Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.02.2014, Page 21
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í febrúar 2014
http://www.ætt.is aett@aett.is21
Hann heitir Benedikt Kolbeinsson, hann er bóndi
á Votamýri á Skeiðum, þar sem hann mjólk-
ar daglega um 40 kýr, ásamt konu sinni Línu,
sem heitir fullu nafni Sigurlín Grímsdóttir og
er listmálari og hestamaður. Á haustin bregður
hann sér í stóðréttir norður yfir heiðar og kaup-
ir nokkur folöld sem hann elur og temur sér til
gamans. Hann er áttundi ættliðurinn á bænum
og á frændur á öðrum hverjum bæ á Skeiðunum.
Samt ætlaði hann aldrei að verða bóndi.
Það er fallegur miðsvetrardagur þegar við renn-
um í hlað á Votamýri. Rennislétt Skeiðin breiða úr sér
til allra átta og í háaustri gnæfir Hekla snæviþakin.
Í suðaustri dormar Eyjafjallajökull og hvílir sig eft-
ir síðustu átök við eldinn, sem alls staðar er nærri á
þessum slóðum. Undir meirihluta Skeiðanna breiðir
Þjórsárhraunið úr sér, víðast hvar hulið sléttum víð-
áttumiklum túnum. Stöku hraunnibba gægist upp hér
og þar með mosabreiðum og kjarri.
Þau eru nýkomin úr fjósinu, þar er starfssviðið
kvölds og morgna allan ársins hring. En á milli gefst
næði til ýmissa annarra starfa sem eru mörg á stóru
búi þar sem aðeins eru tveir til að sinna öllu. Það er af
sem áður var þegar heimili voru mannmörg og oftast
tveir í hverju rúmi.
Bóndinn Benedikt Kolbeinsson á sér traustar rætur
á Votamýri. Hann er 8. ættliðurinn á bænum. Forfeður
hans hafa byggt þesa jörð samfellt í um 260 ár.
Votamýri er önnur elsta ættarjörðin á Skeiðunum. Árið
1756 flutti þangað Hróbjartur, langalangalangalanga-
langafi Benedikts, sonur Hannesar í Seljatungu, og
síðan hafa afkomendur hans búið þar sleitulaust.
Bróðir Hróbjarts var Kolbeinn sem kallaður var
söguskrifari. Sólveig (1759-1846) dóttir Hróbjarts bjó
á Votamýri ásamt manni sínum Guðmundi Bjarnasyni
frá Blesastöðum. Bjarni Jónsson frá Blesastöðum f.
1717, var sonur Jóns Jónssonar sem kallaður var
„rauður“ og bjó í Fjalli á Skeiðum 1703 og 1729.
Smiður og organisti
Næsta kynslóð var Sigurður, sonur Sólveigar og
Guðmundar, (1789-1869). Sigurður þótti ansi drjúgur
með sig Það sama var að segja um son hans Magnús
(1835-1923), sem var 4. ættliðurinn á Votamýri. Hann
tók við búinu ásamt konu sinni Guðrúnu, sem var dóttir
Eiríks yngra dannebrogsmanns frá Reykjum á Skeiðum.
Með Magnúsi bjó um tíma bróðir hans Sigurður, og
sagan segir að hann hafi farið langt með að drekka út
ættaróðalið. Sigurður fór síðar til Ameríku.
Síðan tók við 5. ættliðurinn, sonur Magnúsar,
Eiríkur, (1860-1940) ásamt konu sinni Hallberu
Vilhelmsdóttur Bernhöft sem fædd var á Hólmi ofan
við Reykjavík. Þau bjuggu á Votamýri 1887-1918.
Sonur þeirra og afi Benedikts, Guðni Eiríksson (1888-
1977) tók þá við búinu ásamt konu sinni Guðbjörgu
Kolbeinsdóttur húsfreyju og kennara. Áður hafði
hann búið bæði á Álfsstöðum og Miðbýli á Skeiðum.
Guðni var 6. ættliðurinn og bjuggu þau hjón-
in á jörðinni frá 1918 til 1975. Eiríkur og Hallbera
arfleiddu svo Eirík Guðnason, sonarson sinn, sem þau
höfðu alið upp, að hálfri Votamýrinni, sem eftir það
kallast Votamýri II, og varð hann því sá 7. í ættarröð-
inni. Eiríkur Guðnason (1915-2002) var föðurbróð-
ir Benedikts. Hann var, auk þess að vera bæði bóndi
og smiður, organisti í Ólafsvallakirkju í yfir 40 ár og
stjórnaði þar kirkjukórnum. Hann hafði lært á org-
el hjá þeim bræðrum Sigurði og Páli Ísólfssonum og
síðar hjá Hauki Guðlaugssyni.
Benedikt „áttundi“
Svo rekur Benedikt sjálfur lestina, frá 1975, á gömlu
Votamýrinni, tók við af afa sínum, sá 8. í ættarröð-
inni.
Það segir fátt af fyrstu bændunum en sögunum
fjölgar þegar kemur að Magnúsi langalangafa Bene-
dikts. Hann var um margt sérstakur, átti heil ósköp af
börnum og var lengst af mjög fátækur en bar sig vel
og var alltaf drjúgur í frásögnum. Kallaði sig oft ríka
manninn á Þjórsárbökkum.
Einhverju sinni var hann á leið í kaupstað, mætti
ókunnum manni, og bað hann að gefa sér í staup-
inu. Kvaðst vera í stökustu vandræðum því tveir
vinnumenn sínir væru farnir á undan sér með lestina
og ull á tólf hestum og brennivínskútinn sömuleið-
Guðfinna Ragnarsdóttir:
Átta ættliðir á Votamýri á Skeiðum
Benedikt Kolbeinsson, Benedikt „áttundi“, bóndi á
Votamýri í mjaltagryfjunni.