Morgunblaðið - 18.02.2019, Side 26

Morgunblaðið - 18.02.2019, Side 26
VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Blásið verður til mikillar tónlistar- veislu í Langholtskirkju næstkom- andi laugardag. Vel á þriðja tug einsöngvara kemur þar fram auk Kórs Langholtskirkju, Graduale Nobili-kórsins og Kammer-kórsins. Tilefnið er tvíþætt: Ólöf Kolbrún Harðardóttir sópransöngkona fagn- ar 70 ára afmæli sínu og minnist um leið eiginmanns síns, Jóns Stef- ánssonar organista, sem féll frá fyr- ir þremur árum. Á tónleikunum verður líka veittur fyrsti styrkurinn úr minningarsjóði Jóns. „Þegar Jón var jarðaður vildu margir fá að leggja eitthvað af mörkum til að halda minningu hans á lofti, og úr varð að stofna sjóð sem myndi styrkja efnilegt ungt tónlistarfólk,“ útskýrir Ólöf. „Við fórum þá leið núna við fyrstu út- hlutun að auglýsa ekki eftir um- sóknum, heldur tilnefningum, og vonandi tekst okkur að veita tvo styrki frekar en einn, að upphæð hálf milljón króna hver.“ Sjóðurinn er fjármagnaður með frjálsum framlögum og að auki rennur miðaverð tónleikanna á laugardag í sjóðinn, en allir sem koma þar fram gefa vinnu sína. Ólöf segir það hafa verið auðsótt að fá þennan stóra hóp söngvara og kóra til að leggja sitt af mörkum enda tókst þeim Jóni á löngum og farsælum ferli að byggja upp öflugt tónlistarstarf bæði innan Lang- holtskirkju og utan. „Varð Lang- holtskirkja að nokkurs konar upp- eldisstöð fyrir efnilega söngvara sem svo komu margir yfir til mín hjá Söngskólanum í Reykjavík,“ út- skýrir Ólöf sem enn starfar sem söngkennari, bæði hjá Söngskól- anum og hjá Listaháskóla Íslands. Ánægjulegt er að sjá hvernig andi Jóns lifir ennþá í gegnum tón- listarstarf Langholtskirkju og segir Ólöf að þar hafi metnaðarfullt fólk tekið við keflinu. „Það er ekki hægt að ætlast til að arftakar Jóns geri allt eins og hann – nýir menn verða jú að fá að spila nýja músík – en tónlistarstarfið er fjölbreytt og mikið umleikis í tónlistarmálum kirkjunnar.“ Æskuástin við orgelið Það var í Langholtskirkju sem leiðir Jóns og Ólafar lágu fyrst saman. Hann var þá 17 ára og ný- ráðinn organisti, en hún 14 ára og söngelsk og vildi ganga til liðs við kórinn. Ástin kviknaði fljótt og fimm árum síðar voru þau Jón og Ólöf pússuð saman. Í dag myndu þau vera kölluð „ofurpar“ (e. power couple) því bæði sköruðu fram úr hvort á sínu sviði, efldu hvort annað og styrktu. Minnist Ólöf þess hvernig Jón var alltaf boðinn og bú- inn að hjálpa henni að æfa fyrir óp- eruhlutverk og fylgja henni eftir í stóru og smáu sem hún tók sér fyr- ir hendur. „Það gerði lífið svo af- skaplega skemmtilegt að við vorum ekki bara hjón, heldur miklir fél- agar, samvinnufólk í öllu, og héld- um áfram að móta og efla hvort annað alla tíð.“ Þegar Ólöf tók seinna þátt í stofnun og rekstri Íslensku óper- unnar gat hún stólað á aðstoð Jóns. „Það kom fyrir að það vantaði fleiri raddir í Óperukórinn, eða að okkur vantaði aðstöðu til æfinga og gátum við þá fengið inni hjá Langholts- kirkju,“ útskýrir hún. Saman áttu Jón og Ólöf þátt í að koma mörgum fremstu óperusöngv- urum landsins af stað á sínum ferli. „Stundum hafa nemendurnir verið hikandi við að stíga þetta skref, og ég hef alltaf gætt þess að segja þeim sannleikann: Jú, það gæti ver- ið skynsamlegast að læra verkfræði og gefa sönginn upp á bátinn, en það sakar ekki að láta á það reyna hvert söngurinn mun leiða þau. Segi ég þeim að gefa þessu þrjú, fjögur eða fimm ár, og sjá hvert þau komast á þeim tíma.