Morgunblaðið - 18.02.2019, Síða 19

Morgunblaðið - 18.02.2019, Síða 19
skemmtilegar minningar sem ég mun varðveita um ókomna tíð. Þú varst yndislegur afi í alla staði sem ég hafði mikið gaman af að umgangast og okkur Dagnýju Björk þótti mjög vænt um. Nú veit ég að amma Kiddý og hún Dagný okkar taka vel á móti þér hinum megin. Hvíl í friði, elsku afi minn. Kristín María. Halldór Björnsson var alvar- legur í bragði þegar hann leit við á skrifstofu Mímis snemma árs 1996. Framundan var sameining almennu verkalýðsfélaganna í borginni. Hann vantaði mann sem gæti haldið utan um þetta verk- efni með stjórn Dagsbrúnar. Fáum vikum síðar var ég orðinn skrifstofustjóri félagsins. Samein- ingin var flókið og því verkefni samhliða vorum við í samfelldri samningagerð næstu árin. Á sama tíma fór fram mikil upp- bygging í félaginu þar sem byggja þurfti upp skrifstofuhúsnæði og félagsaðstöðu fyrst í Skipholti og síðar í Sætúni. Um fjórum árum síðar var sameiningu eldri félaganna lokið en Boðinn sameinaðist Eflingu síðar. Halldór hafði unnið að sam- einingu lífeyrissjóðanna sem nú heitir Gildi lífeyrissjóður. Hann var afreksmaður í félagsmálum ASÍ á síðustu öld. Sú umbylting var gríðarlegur ávinningur fyrir verkafólk á höfuðborgarsvæðinu. Það var mikið gæfuspor að fá að vinna með Halldóri. Hann var hertur á áratugum gamaldags kjarabaráttu, þar sem krónurnar skiptu meira máli en kaupmáttur, þar sem slagurinn varð oft meira áberandi en árangurinn. Hann lærði það af verðbólguárunum að allt var unnið fyrir gýg ef ekki tókst að vernda árangurinn með raunverulegum kaupmætti. Þess vegna fékk hann til liðs við sig öfl- uga stjórnarmenn og trausta starfsmenn en miklu skipti að undirstaða allra kjarasamninga væri fagleg vinna sérfræðinga, auk samningamanna sem nutu trausts á vinnustöðunum. Fáum mönnum hef ég kynnst sem hafa farið jafnvel með for- ystuhlutverk. Hann gerði sér grein fyrir þeirri miklu ábyrgð sem hvíldi á leiðtoga Eflingar. Þó hann væri formaður annars stærsta stéttarfélags landsins, neytti hann aldrei aflsmunar eða lét þvinganir stýra gerðum sín- um. Hann hótaði ekki átökum eða verkföllum, heldur voru þau þrautalending þegar allt annað hafði verið reynt. Aðeins einu sinni sá ég hann skipta skapi en það var í hörðum deilum á fyrsta árinu okkar saman. En hver var lykillinn að vel- gengni Halldórs? Þar skipti mestu að hann kom vel fram við alla, hvort sem það voru sam- verkamenn hans eða mótherjar. Sýndi öllum virðingu. Hann var ljúfmenni, alls staðar vinsæll, létt lund hans og umburðarlyndi, glaðværð og góð framkoma smit- aði út frá sér og gerði allt and- rúmsloft á vinnustaðnum og í samningum auðveldara. Hann var líka hrókur alls fagn- aðar utan vinnunnar. Hann átti það til eftir þrúgandi vinnutörn að bjóða upp á ferð í ísbúðina eða í bíó. Svo var hann einstaklega góð- ur ferðafélagi. Þegar ég hugsa til baka á ég bara góðar minningar um Halldór Björnsson. Við litum á hann sem góðan fjölskylduvin. Hann var okkur líka góð fyrirmynd. Þegar hann kvaddi Eflingu, skildi hann eftir handa mér nokkurra ára far- síma og afar fallegt en nett skó- horn úr skínandi stáli. Símann hans notaði ég í mörg ár en minn- ist hans í hvert sinn sem ég lít skóhornið. Halldór mun eiga sinn stað í minningu okkar. Þeirri minningu fylgir sálarfriður. Þráinn og Kara.  