Morgunblaðið - 18.02.2019, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 18.02.2019, Blaðsíða 23
Norðurlandaráðs, fyrir 101 Reykja- vík, Rokland og Konan við 1000°. Hann hefur tvisvar fengið bók- menntaverðlaun Íslands, fyrir Höf- und Íslands 2001 og Sextíu kíló af sólskini 2018, og er sá eini fyrir utan Guðberg Bergsson sem hefur hlotið þessi verðlaun tvisvar í flokki fagur- bókmennta. Tvær skáldsögur Hall- gríms hafa verið kvikmyndaðar, 101 Reykjavík og Rokland, og fjórar verið sviðsettar í leikhúsum, 101 Reykjavík, Þetta er allt að koma, 10 ráð til að hætta að drepa fólk og byrja að vaska upp og Konan við 1000°. Bækur hans hafa verið þýddar á yfir 16 tungumál. Hallgrímur hlaut þýðingar- verðlaun Íslands árið 2016 fyrir Óþelló, Grímuverðlaun 2015 fyrir leikrit ársins, leikgerð að Konan við 1000°, Edduverðlaun 2001 fyrir besta skemmtiefni í sjónvarpi, Ára- mótaskaupið, og hann hlaut Menn- ingarverðlaun DV 2001 í leiklist fyr- ir leikritið Skáldanótt. Hallgrímur sat í stjórn Rithöfundasambandsins 2013-2017 og var í stjórn tímarit- anna Tenings og Stínu. „Aðaláherslan var öll á mynd- listina í byrjun en svo gekk ekkert að selja málverk í New York og ég fattaði að ég gæti haft eitthvað upp úr því að skrifa. Var fyrst með helg- arpistla á Þjóðviljanum og síðan pistlana á Rás 2 sem þróuðust út í skáldsagnaskrif. Ég hafði ekki gert mér grein fyrir að ég gæti skrifað skáldsögur og fannst það form nánast óyfirstíganlegt í byrjun. Ég píndi mig til að skrifa fyrstu skáld- söguna sem var hálfgert sveins- stykki og lærði þessa iðngrein þannig.“ Fyrir tæpum mánuði hlaut Hall- grímur í annað sinn Íslensku bók- menntaverðlaunin. „Það er alltaf ánægjulegt að fá verðlaun, þau voru kannski þýðingarmeiri í fyrsta sinn,“ segir Hallgrímur aðspurður. „Þá var ég einhver myndlistar- maður sem fór að skrifa og mér fannst það dýrmætt að fá þessi verðlaun.“ Hallgrímur er alls ekki hættur að stunda myndlist þótt vel gangi á rit- vellinum. „Þetta er köflótt hjá mér en ég er eitthvað byrjaður að mála aftur og ætla að halda sýningu í vor í Galleríi Tveimur hröfnum. Þetta hafa verið sex mánuðir sem ég skrifa og tveir mánuðir sem ég mála. Draumurinn er að geta skrif- að fyrir hádegi og málað eftir há- degi en ég hef ekki náð tökum á því ennþá.“ Fjölskylda Sambýliskona Hallgríms er Þor- gerður Agla Magnúsdóttir, f. 11.12. 1972, útgefandi hjá Angústúru bókaútgáfu. Foreldrar hennar eru hjónin Magnús Ingólfsson, f. 10.4. 1949, framhaldsskólakennari, og Sigrún Lind Egilsdóttir, f. 8.11. 1948, hjúkrunarfræðingur, bús. í Reykjavík. Fyrri makar Hallgríms: Oddný Sturludóttir, f. 12.8. 1976, að- junkt á Menntavísindasviði HÍ, og Áshildur Haraldsdóttir, f. 21.9. 1965, flautuleikari. Börn: 1) Hallgerður Hallgríms- dóttir, f. 22.1. 1984, myndlistar- maður, búsett í Gautaborg, maki: Sigurður Arent Jónsson sviðslista- maður, dóttir þeirra er Nína Sigurð- ardóttir, f. 12.10. 2016; 2) Kári Daní- el Alexandersson, f. 29.9. 2003; 3) Margrét María Hallgrímsdóttir, f. 10.5. 2005; 4) Málfríður Jóhanna Ögludóttir Hallgrímsdóttir, f.18.12. 2017. Systkini Hallgríms eru Nína Helgadóttir, f. 20.11. 1960, verkefn- isstjóri hjá Rauða krossinum, Ás- mundur Helgason f. 24.11. 1966, bókaútgefandi hjá Drápu, og Gunn- ar Helgason, f. 24.11. 