Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.02.2014, Blaðsíða 9
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í febrúar 2014
http://www.ætt.is aett@aett.is9
virðist ógift og barnlaus. Margrét systir hennar fær
líka nóg af baslinu og 51 árs, árið 1886, flytur hún
líka vestur yfir hafið.
Ekki fór veröldin mjúkum höndum um hana þar
vestra því í Heimskringlu árið 1896 skrifar hún átak-
anlegt bréf þar sem hún segir m.a.: „Ég er búin að
liggja í rúminu í meira en misseri. Ég er bláfátæk og á
engan að hér nema Jóhönnu systur mína, sem einnig
er þrotin að heilsu og kröftum, en hefur tekið mig að
sér og annast um mig“.
Guðrún Skaptadóttir, varð ljósmóðir. Hún gift-
ist Davíð Jóhannessyni. Þau bjuggu á Vegamótastíg
9, á Grettisgötuhorninu. Dagný Ágústsdóttir, dótt-
urdóttir hennar, telur að þau Guðrún og Davíð hafi
keypt Vegamótastíg 9, nýbyggðan, fyrir ágóðann af
jarðasölu, sem kom í hlut Guðrúnar eftir foreldra
hennar, en hún var þá ein lifandi sinna alsystkina.
Mikið af arfinum frá Árbæ til barnanna mun hafa
skilað sér illa, segir Dagný, eftir móður sinni, Þórdísi
Davíðsdóttur.
Vegamótastígur 9
Þórdís Eyjólfsdóttir, seinni kona Skapta, og Guðný
Klængsdóttir, amma Halldórs Laxness, voru systkina-
börn og Guðrún Skaptadóttir og Sigríður móðir
Halldórs Laxness voru því þremenningar. Halldór bjó
hjá Guðrúnu og Davíð manni hennar á Vegamótastíg
9 fyrsta veturinn sinn í Reykjavík, 1915-1916, þegar
hann var í Iðnskólanum. Þá var hann 13 ára gamall.
Eyjólfur, t.v. sonur Skapta og Þórdísar seinni konu
hans, ásamt félaga sínum. Eyjólfur var um tíma í Lærða
skólanum.
Guðrún Skaptadóttir og Davíð maður hennar fengu alla
tíð leigugjald af Úteynni í Laugardal, sem Guðrún fékk
í arf eftir ömmu sína. Gjaldið var 5 lömb hvert haust, og
þau saltaði Davíð ofan í tunnu.
Það er gaman að geta þess að enn búa afkomendur
Guðrúnar og Davíðs á Vegamótstíg 9. Þar bjó Þórdís
dóttir þeirra langa ævi (1902-1998), ásamt Ágústi
manni sínum, síðan Dagný dóttir þeirra, þá Trausti
Þór Sverrisson, sonur Dagnýjar, og börn hans, Júlía
og Ólafur, búa þar í dag. Þau eru 5. ættliðurinn á
Vegamótastíg 9.
Guðrún Klængsdóttir hélt alla tíð góðu sambandi
við Guðrúnu Skaptadóttur. Þórdís, dóttir Guðrúnar,
minntist þess að þau Melkotshjónin komu alltaf í
jólaboð á Vegamótastíginn á jóladag, þegar hún var
barn. Á gamlárskvöld fór hún svo með foreldrum sín-
um í Melkot og þar spiluðu þau alla nóttina ásamt
Sigríði, Guðjóni og Dóra sem komu ofan úr Laxnesi.
Þau Guðrún Skaptadóttir og Davíð maður henn-
ar fengu alla tíð leigugjald af Úteynni í Laugardal,
sem Guðrún fékk í arf eftir ömmu sína. Gjaldið var 5
lömb hvert haust, og þau saltaði Davíð ofan í tunnu.
Guðrún Skaptadóttir lést 18. maí 1937 síðust syst kina
sinna.
Afkomendur
Alls sýnist mér Skapti hafa átt ellefu börn, átta kom-
ust upp. Ég hef aðeins getað rakið afkomendur frá
tveim þeirra. Það eru Guðríður af fyrra hjónabandi
og Guðrún af seinna hjónabandi. Guðríður gift-
ist Jóni Þorvarðarsyni presti og prófasti í Hvammi
og Reykholti. Öll þrjú börn þeirra Anna, Skapti og
Guðný, áttu afkomendur og eru margir frá þeim kom-
in, m.a margir Skaptar.
Tvö börn Guðrúnar komust upp, Skapti og Þórdís.
Frá þeim er einnig kominn stór hópur afkomenda.
Hér með lýkur þessari samantekt minni á þeim
merka manni Skapta Skaptasyni sem auk þess að
leggja sitt lóð á vogarskálarnar í vexti hins stækk-
andi bæjar, Reykjavíkur, á næstliðinni öld, var ann-
álað góðmenni og þekktur fyrir háttprýði og ein-
staka mannúð og góðsemi við hina mörgu bágstöddu
og lagði sínar líknandi og læknandi hendur á þá sem
sjúkir voru.