Fleiri minningargreinar um Halldór Guðjón Björns- son bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2019 ✝ GuðmundurEinarsson, Gúndi, fæddist í Reykjavík 21. ágúst 1925. Hann lést á Heilbrigðis- stofnun Suðurlands á Selfossi 6. febr- úar 2019. Foreldrar hans voru Einar Guð- mundsson, f. 2. október 1898, d. 7. mars 1946, og Þóra Valgerður Jónsdóttir, f. 24. apríl 1898, d. 29. nóvember 1988. Systkini Gúnda voru Guðfinna Einars- dóttir f. 1921 d. 2014, Jón Þórir f. 1927 d. 2007 og Valgerður f. 1930. Gúndi kvæntist 4. október 1947 Helgu Nikulásdóttur, f. 16. apríl 1929, d. 31. júlí 1998. Börn þeirra eru: 1) Esther Helga, f. 4. júlí 1947. Eiginmaður hennar var Arnar Hjörtþórsson, f. 1948, d. 1969. Dætur þeirra eru Lilja Björk og Helga Ólöf. Eigin- maður Estherar var John Moss, f. 1945, d. 2014. Dætur þeirra eru María Lynn og Leola Ana. Þau skildu. Eiginmaður Estherar var John Wanros, f. 1959. Þau skildu. Barnabörnin eru tólf og barnabarnabörnin eru þrjú. sín hjúskaparár á Álfhólsvegi 55 í Kópavogi eða á árunum 1955 til 1989. Þau hófu búskap á æskuheimili Gúnda á Brávalla- götu í Reykjavík þar sem þau bjuggu einnig síðustu árin áður en Helga féll frá. Seinni eiginkona Gúnda var Hrafnhildur Björnsdóttir, f. 1. nóvember 1940, d. 7. júní 2016. Þau giftu sig 29. júlí 2000 og bjuggu þá í Hjaltabakka í Reykjavík en síðustu ár í Hvera- gerði. Gúndi starfaði hjá Olíu- verslun Íslands (BP) 1943-1965. Hann ók olíubíl og sá um að setja eldsneyti á flugvélar Loft- leiða á Reykjavíkurflugvelli og Keflavíkurflugvelli. Hann öðl- aðist meistararéttindi í bíla- málun og setti á fót eigið bíla- málunarverkstæði. Hann rak það lengst af við heimili þeirra Helgu að Álfhólsvegi 55 í Kópa- vogi, en auk þess tímabundið við Smiðjuveg í Kópavogi. Eftir að hann hætti starfsemi verk- stæðisins hóf hann störf í tjóna- skoðunarstöð Sjóvá þar sem hann starfaði til 70 ára aldurs. Þá tók hann að sér húsvörslu hjá Karlakór Reykjavíkur og fleira tilfallandi. Gúndi söng með Karlakór Reykjavíkur í áratugi og fór í fjölda ferða með kórnum. Einn- ig söng hann með Hverafuglum og Karlakór Hveragerðis og var auk þess virkur í starfi Sjálf- stæðisflokksins í Hveragerði. Útför Guðmundar fer fram frá Bústaðakirkju í dag, 18. febrúar 2019, klukkan 13. 2) María, f. 7. janúar 1949. Eigin- maður hennar er Páll Ragnarsson f. 1947. Börn þeirra eru Elísabet Fides og Guðmundur Ragnar. Barna- börnin eru sjö og eitt barna- barnabarn. 3) Einar, f. 6. ágúst 1954. Eigin- kona hans er Stefanía Sörhell- er, f. 1955. Börn þeirra eru Guð- mundur Karl, Martha María og Pétur Helgi. Barnabörnin eru þrjú. 4) Sigurður, f. 23. mars 1964. Barnsmóðir hans er Kristín Ösp Kristjánsdóttir f. 1966. Sonur þeirra er Kristján Örn. Eigin- kona Sigurðar var Helena Groiss, f. 1970. Sonur þeirra er Halldór Örn. Þau skildu. Eigin- kona Sigurðar var Kristín Ósk Óskars f. 1974. Börn þeirra eru Guðfinnur Nikulás, Maríus Helgi, Helga Guðrún og Nanna Kristín. Þau skildu. Eiginkona Sigurðar er Sigrún Jóna Sig- marsdóttir f. 1966. Börn hennar eru Sigmar Þór, Hannes Már, Fanndís Fjóla og Bjarki Steinn. Saman eiga þau þrjú barna- börn. Gúndi og Helga bjuggu flest Í dag kveðjum við elskulegan tengdaföður minn, hann Gúnda. Hann tók á móti mér með opinn faðminn og hlýlegu brosi sem náði til augnanna, síðan eru liðin 44 ár. Okkur samdi alltaf vel, hann naut þess að segja sögur og mér fannst gaman að hlusta á hann segja frá því sem oft var fróðlegt og