Morgunblaðið - 25.03.2019, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 25.03.2019, Blaðsíða 21
Atvinnuhúsnæði Skrifstofuhúsnæði til leigu Óskað er eftir leigjendum fyrir skrif- stofuhúsnæði að Hverfisgötu 76, 101 Reykjavík. Birt stærð er 170,5 fm. Um er að ræða fallega og bjarta skrif- stofuhæð í traustu steinhúsi. Hæðin samanstendur af einum stórum vinnusal, rúmgóðri geymslu, tveimur rúmgóðum fundarherbergjum, tveim- ur snyrtingum, forstofu fyrir yfirhafnir og rúmgóðu eldhúsi. Gólf eru lögð linoleum dúk og veggir nýmálaðir. Baðherbergi eru flísalög bæði á gólfi og veggjum. Ástand og útlit hæðar- innar er mjög gott. Lyfta er í húsinu. Bílastæðahús er beint á móti húsinu. Staðsetning er góð í miðborginni. Hús og sameign í allgóðu ástandi. Á baklóð eru þrjú sérbílastæði fyrir hæðina. Tilboð óskast í leiguna. Vinsamlega hafið samband í GSM 8608886/8604429 Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Ýmislegt Bátar Bílaþjónusta GÆÐABÓN Stofnað 1986 • Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Atvinnuauglýsingar Blaðberar Uppl veitir     Morgunblaðið óskar eftir blaðbera      Tilkynningar Mat á umhverfisáhrifum Athugun Skipulagsstofnunar Allt að 6 MW virkjun í Þverá, Vopnafirði Mannvit verkfræðistofa f.h. Þverárdals ehf., hefur tilkynnt til athugunar Skipulagsstofnunar frummatsskýrslu um 6 MW virkjun í Þverá, Vopna- firði. . Kynning á frummatsskýrslu:Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá 25. mars — 7. maí á eftirtöldum stöðum: Á bæjarskrifstofu Vopna- fjarðarhrepps, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun. Frummats- skýrslan er aðgengileg á vef Skipulagsstofnunar www.skipulag.is. Athugasemdafrestur: Allir geta kynnt sér frummatsskýrsluna og lagt fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 7. maí 2019 til Skipulagsstofnunar, Borgartúni 7b, 105 Reykja- vík eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is. Skipulagsstofnun Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30. Kraftur í KR, Gréta verður með jóga, rúta fer frá Vesturgötu kl. 10.10 og Aflagranda kl. 10.20. Útskurður kl. 13. Félagsvist kl. 13. Kaffi kl. 14.30-15.20. Árskógar Opin smíðastofa kl. 9-16. Leikfimi með Maríu kl. 9. Handa- vinna með leiðbeinanda kl. 12.30-16. Félagsvist með vinningum kl. 13. Myndlist með Elsu kl. 16-20. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni. S. 535-2700. Dalbraut 18-20 Brids kl. 13. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og blöðin við hring- borðið kl. 8.50. Opin listasmiðja kl. 9-12. Byrjendanámskeið í línu- dansi kl. 10. Ganga kl. 10.15 ef veður leyfir. Hádegismatur kl. 11.30. Myndlistarnámskeið hjá Margréti kl. 12.30-15.30. Félagsvist kl. 13. Handavinnuhornið kl. 13-15. Síðdegiskaffi kl. 14.30. Kóræfing kl. 19.30-21.45. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari uppl. í síma 411-2790. Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Upplestur kl. 10.10. Opin handverks- stofa kl. 13. Botsía kl. 13.30. Kaffiveitingar kl. 14.30. Allir velkomnir! Félagsmiðstöðin Vitatorgi Leirmótun kl. 8.30-12.30, hjúkrunar- fræðingur kemur ekki í dag, Núvitund kl. 10.30-11.30, Handaband kl. 13-15.30, frjáls spilamennska kl. 13-16.30, Bókabíllinn á svæðinu kl. 13.10-13.30, Söngstund við píanóið kl. 13.30-14.15, opið kaffihús frá kl. 14.30-15.30. Verið velkomin á Vitatorg Lindargötu 59, sími 411-9450. Garðabær Vatnsleikfimi Sjálandi kl. 7.30 /8.15 /15. Kvennaleikfimi Sjálandi kl. 9.30. Liðstyrkur Sjálandi kl. 10.15. Kvennaleikfimi Ásgarði kl. 11.15. