Morgunblaðið - 01.03.2019, Qupperneq 21
UMRÆÐAN 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MARS 2019
Gs import ehf | S. 892 6975 | www.gsimport.is
FSC vottuð og EN13432 Vottun
Papparör
Umhverfisvæn - Í miklu úrvali
Sjálfsagt væri það
löng skrá að draga
saman allar yfirsjónir
og afglöp stjórnmála-
manna gegnum tíðina
en hvers vegna þessi
yfirskrift? Er Sjálf-
stæðisflokkurinn sek-
ari en aðrir flokkar?
mætti strax spyrja.
Um það má rökræða
en eitt er víst: Enginn
stjórnmálaflokkur á Íslandi hefur
verið jafnlengi við völd og Sjálfstæð-
isflokkurinn, eða nálægt 95% tímans
sem liðinn er frá stofnun lýðveldis á
Íslandi 1944. Oftast hefur hann leitt
ríkisstjórnir í krafti stærðar sinnar.
En spyrja má: Er þetta æskilegt þar
sem lýðræði á að byggjast á fjöl-
breytni og hag allra landsmanna en
ekki hagsmunagæslu fárra útval-
inna?
Sjálfstæðisflokkurinn náði oft
ótrúlega miklum árangri með snjallri
útfærslu slagorða sinna. Hver man
ekki eftir „Stétt með stétt“ þó svo að
sífellt væri klifað á að hér væri nán-
ast stéttlaust samfélag?
„Vörn gegn glundroða“ var slag-
orð upp úr miðri öldinni sem leið og
eignað Bjarna Benediktssyni eldri
sem var einn af meginforystumönn-
um Sjálfstæðisflokksins. Borði með
þessari áletrun var strengdur fyrir
hverjar kosningar efst í Bankastræti
og máttu allir þeir sem leið áttu þar
um að ganga undir þetta slagorð.
Allt þetta hefur átt sinn þátt í að
þjappa fólki saman um Sjálfstæð-
isflokkinn.
Í ævisögu Guðna Th. Jóhann-
essonar forseta um Gunnar Thor-
oddsen má lesa að Sjálfstæðisflokk-
urinn sótti margar
sínar fyrirmyndir til
þýska nasistaflokksins.
Má þar nefna hug-
myndafræði um skipu-
lag flokksins í sveitum
og bæjum landsins,
fjármögnun og hvernig
slagorð voru saman
sett. Er þar margt fróð-
legt að fræðast um í
þeirri vel rituðu bók.
Lengi hefur Sjálf-
stæðisflokkurinn lagt
áherslu á vera málsvari
einstaklingsins og lýðræðis í sam-
félaginu. Þetta er mjög lofsvert en er
þetta í raun og í samræmi við yfirlýs-
ingar?
Á síðustu árum hefur Sjálfstæð-
isflokkurinn dregið í efa nauðsyn
þess að hér verði sett ný stjórn-
arskrá og er það miður. Með nýrri
stjórnarskrá byggðri á nútíma-
hugsun um mannréttindi og lýðræði
og hvernig megi varðveita hvort
tveggja hefur Sjálfstæðisflokkurinn
gerst sekur um að vera ákaflega aft-
urhaldssamur stjórnmálaflokkur og
slegið á þörfina fyrir að samfélagið
þróist í átt að auknu lýðræði og frelsi
allra einstaklinga. Þetta er flokknum
til mikils vansa.
Frá 1991 og til þessa dags hefur
Sjálfstæðisflokkurinn stýrt fjár-
málaráðuneytinu og þar með skatta-
málum og skattrannsóknum m.a.
vegna undanskots skatta. Undan-
skilin eru árin 2009-2013 og kannski
það eina ár sem Benedikt Jóhann-
esson gegndi þessu embætti en hann
er ekki langt frá Sjálfstæð-
isflokknum. Á þessum tæpu þrem
áratugum hefur orðið mikið „mis-
gengi af mannavöldum“ með mis-
munun milli þegnanna. Árið 1996
voru lægstu laun og greiðslur frá
Tryggingastofnun ríkisins innan
skattleysismarka. Frá þeim tíma
hefur þeim verið haldið nær óbreytt-
um en vísitölur hækkað yfir 160%.
Er svo komið að nú kostar það um
150 milljarða að færa skattleys-
ismörkin upp. – Þetta hefur orðið á
vakt Sjálfstæðisflokksins og er hon-
um til mjög mikils vansa.
Það myndi æra óstöðugan að telja
upp allar meginsyndir stjórnmála-
manna. Þeir eru mannlegir eins og
gengur en oft mættu þeir ígrunda
betur það sem þeir ákveða. Að létta
af sumum skattbyrði en færa yfir á
aðra sem minna mega sín verður að
teljast sérstaklega ámælisvert.
