Morgunblaðið - 01.03.2019, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 01.03.2019, Blaðsíða 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MARS 2019 áður á staðinn. Þannig var Berg- lind. Í öllu sem Berglind gerði skein alltaf í gegn ást og umhyggja fyrir fjölskyldunni sinni og að eiga góð- ar stundir og skapa minningar. Hún naut sín best uppi á fjöllum á skíðum og í árlegum ferðum á ættarsetrið í Aðalvík þar sem mér skilst að sólarlagið sé eitt það fal- legasta. Berglind var mikil fjölskyldu- manneskja eins og sá samhugur og samheldni sem einkenndi fjöl- skylduna þessa síðustu mánuði í veikindunum ber skýrt merki. Það er sárt að kveðja góða vin- konu en minningarnar munu lifa áfram og verða veganesti fyrir okkur sem tökum þrautseigju og baráttu Berglindar til fyrir- myndar. Evva, Elsu Eddu og fjölskyldu votta ég mína dýpstu samúð. Takk fyrir samveruna mín kæra vinkona. Jóhanna Claessen. Við Berglind hittumst fyrst í 3E í MR, haustið 1992. Íþrótta- stelpa og handboltahetja úr Hafn- arfirði, stórglæsileg og með allt sitt á hreinu. Þannig var Berglind þegar við hittumst fyrst fyrir tæpum 27 árum og þegar við kvöddumst síðast fyrir tveim vik- um. Það var enda alveg sama hvaða vandamálum hún mætti á lífsleiðinni; hún bara tók þau að sér og leysti úr þeim, með kær- leikann og eigin sannfæringu að leiðarljósi. Án þess nokkurn tíma að röfla, kveinka sér eða kvarta. Það er ótrúlegt að hugsa til þess að ég hafi þekkt Berglindi í næstum 27 ár og viðurkenna um leið að það sé allt of stuttur tími. Við tókum okkur góðan tíma í að kynnast, en óteljandi gæðastund- ir bundu okkur saman órjúfanleg- um vináttuböndum. Við fórum í fyrstu utanlands- ferðir okkar og gengum um Hornstrandir undir lok síðustu aldar. Hlupum okkar fyrsta hálf- maraþon sumarið 2001 og sama sumar kepptum við í þríþraut KR, á þriggja gíra hjólum, hvar Berglind landaði þriðja sætinu. Kepptum á gönguskíðum í Vasa- loppet í Svíþjóð árið 2007. Það þarf vart að taka það fram að Berglind var alltaf langt á undan mér í mark, án þess þó að láta mig nokkurn tíma finna fyrir því, enda var hún örugglega ekkert í keppni við mig. Uppáhaldsferðin okkar beggja var þó sú síðasta, þegar við dvöldum í viku í búdda- setri í skosku hálöndunum við hugleiðslu og jóga. Þarna vorum við að nálgast 42 ára aldurinn, og ekki frá því að við værum loksins að fatta þetta – þið vitið – svarið við „lífinu, alheiminum og öllu saman“. Við vorum sammála um að þetta væri eitthvað það allra besta sem við höfðum tekið okkur fyrir hendur. Þótt minningarnar um þessa ferð verði mér alltaf ofarlega í huga verða minning- arnar frá samverustundum okkar Berglindar þennan síðasta vetur mér enn kærri. Það var alveg sama hversu veik Berglind var orðin; alltaf tók hún á móti mér brosandi og sannfærð um að hún yrði aftur betri. Morgundagurinn yrði örugg- lega betri en sá sem var að líða, og það varð hann líka oft í vetur. Það var ekki annað hægt en að halda í vonina með henni, allt fram á síð- asta dag. Fyrir Berglindi var ekkert fjall of hátt, ekkert verkefni of stórt og engar áskoranir þess eðlis að þær mætti ekki leysa. Það var bara þetta allra síðasta fjall, sem við þurfum öll að lúta í lægra haldi fyrir, sem henni tókst ekki að sigra. Hún fór samt langt með og miklu lengra en hægt var að búast við. Þessa síðustu ferð höndlaði Berglind af sömu yfirvegun, bar- áttuvilja og öryggi og allt annað sem hún tókst á við. Elsku Evvi og Elsa, Ingibjörg og Hallgrímur, Elsa, Ásgeir og