Morgunblaðið - 25.03.2019, Side 1

Morgunblaðið - 25.03.2019, Side 1
M Á N U D A G U R 2 5. M A R S 2 0 1 9 Stofnað 1913  71. tölublað  107. árgangur  1.157 SINNUM GENGIÐ Á INGÓLFSFJALL GLÍMUMEISTARAR RANNSÓKNIR Í NYRSTU BYGGÐ ALASKA KÓNGUR OG DROTTNING ÍÞRÓTTIR ÍSBIRNIR 26GÖNGUGARPUR 12 Stefán E. Stefánsson Baldur Arnarson Skúli Mogensen, forstjóri og eigandi WOW air, reynir til þrautar að bjarga flugfélaginu frá gjaldþroti í kjölfar þess að slitnaði upp úr viðræðum við Icelandair Group í gærdag. Frá því á fimmtudagskvöld hafði Icelandair haft til skoðunar að kaupa WOW air að hluta til eða í heild. Niðurstaða þeirrar skoðunar var sú, að sögn Boga Nils Bogasonar, forstjóra Icelandair, að of mikil áhætta fælist í því að fjárfesta í félaginu. Samkvæmt tilkynningu frá WOW air sem send var út í gærkvöldi vinnur félagið nú að því að ná samkomulagi við meirihluta lán- ardrottna sinna um að skuldum félagsins verði að stórum hluta umbreytt í hlutafé og að sömu aðilar tryggi félaginu fjármagn til rekstrarins uns það nái „sjálfbærum rekstri til framtíðar“ eins og það er orðað í tilkynn- ingunni. Þessar viðræður munu hafa staðið yf- ir um helgina, samtímis viðræðunum við Ice- landair. Heimildarmaður Morgunblaðsins sem kem- ur að viðræðunum segir að reynt verði til þrautar að fá nýtt fjármagn inn í félagið og að í því skyni sé stefnt að sölu á 51% hlut í því. Um svipað leyti og Icelandair Group sendi frá sér tilkynningu í gær sátu ráðherrar í ríkisstjórn Íslands, ráðuneytisstjórar og skrif- stofustjórar ásamt öðrum ráðgjöfum á fundi í Stjórnarráðinu við Lækjargötu þar sem farið var yfir stöðuna. Meðal þeirra sem sátu fund- inn var Michael Ridley, fyrrverandi ráðgjafi hjá J.P. Morgan, en hann kom að ráðgjöf við þáverandi ríkisstjórn Íslands þegar fjármála- kerfið riðaði til falls í október 2008. Fundinn í stjórnarráðinu sátu m.a. þau Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahags- ráðherra, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir ferðamálaráðherra og Sigurður Ingi Jóhanns- son samgönguráðherra. Að loknum fundi leituðu fjölmiðlar viðbragða þeirra við þeirri stöðu sem upp er komin en þau vörðust öll fregna af fundinum. Heimildir Morgunblaðsins herma að tap WOW air á síðasta ári hafi numið 22 millj- örðum króna. Þar hafi munað gríðarlega um tap vegna sölu fjögurra nýlegra Airbus-þota til Air Canada undir lok síðasta árs. Þá er staða félagsins afar veik um þessar mundir. Þannig mun lausafjárstaða þess vera neikvæð sem nemur rúmum 11 milljónum dollara, jafn- virði 1,4 milljarða króna. Þá er eigið fé félags- ins neikvætt sem nemur rúmum 111 millj- ónum dollara, jafnvirði ríflega 13 milljarða króna. Þá mun hlutfallsleg bókunarstaða fé- lagsins vera um 50% af því sem hún var á sama tíma fyrir ári. Sérfræðingar sem farið hafa yfir stöðu félagsins telja að leggja þurfi WOW air til að minnsta kosti 10 milljarða króna út þetta ár svo halda megi rekstrinum á floti. Skúli Mogensen hefur blásið starfsfólki sínu baráttuanda í brjóst þrátt fyrir hina al- gjöru óvissu sem uppi er um framtíð félagsins. Þannig sendi hann starfsfólki tölvupóst í gær- kvöldi þar sem hann sagði að starfsfólk hefði m.a. haft samband og spurt hvort það gæti lagt hluta launa sinna upp í hlutabréf. Algjör óvissa um stöðu WOW  Icelandair taldi of mikla áhættu felast í því að kaupa WOW air að hluta eða í heild  WOW air tapaði 22 milljörðum króna á síðasta rekstrarári og eigið fé félagsins er neikvætt  Skúli Mogensen reynir til þrautar að halda WOW á floti með viðræðum við kröfuhafa Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Alvörustund Michael Ridley, fyrrverandi yfirmaður hjá J.P. Morgan, sat fund í Stjórnarráðinu í gær um málefni WOW air. Hann var einnig kallaður til ráðgjafar við stjórnvöld helgina örlagaríku í október 2008 í þann mund sem bankarnir féllu. Á myndinni má einnig sjá Benedikt Árnason, skrifstofustjóra í forsætisráðuneytinu, Guðmund Árnason, ráðuneytisstjóra í fjármála- og efnahags- ráðuneytinu, og Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfadóttur ferðamálaráðherra. Með bakið í myndavélina situr Kristján Skarphéðinsson, ráðuneytisstjóri í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. MFlugfélögin tvö sigldu í strand »4, 14 Breytt í langtímakröfu » Isavia hefur breytt vanskilakröfu vegna ógreiddra lendingargjalda á hendur WOW air í langtímalán. » Samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins er fjárhæð lánsins tæpir 1,8 milljarðar króna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.