Kraftur - 01.01.2015, Blaðsíða 20
20
Kraftur
1. tbl. 2015
Einn desemberdag fyrir þremur árum sat ungur fjöl-
skyldufaðir í Hafnarfirði, Örvar Þór Guðmundsson, og
hlustaði á viðtal í útvarpinu við unga, einstæða móður
sem sagðist ekki eiga neina peninga til að halda jólin.
Þetta viðtal snart Örvar og ákvað hann á þeirri stundu að
efna til söfnunar fyrir ungu móðurina. Hann virkjaði vini
sína á Facebook sem gáfu peninga í söfnunina með þeim
góða árangri að hin unga móðir gat haldið gleðileg jól
með sínum nánustu. En Örvar lét ekki þar við sitja og hóf
aftur söfnun fyrir bágstaddar fjölskyldur fyrir jólin 2013
og í það skiptið safnaði hann 1.700.000 krónum á sama
hátt og styrkti 10 fjölskyldur langveikra barna. Fyrir síð-
ustu jól hélt hann áfram á sömu braut og ákvað að styrkja
bágstadda félagsmenn Krafts. Örvar Þór er viðskiptastjóri
í prentsmiðjunni Prentmet og hefur starfað þar s.l. 20 ár,
kvæntur og þriggja barna faðir.
„Hugmyndin kom til mín fyrir jólin 2013 þegar ég áttaði
mig á því hversu margir eru fjárvana fyrir jólin og þá
einkanlega þar sem alvarleg veikindi hafa borið niður í
fjölskyldunni. Mér varð hugsað til þess hversu lánsam-
ur ég sjálfur er að eiga alla mína fjölskyldu heila og því
fannst mér sjálfsagt að reyna að verða öðrum að liði, sem
ekki eiga því láni að fagna,“ sagði Örvar aðspurður um
kveikjuna á þessum söfnunum. „Þetta átti aldrei að verða
stór söfnun í byrjun en þegar ég sá hversu vel gekk að
safna fyrir langveik börn, ákvað ég að reyna aftur að ári
og leyfa krabbameinsveiku ungu fólki að njóta – enda
hefur ekki farið fram hjá neinum hversu mikill kostnaður
fylgir því að sækja sér lækningu og kaupa lyf.
Ég leitaði því til Ragnheiðar Davíðsdóttur, framkvæmda-
stjóra Krafts, sem benti mér á félagsmenn Krafts sem
þurftu á hjálp að halda. Söfnunin stóð til 19. desember
og voru alls um 1700 þúsund krónur til ráðstöfunar. Við
mátum það síðan saman, eftir aðstæðum hverrar fjöl-
Hinn sanni jóla-
andi Örvars Þórs
„Hugmyndin kom til mín fyrir jólin 2013 þegar ég áttaði mig
á hversu margir eru fjárvana fyrir jólin og þá einkanlega
þar sem alvarleg veikindi hafa borið niður í fjölskyldunni“
skyldu, hvað hver þeirra fékk mikinn styrk en upphæð-
irnar voru á bilinu 75 – 175 þúsund á fjölskyldu. Þessum
fjármunum var komið til fjölskyldnanna þennan dag
sem varð okkur Ragnheiði ógleymanlegur,“ segir Örvar
og bætir við að eftir þennan eftirminnilega dag hafi aðilar
frá Hagkaupsfjölskyldunni haft samband við sig og gefið
1200 þúsund í sama tilgangi auk þess sem enn bárust
framlög í gegnum Facebook síðuna hans. „Ragnheiður
benti mér á að þeir sem sæktu endurhæfingarstarfsemi
í Ljósinu væru margir illa staddir og því varð það úr að við
Erna Magnúsdóttir, forstöðumaður Ljóssins, hringdum í
tíu fjölskyldur til viðbótar sem fengu myndarlegan styrk
fyrir jólin.“
Örvar Þór Guðmundsson er viðskiptastjóri í Prentmet
Viðtal