Morgunblaðið - 18.02.2019, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 18.02.2019, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2019 Gústaf Adolf Skúlason vekur at-hygli á því í pistli á blog.is að Frakkar vilji með nýjum skólalög- um afnema orðin faðir og móðir en nota í staðinn foreldri 1 og foreldri 2.    Gústaf segirþetta ekki frásögn úr vís- indaskáldsögu, og vísar í frétt í Daily Telegraph um málið. Hann segir: „Héðan í frá verða orðin móðir og faðir ekki lengur notuð þar sem þau tryggja ekki jafnrétti samkynhneigðra. Orðin eru sögð gamaldags þar sem þau taka hvorki tillit til samkyn- hneigðra foreldra né henta nútíma lögum um hjónabönd samkyn- hneigðra. Orðin foreldri 1 og 2 koma í staðinn í lögum um „skóla sem hægt er að treysta“.    Valére Petit fulltrúi REM-flokksMacron segir að margar fjöl- skyldur séu á tímamótum gamal- dags fjölskyldulíkana. „Þessi breyt- ing táknar félagslegt jafnrétti“.“    Gústaf segir lögin „kippa stoð-unum undan kjarnafjölskyld- unni – sjálfum grundvelli sam- félagsins. Börn í Frakklandi verða heilaþvegin með nýju hugtökunum frá þriggja ára aldri.“ Nýju lögin gera ráð fyrir skólaskyldu frá þeim aldri.    Jafnrétti er sjálfsagt og þjóðfél-agið þarf að búa vel að ólíkum fjölskylduformum. En þegar farið er að sýna viðleitni í þá átt að breyta tungumálinu þá rifjast upp nýorðaframleiðslan sem kynnt var í bókinni 1984.    Sú upprifjun vekur ekki notaleg-ar tilfinningar. Foreldri 1 og foreldri 2 STAKSTEINAR Nettoline fær 5 stjörnur frá dönskum gagnrýnendum STYRKUR - ENDING - GÆÐI ALLAR BAÐHERBERGISINNRÉTTINGAR OG ÞVOTTAHÚSINNRÉTTINGAR FÁSTMEÐ 20%AFSLÆTTI ÚT febrúar 2019 GÓÐ KAUP NÚ ER LAG AÐ GERA Við gerum þér hagstætt tilboð í innréttingar, vaska og blöndunartæki - AFSLÁTTUR - 20% Útfebrúar 20 19 Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • friform.is OPIÐ: Föstudaga kl. 09 til 17 Laugardagar kl. 11 til 15 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Til stendur að dýpka Landeyjahöfn um leið og tækifæri gefst. Spáin er óhagfelld næstu daga, þannig að lítið verður gert um sinn. „Það þýðir ekk- ert að skoða þetta fyrr en næstu helgi alla vega,“ segir G. Pétur Matt- híasson, upplýsingafulltrúi Vega- gerðarinnar. Fyrir helgi var tilkynnt að Björgun, félagið sem annast dýpkunina, verði komið með þar til gert skip á svæðið 23. eða 24. febr- úar. Til þess að Vegagerðin, sem sér um viðhald á Landeyjahöfn, geti ráð- ist í þessar aðgerðir þarf að viðra sæmilega um nokkurra daga skeið, að sögn Péturs. Vegagerðin fylgist að hans sögn náið með aðstæðum og að auki segir í tilkynningu að ef mat manna sé að helmingslíkur séu á að dýpkun takist, gangi þeir í verkið. Á meðan Landeyjahöfn er lokuð gengur „gamli Herjólfur“ á milli Heimaeyjar og Þorlákshafnar. Menn reikna með að taka hinn nýja Herjólf í gagnið 30. mars. Dýpkun Landeyja- hafnar er að sögn Péturs ekki for- senda þess að það nái fram að ganga. Fyrr á árinu gagnrýndu bæjar- yfirvöld í Vestmannaeyjum Vega- gerðina fyrir seinagang í þessum efnum og vildu meina að meira svig- rúm væri til dýpkunar í höfninni en stofnunin léti uppi. snorrim@mbl.is Höfnin ekki dýpkuð í vikunni  Vonir bundnar við að dýpka eftir næstu helgi  Seinagangur gagnrýndur Landeyjahöfn Dýpkun hefur dreg- ist við höfnina. Senn líður að henni. Þorgrímur Kári Snævarr thorgrimur@mbl.is Drög hafa nú verið gerð að banni við álaveiðum á Íslandi. Þetta kemur fram á vefsíðu Samráðsgáttarinnar, opins samráðs stjórnvalda við al- menning. Í umfjöllun á síðunni kemur fram að ákvæði hafi verið lögfest sem ger- ir sjávarútvegs- og landbúnaðar- ráðherra kleift að banna veiðar á ál- um í samræmi við ráðleggingar Hafrannsóknastofnunar. Hafrann- sóknastofnun gaf í fyrra út ráðgjöf þar sem hún tók fram að álastofninn væri í hættu og þyldi veiðar illa. Sigurjón Vídalín Guðmundsson, sem hefur lengi stundað álaveiðar á Suðurlandi, segist ekki kippa sér upp við fréttirnar og býst ekki við því að bann við álaveiðum muni mæta verulegri mótstöðu. „Þetta er náttúrlega búið að vera í umræðunni í svolítinn tíma og það var svo sem alveg ljóst að þetta kæmi einhvern tíma,“ sagði Sigur- jón. „Ég tel ekkert óvenjulegt við að það gildi bara sömu reglur og lög um þennan fiskistofn eins og aðra nytja- fiskistofna á Íslandi og við Ísland.“ Sigurjón telur ekki að hægt sé að reisa arðbæran útveg á álaveiðum á Íslandi og segir að álaveiðar verði tæpast nokkurn tímann meira en tómstundagaman. „Það var reynt fyrir austan á sjöunda og áttunda áratugnum. Þá voru álar veiddir svo- lítið í tvö eða þrjú ár en svo datt botninn úr útveginum og síðan hafa bara fáeinir karlar eins og ég sem hafa bara gaman af þessu verið að veiða ála. Þetta er lítill stofn og hann er svo rosalega dreifður að það borg- ar sig í langflestum tilfellum ekki að standa í þessu í einhverju gróða- skyni. Það er nánast útilokað.“ Stjórnvöld stefna að banni á álaveiðum  Veiðibannið mætir líklega ekki veru- legri mótspyrnu Morgunblaðið/Heiddi Álar Álaveiði hefur aldrei verið al- geng á Íslandi enda stofninn lítill.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.