1966, rithöf- undur, leikari og leikstjóri. Foreldrar Hallgríms eru hjónin Helgi Hallgrímsson, f. 22.2. 1933, verkfræðingur og fyrrv. vegamála- stjóri, og Margrét Schram, f. 31.12. 1932, fyrrv. fóstra og kennari í Fóstruskólanum. Þau eru bús. í Reykjavík. Úr frændgarði Hallgríms Helgasonar Hallgrímur Helgason Margrét Schram fv. fóstra ndriði Helgason kaupmaður g rafvirkjameistari á Akureyri I o Margrét Indriðadóttir fréttastjóri á Rúv Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur og alþm. Guðlaug Helga Sveinsdóttir húsfreyja, f. á Hraunum í Fljótum Jón Antonsson bóndi í Arnarnesi á Galmaströnd, Eyj. Jónína Jónsdóttir húsfreyja á Akureyri og í Rvík Kristín Jónsdóttir myndlistarmaður Magdalena Árnadóttir húsfreyja, f. á Ytri-Tungu í Staðarsveit, Snæf. Ellert Schram skipstjóri í Reykjavík Gunnar Schram ritsímastjóri á Akureyri og í Rvík Kári Schram kvikmyndagerðarmaður Valgerður Gunnarsdóttir sjúkraþjálfari Daníel Bjarnason tónskáld og hljómsveitarstjóri Dýrleif Dögg Bjarnadóttir prófessor í heimspeki í Albany, New York-ríki Valgerður Þóroddsdóttir bókaútgefandi hjá Partus Jón Þórarinsson tónskáld Anna María Jónsdóttir húsfreyja, frá Eiðaþinghá Þórarinn Benediktsson bóndi, hreppstj. og alþm. í Gilsárteigi í Eiðaþinghá og gjaldkeri á Seyðisfirði Málfríður Þórarinsdóttir húsfreyja á Selsstöðum Hallgrímur Helgason bóndi á Selsstöðum í Seyðisfirði Ólöf Margrét Helgadóttir húsfreyja, f. á Geirúlfsstöðum í Skriðdal Helgi Indriðason bóndi í Skógargerði í Fellum, N-Múl.Helgi Hallgrímsson fyrrv. vegamálastjóri ÍSLENDINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2019 SMÁRALIND – KRINGLAN Jóhann Pétursson fæddist íJónasarbæ í Stykkishólmi 18.febrúar 1918. Foreldrar hans voru hjónin Pétur Einar Einarsson, verkamaður þar, f. 1885, d. 1961, og Jóhanna Jóhannsdóttir, f. 1889, d. 1970, húsfreyja. Jóhann ólst upp í föðurhúsum til tvítugs. Hann keypti síðla árs 1941 Bókaverslun Guðmundar Gamalíels- sonar og rak hana til 1946. Hann var við bókasölu hjá Helgafelli og um tíma á reknetaveiðum á mb. Þor- birni frá Grindavík. Árin 1956-1960 var hann skrifstofustjóri og gjald- keri við síldarsöltun Gunnars Hall- dórssonar á Raufarhöfn. Í júní 1960 gerðist Jóhann vita- vörður í Hornbjargsvita og var það í 25 ár. Það þurfti að senda veður- fregnir á þriggja tíma fresti allan sólarhringinn og það þurfti líka að fylgjast með rekís. Oft var hann einn þar, en stundum með ráðskonu. Þegar Jóhann hætti vitavörslu var hann verslunarstjóri í fornbóka- verslun Klausturhóla 1986-88 og síð- an húsvörður við gistiheimili í Kópa- vogi. Síðustu árin var Jóhann á dvalarheimili í Stykkishólmi. Ritverk Jóhanns eru: Gresjur guðdómsins, 1948, leikritið Vötn á himni, 1951, tímaritið Gandur (ásamt Geir Kristjánssyni) 1951. Frásögn um hafís í bókinni Hafís við Ísland, 1970, Um fárviðri og glitský í tímaritinu Veður, 1974, Dagbókar- þankar í bókinni Afmæliskveðja til Ragnars í Smára. Jóhann mun hafa átt eitt stærsta einkabókasafn á Íslandi en á áttræð- isafmælinu taldist honum til að hann ætti 24.000 bindi af úrvalsritum. Jóhann var þríkvæntur. Fyrsta kona hans var Jónína Kristín Krist- jánsdóttir, f. 1922, d. 2018, húsfreyja og leikstjóri í Keflavík. Þau skildu. Sonur þeirra er Magnús Brimar, f. 1947. Önnur kona Jóhanns var Soffía Kristín Sigurjónsdóttir, f. 1916, d. 1987, hjúkrunarkona. Þau skildu. Þriðja kona Jóhanns var Erna S. Júlíusdóttir, f. 1931, búsett í Kópa- vogi. Þau skildu. Dóttir Jóhanns og Margrétar Pétursdóttur er Gréta Mörk, f. 1945. Jóhann lést 3. apríl 2006. Merkir Íslendingar Jóhann Pétursson 90 ára Hólmfríður Jóhannesdóttir Jón Óskar Guðmundsson Kristlaug Vilfríður Jónsd. 