Jónas, harmur ykkar er mikill en minningin um einstaka vinkonu lifir. Ég skil eftir hjá ykkur bæn- ina sem við lærðum í Skotlandi og var okkur svo kær. Megir þú vera hlý og heil. Megi hamingja og friður fylgja þér. Megir þú hafa frelsi til að öðlast visku. Katrín Helga Hallgrímsdóttir. Við kynntumst Berglindi fyrst í Menntaskólanum í Reykjavík og urðum síðar náinn vinahópur við nám í verkfræði við Háskóla Ís- lands, ekki síst vegna fjölmargra hópverkefna sem við unnum sam- an. Berglind var sólargeisli í ann- ars drungalegum húsakynnum VRII þar sem við vorum oftar en ekki að reyna komast í gegnum þurrar diffurjöfnur eða burðar- þolsreikninga. Hún lýsti upp skammdegið með sínu fallega augnaráði, hlýju og brosi sem lét öllum líða svo vel í návist hennar. Eftir að háskólanáminu lauk héldum við enn hópinn og hitt- umst reglulega í matarklúbbi (sem bar nafnið Friðrik) þar sem við áttum iðulega góðar stundir við matarborðið. Við gæddum okkur á metnaðarfullum réttum, krufum lífsgátuna, hlógum og höfðum gaman enda ávallt stutt í smitandi hláturinn hjá Berglindi. Í minningu okkar allra var hún alltaf með bros á vör og óhrædd við að takast á við hvaða verkefni sem var. Hún geislaði af sér já- kvæðni og hugrekki og virtist aldrei í vondu skapi eða illa upp- lögð. Hún var heiðarleg, traustur vinur okkar allra og hafði þann kost að eyða neikvæðu tali þar sem hún kom. Hún hafði þannig ómetanlega góð áhrif á vinnugleði og andrúmsloftið í hópnum sem við búum öll að. Berglindi skorti ekki gáfur eða ákveðni og hafði ástríðu til að leggja sitt af mörkum í námi jafnt sem félagsstörfum og stúdenta- pólitík. Hún var einfaldlega ein af þeim sem geta komist eins langt og þeir vilja. Erfitt er að sættast, eins og gengur að örstutt dægur leiði af sér nótt. Einstök sál sem átti að lifa lengur lýkur sinni jarðvist allt of fljótt. (GGG) Við færum Evva, Elsu Eddu og fjölskyldu Berglindar okkar inni- legustu samúðarkveðjur þegar við kveðjum góða vinkonu með miklum söknuði. Hvíl í friði elsku vinkona. Davíð, Gunnar Geir, Gunnar Stef., Helgi Pétur, Kristín Birgitta, Þórður og fjölskyldur. Elsku vinkona mín Berglind er fallin frá, allt of snemma. Ég kynntist Berglindi þegar við hóf- um nám í menntaskóla. Við kom- um báðar úr Hafnarfirðinum, hvor úr sínum bæjarhlutanum en síðar flutti ég í nágrenni við hana og fjölskyldu hennar og Berglind varð náin vinkona mín. Hún hafði allt til að bera; hún var gáfuð og kom svo vel fyrir, alltaf glæsileg, jákvæð og brosandi og með góða nærveru. Hún reyndist mér traustur og góður vinur. Þau Evvi aðstoðuðu okkur hjónin í þreng- ingum og hún hughreysti mig og studdi þegar ég tókst á við erfiða tíma. Ég reyndi að gera slíkt hið sama þegar hún þurfti á að halda. Hún var svo sterk og þrautseig í veikindabaráttu sinni að ég held ég viti fáa eða enga hennar líka að því leyti. Hún hafði alltaf baráttu- anda og von og var brosandi og svo hlý í hvert skipti sem ég heim- sótti hana, jafnvel þótt hún væri orðin afar þróttlítil. Ég var svo sannfærð um að ég myndi fá að hitta hana aftur og spjalla; maður trúir alltaf á lífið. Berglind og fjöl- skylda hennar eiga sérstakan stað í mínu hjarta, þau hafa reynst mér svo vel. Ég er afar þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast Berglindi. „Öllu er afmörkuð stund, og sérhver hlutur undir himninum hefir sinn tíma. Að fæðast hefir sinn tíma og að deyja hefir sinn tíma, að gráta hefir sinn tíma og að hlæja hefir sinn tíma, “ (Préd. 3:1, 4) Sigurlaug