í senn skemmtilegar upplifanir sem hann hafði orðið fyrir og vildi miðla. Margar þeirra heyrði ég oft og gjarnan voru smáatriðum gerð góð skil svo nú sitja þær sem minning í mínum huga. Ég reyndi oft að fá hann til að tala um æsku sína, þá gjarnan sagði hann mér frá dvöl sinni á Vífilsstaðahæli, sem hann dvaldi á í fjögur ár sem barn vegna meins í lungum. Ekki tal- aði hann um þá dvöl af biturleika eða sorg, heldur fullur þakklætis fyrir hvað allir hefðu verið góðir við hann. Honum hafi liðið vel þar og tíðrætt varð honum um hve mamma hans lagði mikið á sig að koma á hverjum sunnudegi með strætó til að heimsækja hann og þurfti að labba frá Hafn- arfjarðarvegi og aftur til baka. Ljúfar minningar á ég eftir öll þessi ár á heimili tengdaforeldra minna, á jólum og hátíðum, í kaffi mat og spjalli. Gúndi vann óhemjulangan vinnudag við bíla- sprautun og er hann eini mað- urinn sem ég hef séð sofna stand- andi í miðju samtali. Hann kunni þó að njóta lífsins, dreif sig úr vinnugallanum til að fara á æf- ingar í Karlakórnum á kvöldin, hann elskaði söng. Tengdafor- eldrar mínir voru dugleg að ferðast bæði með kórnum erlend- is, en einnig hér innanlands í úti- legum. Þau fundu sér sælureit í Þjórsárdal þar sem fjölskyldan fékk að njóta dvalar og samveru með þeim. Það var honum þung- bært þegar Helga tengdamóðir mín féll frá aðeins 69 ára að aldri. Þau tvö höfðu verið órjúfanleg heild og alltaf talað um Helgu og Gúnda í sömu setningu. Gúndi fann ástina aftur þegar hann hitti Hrafnhildi sem hann giftist síðar. Þau áttu mörg góð ár saman, voru góðir vinir, tóku virkan þátt í félagsstarfi og ferðuðust mikið. Aftur var þungt högg fyrir Gúnda þegar hún féll frá fyrir tæpum þremur árum. Báðar eig- inkonur sínar talaði hann um af ást og virðingu. Báðar tóku þær af honum loforð um að lifa lífinu lifandi að þeim látnum. Hann gerði það svo sannarlega, hann skar út, málaði myndir, söng í kórum, lærði á nýtt hljóðfæri og tók þátt í ýmsu sem honum bauðst. Hann var virkur og at- hafnasamur fram á seinasta dag. Hann flutti á dvalarheimilið Ás eftir að Hrafnhildur dó. Þá dvöl talaði hann fallega um, þakkátur fyrir allt það góða fólk sem þar vann , hrósaði mat og öllum að- búnaði. Hann var hjá okkur fjöl- skyldunni um nýliðin jól. Á jóla- morgun sagði hann mér frá draumi sem hann hafði dreymt. Hann var á ferðalagi að leita að fallegri grænni laut sem hann ætlaði hvíla sig í. Ég túlkaði þennan draum með sjálfri mér en minnti hann á hann þegar ég kvaddi hann hinsta sinn að nú væri hann kannski að fara í laut- ina sína sem hann hafði verið að leita að og nú fundið. Við kvödd- umst með faðmlagi sem var ögn veikburða en hlýjan í augunum var sú sama og þegar ég hitti hann fyrst. Guð blessi þig, kæri tengdapabbi, og takk fyrir allt. Stefanía Sörheller. Elsku afi. Nú ert þú farinn frá okkur og við systkinin yljum okkur við ljúfar minningar sem við eigum um þig allt frá því við vorum pínulítil. Við minnumst þess að hafa fengið að gista hjá þér og ömmu á Brávallagötunni, hlusta á þig syngja með Karlakór Reykjavíkur, heyra sögur frá því þegar þú flaugst í ævintýraferðir að bjarga flugvél ofan af jökli og margt fleira. Einar af okkar bestu minningum eru án efa úr hjólhýsinu í Þjórsárdalnum þar sem þið amma nutuð lífsins til hins ýtrasta. Hún að prjóna eða leggja kapal og þú alltaf að smíða eitthvað, dytta að og lagfæra. Við nutum samverunnar með ykkur á þessum dásamlega stað og hugs- um með hlýju til þessara stunda. Þegar við hugsum til baka um þig, Gúndi afi, er léttleikinn þinn og endalausir brandarar það sem fyrst kemur upp í hugann. „Er þetta Guðmundur Karl? Þetta er Guðmundur kall hérna“ – svona byrjuðu ófá samtölin. „Passaðu þig á stelpunum, nei ég meina bíl- unum!