Morgunblaðið - 01.03.2019, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 01.03.2019, Qupperneq 36
HEITASTA VERÐIÐ Í SÓLINA ALICANTE FRÁ 8.999kr.* Ferðatímabil: maí 2019 BARCELONA FRÁ 8.999kr.* Ferðatímabil: maí - júní 2019 GRANCANARIA FRÁ 12.999kr.* Ferðatímabil: mars - apríl 2019 TENERIFE FRÁ 16.999kr.* Ferðatímabil: apríl - maí 2019 MÍLANÓ FRÁ 8.999kr.* Ferðatímabil: maí - júní 2019 *Verðmiðast viðWOWbasic aðra leiðmeðsköttumef greitt ermeðNetgíró ogflugbókað framog til baka. Segðu skilið við suddann, skelltu þér í sólina og láttu veturinn líða úr þér. Það er ódýrara en þú heldur. Ráðstefna um barna- og unglingabækur „Þetta er mikið högg og ferlegt svekkelsi og ég er smátt og smátt að melta tíðindin. En eitt er víst að ég lofa að koma sterkari en nokkru sinni fyrr til baka á völlinn,“ segir Grétar Þór Eyþórsson, hinn bar- áttuglaði leikmaður ÍBV, sem mun ekki geta leikið handbolta næsta árið. Hann er þó staðráðinn í að snúa aftur í febrúar að ári. »1 „Þetta er mikið högg og ferlegt svekkelsi“ Nikulás Stefán Nikulásson og Leik- hópurinn X setja upp 12 tíma langa uppfærslu á leikritinu Beðið eftir Godot í Open við Grandagarð 27 á laugardag, 2. mars, frá kl. 15 til kl. 3. Gjörningur þessi fjallar um leik- hópinn Ert’ ekki að grínast í mér sem hittist á fyrstu æfingu fyrir 12 tíma uppsetningu á Beðið eftir Go- dot. Þau ætla sér að notast við sjálflærða spunaaðferð til að vinna uppsetninguna og mun þessi fyrsta æfing vera tilraun til þess að renna í gegnum leikritið á 12 tímum, finna út hver á að leika hvern, rýna saman í leik- ritið og brjóta til mergjar. Beðið í 12 klukkutíma Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Söngleikurinn Clueless, sem bygg- ist á vinsælli samnefndri kvikmynd, var frumsýndur fyrir nemendur Fjölbrautaskólans í Garðabæ í hús- næði skólans á miðvikudagskvöld. Almennar sýningar hefjast 7. mars. „Sýningin er metnaðarfull og allt unnið frá grunni; handrit, tónlist, textagerð og fleira. Leikarar í verkinu eru 37 en í heild koma 80 manns að sýningunni,“ segir Ágústa Marý Eyvindardóttir, markaðsstjóri leikfélagsins Verð- andi í FG. Ágústa segir að frum- sýningin hafi gengið vel og við- tökur gesta verið mjög góðar. „Tvö síðustu ár hafa verið sett upp barnaleikrit. Í ár langaði okk- ur að setja upp leikrit með stelpu í aðalhlutverki og því varð Clueless fyrir valinu. Það verk hefur ekki verið sett upp áður á Íslandi,“ segir Ágústa. Hún bætir við að Clueless sé rómantískur gamansöngleikur sem fjalli um menntaskólastelpuna Cher sem býr með ríka fólkinu í Beverly Hills í Hollywood. Til þess að fá betri einkunnir leiði hún sam- an á stefnumót tvo kennara. Ágústa segir aðalpersónurnar í söngleiknum vera Cher og vinkon- ur hennar tvær, Dionne og Tai Frazier. Krefjandi og skemmtilegt Ágústa segir að leikhópurinn hafi æft frá því í október. Í janúar hafi svo tekið við stífar æfingar á hverjum degi en leikstjórinn láti nám nemenda hafa forgang. Marg- ir krakkar taka færri einingar á vorönn en allir sem taka þátt í leik- ritinu fái það metið til eininga. Að sögn Ágústu er það góð reynsla og krefjandi að taka þátt í leiklistarstarfsemi og félagsskap- urinn skemmtilegur. Ágústa, sem bauð sig fram til starfa sem mark- aðsstjóri leikfélagsins, segir að sér hafi fundist starfið spennandi. Kosningabaráttan hafi ekki verið hörð en hún hlotið hnossið. Leikstjóri sýningarinnar og þýð- andi er Anna Katrín Einarsdóttir. Hildur Kristín Stefánsdóttir sér um tónlist og semur 11 ný lög fyrir söngleikinn. Danshöfundur er Sara Margrét Ragnarsdóttir. Allir aðrir sem starfa baksviðs í söngleiknum eru nemendur FG. „Við erum bjartsýn og höfum sett upp 12 sýningar en við reikn- um alveg eins með því að þurfa að bæta við sýningum líkt og í fyrra,“ segir Ágústa, sem á von á að miða- sala verði komin í gang á tix.is í dag. Fyrsta alvöruverk leikstjórans „Clueless er mitt fyrsta alvöru- verkefni. Leikgerðin er í söng- leikjaformi, byggð á Clueless- kvikmyndinni. Ég notaði spuna með krökkunum til þess að stækka bakgrunnshlutverk og gera meira úr þeim,“ segir Anna Katrín Ein- arsdóttir leikstjóri, sem er ánægð með samstarfið við nemendur FG. Hún segir þau hæfileika- og hug- myndarík, opin, jákvæð og tilbúin að takast á við krefjandi verkefni. Rómantískur gaman- söngleikur í Garðabæ Morgunblaðið/Eggert Söngleikur Allt klárt hjá nemendum FG fyrir frumsýningu Clueless 7. mars.  Clueless í Fjölbrautaskóla Garðabæjar  Nemendur fá einingar Upptekin Skyggnst inn á heimili Cher þar sem allir eru uppteknir í símanum. FÖSTUDAGUR 1. MARS 60. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 670 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM Ráðstefna um barna- og unglinga- bókmenntir verður haldin í Borg- arbókasafninu í Gerðubergi á morg- un frá kl. 10.30 til 13 og verður sjónum beint að þeim umræðum um gæði barnabóka sem fóru fram í fyrra. Erindi flytja rithöfundarnir Margrét Tryggvadóttir og Ragn- heiður Gestsdóttir sem einnig er myndhöfundur. Að ráðstefnu lok- inni verður tilkynnt hvaða bækur eru tilnefndar til Barnabókmennta- verðlauna Reykjavíkurborgar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.