Hjaltadóttir. Andlát Berglindar vinkonu okkar skilur eftir sig sár sem mun aldrei gróa að fullu. Við munum alltaf bera ör á sálinni eftir þá sorg að missa hana frá okkur. Berglindar verður mikið og sárt saknað, og sorgin yfir missinum mun hryggja okkur lengi. Vinátta okkar við Berglindi og Evva er ein allra mesta gæfa okk- ar í lífinu. Allt frá því við kynnt- umst fyrst tókum við með þeim skrefin í átt að fullorðinsárunum. Frá stúdentagörðum í fyrstu íbúð og svo stærri vistarverur með stækkandi fjölskyldum. Vinátta okkur fjögurra var áreynslulaus þannig að allar taugar slöknuðu þegar við hitt- umst og vorum saman. Við gátum verið saman í langan tíma og ferðast langar vegalengdir, sýnt okkar bestu og verstu hliðar – alltaf án þess að finna fyrir óör- yggi eða óþægindum. Við vorum alltaf í einhverjum skilningi heima þegar við vorum nálægt þeim. Þessi vinátta er eitt af því allra verðmætasta sem við höfum eign- ast saman – og minningin um Berglindi og samverustundir okkar allra verður ætíð kyrrsæll sælureitur í huga okkar, helgur staður sem enginn getur af okkur tekið. Þeir sem til þekkja vissu að Berglind var lengi með hættu- legan sjúkdóm. En Berglind barðist af sínu áreynslulausa hug- rekki og lifði mörg ár við óskert lífsgæði eftir að hin upphaflega greining hafði dæmt hana til ósig- urs. Sjúkdómurinn átti að slá hana út með rothöggi í fyrstu lotu, en á endanum tapaðist bardaginn naumlega á stigum. Lærdómur- inn af hugrekki Berglindar, henn- ar ótrúlega styrk, yfirvegun og æðruleysi, er líklega dýrmætasti gimsteinninn í fjársjóðskistu minninga um einstaka mann- eskju. Við munum oft minnast Berg- lindar og gleðin yfir lífi hennar mun ylja okkur alla okkar daga. Örin sem við berum eftir sorgina verða engin lýti heldur hjartfólgin prýði. Þau eru falleg eins og minningin um elskulega vinkonu, falleg eins og þakklætið fyrir allt sem hún gaf, og þau eru falleg eins og áframhaldandi og ævar- andi kærleiksrík vinátta okkar við elsku Evva og Elsu Eddu. Ingunn, Þórlindur, Anton Haukur og Elín Katrín. Við vorum 20 strákar og fjórar stelpur sem byrjuðum saman í eðlisfræðideild II haustið 1994 og áttum við eftir að vera bekkjar- félagar síðustu tvö árin okkar í Menntaskólanum í Reykjavík. Stór hluti hópsins átti svo eftir að fylgjast að í verkfræðinámi eftir útskrift. Bekkurinn var samrýnd- ur og átti margar góðar stundir saman, innan skólastofunnar sem og utan, til dæmis í útilegum, spilamaraþonum á Café au Lait og í kjallara Cösu. Þetta endur- speglaðist þegar 19 okkar hittust í tilefni 20 ára útskriftarafmælis árið 2016. Berglind var einstök, ef hún var ekki brosandi þá var hún hlæjandi. Hún færði með sér birtu og yl inn í hvert herbergi sem hún kom, bæði með léttri lund og einnig með einstakri já- kvæðni. Hún var afar greind, stóð ávallt með sjálfri sér og lét ekki aðra hafa áhrif á skoðanir sínar eða gjörðir. Berglind talaði aldrei illa um aðra og reyndi að snúa of- an af neikvæðri umræðu hvenær sem hún gat. Þrátt fyrir veikindin naut hún lífsins með fjölskyldu og vinum, þreyttist ekki á að smella sér á skíðin og bruna niður brekkurnar með Evva sínum og Elsu Eddu. Ekki lét hún veikindin heldur stoppa sig í að stunda hlaup eða aðra útivist. Berglind var góður vinur og bekkjarfélagi, hún fann sér sér- stakan og langlífan stað í brjósti okkar allra. Megi góður Guð veita ykkur, Evvi, Elsa Edda, fjölskylda og vinir, styrk til að takast á við sorgina. Missir ykkar er mikill. Minning um fallega, sterka og glaðværa