Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.02.2014, Qupperneq 13
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í febrúar 2014
http://www.ætt.is aett@aett.is13
þökk sé fjöllyndi Ásbjörns Ólafssonar langafa míns,
og að pabbi og Halldór Laxness eru fjórmenningar og
mamma og Steinn Steinar sömuleiðis. Það er nú allt í
lagi að monta sig svolítið af því.
Svo eru það frásagnir af fólkinu okkar. Annað
hvort það sem við höfum heyrt eða skráð sjálf. Þar
er nú oftast af nógu að taka. Það geta verið sögur af
foreldrum, öfum og ömmum eða langöfum og lang-
ömmum. Það þarf ekki allt að vera svo merkilegt eða
háfleygt, allt eru púslbitar í ættarsöguna. Mér þyk-
ir t.d. mjög vænt um litlu vísurnar tvær sem hann
Guðfinnur afi minn orti rétt fyrir dauða sinn, mér
finnst þær færa mig nær honum:
Minn er tregi meiri en í gær
má í raunum stikla
einum degi er ég nær
áfanganum mikla.
Mín er gengin gleðitíð
góðs hef lengi notið
mér að þrengir mæða stríð
mitt er gengi þrotið.
Svo eru það ættargripirnir sem við þurfum að
varðveita, skrá og mynda, segja sögu þeirra svo hún
varðveitist. Skrá hverjir áttu, smíðuðu, prjónuðu, ófu
o s frv. Ættargripir eru fjársjóður, hvort sem það er
silfurnæla, rokkur, kambar eða svunta.
Og þá er komið að myndunum og gömlu albúm-
unum. Hversu oft hefur maður ekki heyrt fólk segja:
„Ég vildi að ég hefði spurt, nú er enginn lengur til
þess að spyrja.“ Munum að fara mjúkum höndum
um gömlu albúmin, merkja allar gamlar myndir með
nafni, ártali og stað ef hægt er. Myndir eru ómetanleg-
ur fjársjóður.
Þá eru það skjölin. Í þeim finnum við ómældan
fróðleik hvort sem um er að ræða dagbækur, sendi-
bréf, minnismiða, líkræður, húskveðjur eða opinber
skjöl eins og skírnar-, giftingar- og dánarvottorð. Þar
er okkar saga skráð.
Svo er ekki úr vegi að skrá sjúkdóma og krank-
leika sem fylgja ættinni. Það getur komið komandi
kynslóðum til góða.
Hvernig væri að taka líka saman alla sem eru
þremenningar eða fjórmenningar við okkur?
Já, segið þið svo að það sé ekki af nógu að taka.
Munum að allt verður saga í fyllingu tímans og
það er okkar að varðveita hana og færa hana kom-
andi kynslóðum. Því hvað er betra en traustar rætur í
ölduróti lífsins?
15. Hör ur Björnsson
f. 1989 nemi í Reykjavík
14. Björn Traustason
f. 1967, rafi nfræ ingur Reykjavík.
13. Trausti Björnsson
f. 1943, kennari Reykjavík
12. Björn Gu finnsson
f. 1905 d.1950, prófessor Reykjavík.
11. Gu finnur Jón Björnsson
f. 1870 d.1942, b. Litla-Galtardal Fellstr. Dal.
10. Björn Ólafsson
f. 1845 d. 1890, b. Orrahóli, Stóru-Tungu og Ytrafelli
9. Ólafur Björnsson
f. 1821 d. 1898, b. Hla hamri, Kollsá, Hún. og Stóra-Galtardal, Dal.
8. Björn Björnsson
f. 1780 d. 1827, b. Hrútatungu og Orrastö um, Hún.
7. Björn Ólafsson
f. 1727 d. 1816, b. Hóli Sæmundarhlí , Skag.
6. Ólafur Tumason
f. 1692 d. 1747, b. Sy ri-Ey
5. Tumi orleifsson
f. 1659 d. eftir 1708 b. Torfalæk
4. orleifur Ólafsson
f. 1605 b. og smi ur Köldukinn í Ásum nor ur.
3. Ólafur Halldórsson
f. 1570 d. 1614 prestur Sta Steingrímsfir i
2. Halldór Sigur sson f. 1530 b. Eyrarlandi Eyjafir i.
1. Sigur ur Sturluson f. um 1500 b. Núpufelli
Karlleggur
í
500 ár
Hnithögld-hornhögld
Hnithagldir þessar eru úr hrútshorni og hnitaðar sam-
an þannig að annar endinn gengur gegnum gat á hinum
og hak hindrar að hagldirnar opnist. Á högldunum er
stafurinn i. Þær eru smíðaðar af Jóhannesi Þórðarsyni
b. á Einfætingsgili í Bitru. Foreldrar hans voru Þórður
Jónsson b. í Heydal í Hrútafirði og k.h. Lilja Dalíla
Jónsdóttir frá Kollsá. Jóhannes var fæddur 1. jan. 1833,
d. 4. mars 1888. Kona hans var Elín Guðmundsdóttir
frá Einfætingsgili í Bitru. Þau Jóhannes og Elín fluttust
árið 1860 frá Einfætingsgili að Ballará á Skarðströnd
og síðar að Stakkabergi á Fellsströnd þar sem Jóhannes
bjó til æviloka. Jóhannes var langafi Björnfríðar
Elimundardóttur húsfreyju að Björnólfsstöðum í
Langadal Húnavatnssýslu, en hún var fædd á Stakkabergi
á Fellsströnd. Hún gaf mér hagldirnar árið 1971.
(Guðfinna Ragnarsdóttir)
Nýir félagar
Jóhanna María Jóhannsdóttir, skrifstofustjóri,
Bergstaðastræti 76, 101 Reykjavík.
Netfang: mariaj@hi.is
Úlfar Antonsson, framkvæmdastjóri,
Ránargötu 5, 101 Reykjavík.
Egill Héðinn Bragason Barmahlíð 2,
550 Sauðárkróki, kt. 080357-4199,
netfang: egillhedinn@hotmail.com
Áhugasvið: Eigin ættir og almenn ættfræði.
Gunnar Svavarsson, garðyrkjumaður,
Engihjalla 21 200 Kópavogi, áhugamál:
Saga Kópavogs, húnvetnskar ættir o. fl.