Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.02.2014, Page 14
14http://www.ætt.is
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í febrúar 2014
aett@aett.is
Hjónin Jón Jónsson og Ástríður Bjarnadóttir
bjuggu í Hvammsdalskoti í Saurbæjarsveit á of-
anverðri átjándu öld og þar gæti Jón hafa andast
um 1792. Víst er um það að hann var látinn mann-
talsárið 1801, því þá var Ástríður Bjarnadóttir í
húsmennsku á Þverdal í Saurbæjarsveit, sögð 48
ára, ekkja. Hún átti heima á Brekku í Gilsfirði frá
1823 eða fyrr til æviloka 19. okt. 1834. Mun hún
þá að einhverju leyti hafa verið í skjóli yngsta
sonar síns sem var þar í vinnumennsku á þess-
um árum.
Ættatölur tilfæra Jóni auknefnið ,,á báðum fót-
um“ sem væntanlega verður best skýrt með því, að
hann hafi þótt mikill á lofti. Ástríður er sögð ,,fróm
og guðhrædd, vel [að sér] í andlegu“ við húsvitjun í
Garpsdalssókn í mars og apríl 1827. Annars fer litlum
sögum af þeim hjónum. Börn áttu þau ekki færri en
fimm sem nafngreind eru í ættatölum. Þessi voru börn
Jóns og Ástríðar:
1) Guðrún Jónsdóttir, f. um 1777, d. 19. des. 1838
í Skarðsþingum í Dalasýslu, gift Þórði Péturssyni
bónda í Miklagarði í Saurbæjarsveit. (Sjá Dalamenn
II, bls. 416). - Hér mun vera um að ræða Guðrúnu
Jónsdóttur sem var í vinnumennsku í Hvammsdal í
Saurbæjarsveit 1801, sögð 24 ára.
2) Jónas Jónsson, f. um 1778, d. 28. maí 1840 í
Litlu-Ávík í Árneshreppi, bóndi í Litlu-Ávík, kvænt-
ur fyrr (18. júlí 1802) Sesselju Jónsdóttur, síðar (18.
júlí 1813) Jóhönnu Gottfreðlínu Jónsdóttur, átti einnig
barn með Ingibjörgu Guðmundsdóttur. (Sjá Dalamenn
III, bls. 139 og Strandamenn, bls. 482-483). - Jónas
var vinnumaður í Árnesi í Trékyllisvík 1801. Hann
var einn af lífvörðum Jörundar hundadagakonungs.
Um Jónas og afkomendur hans er fjallað ítarlega í
tiltölulega nýútkominni bók sem nefnist Lífvörður
Jörundar hundadagakóngs - Sagan af Jónasi Jónssyni
bónda í Litlu-Ávík á Ströndum konum hans og börn-
um (Vestfirska forlagið Brekku í Dýrafirði, 2008).
Guðmundur Sigurður Jóhannsson:
Um börn hjónanna
Jóns Jónssonar og Ástríðar Bjarnadóttur
í Hvammsdalskoti í Saurbæjarsveit
3) Anna Margrét Jónsdóttir, f. um 1782, d. 10.
júlí 1846 á Staðarhöfða á Akranesi, gift (24. okt. 1819)
Jónasi Pálssyni húsmanni á Eyri í Svínadal 1840. Átti
áður barn með Nikulási Sigurðssyni bónda Orrahóli
á Fellsströnd. (Sjá Borgfirzkar æviskrár VI, bls. 384
og Dalamenn II, bls. 157-158). - Anna Margrét var
vinnukona í Galtardalstungu á Fellsströnd 1801.
4) Guðrún Jónsdóttir, f. um 1788, d. 9. ágúst 1862
í Teinahring á Hellissandi, gift (20. sept. 1809) Þórði
Bjarnasyni húsmanni á Hellissandi. (Sjá Dalamenn
III, bls. 244). - Hér mun vera um að ræða Guðrúnu
Jónsdóttur sem var í fóstri á Akri í Hvammssveit
1801, sögð 13 ára.
5) Jón Jónsson, f. um 1793, d. 1. nóv. 1862
í Gautsdal í Geiradal, bóndi á Ingunnarstöðum
í Geiradal, kvæntur (10. ágúst 1844) Geirlaugu
Jónsdóttur, átti áður börn með Guðrúnu Jónsdóttur,
Kristínu Bjarnadóttur og Valgerði Magnúsdóttur, eitt
með hverri. (Sjá Skyggir skuld fyrir sjón I, bls. 57).
- Jón var hjá móður sinni á Þverdal 1801. Ætt hans
er rangt rakin í Skyggir skuld fyrir sjón I, bls. 57 og
í Ættum Austur-Húnvetninga III, bls. 812-813, en í
báðum þessum ritum er honum ruglað saman við aðra
menn. (Sjá Fréttabréf Ættfræðifélagsins 5. tbl. 18.
árg., í okt. 2000, bls. 21).
Helstu heimildir: Borgfirzkar æviskrár VI, bls.
384; Dalamenn II, bls. 157-158 og 408 og 416 og
III, bls. 131-132, 139 og 244; Strandamenn, bls. 482-
483; Skyggir skuld fyrir sjón I, bls. 57; Lífvörður
Jörundar hundadagakóngs - Sagan af Jónasi Jónssyni
bónda í Litlu-Ávík á Ströndum konum hans og börn-
um, 1-80; Ættir Austur-Húnvetninga III, bls. 812-
813; Fréttabréf Ættfræðifélagsins 5. tbl. 18. árg., í
okt. 2000, bls. 21; Ættatölub. Jóns Espólíns, 404 og
3100-3101; Ættatölub. Ólafs Snóksdalíns, 18, 162
og 310; kirkjubækur og manntöl; umsögn Þorgerðar
Sigurgeirsdóttur húsfreyju í Kópavogi.
Munið aðalfundinn
fimmtudaginn 27. febrúar!
Allir velkomnir!
Finnið nýja félaga!
Ættfræðifélagið hvetur félaga sína til þess að safna
nýjum félögum. Meðalaldur félagsmanna hækkar
stöðugt og margir falla frá. Við þufum nýja félaga
og áhugasama, sem eru reiðubúnir að leggja sitt af
mörkum til þess að halda Ættfræðifélaginu gang-
andi og virku.