Morgunblaðið - 01.03.2019, Side 33

Morgunblaðið - 01.03.2019, Side 33
Eik 2019 Fremstur fyrir miðju með sixpensarann er Árni Jónsson Sigurðsson og síðan réttsælis: Unnur Birna Bassadóttir, Magnús Jóhann Ragnarsson, Pétur Hjaltested, Ásgeir Óskarsson,Tryggvi Hübner, Kristófer Jensson, Lárus H. Grímsson og Haraldur Þorsteinsson. » Við ætlum eingöngu að flytja þettafrumsamda efni af plötunum sem að okkar mati er rosalega skemmtilegt. Eik 1977 Fremri röð f.v. Lárus H. Grímsson og Þor- steinn Magnússon. Standandi f.v. Pét- ur Hjaltested, Magnús Finnur Jóhannsson, Har- aldur Þorsteinsson, Tryggvi Hübner og Ásgeir Óskarsson. Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is Fimm upprunalegir liðsmenn hljómsveitarinnar Eikar þegar hún var upp á sitt allra besta árið 1977 efna til tónleika kl. 20.30 annað kvöld, laugardag, í Bæjar- bíói í Hafnarfirði. Þeir ætla að rifja upp tímabilið frá 1975 til 1977 og leika lög af tveimur breið- skífum sínum, Speglun, sem þeir gáfu út 1976 og Hríslan og straumurinn sem kom út ári síðar auk þess sem þeir taka tvö lög af eldri smáskífu. Fimmmenningarnir hafa ábyggi- lega engu gleymt enda allir starf- að og getið sér gott orð sem tónlistarmenn frá því þeir tóku sitt síðasta lag undir merkjum Eikar forðum daga. Þeir eru Ás- geir Óskarsson, trommur, Tryggvi Hübner, gítar, Lárus Grímsson, hljómborð, saxófónn, flauta gítar og söngur, Pétur Hjaltested, Hammondorgel og söngur, Har- aldur Þorsteinsson, bassi og söng- ur. Til liðs við sig hafa þeir fengið söngvarana Árna Sigurðsson, Kristófer Jensson og Unni Birnu Bassadóttur, sem einnig spilar á fiðlu, og Birgi Þórisson á hljómborð. Vinsælasta hljómsveitin Frá því hljómsveitin var stofnuð árið 1972 og þar til hún lagði upp laup- ana 1978 voru stöðugar mannabreytingar. „Eins og í flestöllum hljómsveitum í þá daga. Þær lifðu venjulega í ár eða svo. Ég veit ekki hvað ég var í mörgum, til dæmis í öllum „Péturshljómsveit- unum“; Pelican, Paradís og Póker,“ rifjar Ásgeir upp og skírskotar til hljóm- sveita sem Pétur heitinn Kristjánsson stofnaði. Sjálfur var Ásgeir í Eik um eins árs skeið. Báðar fyrrnefndar breiðskífur hlutu mikið lof gagnrýnenda og lesendur Dagblaðsins kusu Eik vinsælustu hljómsveit ársins 1976. Eik spilaði aðallega frumsamið, framsækið rokk og fönkbræðing og hefur raunar verið lýst sem minn- isstæðustu fönkbræðingssveitar ís- lenskrar tónlistarsögu. „Slík tónlist var ekki mjög vinsæl á böllum, sem þá voru nánast eini vettvang- urinn fyrir spilamennsku. Tónleika- hald eins og nú tíðkast var nánast óþekkt, þótt einstöku sinnum væri slegið upp stórtónleikum með kannski tíu hljómsveitum,“ segir Ásgeir. En nú er öldin önnur, dansleikir hafa lengi verið á undanhaldi og fólk flykkist á tónleika sem aldrei fyrr. Ásgeir og félagar sáu sér því leik á borði að blása til tónlistar- veislu að hætti Eikar rúmum fjörutíu árum eftir útkomu breið- skífanna. Stemning fyrir tónleikum „Við fluttum þessi lög sárasjald- an opinberlega á sínum tíma og finnst því mjög skemmtilegt að fá tækifæri til að spila þau á tón- leikum eftir öll þessi ár,“ segir Ásgeir og lætur þess getið að aldamótaárið hafi nánast sami, gamli hópurinn komið saman og leikið fyrir dansi á Hótel Íslandi og Grand Rokk. „Þá voru dans- leikir enn í tísku og við tókum því bara ábreiðulög. Á tónleikunum annað kvöld verður allt annað uppi á teningnum. Við ætlum