Morgunblaðið - 01.03.2019, Síða 20

Morgunblaðið - 01.03.2019, Síða 20
20 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MARS 2019 VINNINGASKRÁ 44. útdráttur 28. febrúar 2019 501 9370 21534 30718 41209 50140 58767 68843 509 10378 21567 30858 41444 50503 59066 69006 767 10595 21983 30909 41747 50619 59258 69024 1492 11126 22058 31050 41961 51159 59361 69299 1922 11331 22170 31999 42495 51714 59454 69332 2017 12507 22397 32005 43231 51741 59926 69437 2260 13231 22596 32229 43593 51811 59937 69569 2938 13446 22778 32379 43906 52519 60040 71989 3921 13686 22934 32403 44037 52674 60407 72065 4172 13730 22949 32509 44247 52687 60502 72129 4344 13755 23089 32653 44545 52845 60543 72134 4489 13930 23180 32823 44698 52903 60659 72206 4507 14296 23338 33469 44754 53288 61179 72309 4592 14758 23452 34277 44996 53785 61224 73986 4688 14923 23554 34842 45011 53948 61824 74249 4871 14993 24572 34852 45492 54067 62011 74395 5015 15174 25380 35589 45638 54122 62072 75045 5412 15568 25697 35693 45757 54254 62266 75409 5605 15947 25904 35842 45787 54557 62362 75499 5620 16387 27051 36218 45839 54651 62709 76150 5818 16637 27244 36344 46007 54656 62839 76457 5825 17374 27342 36475 46116 54935 62856 76483 5906 17375 27709 38136 46195 55222 63493 76887 6348 17377 27762 38527 46413 55631 63574 77332 6410 17398 28031 38990 46575 55858 63757 78526 6528 17438 28995 39062 46750 55875 63816 78634 6963 18028 29170 39165 46823 56726 64371 78863 7003 18439 29284 39498 46985 56742 64792 79211 7614 18875 29799 39523 47352 56819 66098 79336 7877 18999 29929 39533 47353 56904 66218 79343 7946 19079 29980 39690 47963 57163 66726 79881 8246 19300 30026 39718 48227 57167 66759 8292 19660 30234 39778 48547 57605 66920 8381 20488 30287 39906 48668 57705 67990 8803 21197 30396 40210 48773 57956 68135 9011 21214 30471 40321 49508 58567 68676 9344 21483 30685 40908 49689 58678 68820 249 9291 20932 33330 43848 53161 65529 75063 355 9759 23135 34158 43976 53233 66277 75372 582 12793 25745 34571 45257 53808 66554 75579 632 13008 27461 35680 45696 54033 67982 77278 2139 14801 27635 36668 46245 55377 68286 77901 2524 14906 29160 36702 46895 55460 68432 77939 2726 16624 29697 36919 48202 56097 70256 78121 3732 16893 30076 39108 48401 57122 70500 78874 3792 18361 30080 39585 50714 57851 70987 79131 3973 19227 30155 41220 51230 59508 71299 4002 19390 30639 41545 52079 61364 71334 4557 19469 31538 42562 52678 63357 72139 8872 19902 32798 43671 53093 65416 74677 Næstu útdrættir fara fram 7., 14., 21. & 28. mars 2019 Heimasíða: www.das.is Vinningur Kr. 10.000 Kr. 20.000 (tvöfaldur) Vinningur Kr. 20.000 Kr. 40.000 (tvöfaldur) Vinningur Kr. 150.000 Kr. 300.000 (tvöfaldur) 40481 48168 71675 76419 Vinningur Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur) 257 10907 16540 36747 51124 69638 2378 10911 19388 37828 52936 71609 7410 12704 29157 40147 56199 72155 7631 14482 35087 48020 64394 73569 Aðalv inningur Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur) 3 4 6 8 4 Þessi setning hljómaði oft í eyrum landsmanna á fyrstu árum Sjón- varpsins. Ef við munum rétt, sem við munum, var verið að auglýsa skyrtu- tegund nokkra. Innflytjandi hennar græddi ábyggilega stórfé á þessari snjöllu framsetningu. Og nú er uppi svipuð hugmynd um stórmál sem hægt er að leysa strax. Og allir græða. Við félagarnir hér vestra höfum velt því nokkrum sinnum upp á op- inberum vettvangi að ríkið selji Ís- landsbanka. Erum þar svo sem ekki að finna upp hjólið. Noti fjármuni þá sem fyrir bankann fást til uppbygg- ingar á samgöngukerfinu. Kannski 150 milljarðar króna segja þeir sem vit hafa á. Þessi snjalla hugmynd um Íslands- banka hefur fengið misjafnar und- irtektir. Sumir segja að ríkið verði að eiga bankana svo allt gangverkið verði ekki snarvitlaust aftur. Aðrir segja að ríkið eigi ekkert