Hugmyndir þeirra Indriða H. Þor-
lákssonar, fyrrverandi ríkisskatt-
stjóra, og Stefáns Ólafssonar, pró-
fessors í Háskóla Íslands, eru alla
vega áhugaverðar og myndu bæta
mikið úr þeim ógöngum sem skatta-
mál landsmanna undir stjórn sjálf-
stæðismanna hafa ratað í.
Óskandi er að þessar hugmyndir
verði teknar til skoðunar og útfærð-
ar þannig að stjórnmálamönnum sé
sómi að. Einnig Sjálfstæðisflokkn-
um!
Syndir Sjálfstæðisflokksins
Eftir Guðjón
Jensson »Enginn stjórn-
málaflokkur á Ís-
landi hefur verið jafn-
lengi við völd og
Sjálfstæðisflokkurinn.
Er það æskilegt fyrir
lýðræði sem á að byggj-
ast á fjölbreytni?
Guðjón Jensson
Höfundur er leiðsögumaður og eldri
borgari í Mosfellsbæ.
arnartangi43@gmail.com
Tuttugu ár ! Hversu
hraðfleygur er tíminn.
Mér verður reikað um
heimalönd hugans og
minnist þessara tíma-
móta, þessara ögur-
stunda um leið, þegar
samfylgd fjölda fyrr-
verandi samherja var
rofin, hvergi nærri
sársaukalaust og hald-
ið með öðrum á braut
til nýrra markmiða,
lengra til vinstri, lengra til hugsjóna
sem við unnum, vildum að minnsta
kosti að væru okkar.
Köpuryrði flugu um undanvillinga
og liðhlaupa, en löngu gleymt hverjir
tóku þau sér í munn. Það var ótrú-
lega samheldinn hópur sem ég
ávarpaði fyrir tuttugu árum, mikið
og gott mannval þegar ég leit yfir
salinn og mér fannst ég vera á rétt-
um stað fyrir mínar áherzlur, mínar
meginskoðanir í þjóðmálum. Árin
tuttugu hafa fært mér sanninn um
það að fyrir mig var þessi ákvörðun
sú eina rétta. Ekki það að ég hafi
alltaf verið himinlifandi, en það var
ég heldur ekki alltaf í Alþýðu-
bandalaginu sáluga sællar minn-
ingar. Það var helzt til mikils ama
þegar umsóknin um ESB var sam-
þykkt, þessu allsherjaryfirvaldi þar
sem hinir stóru og sterku fá eðlilega
mestu ráðið, eðlilega segi ég þar sem
þannig er þessu fyrir komið. Þá leið
mér eins og mörgum öðrum talsvert
illa í sálinni. En hvað sem einstökum
málum hefur undið fram þá hefi ég
enn hvergi annars staðar fundið mál-
efnalega fótfestu og um það erum við
Björn G. Eiríksson frændi minn og
fóstbróðir, sem er glöggskyggn mað-
ur, hjartanlega sammála. Þegar við
af innstu sannfæringu höfum tekið
stöðuna þá er niðurstaða okkar jafn-
eindregin og var í árdaga þessarar
hreyfingar, Katrín Jak-
obsdóttir forsætisráð-
herra nefndi það ein-
mitt hversu mörg þeirra
mála sem VG setti á
oddinn í upphafi hafi
verið talin fjar-
stæðukennd, allt að því
hlægileg og skyldi mað-
ur ekki hafa kannast við
það, svo sem fjalla-
grasasönginn fræga. En
nú er það svo að allir
eða næstum allir vildu
þá Lilju kveðið hafa og hafa jafnvel
hert á kröfunum okkar þá. Baráttan
eftir hrunár kapítalistanna með
dyggri hjálp Samfylkingarinnar var
eðlilega löng og hörð, en vilja menn
hugsa þá baráttu án röskrar aðkomu
VG?
Vinstri hreyfingin – grænt fram-
boð hefur verið að vinna gott starf
stutt hugsjónaviðmiðum okkar fóst-
bræðra, hún er einmitt núna að vinna
að góðum málum, hvort sem litið er
til lýðheilsumála eða jafnréttismála
eða þá loftslagsmála og við erum
glaðir í hjarta okkar að hafa valið
rétt á sinni tíð.
Sem bindindismenn þá fögnum við
því að VG hefur staðið sig eins vel í
þeim efnum og kostur er. Megi hún
áfram vel vinna til varnar og sóknar
fyrir vinnandi fólk sem og þeim sem
erfiðasta eiga lífsgönguna, með lýð-
heilsu allra í gunnfána sínum. Þar
eru hennar hlutverk helzt og fremst.
