Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.02.2014, Blaðsíða 4
4http://www.ætt.is
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í febrúar 2014
aett@aett.is
litla drengnum sem fæddist í sumarblíðu í Kjósinni í
júlíbyrjun árið 1805.
Hann elst upp, yngstur sinna systkina, í Götu húsum í
Reykjavík, en þau voru ein af hjáleigum Víkurbæjarins.
Sumarið 1821 létust þau bæði með fimm daga millibili
Skapti Sæmundsson og Sigríður kona hans. Þá var
Skapti yngri 16 ára gamall. Um lát Skapta eldra segir í
Árbókum Reykjavíkur 1786-1936:
Á þessu ári andaðist hér í bæ..... Skapti Sæmundsson
í Götuhúsum, maður „greindur og góðviljaður, manna
og dýra handlæknir og listasmiður“, 2. júlí, 53 ára.
Í Klausturpóstinum stendur 1. júlí 1821 um Skapta
Sæmundarson: 53 ára, ekkill í viku. 4ra lifandi barna
faðir, Maður einstakur-Maður guðrækinn-Hagsmíð
hönd – hjúkraði oft sjúkum-Vit var ærið-Vilji betri-
Fátækra læknir-Laun þó brysti-
Stöðlakot
29. október 1828, þegar Skapti er 23 ára, giftist hann
Guðnýju Sigurðardóttur, ættaðri úr Flóanum. Hún er
þá 28 ára, sögð yngisstúlka, ættuð að austan. Foreldrar
hennar voru Sigríður Gamalíelsdóttir og Sigurður
Guðmundsson sem bjuggu m.a. á Egilsstöðum í
Villingaholtshreppi. Guðný var á svipuðum aldri og
Skapti, fædd 1801.
Þau Guðný og Skapti áttu saman átta börn. Fimm
þeirra komust upp, fjórar dætur og einn sonur, Skapti.
Fyrstu tíu árin, frá 1830-1840, bjuggu þau Skapti
og Guðný í Stöðlakoti, sem var býli rétt sunnan við
Bókhlöðustíginn. Í mt 1840 búa þau þar ásamt fjór-
um börnum sínum, Sigríði, Jóhönnu, Margréti og
Skapta, 11, 8, 5 og 4 ára. Hjá þeim er líka Sigríður
Gamalíelsdóttir, móðir Guðnýjar, 77 ára og ekkja,
komin austan úr Ölfusi. Sömuleiðis er Guðrún, systir
Skapta, vinnukona hjá þeim, ógift og 36 ára.
Guðríður, dóttir þeirra hjónanna, þá 11 ára, er af ein-
hverjum óþekktum ástæðum komin í fóstur á biskups-
setrið í Laugarnesi til Valgerðar ekkju Hannesar
Finnssonar, síðasta Skáholtsbiskupsins, og ekkju Stein-
gríms biskups, og er þar líka 15 ára í mt 1845. Hún er
sögð eina fósturbarnið en auk hennar hefur biskups-
ekkjan sex vinnukonur!
Skaptabær
Um 1840 byggðu þau Skapti og Guðný sér bæ í Efri-
Þingholtunum, á lóð Miðbýlis, nú Bankastræti 14,
sem oft var nefndur Skaptabær. Hann stóð uppi í
lóðinni við Bakarabrekkuna, milli Ingólfsstrætis og
Skólavörðustígs, sunnan megin.
Efri-Þingholtin byrjuðu að byggjast 1820-1830.
Flestir tómthúsmenn byggðu sér bæ úr torfi og grjóti
meðan borgararnir bjuggu flestir í timburhúsum í
Kvosinni. Athuganir Agnesar Arnórsdóttur, lektors í
sagnfræði, hafa sýnt að íbúarnir í Efri-Þingholtunum
voru mun betur stæðir en íbúarnir í Skuggahverfinu
sem var norðan við núverandi Laugaveg og náði nið-
ur að sjó og byggðist um svipað leyti.
Flestir í Efri Þingholtunum áttu bát, hesta og kýr
og kjörin þar voru mun tryggari en í Skuggahverfinu.
Þeir gátu róið til fiskjar á eigin bátum þegar gaf á
sjó. Segja má að þeir hafi verið útvegsbændur í bæj-
arsamfélagi. Mun fleiri þeirra sem bjuggu í Efri-
Þingholtunum voru önnur kynslóð í Reykjavík. Þeir
voru þess vegna betur í stakk búnir til þess að bjarga
sér í bænum heldur en þeir sem komu langt að. Þeir
áttu sér bakland.
Aðstoðarmaður landlæknis
Auk þess að stunda sjóinn og lækningarnar fæst Skapti
við járnsmíðar og tekur menn í læri. 1837 er sagt frá
Bergsteini Ólafssyni „som har lært Smideprofessionen
hos Smidemester Sk. Skaptason...“
Skapti var, eins og faðir hans, titlaður bæði smið-
ur og læknir. Stundum smáskammtalæknir. Sagt var
að ástríða hans hefði verið lækningar. Hann hafði
opinbera titilinn aðstoðarmaður landlæknis, þótt ekki
væri hann læknismenntaður og sendi Jón Hjaltalín
landlæknir hann oft í vitjanir þegar hann var sjálfur
upptekinn.
Í bók Jóns Helgasonar: Þeir, sem settu svip á bæinn,
segir: „Framan af hafði þá líka landlæknir einatt orð-
ið að láta sér lynda aðstoð ólærðs járnsmiðs hér í bæ,
Skapta Skaptasonar, sem fékkst talsvert við lækning-
ar og þótti reynast svo vel að landlæknir jafnvel vís-
aði til hans eða sendi hann í sinn stað, er hann sjálfur
gat ekki annað störfum sínum“.
Í Norðra frá 1858 segir í skemmtilegri grein um
skottulækningar að þær séu orðnar svo almennar að
engum dæmum gegni. Og þetta sé komið svo á veg
að í Reykjvík sjálfri „hefur landlæknirinn skottulækni
Skapta Skaptason fyrir aðstoðarlækni, án þess að hafa
útvegað honum lækningaleyfi. En svo bætir grein-
arhöfundurinn við: „Vér höfum nú reyndar heyrt að
Skapti lækni meira og betur en landlæknirinn sjálfur,
og þetta getur vel verið, því Skapti er eflaust með hin-
um bestu skottulæknum og landlæknirinn hefur ef til
vill aukið töluvert þekkingu hans með lærdómi sín-
um.
Skapti læknir reisti sér bæ í Miðbýli milli Ingólfsstrætis
og Skólavörðustígs, þar sem nú er Bankastræti 14.
Skaptabær er uppi í lóðinni, lengst til hægri á myndinni.
Myndin er af málverki eftir Jón Helgason biskup.