Kraftur - 01.01.2015, Page 5
5
Kraftur
1. tbl. 2015
Samstarf Krafts
og Atlantsolíu
Viðtal
Atlantsolía hefur lengi reynst Krafti haukur í horni og er
skemmst að minnast myndarlegs styrks sem fyrirtækið veitti
félaginu til að gera því kleift að halda styrktartónleika s.l.
haust þar sem allur ágóðinn rann í Neyðarsjóð Krafts.
Nú hafa Atlantsolía og Kraftur gert með sér nýjan sam-
starfssamning sem felur í sér umtalsverðan ávinning fyrir
félagsmenn Krafts. Þeir sem sækja um dælulykil í gegnum
heimasíðu Kraft fá sex króna afslátt af hverjum eldsneytislítra
auk þess sem tvær krónur af hverjum keyptum lítra ganga
beint til félagsins. Að auki styrkir Atlantsolía Kraft með því að
mæta með grillbíl fyrirtækisins á Sumargrill Krafts og gefur
allar veitingar.
Guðrún Ragna Garðarsdóttir er forstjóri Atlantsolíu. Hún er
viðskiptafræðingur að mennt og stundar nú MBA nám í HÍ
með fullri vinnu. Atlantsolía er minnsta olíufélagið hér á landi
en án efa það félag sem viðskiptavinirnir eru hvað ánægðastir
með sem marka má af því að fyrirtækið hefur skorað hæst
allra olíufélaganna í Ánægjuvoginni sem mælir ánægju
viðskiptavina þeirra. Það kemur e.t.v. ekki á óvart þar sem
félagið leggur mjög mikla áherslu á góða þjónustu og hefur að
auki lagt mörgum góðum málefnum lið, eins og Kraftur getur
sannarlega vitnað um.
„Atlantsolía – fyrirtæki sem
fólk er ánægt með“
„Atlantsolía er lítið fyrirtæki sem aðeins 18 manns vinna hjá
og þar af leiðir að allar boðleiðir eru mjög stuttar. Við erum
afar heppin með starfsfólk sem margt hvert hefur unnið
hér um árabil auk þess sem allir leggja mikið á sig og starfa
sem einn maður með það að aðalmarkmiði að veita góða
þjónustu. Ætli það geti ekki verið lykillinn að því hversu
ánægðir viðskiptavinir okkar eru,“ svarar Guðrún þegar hún
er spurð um ástæðuna fyrir ánægju viðskiptavina Atlantsolíu.
„Þetta er e.t.v. sérstaklega ánægjulegt í ljósi þess að við
erum ekki í beinum samskiptum við viðskiptavini okkar á
meðan viðskipti fara fram þar sem allar okkar stöðvar eru
sjálfsafgreiðslustöðvar.“
Að sögn Guðrúnar eru afgreiðslustöðvar Atlantsolíu nú
orðnar 19 að tölu um land allt og því með góðu móti hægt
að komast landshornanna á milli og eiga alltaf viðskipti við
fyrirtækið. „Við vildum þó gjarnan geta sett upp fleiri stöðvar
í Reykjavík en eins og staðan er nú vill Reykjavíkurborg ekki
fjölga bensínstöðvum. Við reynum því þess í stað að veita sem
allra besta þjónustu,“ segir hún og getur þess að stærstur hluti
viðskiptavinanna séu einstaklingar. „Neytendur eru orðnir
vanir þessu sjálfsafgreiðslukerfi og svo er fólk líka ánægt með
að þurfa ekki að nota kort og lykilorð – heldur aðeins bera
lykilinn að dælunni og fá síðan senda kvittun í tölvupósti.“
Aðspurð um góðgerðarmálin segir Guðrún það stefnu
Atlantsolíu að styrka lítil góðgerðarfélög og minna þekkt;
félög sem e.t.v. eru ekki eins sýnileg og önnur. „Við teljum það
samfélagslega skyldu okkar að leggja góðum málefnum lið og
Kraftur er dæmigert góðgerðarfélag sem við teljum ástæðu til
að styrkja. Okkur þótti t.d. sérstaklega ánægjulegt að leggja
styrktartónleikunum ykkar lið af því ágóðinn fer í Neyðarsjóð
Krafts til að styrkja krabbameinsveikt fólk,“ segir Guðrún að
lokum.
Kraftur þakkar af alhug velvilja Atlantsolíu og hvetur alla til
þess að skrá sig fyrir dælulykli í gegnum heimasíðu félagsins
www.kraftur.org og styrkja þannig Kraft og fá að auki góðan
afslátt af eldsneyti á ökutækið.
Guðrún Ragna Garðarsdóttir, forstjóri Atlantsolíu
Ljósmynd: Birgir Isl. Gunnarsson.