Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.02.2014, Síða 18
18http://www.ætt.is
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í febrúar 2014
aett@aett.is
hennar og manns hennar Guðna Guðmundssonar prests
á Ólafsvöllum. Fósturdóttirin hét Þórdís Bjarna dóttir
bónda og hreppstjóra Símonarsonar í Laugardælum.
Það var að Kílhrauni til þeirra Jóns og Þórdísar
sem Wilhelm Bernhöft sendi litlu dóttur sína hana
Hallberu, tveggja til þriggja ára gamla og fól Jóni að
ala hana upp. Þar steig Wilhelm mikið gæfuspor dótt-
ur sinni til handa. Í Kílhrauni og síðar í Skeiðháholti,
sem þau Jón og Þórdís keyptu 1869, ólst Hallbera upp
við ástríki og mjög gott atlæti. Heimilið var talið mesta
myndarheimili. Hallbera er í mt 1870 kölluð uppeld-
isbarn þeirra hjóna. Sjálf eignuðust þau hjónin fimm
börn en aðeins tveir synir lifðu, Bjarni og Guðni.
Ekki í kot vísað
Jón var talinn nokkuð ráðríkur en jafnframt framsýnn
og úrræðagóður, frjálslyndur í skoðunum, hafði góð-
ar gáfur og kunni að beita þeim. Hann var vel efn-
aður, hreppstjóri í 36 ár, oddviti fram að níræðu,
varaþingmaður Árnessýslu 1858, sæmdur danne-
brogsorðunni 1896, silfur- og koparsmiður eins og
faðir hans, talaði nokkra ensku og var leiðsögumaður
erlendra ferðamanna.
Það var því ekki í kot vísað fyrir litlu Hallberu. Jón
hélt mikið upp á telpuna og gerði vel við hana. Hún
tók einnig miklu ástfóstri við þau hjónin og skírði tvö
barna sinna Þórdísi og Jón í höfuðið á þeim. Einnig
skírði hún elsta son sinn Guðna í höfuðið á Guðna
uppeldisbróður sínum. Jón dó 1907 tæplega 93 ára.
Þórdís dó 1893.
Hallbera giftist Eiríki Magnússyni bónda á
Votamýri. Þau Eiríkur og Hallbera eignuðust fimm
dætur og sex syni. Eina dóttur sína skírði Hallbera
Sigríði og aðra Vilhelmínu. Þar voru þá komnir for-
eldrar hennar.
Sótti börnin
Á Votamýri átti Hallbera mjög gott líf og var sátt við
sitt hlutskipti. Samferðamaður þeirra hjóna sagði að
það hefði verið gaman að fylgjast með þeim, þau voru
svo hamingjusöm, alltaf eins og nýtrúlofuð.
Hallbera var afar nærfærin og mun hafa tekið
á móti fjölda barna í sveitinni, m.a. flestum barn-
anna á Brjánsstöðum, sem urðu alls átján. Eitt
Brjánsstaðasystkinanna sagði að heimilið hefði fyllst
öryggi og ró þegar Hallbera var komin til þess að taka
á móti börnunum.
En Jón fóstri Hallberu var eins og áður sagði stjórn-
samur maður og þegar seint gekk hjá Bjarna syni hans
og tengdadótturinni Guðlaugu Lýðsdóttur að eign-
ast börn, brá Jón sér upp að Votamýri til Hallberu
sinnar og sótti nafna sinn Jón, þá þriggja ára, og
Vilhelmínu nýfædda! Ekki væsti um börnin þar enda
Guðlaug alin upp á því mikla menningarheimili Hlíð
í Gnúpverjahreppi. Þar komu við sögu bæði Einar
Jónsson myndhöggvari og Dr. Helgi Péturs.
Hér má sjá Wilhelm Bernhöft ásamt hinni dönsku eig-
inkonu sinni Johanne Louise Bertelsen.
Wilhelm og Johanne eignuðust níu börn á ellefu árum. Þrír bræður fluttu til Ameríku. Hér eru Fransiska, Wilhelm,
Marie, Daniel, Wilhelmina og Lucinda.