Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.02.2014, Síða 3
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í febrúar 2014
http://www.ætt.is aett@aett.is3
Hann hét Skapti Skaptason. Hann var titlaður
aðstoðarmaður landlæknis. Hann opnaði heimili
sitt fyrir ótal sjúklingum, jafnt holdsveikum sem
berklaveikum og hlaut Dannebrogsorðuna fyrir
vel unnin störf. Hann tengdist fyrir tilviljun inn
í Evrópusöguna og Napoleon Bonaparte. Efri
árin voru honum erfið. Hann missti seinni konu
sína frá þrem ungum börnum. Þá kom til sög-
unnar Guðrún nokkur Klængsdóttir og amman
með Árbæjarauðinn. Sjálfur lést hann skömmu
síðar, eftir langvarandi veikindi. Fimm ef ekki
sex af átta börnum hans af fyrra hjónabandi lágu
þá í gröfinni. Þannig mætti í hnotskurn segja frá
lækninum og mannvininum Skapta Skaptasyni.
Skapti Skaptason var lærður járnsmiður. Foreldrar
hans voru Sigríður dóttir Jóns Magnússonar útvegs-
bónda á Eiði á Seltjarnarnesi og konu hans Guðnýjar
Jónsdóttur frá Syðra-Fljóti í Biskupstungum og
Skapti Sæmundsson, sonur Sæmundar Björnssonar
b. Síðumúla í Hvítársíðu og konu hans Guðríðar
Skaptadóttur.
Skapti Sæmundsson var afar vel menntaður á
þeirra tíma vísu. Hann er sagður hafa farið til náms í
Kaupmannahöfn og lært járn-, silfur og trésmíði. Hann
stundaði einnig lækningar. Hann flutti til Reykjavíkur
1786 og giftist Sigríði 1792.
Þau Skapti og Sigríður bjuggu á Eiði á Seltjarnarnesi
1793 til 1799, þegar Bátsendaflóðið gerði bæ þeirra
óbyggilegan, síðan í Skaptholti rétt við Eiði fram til
1802, þegar þau fluttu í Kjósina. Skapti fékk 15 rík-
isdala styrk úr jarðabókarsjóði til þess að flytja bæj-
arhúsin eftir flóðið. Í mt. 1801 er Skapti titlaður
haandverksmand af sölv, jern og træarbeyde.
Á Sandi í Kjós fæddist Skapti sonur þeirra 1805.
Þau Skapti og Sigríður áttu fimm börn auk Skapta
yngri. Þau fluttu svo í Götuhús í Reykjavík árið 1809,
þar sem Skapti var húsmaður og þar bjuggu þau til
dánardags 1821.
Í mt. 1816 eru þau í Götuhúsum ásamt dætrunum
Guðríði 23 ára, og Guðrúnu 14 ára og syninum Skapta
11 ára, en þar er þá tvíbýli. Hjá þeim hjónunum er
einnig 36 ára kona sögð „til lækninga“.
Margir „læknar“
Í ættinni var óvenju margt fólk sem stundaði lækning-
ar eða var yfirsetukonur. Auk Skapta Sæmundssonar
og Skapta yngri, sem báðir voru mikils metnir fyr-
Guðfinna Ragnarsdóttir:
Skapti Skaptason
aðstoðarmaður landlæknis
ir lækningar sínar, var Ingibjörg systir Skapta yngri
ljósmóðir á Suðurnesjum í 50 ár, tók á móti 580
börnum og stundaði einnig lækningar. Hún var, seg-
ir í samtíma blöðum, einhver merkasta sómakona á
Suðurnesjum um sína tíð og var gefið einstakt sálar-
og líkamsfjör. Hún hafði mjög gott vit á læknisdóm-
um eins og faðir hennar og bróðir.
Jóhann sonur Ingibjargar, fæddur 1833, var
blóðtökumaður og fékkst við lækningar og Margrét,
systurdóttir Skapta Sæmundssonar, var yfirsetukona
á Eiði á Seltjarnarnesi. Guðrún, dóttir Skapta yngri,
varð einnig ljósmóðir.
Reykjavík um 1800
En lítum þá á það umhverfi sem Skapti Skaptason
fæðist inn í. Hann var fæddur 1. júlí 1805 á Sandi í
Kjós.
Í lok 18. aldarinnar og upphafi þeirrar 19. hafði
losnað um viðjar íslenska bændasamfélagsins og
kringum innréttingar Skúla fógeta varð til lítið þorp
í kvosinni við Tjörnina þar sem Ingólfur forðum
byggði sér bæ. Danskir kaupmenn hösluðu sér völl í
þorpinu og smámsaman færðist stjórnsýslan, embætt-
ismennirnir, kirkjan og skólinn þangað líka.
Það var til þessa litla upprennandi bæjar, með
rúmlega 300 íbúum, sem Skapti Skaptason fluttist í
upphafi nýrrar aldar, þegar aðeins voru liðin 19 ár frá
því Reykjavík fékk kaupstaðarréttindi. Hægt og bít-
andi fjölgaði tómthúsfólkinu, sem komið var úr sveit-
um landsins, þar sem lítið var að hafa annað en vinnu-
mennsku. Jarðnæði var af skornum skammti og fólk-
inu fjölgaði ört. Á mölinni voru fleiri möguleikar,
þótt tómthúsmennskan yrði mörgum erfið.
Tómthúsmönnum fjölgaði mjög ört og 1816 þeg-
ar Skapti litli er 11 ára búa 56% bæjarbúanna, sem þá
töldu 506, á heimilum tómthúsmanna. Aukin útgerð
við Faxaflóa og vaxandi umsvif kaupmanna styrkti
mjög stöðu tómthúsmanna er leið á 19. öldina.
Götuhús
Vorið og sumarið 1805, þegar Skapti fæddist var með
eindæmum gott og grasvöxtur sá allra besti. Úti í
heimi dró brátt til tíðinda með Napóleon í broddi fylk-
ingar. Nafn sem síðar átti eftir að koma við sögu hjá
Guðfinna Ragnarsdóttir ritstjóri Fréttabréfsins
hélt meðfylgjandi erindi um Skapta Skaptason á
félagsfundi Ættfræðifélagsins í nóvember sl.