85 ára Ása Breiðfjörð Ásbergsd. Halldór Þorvaldsson Jóhann Björn Sveinbjörnss. Margrét Hróbjartsdóttir 80 ára Bentína Sigrún Viggósd. Elín Erlingsson Ingibjörg Loftsdóttir Jenný M. D. Henriksen 75 ára Guðbjörg Ólafsdóttir Kristjana M. Guðmundsd. Sigríður Eiríksdóttir Svanfríður S. Óskarsdóttir 70 ára Guðjón H. Bernharðsson Guðmundur H. Andersen Guðrún Fjóla Granz Ingibjörg Pálmadóttir Júlíus Halldór Gunnarsson Kristín Steinþórsdóttir Ólafur Skagfjörð Gunnarss. Pétur Örn Pétursson Sesselja Þorbjörg Jónsd. Soffía Gunnlaug Þórðard. 60 ára Anna Guðrún Gunnarsd. Ágústa Ólöf Gunnarsdóttir Dagný Egilsdóttir Elsa Waage Friðrik Adolf Stefánsson Gunnar Þór Þórarnarson Hallgrímur Helgason Heimir Gunnarsson Jóhanna Ingibj. Lúðvíksd. Jónas Kristófersson Kristín Eyjólfsdóttir Kristín Rannveig Óskarsd. Siggeir Lárusson Sigrún Hrönn Baldursdóttir Valdís Atladóttir Þórunn Halldórsdóttir 50 ára Anna María Heiðberg Áslaug Sif Gunnarsdóttir Berglind Erlendsdóttir Erlendína Kristjánsson Guðný Brynhildur Þórðard. Haraldur Sveinsson Helga Hauksdóttir Helga Indriðadóttir Jónína Helga Kristinsdóttir Margrét Berg Sævarsdóttir Mindaugas Gaidjurgis Preeya Khempornyib Ragnheiður G. Sigþórsd. Sigurður Ragnar Magnúss. Þórir Dan Viðarsson 40 ára Alda Steinþórsdóttir Andri Þór Kristinsson Ása Sóley Karlsdóttir Barbara Banachowska Hjördís Lára Hreinsdóttir Jenny Sophie R. E. Jensen Rafal Zawiszewski Þorkell Magnússon 30 ára Aron Már Jóhannsson Ásta Rós Árnadóttir Dawid Lukasz Kielbasa Hjálmar Þór Arnarson Ívar Mikael Stefánsson Jovana Schally Katla Snorradóttir Rosana Valle Tames Shpend Rexhepi Sigurrós Bára Stefánsdóttir Vigfús Ægir Vigfússon Þorbjörn Þór Sigurðarson Til hamingju með daginn 30 ára Bergrún er frá Lyngholti í Ásahr., Rang., en býr á Skagaströnd. Hún er menntaður reið- kennari og starfar við tamningar og reið- kennslu. Maki: Andri Már Welding, f. 1987, stýrimaður á Drangrey frá Sauðárkróki. Foreldrar: Ingólfur Ás- geirsson, f. 1960, húsa- smíðameistari, og Brynja Jóna Jónasdóttir, f. 1963, bókari og sveitarstjórnar- maður í Ásahreppi. Bergrún Ingólfsdóttir 40 ára Hulda er Reykvík- ingur en býr í Mosfellsbæ. Hún er hárgreiðslusveinn og áfengisráðgjafi að mennt og er eigandi heildverslunarinnar Himalaya Magic. Maki: Rajan Sedhai, f. 1974, frá Nepal. Börn: Sindri, f. 2010, Tara, f. 2014, og Kíran, f. 2016. Foreldrar: Eggert Valur Þorkelsson, f. 1952, og Margrét Haraldsdóttir, f. 1956. Hulda Margrét Eggertsdóttir 40 ára Jens er úr Garð- inum en býr í Njarðvík. Hann er sements- flutningabílstjóri hjá Aalborg Portland. Maki: Magnea Frímanns- dóttir, f. 1980, skrifstofu- maður hjá DHL. Börn: Tvíburarnir Alma Rún og Bergþór Örn, f. 2001, og Kamilla Ósk, f. 2004. Foreldrar: Freymóður Jensson, f. 1953, og Inga Jóna Björgvinsdóttir, f. 1959. Jens Freymóðsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.