Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.02.2014, Side 15
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í febrúar 2014
http://www.ætt.is aett@aett.is15
Sæl Guðfinna,
Það er alltaf fróðlegt að lesa Fréttabréfið, og í þetta sinn
kannaðist ég við eitt sem mér fannst áhugavert. Á meðan
ég var að lesa greinina um Sigríði Hansdóttur, fór ég að
kannast við nöfn, en í Gimlunga Sögu hef ég skrifað smá
þátt um Guðlaugu Helgu Þorleifsdóttur og hennar æfi...
Hér með sendi ég giftingarmynd af henni og
Sigurði Frímanni Sigurðssyni (Sigurði Freeman).
Ég kynntist lítillega Mary Stewart, dóttur Guðlaugar
Helgu, fyrir nokkrum árum þegar ég var í heimsókn
til Calgary. Hún var þá rúmlega níræð og mjög skörp,
en er nú látin. Flest systkina hennar höfðu dáið ung úr
berklaveiki. Áhugavert er að ein dóttir hennar er prófess-
or við Simon Fraser Háskólann í British Columbia.
Kveðja
Nelson Gerrard
Hér vitnar Nelson Gerrard til greinar Þórhildar
Richter um Sigríði Hansdóttur sem birtist í 4. tbl.
Fréttabréfs Ættfræðifélagsins 2013. Þar segir frá Sigríði,
sem var dæmd sem fáráðlingur, og dætrum hennar með-
al annars Guðlaugu Helgu Þorleifsdóttur, sem fór til
vesturheims. (bls 15, hægri dálkur). Hér kemur fram að
dótturdótturdóttir Sigríðar er í dag prófessor við Simon
Fraser Háskólann í British Columbia. (Ritstjóri)
Úr Gimlunga Sögu (óútkominni): „XIX.
Sigurður Frímann Sigurðsson (Siggi Freeman),
var fæddur að Blikalóni á Melrakkasléttu á norð-
anverðu Íslandi 14. apríl 1872. Foreldrar hans
voru Guðrún Guðmundsdóttir, hálfsystir Skúla og
Halldórs, og eiginmaður hennar Sigurður Ólafsson.
Hann kom til Kanada 1876, fjögurra ára að aldri,
með móður sinni og Guðnýju systur sinni. Sigurður
Frímann bjó með frændum sínum í Bræðraborg og
Dvergasteini í Nýja Íslandi, fluttist síðan með þeim til
Argylehéraðs 1881. Aðeins níu ára að aldri hjálpaði
hann við að reka nautahjörð frá Nýja Íslandi til hinna
nýju heimkynna. Leiðin lá um Portage la Prairie og
Pilot Mound. Hann ólst upp í Argylehéraðinu og þar
fermdi séra Hafsteinn Pétursson hann 1890 og þar
átti hann heima til nítján ára aldurs, varð vel þekkt-
ur frjálsíþróttamaður og spretthlaupari. Hann hafði þó
ekki tök á að ganga í skóla.
Eftir að hafa flust til Winnipeg giftist hann
18. nóvember 1897, Guðlaugu „Laugu“ Helgu
Þorleifsdóttur frá Steinýjarstöðum á Skagaströnd,
dóttur Þorleifs Frímanns Björnssonar og Sigríðar
Hansdóttur. Guðlaug, sem ólst upp með móður sinni til
ellefu ára aldurs, var árið 1889, þá tólf ára gömul, send
til Kanada. 1903 sendu þau Sigurður peninga til móður
hennar svo að hún kæmist til þeirra til Kanada og þar
bjó síðan móðir hennar með fjölskyldunni til 1926 er
hún flutti á Betel í Gimli. Þar lést hún 5. febrúar 1927.
Bréf frá Nelson Gerrard
Siggi og Lauga Freeman stunduðu garðyrju með
góðum árangri í Charleswood (Winnipeg) í nokk-
ur ár en árið 1915 ákváðu Siggi og tveir vinir hans
að taka á leigu land og setja á fót minnkabú við
Manitobavatn. Þeir settust að á strönd vatnsins nálægt
mynni Fairford árinnar ekki langt frá Fairford Station.
Um 1921 þegar Halldór sonur Sigurðar og Guðlaugar
hafði náð tilskildum aldri og mátti stofna eigið bú,
fluttist Freeman-fjölskyldan 25 mílur norður af Davis
Point á mjög afskekktan stað norðan við stöðina, 16
mílur frá næsta pósthúsi. Þeir kölluðu staðinn „God’s
Country“. Þar ráku þeir lítið bú í fimm mílna fjar-
lægð frá heimili vinar Sigurðar, Barney Sigurdson,
sem einnig hafði flust þangað. 1925 fluttu Sigurður
og Guðlaug Freeman aftur til Winnipeg og settust
að í Charleswood, þar sem Sigurður dó 21. septem-
ber 1951. Guðlaug lést á heimili dóttur sinnar Mary í
Medicine Hat, Alberta, 4. júlí 1955.
Sigurður og Guðlaug Freeman áttu sex börn. Flest
þeirra dóu úr berklum á besta aldri. Börn þeirra voru:
A) Margret Guðrun Freeman, f. 7. nóv. 1898 í
Winnipeg, d. 14. október 1930 í Ninette, Man.
B) Sigrun Freeman, f. 23. september 1899, d. 9.
mars 1926 í Charleswood.
C) Halldor Sigurdsson Freeman, f. 24.desember
1902 í Winnipeg, giftist Jess Standly og bjó í
Charleswood, fluttist síðar til Vernon, BC, d. í
nóvember1969.
D) Skuli Freeman, f. í febrúar 1906, giftist og bjó í
Charleswood, d.1948.
E) Maria „Mary“ Sesselja Ingibjörg Freeman,
f. 29 júlí 1911, giftist Archie Stewart frá Warren,
Manitoba, d.1971. Mary bjó í Calgary og náði háum
aldri. Ein dóttir hennar er prófessor við Simon Fraser
University í BC.
F) Haraldur Freeman, f. 1915, dó í Fairford 19.
apríl 1917.
Hér má sjá giftingarmynd af Guðlaugu Helgu Þorleifs-
dóttur, yngstu dóttur Sigríðar Hansdóttur, og manni
hennar Sigurði Frímann Sigurðssyni.