“ Það er draumur að fá að eldast eins og þú en fram á síðasta dag varstu glettinn og skemmtilegur. Lífsgleðin skein í gegn og fólkið þitt naut sannarlega samveru þinnar. Það var gott að vera í kringum þig – þú hafðir svo hlýja nærveru. Þú varst svo tónelskur, spilaðir á píanó og bassa og söngst svo fallega. Þegar við átt- um afmæli hringdirðu í okkur og spilaðir afmælissönginn á píanó. Listaverkin sem þú skarst út og myndirnar sem þú málaðir – allt ber það vitni um þennan lífsglaða afa okkar sem við munum alltaf elska. Takk fyrir allt, elsku afi, og Guð blessi þig. Guðmundur Karl, Martha María og Pétur Helgi. Þegar árin líða eigum við það öll sameiginlegt að líta yfir farinn veg. Margs er að minnast og það sem skiptir mestu máli er eflaust þær góðu samverustundir sem við höfum átt með vinum, fjöl- skyldu og samferðafólki okkar í gegnum lífið. Móðurbróðir okkar Guðmund- ur Einarsson er látinn, 93 ára að aldri. Móðir okkar, systir Guð- mundar, er nú ein eftirlifandi af fjórum systkinum. Við vorum í mestu sambandi við frænda okk- ar á hans efri árum og upp í hug- ann streyma ljúfar minningar. Guðmundur eða Gúndi eins og hann var alltaf kallaður var í miklu uppáhaldi hjá okkur. Hann frændi okkar var einstakt ljúf- menni, skemmtilegur og kunni svo sannarlega að njóta lífsins með sínum léttleika og húmor eins og honum einum var lagið. Gúndi sagði skemmtilegar sögur og kunni óteljandi brandara. Símtölin frá honum byrjuðu yf- irleitt á fuglasöng eða einhverj- um skrýtnum karakterum þar sem hann breytti röddinni til að grínast smávegis og héldum við oftast að um rangt númer væri að ræða. Gúndi var góð fyrirmynd, mikil félagsvera og hafði alltaf í nógu að snúast, brosmildur, sí- ungur og hress. Hann var hæfi- leikaríkur, söng í kórum, spilaði á píanó, lærði á bassa, málaði myndir, tálgaði og smíðaði. Gúndi þekkti líka sorgina, hann var tvíkvæntur og missti báðar sínar eiginkonur úr veik- indum. Þrátt fyrir missinn og undanfarið sín eigin veikindi hélt Gúndi áfram sínu striki. Hann var þannig manngerð, með sitt einstaka jákvæða hugarfar og góða skap. Við minnumst frænda okkar með hlýhug og söknuði, hann var mikill gleðigjafi og það var mannbætandi að umgangast hann. Fjölskyldu Gúnda sendum við okkar dýpstu samúðarkveðjur. Þú leiðir oss, Drottinn, að lindunum hreinu. Þú ljósið þitt kveikir við himnanna stól. Um tíma þó syrti þá brátt aftur birtir, þú breiðir út þinn faðm og veitir oss skjól. (Óskar Ingimarsson) Kæri frændi, megi englar Guðs vaka yfir þér. Ingibjörg Þóra, Bára og Einar. Það er stundum haft á orði að enginn viti sína ævina fyrr en öll er og það eru víst orð að sönnu. Okkur auðnast mislangir og mis- góðir ævidagar einsog gengur. Guðmundur Einarsson, eða Gúndi eins og flestir vinir hans kölluðu hann, var ekkert öðruvísi en við hin að þessu leyti en hann hafði þá náðargáfu að geta gert gott úr hlutunum og haldið lífs- gleðinni í gegnum þykkt og þunnt. Þetta fundum við hin sem þekktum hann og það fór ekki hjá því að við smituðumst af þessu. Þrátt fyrir háan