að vera að vesenast í bankastarfsemi og svo framvegis. Enn aðrir vilja kalla á er- lenda banka. Við gömlu sparisjóða- mennirnir vörum reyndar alvarlega við þeim stofnunum sumum, eins og til dæmis Danske Bank og Deutsche Bank. Samkvæmt Reuters-fréttum eru þeir einfaldlega heimsins mestu sérfræðingar í peningaþvætti. Glæpastofnanir. Krókur á móti bragði Nú er það kænskubragð okkar, eða krókur á móti bragði, að koma með þá breytingartillögu, að ríkissjóður selji 49% eignarhlut sinn í Íslands- banka í dreifðri eignaraðild. Kannski 70-75 milljarðar takk. Enginn mætti eiga nema svo sem 5% í bankanum en ríkið héldi sínum meirihluta. Ganga verður svo frá hnútum að hér verði ekki bara orðin tóm eins og forðum. Þeir peningar yrðu notaðir í sam- göngur á landi. Almenningur ætti hér leik á borði að ráðstafa hluta af sparifé sínu í öruggum ríkisbanka. Fá í staðinn betri samgöngur strax sem allir hrópa á til sjávar og sveita. Svo má náttúrlega ekki gleyma lífeyr- issjóðunum. Mega þeir ekki eiga hlut í ríkisbanka? Eða stórfyrirtækjum eins og Eimskipi og Samskipum, sem skrönglast á ónýtum vegum árið út og árið inn. Hver og einn bær er hlekkur í keðjunni! Umrædd aðgerð um sölu á 49% hlut Íslandsbanka mundi hafa í för með sér samræmdar aðgerðir í vega- málum. Í þeim efnum er landið allt ein heild. Hver og einn bær er hlekk- ur í þeirri keðju. Smáskammtalækn- ingar með happa- og glappaaðferðum myndu snarminnka. Með þessu móti væri hægt að slá veggjöld eða skatta út af borðinu í bili. Þeir sem varla eiga til hnífs og skeiðar myndu fagna því mjög. En hins vegar er Íslands- gjald sem aðgöngumiði að Nátt- úrulistasalnum Íslandi fyrir akandi erlenda ferðamenn löngu tímabært. Talandi um bankastofnanir. Við seljum auðvitað ekki fimmeyring í Landsbankanum. Hann ætti að vera okkar samfélagsbanki líkt og spari- sjóðirnir voru, sællar minningar. Málið er sem sagt leyst eins og með skyrturnar forðum: Seljum 49% í Ís- landsbanka í dreifðri sölu og eign- araðild. Og setjum hverja krónu í uppbyggingu íslenskra vega! „Málið er leyst: Það er Melka!“ Eftir Hallgrím Sveinsson, Guðmund Ingvarsson og Bjarna G. Einarsson » Seljum 49% í Ís- landsbanka í dreifðri sölu og eignaraðild. Og setjum hverja krónu í uppbyggingu íslenskra vega! Hallgrím Sveinsson Hallgrímur er bókaútgefandi, Guð- mundur fv. stöðvarstjóri Pósts og síma á Þingeyri og Bjarni fv. útgerð- arstjóri KD á Þingeyri. Guðmundur Ingvarsson Bjarni G. Einarsson Ólíkt hafast þeir að. Í Bretlandi er Brexit, hið mikla þjóðþrifamál, yfirgnæfandi í þinginu og kemst vart annað að og er það aðalfréttir fjölmiðla þar. Hér á landi er það annað og einstaklega ómerkilegt mál sem yfirgnæft hef- ur þingið í á þriðja mán- uð en það er fyllirísröfl nokkurra kófdrukkinna þingmanna á bar úti í bæ. Fjölmiðlar hér hafa ver- ið mikið uppteknir af þessu skítamáli og þó RÚV sýnu mest. Klaustur- dellumálið, eins og ég kýs að kalla það, hefur riðið sölum Alþingis að undanförnu linnulítið og ýmis mik- ilvæg mál lítt komist áfram vegna þess. Gengið hefur verið svo langt að nokkrar þingkonur hafa sýnt svo ótrúlegan dónaskap að strunsa úr þingsal þegar menn, sem bendlaðir hafa verið við þetta mál, hafa stigið í ræðustól. Þar hefur farið fremst í flokki og hvað stóryrtust þingkonan Helga Vala en það er einmitt sú hin sama og varð sér til ævarandi skammar sl. sumar á Þingvallafund- inum sem haldinn var í tilefni 100 ára afmælis lýðveldisins. Þá rigsaði hún óvænt af fundinum því henni líkaði ekki nærvera fulltrúa þess, sem danska stjórnin hafði valið og sent til að heiðra fundinn. En síðan mætti Helga Vala til hátíðarfundar um kvöldið til að ná sér í áfengi enda þekkt að bjórdrykkju á Klausturbar, jafnvel á vinnutíma. Þá lét til sín taka úr ræðustól Alþingis skömmu fyrir jól Bjarkey Olsen og flutti aðventu- bæn sem eingöngu fjallaði