konu mun lifa með okk- ur öllum. Fyrir hönd bekkjarfélaga 6Y, Menntaskólanum í Reykjavík, Arnfríður og Rósa. Vondar fréttir gerast sjaldan verri. Baráttukonan Berglind hefur nú lotið í lægra haldi fyrir hinum illvíga óvini sem hún hafði háð hetjulega baráttu við í ótrú- lega langan tíma. Skammdegið er að víkja og vorið er á næsta leiti; dimmustu dagar ársins að baki þegar lokapunkturinn er settur aftan við síðustu setninguna í lífs- bók þessarar yndislegu og mögn- uðu konu. Berglind hóf störf í Lands- bankanum í ágúst 2006 og starf- aði í ýmsum deildum og sviðum bankans, fyrst á alþjóðasviði en eftir hrun í endurskipulagningar- deild og nú síðast sem forstöðu- maður á fyrirtækjasviði frá 2016. Berglind vann með fjölda fólks innan bankans og hvar sem hún fór eignaðist hún vini og naut virðingar. Berglind var afar sam- viskusamur og góður starfsmað- ur; eldklár og úrræðagóð, hjálp- leg og jákvæð. Berglind var mikil keppnis- manneskja og baráttukona og tókst á við sjúkdóm sinn af full- komnu æðruleysi með bjartsýni, jákvæðni og sínu fallega brosi og húmor. Hún hafði gengið með meininu lengi en hún varð mér sjáanlega aldrei veik. Ekki fyrr en undir það síðasta. Hún gaf aldrei upp vonina. Margt af sam- starfsfólki hennar tók með einum eða öðrum hætti þátt í baráttu hennar síðustu mánuðina með stuðningi, bænum og fallegum óskum. Hugur okkar hér í bankanum er að sjálfsögðu með eiginmanni hennar og dóttur og fjölskyldu allri. Ég, fyrir mína hönd og sam- starfsfólks bæði á fyrirtækjasviði og annars staðar í bankanum, vil með þessum fátæklegu orðum senda ykkur okkar dýpstu sam- úðarkveðjur; engin orð geta gert ykkur þessa raun bærilegri en vonandi er það einhver huggun að eiginleikar og útgeislun Berg- lindar varðveitast í dóttur hennar og munu vafalaust bera henni fag- urt vitni. Megi góður Guð vera ykkur styrkur í sorginni. F.h. samstarfsfólks og vina í Landsbankanum, Árni Þór. Hinsta kveðja frá stjórn SÍ Með ótímabæru andláti Berg- lindar er stórt skarð höggvið í stjórn Sjúkratrygginga Íslands en Berglind hefur sinnt stjórnar- mennskuí stofnuninni af mikilli elju og alúð síðan hún var skipuð árið 2014. Við munum sakna krafts hennar, áræðni og þrot- lauss vilja til að gera betur. Hún var skörp og þorði að hugsa út fyrir rammann. Hélt öllum við efnið og engan bilbug var á henni að finna þrátt fyrir erfið veikindi. Hennar verður sárt saknað en minningin og verk hennar innan stjórnarinnar munu lifa. Við sendum fjölskyldu og ást- vinum Berglindar okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Birna Svavarsdóttir Brynhildur S. Björnsdóttir Guðmundur Magnússon Hákon Stefánsson.  Fleiri minningargreinar um Berglindi Hallgríms- dóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Sigrún Hart-mannsdóttir fæddist á Melstað í Óshlíð 8. ágúst 1926. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Sauðárkróks 19. febrúar 2019. Foreldrar henn- ar voru Hartmann Magnússon bóndi, f. í Tungu í Stíflu árið 1888, d. 23. nóvember 1980, og Guðlaug Pálsdóttir, f. í Hamrakoti í Svarfaðardal 24. ágúst 1888, d. 26. júlí 1968. Sigrún var yngst fjögurra systkina, en þau voru Magnús Hofdal, Ásta og Guðný Kristín. Hinn 6. júlí 1948 giftist Sig- rún Halldóri Antonssyni, f. á Fjalli í Kolbeinsdal 10. septem- ber 1921, d. 11. apríl 2008. Þau eignuðust þrjá syni: 1) Gunn- laug, f. 11. sept. 1947. Kona hans var Fjóla Grímsdóttir, f. 8. nóv. 1953. Þau skildu. Börn: Soffía Sigrún, f. 3. sept. 1974. Maki Sigurður Einar Steinsson, f. 1965. Börn þeirra eru Fjóla María, Viktor Kolbeinn, Íris Hekla og Lilja Bríet. Grímur Anton f. 24. maí 1978. Sam- býliskona Sigþrúður Guðna- dóttir, f. 1978. 