“ Verra að óperan skyldi missa heimili sitt Finna má marga hápunkta á löngum ferli Ólafar en stærsta af- rekið var ef til vill þegar hún, ásamt Garðari Cortes og fleiri söngvurum, kom Íslensku óperunni á laggirnar. Hópurinn hélt sína fyrstu óperusýningu, I Pagliacci, í Háskólabíói 10. mars 1979 en fékk ári síðar hluta af arfi Sigurliða „Gerði lífið svo afskaplega skemmtilegt“  Fyrstu styrkirnir úr minningarsjóði Jóns Stefánssonar verða veittir á veglegum tónleikum á laugardag » ...en svo var líka tog-streita á milli óperu- og leiksýninganna og sumum gramdist að þeim þótti óperuupp- færslurnar fá bestu sýningarkvöldin. 26 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2019 Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Ég er djúpt snortinn,“ segir Gunnar Þorri Pétursson, sem ásamt Ingibjörgu Haraldsdóttur heitinni hlýtur Íslensku þýð- ingaverðlaunin í ár fyrir þýðingu þeirra á Hinir smánuðu og sví- virtu eftir Fjodor Dostojevskí. Verðlaunin voru afhent á Gljúfra- steini um helgina. „Ég get ímyndað mér að þetta hafi verið erfitt val fyrir dóm- nefndina, því það voru einstaklega flottir kandídatar tilnefndir þetta árið. Ég var bara fullsæmdur að vera í þeirra hópi,“ segir Gunnar. Auk þeirra Ingibjargar voru til- nefnd til verðlaunanna fyrir bestu þýðingu ársins þau Elísa Björg Þorsteinsdóttir fyrir þýðingu sína á Etýður í snjó eftir Yoko Taw- ada; Ingibjörg Eyþórsdóttir fyrir Hin órólegu eftir Linn Ullmann; Uggi Jónsson fyrir Sæluvíma eftir Lily King; Einar Thoroddsen fyrir Víti eftir Dante og Hjalti Rögn- valdsson fyrir Þetta er Alla eftir Jon Fosse. Dómnefnd skipuðu þau Steinþór Steingrímsson, sem var formaður, Hildur Hákonardóttir og Brynja Cortes Andrésardóttir. Í umsögn hennar um verðlaunaþýðinguna segir: „Í verkum sínum skapaði Dostojevskí margar af eftir- minnilegustu persónum bókmennt- anna. Hinir smánuðu og svívirtu fæst við kunnugleg stef; ást og hatur, fyrirgefningu og þjáningu. Fyrir töfra höfundarins, og þýð- endanna, lifa hinar smánuðu, sví- virtu og svívirðilegu persónur sög- unnar áfram með lesandanum löngu eftir að lestri er lokið. Á máli sem er í senn gamalt og nýtt opnar lifandi þýðing Gunnars Þorra Péturssonar og Ingibjargar Haraldsdóttur 19. aldar Rússland upp á gátt fyrir íslenskum les- endum.“ Verðlaunin mikil hvatning Í ítarlegu viðtali við Gunnar um þýðinguna sem birtist í Morgun- blaðinu síðasta sumar kom fram að hann hefði unnið að þýðingunni í þrjú ár. „Það er ómæld vinna sem býr að baki svona þýðingu,“ segir Gunnar og rifjar upp að hann hafi gert þrjár atrennur að „Djúpt snortinn“  Gunnar Þorri Pétursson og Ingi- björg Haraldsdóttir fá Íslensku þýð- ingaverðlaunin fyrir Dostojevskí HD-4.50BTNC Noisecancelling Verð: 24.900 kr. PXC-550 Noisecancelling Verð: 47.900 kr. Momentum TRUE Verð: 39.800 kr. CX-6.00BT Verð: 13.980 kr. Sennheiser – þráðlaus heyrnartól

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.