um að út- hrópa mennina sem drukku sig fulla á Klausturbar. En forseti Alþingis, Steingrímur J., beit svo höfuðið af skömminni (og fannst hann ekki hafa orðið sér nóg til skammar í þinginu í gegnum árin) með því að skipa hverja nefndina af annarri sem urðu svo óhæfar vegna vanhæfis þeirra sem hann skipaði. Síðan fann hann tvennt sem hann taldi örugg- lega hæft í siðanefnd og þar við situr. Húrra. Steingrímur J. tók sér þarna alræðisvald að hætti komm- únistaleiðtoga, sem hann hafði takmark- aðan rétt til og undirbjó með þessu athæfi sínu „Gestapo“-réttarhöld, búinn að gleyma sínum mörgu fyrri brekum. Skal nú drepið á nokk- ur þeirra. Muna má er hann sagði Sigmundi Davíð að þegja í þinginu og lengra síðan ágætum Dav- íð Oddssyni sem hann hellti yfir sví- virðingum og óþverra einnig í þing- sal. Þá má einnig minnast á mál Geirs H. Haarde, orkupakkann, bankasöl- una, Sjóvá, ESB og síðast en ekki síst Icesave. Þetta er bara gróf upptaln- ing á skítverkum Steingríms J. án þess að hann hafi nokkurn tíma beð- ist afsökunar á einu né neinu og ekki er vitað annað en hann hafi verið blá- edrú í þinginu við þessi óhæfuverk. En í Klausturdellumálinu, sem hann hefur blásið svo ósmekklega upp, var um að ræða nokkra menn sem höfðu uppi ósæmilegt orðbragð í fylliríi en hafa ólíkt Steingrími J. iðr- ast, beðið afsökunar og tekið sér frí frá störfum í mánuði. Meirihluti þing- heims dæmir þessa menn og fer um þá óblíðum orðum, kemur óboðlega fram við þá og heimtar afsagnir. Þarna var um að ræða kófdrukkna menn og ofurölvi. Ég hef aldrei vitað að mark væri takandi á slíku röfli. Hverslags lið er það eiginlega, sem Alþingi Íslendinga situr? Ég vil hér nefna eitt dæmi sem haft er eftir Líf Magneudóttur borgarfulltrúa sem boðið hafði verið að borði þeirra svo- kölluðu Klausturmanna. Hún sagðist hafa yfirgefið borðið fljótlega þar sem um ofurölvi menn hefði verið að ræða. Svo rammt kveður að að nokkrir þingmenn taka sér það vald sem þeir hafa ekki og úthrópa mann frá nefnd- arformennsku og sami þingmaður, Bergþór Ólason, varð fyrir aðkasti í ræðustól þegar píratarnir Björn Leví og Þórhildur Sunna silltu sér upp sitt hvorum megin við Bergþór, höfðu uppi dólgslæti og vanvirtu þingið. Þau ættu sannarlega að fara í langt frí. Þáttur RÚV sjónvarps Komið er á þriðja mánuð síðan nokkrir þingmenn komu saman á Klausturbar eins og fyrr er getið og kneyfuðu ölið það stíft að sumir urðu ofurölvi og ósmekklega orðljótir. Þeir hinir sömu hafa sýnt mikla iðrun og beðið fyrirgefningar, farið í frí frá þingmennsku í mánuði sem alþjóð veit, allavega þeir sem vilja vita. En þetta Klausturdellumál hefur heldur betur orðið tilefni til linnulítils einelt- is hjá RÚV umfram aðra miðla gagn- vart þessum mönnum, bæði í fréttum og hinum ýmsu þáttum sem sýndir eru. Vil ég t.d. nefna þættina Kastljós með Einari Þorsteinssyni, Silfrið með Agli, svo ég tali nú ekki um Fanneyju Birnu, þar sem steingleymst hefur að minnast á Samfylkingarmálin hans Dags B., þ.e. Braggamálið, og svo kosningasvikamálið hans, bara svo eitthvað sé nefnt af vinstri vængnum. Þá má ekki gleyma þætti spjátrungs- ins Gísla Marteins með æði oft slekti frá 101 og 107. En til að kóróna ein- eltið hefur fréttakonan Jóhanna Vig- dís verið ötul við að koma Klaustur- málinu að eins oft og hægt hefur verið og þá hefur Broddi ekki látið sitt eftir liggja að spyrja um og minn- ast á málið og liggur við að stundum hafi manni fundist þau kallast á um Klausturdellumálið. Er ekki reynt að útrýma einelti? Hvað segir nú me too? Skrípaleikurinn á Alþingi Eftir Hjörleif Hallgríms »Hvar erum við Ís- lendingar staddir ef ómerkilegt fyllirísröfl á bar úti í bæ er að setja Alþingi á hliðina og fréttamiðlana líka? Hjörleifur Hallgríms Höfundur er eldri borgari á Akureyri. Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.