Morgunblaðið - 01.03.2019, Side 2

Morgunblaðið - 01.03.2019, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MARS 2019 ALVÖRUMATUR Á ÖRFÁUM MÍNÚTUM Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. „Nú er úr vöndu að ráða,“ sagði Guðni Th. Jóhannesson, forseti Ís- lands, á Bessastöðum í gær þegar Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmda- stjóri Krabbameinsfélags Íslands, bauð honum að velja á milli tveggja röndóttra sokkapara. Slíkir sokkar verða seldir til styrktar Mottumars, sem er árlegt árvekni- og fjáröfl- unarátak Krabbameinsfélagsins til- einkað baráttunni gegn krabbamein- um í körlum. Eftir nokkra umhugsun valdi Guðni annað parið og fékk þá einnig hitt að gjöf „til vara“. „Nú er einmitt sá tími ársins þeg- ar maður skiptir um sokka,“ sagði Guðni kátur þegar hann mátaði nýju sokkana sína. Hann sagði að þeir myndu án efa nýtast sér vel, þeir væru fallegir, skærir og bjartir og gott væri að geta styrkt gott mál- efni. Salan á sokkunum hefst í dag og henni lýkur föstudaginn 15. mars, en þá er Mottudagurinn. Mottumars hefst í dag og Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, fékk fyrstu Mottumarssokkana að gjöf frá Krabbameinsfélaginu Fallegir, skærir og bjartir Morgunblaðið/Eggert Ágúst Ingi Jónson aij@mbl.is Umhverfisráðuneytið hefur vísað aftur til Umhverfisstofnunar erindi vegna undirbúnings friðlýsingar á Látrabjargi. Hildur Vésteinsdóttir, sviðsstjóri á Umhverfisstofnun, seg- ir að í kjölfarið muni stofnunin senda öllum landeigendum, sveitar- félagi og hagsmunaaðilum bréf með tillögu að friðlýsingu svæðisins. Jafnframt mun stofnunin hefja opið kynningarferli á tillögu að friðlýs- ingu svæðisins þar sem öllum gefst kostur á að senda inn ábendingar og athugasemdir. Þegar hafi félög land- eigenda og sveitarfélag verið upp- lýst um málið. Þriggja mánaða ferli Kynningarferlið mun standa í þrjá mánuði og á þeim tíma er óskað eftir ábendingum og athugasemd- um. Að því loknu mun Umhverfis- stofnun vinna úr athugasemdum sem berast og taka ákvörðun um framhald málsins byggða á þeim. Umhverfisstofnun vísaði málinu til ráðuneytisins í október í fyrra meðal annars á þeirri forsendu að sú vinna sem farið hefði fram hefði ekki skil- að samkomulagi við landeigendur. Það væri mat stofnunarinnar að sjónarmið landeigenda og Umhverf- isstofnunar væru ekki samþættan- leg og að stofnunin teldi að vinna við undirbúning friðlýsingar á Látra- bjargi væri fullreynd með því fyr- irkomulagi sem beitt hefði verið hingað til. Í svari ráðuneytisins 14. febrúar kemur fram að lögum samkvæmt skuli Umhverfisstofnun gera drög að friðlýsingarskilmálum og leggja fyrir landeigendur og aðra rétthafa lands, viðkomandi sveitarfélög og aðra sem hagsmuna hafa að gæta. Samkvæmt gögnum málsins hefði stofnunin ekki lokið lögbundnu ferli við undirbúning málsins og gæti ekki vísað málinu til ráðherra fyrr en að því loknu. Í undirbúningi frá 2011 Unnið hefur verið að undirbúningi að friðlýsingu Látrabjargs frá árinu 2011. Eignarhald er flókið á svæðinu og landeigendur rúmlega 80. Ekki eru allir landeigendur fylgjandi frið- lýsingu á svæðinu, en unnið hefur verið út frá því að samþykki allra skuli liggja fyrir. Opið kynningarferli um friðlýsingu Morgunblaðið/Árni Sæberg Látrabjarg Fjöldi ferðafólks leggur leið sína á Látrabjarg á hverju ári þar sem stórbrotin náttúra heillar.  Ráðuneyti endursendir Umhverfisstofnun erindi vegna Látrabjargs  Lögbundnu ferli ekki lokið Stjórnvöld á Grænhöfðaeyjum hafa samþykkt kauptilboð hlutdeildar- félags Icelandair Group í 51% hluta í ríkisflugfélaginu Cabo Verde Air- lines. Áætlað er að skrifa undir kaup- samning í dag. Jens Bjarnason, sem verið hefur framkvæmdastjóri hjá Icelandair, verður forstjóri félagsins. Kaupandinn er Loftleiðir Cabo Verde sem Loftleiðir Icelandic, dótt- urfélag Icelandair Group, á 70% hlut í á móti öðrum hluthöfum. Félagið tel- ur að miklir möguleikar séu til að byggja félagið upp sem öflugt tengi- flugfélag með Grænhöfðaeyjar sem tengimiðstöð á milli heimsálfa. „Við getum tengt fjórar heimsálfur saman, Norður-Ameríku og Vestur-Afríku og Evrópu og Suður-Ameríku. Við er- um að taka þá þekkingu sem Ice- landair býr yfir frá uppbyggingu tengimiðstöðvar á Keflavíkurflugvelli og yfirfæra á þessa landfræðilegu staðsetningu,“ segir Erlendur Svav- arsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Loftleiða Icelandic. Hann bætir því við að aðeins sex lönd í Afríku hafi heimild til að fljúga til Bandaríkjanna en ekkert þeirra sé í Vestur-Afríku. Það sé einstakt tæki- færi til uppbyggingar þessa félags. Fjórar þotur verða í rekstri í ár og samkvæmt áætlunum mun starfsem- in aukast þannig að tólf þotur verði í rekstri í lok árs 2023. Flugvélarnar koma frá Icelandair. Þannig gefst tækifæri til að nýta flugflotann og áhafnir á Grænhöfðaeyjum yfir vet- urinn þegar minna er að gera hjá Ice- landair. helgi@mbl.is Setja upp tengimiðstöð eins og á Keflavíkurflugvelli  Icelandair Group kaupir í ríkisflugfélagi Grænhöfðaeyja Sól Grænhöfðaeyjar eru eyjaklasi í Norður-Atlantshafi um 570 kíló- metra undan vesturströnd Afríku.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.