegar myndi karma þeirra verða slæmt. Karma er hugtak í trúarbrögðum af indverskum uppruna sem gengur út á að allar gjörðir valdi afleiðingum, góðum eða slæmum. „Þegar meinlætamaður ber að dyrum og biður um ölmusu, grát- biður ykkur og þið verðið ekki við bón hans gæti hann gengið á brott með mögulegt gott karma og skilið slæmt karma eftir fyrir ykkur,“ sagði hann á fundi með kjósendum. Maharaj hefur reyndar áður látið umdeild ummæli falla. Í síðasta mánuði spáði hann því, samkvæmt NDTV, að það yrðu engar þingkosn- ingar árið 2024 eins og gert er ráð fyrir. thorgnyr@frettabladid.is Skrautleg ummæli í kosningabaráttu BJP Frambjóðendur BJP, flokks Narendras Modi, forsætisráðherra Indlands, vekja athygli fyrir ummæli sín á öðrum degi þessara stærstu kosninga mannkyns- sögunnar. Forseti flokksins vill kasta ólöglegum innflytjendum í Bengalflóa. Amit Shah kallaði ólöglega innflytjendur termíta í ræðu í Vestur-Bengal. NORDICPHOTOS/AFP 1 3 . A P R Í L 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 3 -0 4 -2 0 1 9 1 1 :2 4 F B 1 2 8 s _ P 1 2 2 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 1 1 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 C F -9 3 3 C 2 2 C F -9 2 0 0 2 2 C F -9 0 C 4 2 2 C F -8 F 8 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 1 2 8 s _ 1 2 _ 4 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.