Morgunblaðið - 01.03.2019, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 01.03.2019, Blaðsíða 16
16 VIÐSKIPTIViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MARS 2019 Seljavegur 2 | Sími: 511-3340 | Fax: 511-3341 | www.reyap.is | reyap@reyap.is Apótekið þitt í gamla Héðinshúsinu við Seljaveg 2 Afgreiðslutími: 9-18:30 virka daga 10-16:00 laugardaga Reykjavíkur Apótek býður upp á allar tegundir lyfja. Mikið og fjölbreytt úrval af heilsuvörum, bað- og ilmvörum, gjafavörum auk ýmissa annarra góðra kosta. Reykjavíkur Apótek er sjálfstætt starfandi apótek sem leggur áherslu á persónulega þjónustu og hagstætt verð. • Öryrkjar og eldri borgarar njóta sérkjara hjá okkur • Frí heimsendingarþjónusta ar 1,5 milljörðum en sú tala mun tvö- faldast hið minnsta fyrir árið 2018. „Það verður ákveðið á aðalfundi í apríl en ég geri ráð fyrir að arð- greiðslur muni tvöfaldast fyrir árið 2018 og fara í 3-4 milljarða. Síðan mun það jafnvel tvöfaldast árið eftir. Ég myndi segja að við munum komast í 10-20 milljarða á tveimur árum,“ seg- ir Hörður í samtali við Morgunblaðið. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er kveðið á um stofnun þjóðarsjóðs. Frumvarp þess efnis liggur fyrir en í því er m.a. kveðið á um að arð- greiðslur Landsvirkjunar skuli renna þangað en hingað til hafa greiðslurn- ar ekki verið eyrnamerktar neinu ákveðnu. Semja við 9 af 10 Umfangsmiklu framkvæmdatíma- bili Landsvirkjunar er nú að ljúka en á síðustu fimm árum hafa verið tekn- ar í notkun þrjár stórar virkjanir, sem samtals búa yfir 285 megavatta fram- leiðslugetu. Nam fjárfestingin um 90 milljörðum króna og var að öllu leyti fjármögnuð úr sjóðstreymi fyrirtæk- isins. Tveir frekari virkjanakostir eru komnir langt í undirbúningi, Hvammsvirkjun og Búrfellslundur, og hægt er að ráðast í þær fram- kvæmdir með stuttum fyrirvara. Nóg er því um að vera framundan hjá Landsvirkjun en að sögn Harðar er einnig stefnt að því að búið verði að semja í samræmi við nýja verðskrá, sem miðast við að selja hverja MW- stund fyrir 30-40 dali í stað 15-25, við 9 af 10 af stóru viðskiptavinum fyrir- tækisins á þessu ári til þess að tryggja því betri afkomu. Að sögn Harðar eru samningarnir í sumum tilfellum hundraða milljarða virði. Fyrirtækið hefur þegar endursamið við Rio Tinto og Norðurál og bindur vonir við að semja við Elkem á þessu ári. 10 ár eru í að hægt sé að endursemja við Alcoa að sögn Harðar. Arðgreiðslur tvöfaldast Ljósmynd/Birgir Ísleifur Gunnarsson Landsvirkjun Methagnaður var af grunnrekstri Landsvirkjunar árið 2018.  Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, gerir ráð fyrir 3-4 milljarða arð- greiðslu  Methagnaður var af grunnrekstri og tekjurnar hafa aldrei verið meiri BAKSVIÐ Pétur Hreinsson peturhreins@mbl.is Hörður Arnarson, forstjóri Lands- virkjunar, býst við því að arðgreiðslur fyrirtækisins muni tvöfaldast hið minnsta fyrir árið 2018 og verði á bilinu 3-4 milljarðar. Hagnaður fyrir- tækisins nam 121 milljón bandaríkja- dala eða um 14 milljörðum króna árið 2018. Hagnaður af grunnrekstri fyr- irtækisins nam 188,1 milljón banda- ríkjadala, eða um 21,4 milljörðum króna, og hefur aldrei verið meiri í sögu fyrirtækisins. Rekstrartekjur námu 533,9 milljónum bandaríkja- dala, eða um 62 milljörðum króna og hækkuðu um 11% á milli ára og hafa aldrei verið meiri. Þá var eiginfjár- hlutfallið 48,6% og hefur aldrei verið hærra. Tímamótaafkoma Frá árinu 2014 hafa nettóskuldir (vaxtaberandi skuldir að frádregnu handbæru fé) Landsvirkjunar lækkað um 14%, eða um 306 milljónir banda- ríkjadala. Það jafngildir 35,5 milljarða króna lækkun á fjórum árum sé mið- að við gengið 116. Í lok árs 2018 námu því nettóskuldir Landsvirkjunar, 1,9 milljörðum bandaríkjadala en á því ári lækkuðu skuldirnar um 8%. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í árs- reikningi Landsvirkjunar fyrir árið 2018 sem var birtur í gær. Sé litið lengra aftur í tímann hefur Lands- virkjun að sögn Harðar lækkað skuld- ir um milljarð bandaríkjadala frá árinu 2009 samhliða milljarðs banda- ríkjadala fjárfestingu í orkumann- virkjun. Að sögn Harðar gerir þessi góða rekstrarafkoma það að verkum að fyrirtækið er nú í stakk búið til þess að hækka arðgreiðslur til muna. Í fyrra nam arðgreiðsla Landsvirkjun- milljónir evra vegna fyrirtækja sem komu inn í samstæðuna um mitt ár 2017. EBITDA nam 49,2 milljónum evra, jafnvirði tæplega 6,7 milljarða króna. Lækkaði hún um 13,9% frá fyrra ári. Helstu ástæður lækkunar- innar má rekja til verri afkomu í frystiflutningum í Noregi, minni framlegðar af flutningsmiðlun í Evr- ópu og kostnaði við að bæta við þriðja skipi í svokallaðri Am- eríkuleið, að því er segir í tilkynn- ingu frá félaginu.Stjórn félagsins gerir tillögu um að greiddar verði út 653,2 milljónir króna í arð vegna síð- asta rekstrarárs. ses@mbl.is Forsvarsmenn Eimskipafélagsins segja að ársuppgjörið fyrir 2018 valdi vonbrigðum. Hagnaður ársins nam 7,4 milljónum evra, jafnvirði rúmlega milljarðs íslenskra króna. Dróst hagnaðurinn saman um 66% en hann nam 16,8 milljónum evra ár- ið 2017. Tekjur félagsins jukust á ný- liðnu ári um 3,8% og námu 689,2 milljónum evra, jafnvirði ríflega 93 milljarða króna. Magn í áætl- unarsiglingum jókst um 4,2% og tekjur hækkuðu um 10,8 milljónir evra eða 2,5% í þeirri starfsemi. Magn í flutningsmiðlun jókst um 4,3% og hækkaði um 14,4 milljónir evra eða 6,4% en þar af voru 10,3 Uppgjör Eimskips veldur vonbrigðum  Hagnaður nam einum milljarði króna Morgunblaðið/Sigurður Bogi Flutningar Hagnaður Eimskipafélagsins dróst verulega saman milli ára. 1. mars 2019 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 119.14 119.7 119.42 Sterlingspund 158.38 159.14 158.76 Kanadadalur 90.64 91.18 90.91 Dönsk króna 18.186 18.292 18.239 Norsk króna 13.959 14.041 14.0 Sænsk króna 12.859 12.935 12.897 Svissn. franki 119.47 120.13 119.8 Japanskt jen 1.0783 1.0847 1.0815 SDR 166.4 167.4 166.9 Evra 135.72 136.48 136.1 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 165.6679 Hrávöruverð Gull 1326.45 ($/únsa) Ál 1898.0 ($/tonn) LME Hráolía 65.64 ($/fatið) Brent Hagnaður Kviku banka á árinu 2018 nam 1.752 milljónum króna en nam 1.591 milljón króna árið á undan, sem er rúmlega 10% hækkun milli ára. Eignir félagsins jukust um 17% milli ára og námu rúmum 88 milljörðum í lok ársins en voru tæplega 76 milljarðar í lok árs 2017. Eigið fé Kviku nam í árslok 13 milljörðum króna samanborið við 11 milljarða árið á undan. Eiginfjár- hlutfall félagsins í árslok 2018 var 25,1%, og arðsemi eiginfjár bankans var 15,7% Vöxtur í þóknanatekjum Í tilkynningu segir að góður tekjuvöxtur hafi verið á árinu, en tekjur jukust um 14% á milli ára og var vöxturinn mestur í þóknana- tekjum. Þá segir að hreinar þókn- anatekjur hafi aukist um 32% á milli ára og voru þær 3.698 milljónir króna en 85% af aukningunni komu til vegna eignastýringar, samkvæmt tilkynningunni. Hreinar vaxtatekjur voru 1.701 milljón og jukust um 9% en fjárfestingatekjur lækkuðu lít- illega og voru 521 milljón á árinu. Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku, segir í tilkynningunni að árið 2018 hafi verið gott og ánægja sé hjá félaginu með afkomuna. tobj@mbl.is Hagnaður Kviku 1,8 milljarðar Afkoma Hagnaður Kviku jókst um 10%  Tekjur félagsins jukust um 14%

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.