Morgunblaðið - 25.03.2019, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 2 5. M A R S 2 0 1 9
Stofnað 1913 71. tölublað 107. árgangur
1.157 SINNUM
GENGIÐ Á
INGÓLFSFJALL GLÍMUMEISTARAR
RANNSÓKNIR Í
NYRSTU BYGGÐ
ALASKA
KÓNGUR OG DROTTNING ÍÞRÓTTIR ÍSBIRNIR 26GÖNGUGARPUR 12
Stefán E. Stefánsson
Baldur Arnarson
Skúli Mogensen, forstjóri og eigandi WOW
air, reynir til þrautar að bjarga flugfélaginu
frá gjaldþroti í kjölfar þess að slitnaði upp úr
viðræðum við Icelandair Group í gærdag. Frá
því á fimmtudagskvöld hafði Icelandair haft
til skoðunar að kaupa WOW air að hluta til
eða í heild. Niðurstaða þeirrar skoðunar var
sú, að sögn Boga Nils Bogasonar, forstjóra
Icelandair, að of mikil áhætta fælist í því að
fjárfesta í félaginu.
Samkvæmt tilkynningu frá WOW air sem
send var út í gærkvöldi vinnur félagið nú að
því að ná samkomulagi við meirihluta lán-
ardrottna sinna um að skuldum félagsins
verði að stórum hluta umbreytt í hlutafé og að
sömu aðilar tryggi félaginu fjármagn til
rekstrarins uns það nái „sjálfbærum rekstri
til framtíðar“ eins og það er orðað í tilkynn-
ingunni. Þessar viðræður munu hafa staðið yf-
ir um helgina, samtímis viðræðunum við Ice-
landair.
Heimildarmaður Morgunblaðsins sem kem-
ur að viðræðunum segir að reynt verði til
þrautar að fá nýtt fjármagn inn í félagið og að
í því skyni sé stefnt að sölu á 51% hlut í því.
Um svipað leyti og Icelandair Group sendi
frá sér tilkynningu í gær sátu ráðherrar í
ríkisstjórn Íslands, ráðuneytisstjórar og skrif-
stofustjórar ásamt öðrum ráðgjöfum á fundi í
Stjórnarráðinu við Lækjargötu þar sem farið
var yfir stöðuna. Meðal þeirra sem sátu fund-
inn var Michael Ridley, fyrrverandi ráðgjafi
hjá J.P. Morgan, en hann kom að ráðgjöf við
þáverandi ríkisstjórn Íslands þegar fjármála-
kerfið riðaði til falls í október 2008.
Fundinn í stjórnarráðinu sátu m.a. þau
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahags-
ráðherra, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir
ferðamálaráðherra og Sigurður Ingi Jóhanns-
son samgönguráðherra. Að loknum fundi
leituðu fjölmiðlar viðbragða þeirra við þeirri
stöðu sem upp er komin en þau vörðust öll
fregna af fundinum.
Heimildir Morgunblaðsins herma að tap
WOW air á síðasta ári hafi numið 22 millj-
örðum króna. Þar hafi munað gríðarlega um
tap vegna sölu fjögurra nýlegra Airbus-þota
til Air Canada undir lok síðasta árs. Þá er
staða félagsins afar veik um þessar mundir.
Þannig mun lausafjárstaða þess vera neikvæð
sem nemur rúmum 11 milljónum dollara, jafn-
virði 1,4 milljarða króna. Þá er eigið fé félags-
ins neikvætt sem nemur rúmum 111 millj-
ónum dollara, jafnvirði ríflega 13 milljarða
króna. Þá mun hlutfallsleg bókunarstaða fé-
lagsins vera um 50% af því sem hún var á
sama tíma fyrir ári. Sérfræðingar sem farið
hafa yfir stöðu félagsins telja að leggja þurfi
WOW air til að minnsta kosti 10 milljarða
króna út þetta ár svo halda megi rekstrinum á
floti. Skúli Mogensen hefur blásið starfsfólki
sínu baráttuanda í brjóst þrátt fyrir hina al-
gjöru óvissu sem uppi er um framtíð félagsins.
Þannig sendi hann starfsfólki tölvupóst í gær-
kvöldi þar sem hann sagði að starfsfólk hefði
m.a. haft samband og spurt hvort það gæti
lagt hluta launa sinna upp í hlutabréf.
Algjör óvissa um stöðu WOW
Icelandair taldi of mikla
áhættu felast í því að kaupa
WOW air að hluta eða í heild
WOW air tapaði 22 milljörðum
króna á síðasta rekstrarári og
eigið fé félagsins er neikvætt
Skúli Mogensen reynir til
þrautar að halda WOW á floti
með viðræðum við kröfuhafa
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Alvörustund Michael Ridley, fyrrverandi yfirmaður hjá J.P. Morgan, sat fund í Stjórnarráðinu í gær um málefni WOW air. Hann var einnig kallaður til ráðgjafar við stjórnvöld helgina örlagaríku
í október 2008 í þann mund sem bankarnir féllu. Á myndinni má einnig sjá Benedikt Árnason, skrifstofustjóra í forsætisráðuneytinu, Guðmund Árnason, ráðuneytisstjóra í fjármála- og efnahags-
ráðuneytinu, og Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfadóttur ferðamálaráðherra. Með bakið í myndavélina situr Kristján Skarphéðinsson, ráðuneytisstjóri í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu.
MFlugfélögin tvö sigldu í strand »4, 14
Breytt í langtímakröfu
» Isavia hefur breytt vanskilakröfu
vegna ógreiddra lendingargjalda á
hendur WOW air í langtímalán.
» Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins er fjárhæð lánsins tæpir 1,8
milljarðar króna.