ein- göngu að flytja þetta frumsamda efni af plötunum sem að okkar mati er rosalega skemmtilegt,“ segir Ásgeir. Leiðir sumra Eikarmanna hafa stundum legið saman á tónlistar- sviðinu í áranna rás. Sumir hafa verið og eru í mörgum hljóm- sveitum samtímis, aðrir kenna tónlist eða vinna mestmegnis í stúdíói og Lárus er stjórnandi Lúðrasveitar Reykjavíkur. Sjálfur er Ásgeir í mörgum hljómsveitum en þó fyrst og fremst Stuðmaður. „Stuðmenn eru mín aðal- hljómsveit, þótt við spilum ekki árið um kring heldur tökum smá- rispu öðru hverju.“ Spurður hverjir hafi verið helstu áhrifavaldar Eikar segir Ásgeir að bönd eins og Gentle Gi- ant, Weather Report, Steely Dan og Return to Forever hafi líklega haft mest áhrif. „Og hafi Eik átt einhvern smell hefur það helst verið Stormy Weather af Spegl- un,“ svarar hann aðspurður. Fönkepli falla ekki langt frá Eikinni  Framsækið rokk og fönkbræðingur verða aðalstefin á tónleikum Eikar í Bæjarbíói annað kvöld  Lög af breiðskífunum Speglun og Hríslan og straumurinn frá áttunda áratug liðinnar aldar MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MARS 2019 Verðlaunahátíð Evrópsku kvik- myndaverðlaunanna, EFA, verður haldin í Hörpu í desember á næsta ári en hún eru haldin annað hvert ár í Berlín og hin árin í borgum sem sækja um að halda hana. Stofnað var til verðlaunanna árið 1988 með það að markmiði að efla og vekja athygli á evrópskri kvikmynda- gerð, að því er fram kemur í til- kynningu og segir þar að um viða- mikið samstarfsverkefni sé að ræða milli ríkis og Reykjavíkurborgar. Hafa viðræður við Evrópsku kvik- myndaakademíuna staðið yfir í all- nokkurn tíma en umsókn um að halda hátíðina í Reykjavík var lögð fram um miðjan desember í fyrra. Tvær aðrar borgir sóttust eftir því að halda hátíðina. Ráðgert er að samhliða hátíðinni fari fram fjölmargir hliðarvið- burðir tengdir evrópskum kvik- myndum og kvikmyndagerð, að því er fram kemur í tilkynningunni og kemur þar fram að hátíðin hafi lað- að til sín erlenda gesti víða að úr kvikmyndaheiminum og vel á ann- að hundrað erlendra blaðamanna. Því er ljóst að um umfangsmikinn menningarviðburð er að ræða sem hljóta mun athygli og umfjöllun víða um lönd og beina sjónum fólks að Íslandi og Reykjavík sem og að íslenskri kvikmyndagerð og menn- ingu. „Stjórnendur Evrópsku kvik- myndaverðlaunanna hafa skoðað aðstæður í Hörpu og telja að húsið sé forsenda þess að hægt sé að halda viðburð sem þennan á Ís- landi. Ráðgert er að hátt í 1.400 gestir verði viðstaddir verðlauna- hátíðina sjálfa og að sýnt verði beint frá henni, hér heima og víða erlendis. Tímasetning hátíðarinnar hentar vel en desember er sá mán- uður þar sem einna líklegast er að slíkir viðburðir hafi jákvæð áhrif á ferðaþjónustu og atvinnulíf auk þess sem margvísleg tækifæri gef- ast til þess að vekja athygli á ís- lenskri menningu,“ segir í tilkynn- ingunni. EFA á Íslandi  Evrópsku kvikmyndaverðlaunin verða veitt í Hörpu á næsta ári AFP Á hátíð Wim Wenders, forseti Evr- ópsku kvikmyndaakademíunnar, með eiginkonu sinni Donötu. Fermingarblað Morgunblaðsins kemur út föstudaginn 15. mars Fermingarblaðið er eitt af vinsælustu sérblöðum Morgunblaðsins. Fjallað verður um allt sem tengist fermingunni. NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is PÖNTUN AUGLÝSINGA: Til mánudagsins 11. mars. SÉRBLAÐ

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.