Morgunblaðið - 18.02.2019, Qupperneq 22
22 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2019
TAKTU ÍSINNMEÐ TRUKKI
Ég hef lengi verið í vélsleðasporti og á þessum tíma árs leitarhugurinn oft til fjalla. Svæðið hér út með Eyjafirði, hvortheldur er á Tröllaskaganum eða við Grenivík, er snjóakista
og gaman að fara þar um á sleðum. Þegar er svo komið fram í mars
og apríl liggur leiðin gjarnan inn á hálendið,“ segir Halldór Arin-
bjarnarson, verkefnisstjóri hjá Ferðamálastofu, en hann er 54 ára í
dag. „Sú var tíðin að manni þótti veður ekki fyrirstaða og skemmtun-
in fólst í því að brjótast áfram í hríð og frosti. Núna er ég varkárari og
fer ekki nema útlitið sé gott.“
Halldór er frá Vagnbrekku í Mývatnssveit og ólst þar upp. Eftir
nám í félagsfræði við HÍ settust þau Edda Guðbjörg Aradóttir kona
hans að á Svalbarðsströnd, gegnt Akureyri og hafa búið þar síðan.
Börnin eru tvö; Halldóra Sigríður, 25 ára, ferðamálafræðingur í
meistaranámi í kennslufræðum, og Valgeir, 22 ára, bifvélavirki.
„Í gamla daga var ég blaðamaður, starfaði um hríð við almanna-
tengsl, en hef verið hér hjá Ferðamálastofu frá 2002. Sé hér um ýmis
upplýsingamál, vefinn okkar, textaskrif og fleira skemmtilegt. Þetta
er mjög fjölbreytt starf,“ segir Halldór sem býst við látlausum
afmælisdegi. „Ég verð í vinnunni en skrepp í leikfimi í hádeginu. Fyr-
ir kyrrsetumann er það alveg ómissandi. Nú og svo fer ég mikið út að
hlaupa; er í skokkhóp hvar við höfum meðal annars verið að reyna
okkur í utanvegahlaupum sem er talsverð áskorun. Raunar er ég sí-
fellt heillaðri af hlaupunum sem mér finnst góð fyrir líkama og sál.“
sbs@mbl.is
Útivera Halldór Arinbjarnarson á fjöllum með hundinum Kát.
Kyrrsetumaðurinn
þarf að hlaupa
Halldór Arinbjarnarson er 54 ára í dag
H
allgrímur Helgason
fæddist 18. febrúar
1959 í Reykjavík og
ólst upp í Háaleitinu.
Hann æfði fótbolta
með Fram upp í 3. flokk og keppti á
skíðum sem unglingur. Hann var
sex sumur í sveit; þrjú sumur á
Brekku í Seyluhreppi, tvö á Litlu
Sandvík í Sandvíkurhreppi og eitt
sumar á Berustöðum í Ásahreppi.
Hann var einnig þrjú sumur í brúar-
vinnu hjá Vegagerðinni úti á landi.
„Ég held að þessar sumardvalir hafi
alveg eyðilagt knattspyrnuferilinn.“
Hallgrímur gekk í Álftamýrar-
skóla, Ármúlaskóla, Menntaskólann
við Hamrahlíð og varð stúdent það-
an jólin 1978. Hann stundaði síðan
nám við Myndlista- og handíðaskól-
ann 1979-80 og Listaakademíuna í
München 1981-82.
Ferillinn
Hallgrímur hefur verið sjálfstætt
starfandi listamaður frá 1982 og rit-
höfundur frá 1990. Hann hefur hald-
ið yfir 30 einkasýningar og 40 sam-
sýningar heima og erlendis og verk
hans eru í eigu safna heima og er-
lendis. Hann var með vikulega pistla
fyrir Rás 2 1989-1991 sem kölluðust
Útvarp Manhattan og frá 1990 hef-
ur hann gefið út tíu skáldsögur, sú
fyrsta hét Hella og sú síðasta er
Sextíu kíló af sólskini.
Hallgrímur hefur þrisvar verið
tilnefndur til bókmenntaverðlauna
Hallgrímur Helgason, myndlistarmaður og rithöfundur – 60 ára
Ljósmynd/Gunnar Leifur Jónasson
Heima í stofunni Frá vinstri: Kári Daníel Alexandersson, Lukka, Hallgrímur Helgason, Þorgerður Agla Magnús-
dóttir, Málfríður Jóhanna Ögludóttir Hallgrímsdóttir og Margrét María Hallgrímsdóttir.
Handhafi Íslensku bók-
menntaverðlaunanna
Ljósmynd/Lárus Karl Ingason
Á Bessastöðum Hallgrímur tekur
við bókmenntaverðlaununum.
Njarðvík Eyjólfur Agnar
Gunnarsson fæddist 13.
júní 2018 á Heilbrigðis-
stofnun Suðurnesja í Kefla-
vík. Hann vó 3.570 g og var
51 cm að lengd. Foreldrar
hans eru Gunnar Hafsteinn
Stefánsson og Guðrún
Freyja Agnarsdóttir.
Nýr borgari
Íslendingar Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is