Morgunblaðið - 18.02.2019, Qupperneq 1
M Á N U D A G U R 1 8. F E B R Ú A R 2 0 1 9
Stofnað 1913 41. tölublað 107. árgangur
MINNIST EIGIN-
MANNSINS Á
AFMÆLINU
SKIPTIR MÁLI AÐ MIÐLA
AÐ LEYSA KRAFTA
GAGNANNA
ÚR LÆÐINGI
ÞÝÐINGAVERÐLAUNIN 27 SIGURGÍSLI MELBERG 14ÓLÖF KOLBRÚN 26
Morgunblaðið/Hafþór
Kindur Sauðfé fækkaði um 28 þúsund árið
2018 samkvæmt tölum Matvælastofnunar.
Sauðfé á Íslandi fækkaði um 28
þúsund árið 2018 eða um rúm 6%
samkvæmt bráðabirgðatölum bún-
aðarstofu Matvælastofnunar. Árið
2017 hafði sauðkindum fækkað um
18 þúsund og á þessum tveimur ár-
um hefur kindum á landinu fækkað
alls um tæp 10%. Fækkun þessi er í
samræmi við markmið búvöru-
samnings sauðfjárræktar.
Fækkun varð á þremur búfjár-
tegundum árið 2018: á sauðfé, svín-
um og loðdýrum. Samdrátturinn er
minni þar sem meira er stólað á
sauðfjárbúskap en blandaðan bú-
skap. »4
Íslensku sauðfé
fækkaði um 10%
á tveimur árum
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Rannsókn er að hefjast hér á landi á
kæfisvefni barna. Talið er að 1-5% ís-
lenskra barna þjáist af kæfisvefni og
enn fleiri af miklum hrotum sem þarf
að athuga með tilliti til áhrifa á heilsu
barnsins.
„Við höfum unnið í aðferðum til að
skilgreina betur hvenær kæfisvefn og
hrotur eru sjúkdómsástand og hve-
nær ekki er þörf á meðhöndlun,“
sagði dr. Erna Sif Arnardóttir, sem
stýrir verkefninu
af Íslands hálfu.
Erna sagði að
börn sem væru
með kæfisvefn
eða miklar hrotur
gætu sýnt ein-
kenni athyglis-
brests og of-
virkni. Þau fengju
jafnvel greiningu
í þá veru. Þau sem
væru verst sett fylgdu jafnvel ekki
eðlilegri vaxtarkúrfu og væru lítil og
grönn eftir aldri. Fengju þau rétta
meðhöndlun við kæfisvefni tækju
þau oft vaxtarkipp.
Kæfisvefni geta fylgt fleiri afleið-
ingar. Sum barnanna anda mest með
munninum og þróa með sér andlits-
fall sem verður langt og mjótt.
Kjálkavöðvarnir verða slappir og
munnholið þrengra en það ætti að
vera. Tennurnar komast ekki fyrir í
gómnum og börnin þurfa oft miklar
tannréttingar.
Kæfisvefn barna getur
haft áhrif á heilsu þeirra
Börnin geta sýnt einkenni athyglisbrests og ofvirkni
Dr. Erna Sif
Arnardóttir
MRannsaka börn … »10
Fyrstu vetrarleikar Hestamannafélagsins
Spretts fóru fram í Samskiptahöllinni í Kópavogi
í gær. Keppt er í tólf flokkum á þremur mótum
eftir kynjum, aldri og reynslustigi. Hér á mynd-
inni sést ungur knapi á mótinu, Jóhanna
Sigurlilja, og hestur hennar, Ás.
Morgunblaðið/Eggert
Ungir knapar á vetrarleikum Spretts
Sex manna
vinnuhópur
stjórnvalda og
aðila vinnumark-
aðarins mun
funda aftur í vik-
unni til að ræða
aðkomu stjórn-
valda að kjara-
deilunni. „Við er-
um búin að sjá
eitthvað tengt húsnæðismálum og
félagslegum undirboðum. Það sem
stendur út af eru skattamálin,“ segir
Drífa Snædal, forseti Alþýðu-
sambands Íslands. Samkvæmt heim-
ildum Morgunblaðsins er búist við
því að stjórnvöld tilkynni fyrirhug-
aðar skattabreytingar á næstu dög-
um. Slík tilkynning er þó háð stöðu
viðræðna milli deiluaðila. »2
Skattabreytingar
tilkynntar bráðlega
Drífa Snædal
Leit fjölskyldu og vina Jóns Þrastar
Jónssonar, sem hvarf á laugardags-
morgun fyrir um viku í Dublin, hefur
enn engan árangur borið. Þau gengu
skipulega um hverfi borgarinnar í
allsherjarleit um helgina.
„Leitin sem slík gekk bara ágæt-
lega, við náðum að komast yfir þau
svæði og markmið sem við settum
okkur fyrir daginn. Við erum svo sem
engu nær en við erum búin að dreifa
myndum og tala við marga gangandi
vegfarendur og aðra,“ segir Davíð
Karl Wiium, bróðir Jóns Þrastar. Á
bilinu 12 til 15 manns hafa leitað hans
frá því á laugardagsmorgun þegar
skipulögð leit hófst, en nokkrir hafa
leitað frá síðustu helgi.
Fjölskyldan á fund með lögregl-
unni í Dublin í
dag. „Við förum
þá yfir stöðu
mála. Ég heyri í
þeim á hverjum
degi en við ætlum
að hittast á morg-
un og fara yfir
málin og hvernig
þetta lítur allt
út,“ sagði Davíð í
gærkvöldi.
Skipulögð leit heldur áfram alla vik-
una og segir Davíð að það verði
hægt að klára fyrstu skipulögðu leit-
arsvæðin á næstu dögum. „Í kjölfar-
ið verðum við að taka stöðuna aftur.
Við höldum áfram okkar striki
þangað til eitthvað kemur í ljós.“
Leit að Jóni Þresti
engan árangur borið
Jón Þröstur
Jónsson