Kraftur - 01.01.2015, Blaðsíða 12
12
Kraftur
1. tbl. 2015
Sigurður Jón Sigurðsson, þrítugur viðskiptafræðinemi
og sjómaður, fékk höfuðverk og fannst hann svolítið
þungur, síðustu vikurnar í námi sínu í viðskiptafræði
við Háskólann að Bifröst sumarið 2013. Líklega grunaði
hann síst af öllu að þessi einkenni stöfuðu af krabba-
meinsæxli sem tekið hafði sér bólfestu í höfði hans. Sú
var samt raunin. Sigurður og móðir hans, Guðrún Jóna
Sæmundsdóttir, tóku þessum fréttum ekki vel í fyrstu, og
lái þeim hver sem vill, en saman ákvað fjölskylda Sigga
að takast á við þetta verkefni með bjartsýnina, baráttu-
gleðina og húmorinn að leiðarljósi. Og víst er að þessi
samheldna fjölskylda er staðráðin í að klára þetta.
Siggi, sem svo er oftast kallaður, og mamma hans leituðu
víða eftir baráttuaðferðum við meininu og hafa ekki alltaf
farið hefðbundnar leiðir – hvað þá óumdeildar. Hér kemur
saga þessa bjartsýna fólks.
„Við héldum að þetta væri bara ofþreyta; ég yrði að hvíla
mig eftir langvarandi álag í skólanum. Engum datt neitt
annað í hug – enda var ég í erfiðu námi og vann á sjónum
á sumrin og lítið um frídaga. Ég ákvað því að taka mér frí
frá skólanum, taka nokkra túra á sjónum og fara í smá frí
til Thailands áður en ég færi aftur á sjóinn. Eftir að ég kom
þaðan fór ég að finna til höfuðverkjar og í nóvember 2013
fór ég að veikjast illa af þessum kvillum. Ég gekk á milli
lækna og m.a fór ég á bráðamóttökuna og var sendur heim
með þá sjúkdómsgreiningu að þetta væri sennilega skæður
víris sem væri að ganga. Þann 6. desember sama ár var ég
greindur með krabbamein í heila,“ segir Siggi aðspurður
um upphafið og stýrkur sér um kollinn sem er merkilega
flottur eftir hremmingar undanfarinna missera. Undir þetta
tekur móðir hans og staðfestir að þau hafi aldrei grunað að
þetta væri eins alvarlegt og síðar kom í ljós.
„Eftir sneiðmyndatöku var okkur sagt að það hefði sést ein-
hvers konar fyrirstaða í heilanum sem að öllum líkindum
væri krabbamein. Engu að síður yrði að taka sýni úr þessari
fyrirstöðu í skurðaðgerð sem var ákveðin nokkrum dögum
Sigurður Jón Sigurðsson greindist með krabbameinsæxli
í heila. Í lækningarskyni notast hann m.a. við kannabisolíu.
Með húmorinn
og vonina að vopni
síðar, eða þann 10. sama mánaðar. Eftir þá skurðaðgerð kom
í ljós að ekki kæmi til greina brottnám með skurðaðgerð –
heldur yrði að ráðast gegn meininu, sem var 7 sm að stærð,
með geislum og e.t.v. lyfjum.
„Óneitanlega runnu margar
hugsanir í gegnum huga mér
þegar ég fékk sjúkdómsgrein-
inguna. Hvað mun framtíðin
bera í skauti sér, hvað með
námið, sjómennskuna og líf
mitt almennt?“
Um var að ræða svokallað blandað krabbameinsæxli af
tegund sem nefnd hefur verið ependymoma anaplas-
tic grade 3 með glioma blöndun,“ segir Guðrún. Siggi
kinkar kolli og tekur við: „Ég var miklu rólegri en mamma
og ákvað í samráði við lækninn minn að breyta ekki
þeirri ákvörðun að fara með fjölskyldunni til Tenerife
þann 22. desember. Það var löngu búið að ákveða þessa
ferð og allt klárt og því gat ég alveg eins jafnað mig þar
eftir aðgerðina og hér heima. En óneitanlega runnu
margar hugsanir í gegnum huga mér þegar ég fékk sjúk-
dómsgreininguna. Hvað mun framtíðin bera í skauti sér,
hvað með námið, sjómennskuna og líf mitt almennt?
Ætli það hugsi ekki allir um það sama þegar svona
stendur á,“ segir Siggi. Móðir hans kinkar kolli og segir alla
í fjölskyldunni hafa tekið þá ákvörðun að líta á þetta sem
ákveðið verkefni sem yrði að leysa og að lífið héldi áfram
þótt Sigurður væri með æxli í heilanum.
Viðtal