aldur var Gúndi virkur í allskyns félagslífi og ekki síður í handverki ýmis- konar. Eitt af því marga sem Gúndi gerði var að hann skar út mjög fallega mynd af merki Sjálfstæðisflokksins, fálkanum, sem prýðir ræðupúlt Sjálfstæð- isfélags Hveragerðis. Hann var fastagestur á opnum húsum hjá okkur á laugardagsmorgnum mörg undanfarin ár og var þar hvers manns hugljúfi einsog ann- arsstaðar þar sem hann kom. Hann söng með kór eldri borgara í Hveragerði, Hverafuglunum, og síðar einnig með Karlakór Hveragerðis. Á árum áður og lengi vel eftir að hann flutti til Hveragerðis söng Gúndi líka með Karlakór Reykjavíkur og það eru ekki mörg ár síðan hann hætti því. Fyrir fáeinum árum byrjaði Gúndi síðan að læra á bassagítar hjá vini sínum í Hveragerði og spilaði með honum og fleirum við ýmis tækifæri. Hann var líka virkur félagi í Félagi eldri borg- ara í Hveragerði og átti þar fjöl- margar góðar stundir. Það segir sitt um lundarfarið að Gúndi fór reglulega í heimsóknir á Hjúkr- unarheimilið Ás og spilaði þar og las fyrir heimilisfólk þrátt fyrir að hann væri sjálfsagt eldri en flestir sem þar voru. Það var alltaf notalegt að koma til Gúnda og gleðin og já- kvæðnin ávallt í fyrirrúmi. Hann hafði ávallt eitthvað fyrir stafni, var að tálga út skilti og aðra fal- lega muni eða mála myndir o.fl. Við höfum það líka fyrir satt að hann hafi lagfært bíl fyrir vin- konu sína orðinn 93ja ára. Það eru ekki margir dagar síðan ég kom til Gúnda í Bláskógana þar sem hann sat við að mála mynd þrátt fyrir að heilsan væri aðeins farin að bila. Hann tók vel á móti mér eins og alltaf og reis upp og tók nokkur dansspor fyrir mig af einskærri gleði. Okkur í Sjálfstæðisfélaginu er efst í huga á þessum tímamótum þakklæti fyrir að hafa fengið að verða samferða Gúnda um árabil og fengið að smitast af lífsgleði hans og jákvæðni. Við sendum fjölskyldu hans samúðarkveðjur og þökkum þeim fyrir að hafa deilt þessum góða manni með okkur. Fyrir hönd félaga í Sjálfstæð- isfélagi Hveragerðis, Eyþór H. Ólafsson Guðmundur Einarsson  Fleiri minningargreinar um Guðmundur Einarsson bíða birtingar og munu birt- ast í blaðinu næstu daga. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, AGNAR EINARSSON f.v. hljóðmeistari hjá Sjónvarpinu, Kópavogsbraut 1b, lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð miðvikudaginn 13. febrúar. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju föstudaginn 22. febrúar klukkan 13. Brynhildur Agnarsdóttir Sveinn Þorsteinsson Erna G. Agnarsdóttir Þorlákur Björnsson Garðar Agnarsson Hall Sigríður Pétursdóttir og fjölskylda Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, FRIÐNÝ GUÐRÚN PÉTURSDÓTTIR sagnfræðingur frá Oddsstöðum á Melrakkasléttu, lést á hjúkrunarheimilinu Eir fimmtudaginn 7. febrúar. Útförin fer fram frá Áskirkju þriðjudaginn 19. febrúar klukkan 13. Pétur Guðjónsson Snævar Guðjónsson Árni Pétur Guðjónsson Kjartan Guðjónsson Herdís M. Guðjónsdóttir Trausti Jarl Valdimarsson og fjölskyldur Eiginkona mín, móðir, dóttir, systir, mágkona og tengdadóttir, okkar ástkæra, BERGLIND HALLGRÍMSDÓTTIR, Sunnuvegi 25, lést á heimili sínu föstudaginn 15. febrúar. Eðvarð Jón Bjarnason Elsa Edda Eðvarðsdóttir Ingibjörg Edda Ásgeirsdóttir Hallgrímur Jónasson Jónas Hlynur Hallgrímsson Ásgeir Örn Hallgrímsson Hanna Borg Jónsdóttir Elsa Friðrika Eðvarðsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.