Merk tímamót –
VG tuttugu ára
Eftir Helga Seljan
Helgi Seljan
» Árin tuttugu hafa
fært mér sanninn
um það að fyrir mig var
þessi ákvörðun sú eina
rétta.
Höfundur er fv. alþingismaður og
einn stofnenda VG.
Sú var tíðin að ég
rembdist eins og rjúpan
við staurinn við að
reyna að vera eitthvað.
En þá var ég aldrei
neitt, nema sýnd-
armennskan og ein stór
vonbrigði.
Það var ekki fyrr en
ég gafst upp og hætti að
rembast að mér op-
inberaðist að í sjálfum
mér væri ég svo sem
ekki neitt, en þó óendanlega dýr-
mætur í augum Guðs, að mér fannst
ég verða eitthvað, vera einhvers
virði.
Þá fyrst fór ég að hafa eitthvað
fram að færa. Þá fyrst fór ég að geta
gefið eitthvað af mér. Því þá fyrst
fannst mér ég vera nóg. „Því að
mátturinn fullkomnast í veikleika.“
Ástarljóð
Þú ert ekki mistök eða slys eða
eins og hver annar aðskotahlutur í
þessari veröld. Heldur ljóð sem Guð
hefur ort. Ástarljóð, sem Guð hefur
ort og vill fá að yrkja með þér frá
degi til dags. Ljóð sem ætlað er að
bera birtu og yl inn í aðstæður fólks.
Því er svo mikilvægt að þú standir
vörð um sjálfan þig og lífið dýrmæta
sem í þér býr. Því að með þér vill
Guð fá að skrifa / skapa réttlátari,
kærleiksríkari og betri heim.
Í ljósi mannlegs veruleika kann
þér líklega eins og mér stundum að
líða eins og sandkorni á strönd, sem
treðst undir í áreiti og baráttu dag-
anna.
En, í ljósi Guðs ertu eins og óend-
anlega fögur dýrmæt perla, ein-
stakur gimsteinn, fylltur leynd-
ardómsfullum tilgangi í eilífri
áætlun Guðs. Þess Guðs sem elskar
þig út af lífinu. Vissirðu, að þú ert
nefnilega eilífðar verðmæti, nátt-
úruperla sem ber að huga að, sýna
virðingu, pússa og gæta. Það er
nefnilega enginn eins
og þú. Enginn er með
sama göngulag í þess-
ari veröld sem þú – og
þér er ætlað mikilvægt
hlutverk í þessum
heimi. Eins og þú ert,
þar sem þú ert, hverju
sinni. Þess vegna ert
þú nóg.
Eilífðar verðmæti
Í lófa Guðs er nafn
þitt ritað. Þú ert hand-
arfar skaparans í þess-
um heimi og líf þitt hið
fegursta ljóð. Heilagur andi hefur
blásið þér lífi, anda og krafti í brjóst
til að vera sá eða sú sem þú ert. Þú
ert leikflétta í undri kærleikans.
Njóttu þess og láttu muna um þig.
Þegar sjálfur höfundur og full-
komnari lífsins horfir á þig sér hann
nefnilega eilífðarverðmæti sem hann
vill ekki að fari í súginn. Heldur ósk-
ar hann þess og biður að þau mættu
vaxa og dafna, bera ávöxt og vara
um eilífð.
Brot úr demanti
Kærleikur Guðs er líkt og dem-
antur sem fellur til jarðar og
splundrast í óteljandi kristalla. Einn
þeirra er ætlaður þér svo þú fáir not-
ið þeirra verðmæta um eilífð. Gættu
þess aðeins að pússa perlurnar í lífi
þínu svo að þær fái notið sín, því að í
þeim felst öll þín hamingja.
Öll jafn mikilvæg
Eins og ólíkir ávextir erum við
þótt í sömu körfunni séum. Með mis-
jafna hæfileika, ólíkar skoðanir og
mismunandi þarfir. Öll jafn mik-
ilvæg þótt ólík séum. Vegum hvert
annað upp, engan má vanta. Tölum
saman án fordóma.
Allir fyrir einn og einn fyrir alla.
Stöndum saman í baráttunni fyrir
bættari samskiptum og betri heimi.
Með kærleiks- og friðarkveðju.
– Lifi lífið!
Þú ert handarfar skaparans
Eftir Sigurbjörn
Þorkelsson » Þú ert handarfar
skaparans í þessum
heimi og líf þitt hið feg-
ursta ljóð. Hann hefur
blásið þér lífi, anda og
krafti í brjóst til að vera
sá sem þú ert.
Sigurbjörn
Þorkelsson
Höfundur er ljóðskáld
og rithöfundur og aðdáandi lífsins.
Allt um sjávarútveg