Safnablaðið Kvistur - 01.11.2014, Síða 41

Safnablaðið Kvistur - 01.11.2014, Síða 41
FRETTIR UR SAFNAHEIMINUM Höklcuð söfn? MuseumHack er fyrirbæri sem nýtur sívaxandi vinsælda vestanhafs. Um er að ræða sérstalcar leiðsagnir um Metropolitan-safnið og Náttúruminja- safnið í New York. Leiðsagnirnar eru mjög óhefðbundnar en fólkið sem stendur að baki MuseumHack lýsir sér sem uppreisnargjörnum leiðsögumönnum sem leiða gesti sína í gegnum söfnin með ástríðufullum frásögnum og jafnvel safarílcu slúðri! Skoðið nánar á www.museumhack.com Bók um Húsið Fá hús á íslandi geta státað af því að um þau hafi verið skrifuð bók. Húsið á Eyrarbaklca er nú komið í þann flokk því Byggðasafn Árnesinga hefur gefið út rit Lýðs Pálssonar í máli og myndum helgað sögu þess og íbúa. Húsið var byggt 1765 og verður því 250 ára á næsta ári. Handhæg norsk leiðbeiningarrit Norðmenn hafa verið virlcir í útgáfu leiðbeingarrita um hvernig best verði unnið í safnastarfi. Meðal efnis ritanna er skipulag safnastarfs, sam- starf slcóla og safna, forgangsröðun í byggingarvernd, staðlar fyrir staf- ræna eftirgerð ljósmynda og ástands- mat safnkosts í söfnum. Ritin eru öll aðgengileg til niðurhals á netinu. Sjá www.kulturradet.no/publikasjoner Afslappað náttúruminjasafn í Kaupmannahöfn í bígerð er nýtt safn undir náttúruminjar í Kaupmannahöfn. Gamla safnið, sem verið hefur á þremur stöðum, á nú að sameina undir einn hatt í nýrri byggingu í bótaníska garðinum. Á heimasíðu safnsins er hægt að skoða stefnumótun og annan undirbúning fyrir sýningargerð. Athyglisvert er að fyrsta setning í markmiðum safnsins er að búa til safn sem er „afslappende, og hvor man nyder at være“ eins þeir segja. Reiknað er með að nýja safnið verði opnað 2017. Til fyrirmyndar er að allar hugmyndir sem nýja safnið varða eru aðgengilegar á heimasíðunni, www.nyt.snm.ku.dk Manntalið 1703 á skrá UNESCO Manntalið 1703 er líklega elsta varðveitta manntal heimsins þar sem allra þegna heillar þjóðar er getið með nafni, aldri og stöðu. Það hefur nú verið skráð á lista UNESCO um minni heimsins (World Memory). Hægt er að fræð- ast meira um skráninguna á vefsetri UNESCO www.unesco.org. 41 L

x

Safnablaðið Kvistur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Safnablaðið Kvistur
https://timarit.is/publication/1310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.