2) Bjarni, f. 23. janúar 1952. Maki Kristjana Björg Frímannsdóttir, f. 7. júlí 1953. Börn þeirra: Halldór, f. 26. júní 1972. Fyrri barnsmóðir Halldórs er Auður Árdís Eiðs- dóttir, f. 1973. Börn þeirra Bjarni Hörður og Helga. Seinni barnsmóðir Hall- dórs er Anita Aune, f. 1971. Son- ur þeirra er Per Ståle. Sambýlis- kona Halldórs er Lára Huld Krist- jánsdóttir, f. 1978. Hún á þrjár dætur úr fyrri sambúð. Sigurlaug, f. 17. apríl 1975. Maki Lage Berg, f. 1973. Dætur þeirra: Kristjana, Sandra, Telma og Emma (and- vana fædd). Ósk, f. 16. okt. 1984. Maki Axel Eyjólfsson, f. 1981. Börn þeirra eru Anton Þorri, Bríet og Eydís Inga. 3) Hartmann Ásgrímur, f. 2. mars 1957. Sambýliskona Arnbjörg Kristín Hjaltadóttir, f. 1951. Þau slitu samvistir. Dætur þeirra eru Hlíf, f. 11. febrúar 1972. Maki Jónas Logi Frank- lín, f. 1972. Synir þeirra Atli Fannar, Egill Ari og Jóhann Ernir. Hildur, f. 7. september 1977. Maki Hjörvar Hall- dórsson, f. 1975. Dætur þeirra Hervör Frigg, Halldóra Ísa- bella og Helena. Hallrún, f. 25. júní 1982. Núverandi sambýliskona Hartmanns Ásgríms er Sólveig Pétursdóttir, f. 21. júní 1953. Börn hennar eru Sólveig og Pétur. Sigrún verður jarðsungin frá Sauðárkrókskirkju í dag, 1. mars 2019, klukkan 15. Árið 1948 festu þau Sigrún og Halldór kaup á jörðinni Tumabrekku í Óslandshlíð og hófu þar búskap. Sigrún, eða Rúna eins og hún var ávallt kölluð, var langyngst sinna systkina og í miklu eftirlæti enda glaðvær og sjálfstæð snemma. Móðuramma hennar var fyrsta konan sem átti sæti í hreppsnefnd á Íslandi og var sagt að þær væru um margt líkar. Rúna var mjög fróð enda las hún mikið og fylgdist vel með. Hún var glettin og hafði gaman af því að spila við barnabörn sín og var með af- brigðum gestrisin og kom eins fram við alla. Hún var vel liðin hvar sem hún bar niður, t.d. í fiskvinnslu á Hofsósi og sem matráðskona á Hólum í Hjalta- dal og átti þar bæði rektorinn og vígslubiskupinn að góðum vinum enda treystu þeir henni og sáu að hún sinnti hlutverki sínu af reisn og lipurð. Rúna vildi alltaf hafa allt fínt í kringum sig og aðstoðaði gjarna nágranna sína óbeðin. Gaman var að ferðast með henni til Sviss þegar hún var að heimsækja barnabarn sitt þar. Alls staðar var eins og hún væri heima hjá sér. Það var eins og maður yrði ríkari af því að kynnast Rúnu og ég tel það lán mitt að svo varð. Guð blessi minningu góðrar konu og huggi aðstandendur hennar og vini. Sólveig Pétursdóttir. Sigrún Hartmannsdóttir Okkar elskulegi JÓHANNES GÍSLI PÁLMASON frá Sámsstöðum, lést 24. febrúar. Úför hans fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 11. mars klukkan 13.30. Sindri Snær Jóhannesson Emilía Rós Elíasdóttir Elísabet Ýr Jóhannesdóttir Jón Pálmi Jóhannesson Helga Jónsdóttir Jón Pálmi Gíslason Helga Sigríður Árnadóttir Þórður Grétar Andrésson Sveinbjörg Sigrún Pálmad. Eva Hrönn Pálmadóttir Ársæll Örn Heiðberg Marsibil Sara Pálmadóttir Jens Kristinn Elíasson og fjölskyldur Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÁGÚST JÓHANNSSON frá Sporði, Hvammstangabraut 20, Hvammstanga, lést á HVE Hvammstanga mánudaginn 25. febrúar. Jarðarför fer fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þorbjörn Ágústsson Oddný Jósefsdóttir Jóhanna Sigurða Ágústsd. Guðmundur Vilhelmsson barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.