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Stólajóga kl. 11. Brids í Jónshúsi kl. 13. Zumba í Kirkjuhvoli kl. 16.15. Gerðuberg 3-5 111 RVK Opin Handavinnustofan kl. 8.30-16. Útskurður með leiðbeinanda kl. 9-16. Leikfimi Maríu kl. 10-10.45. Leikfimi Helgu Ben 11-11.30. Kóræfing kl. 13-15. Allir velkomnir. Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9 botsía, kl. 9.30 postulínsmálun, kl. 10.50 jóga, kl. 13.15 kanasta, kl. 16.30 Söngvinir, kóræfing, kl. 19 skap- andi Skrif. Grensáskirkja Síðdegissamvera miðvikudaginn 27. mars kl. 17.30- 19. Leifur Breiðfjörð glerlistamaður segir frá gluggum Grensáskirkju. Léttur kvöldverður kr. 1.000. Vinsamlega tilkynnið þátttöku í síma 528- 4410 eigi síðar en á h.d. þriðjudaginn 26. mars. Hjartanlega velkomin. Gullsmári Postulíns hópur kl. 90, jóga kl. 9.30, handavinna /brids kl. 13, jóga kl. 17, félagsvist kl. 20. Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Handavinna með leiðbeinanda kl. 9-11.30, 1340 kr. mánuðurinn, allir velkomnir og kostar ekkert að prufa. Hádegismatur kl. 11.30. Sögu- stund kl. 12.30-14. Jóga kl. 14.15–15.15. Hraunsel Kl. 9 myndmennt, kl. 11 Gaflarakórinn, kl. 13 félagsvist. Korpúlfar Hugleiðsla og létt jóga kl. 9 í Borgum, ganga kl. 10 frá Borgum, Grafarvogskirkju og inni í Egilshöll. Dans og dansgleði í Borgum kl. 11 í dag. Prjónað til góðs í umsjón Eyglóar kl. 13 í Borgum, allir velkomnir. Tréútskurður kl. 13 á Korpúlfssöðum í umsjón Gylfa. Félagsvist kl. 13 í Borgum og kóræfing Korpusystkina kl. 16 í Borgum þar sem gleðin býr. Seltjarnarnes Gler neðri hæð félagsheimilisins kl. 9. Leir Skólabraut kl. 9. Billjard Selinu kl. 10. Krossgátur og kaffi í króknum kl. 10.30. Jóga með Öldu í salnum á Skólabraut kl. 11. Handavinna á Skólabraut kl. 13. Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 18.30. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10–16. Heitt á könnunni frá kl. 10–11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30–12.15, panta þarf matinn daginn áður. Spiluð er félagsvist sem byrjar kl. 13.15. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30–15.30. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586. mbl.is alltaf - allstaðar Smá- og raðauglýsingar MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. MARS 2019 Nú, þegar séra Sigurður Pálsson er allur, koma upp í hugann margar góðar minningar, sem ástæða er til að þakka fyrir af hjarta. Didda Páls, eins og hann var gjarnan kallaður, hef ég þekkt alveg frá því að ég var ung- lingur. Mig langar að nefna að- eins þrjá áhrifamikla snertifleti sem dæmi um samstarf okkar og samvinnu. Á unglingsárum mínum var ég formaður í Kristilegum skóla- samtökum í fjögur ár. Á þeim tíma valdi stjórn KFUM ráðgjafa sem sat stjórnarfundi hjá okkur unga fólkinu. Það var engin tilviljun að hann var ráðinn til þess að vera okkur innan handar. Reynsla hans af kristilegu starfi og hæfni til að nálgast ungt fólk á þess forsendum kom sér afar vel. Sigurður var ekki bara góð- ur ráðgjafi, hann hlustaði á okk- ur, spurði spurninga sem vöktu okkur til umhugsunar og hvatti okkur til dáða. Hann var traust- ur félagi og vinur, sem við skóla- fólkið kunnum sannarlega að meta og var okkur öllum góð fyrirmynd. Aldrei var nein logn- molla í kringum hann. Annar snertiflötur vináttu og samstarfs var tímabilið sem við Sigurður og sr. Karl Sigur- björnsson sáum um síðu í sunnu- dagsblaði Morgunblaðsins sem við kölluðum: Á Drottins degi. Við skrifuðum hugleiðingar, þýddum greinar um trú, kirkju- starf og samfélag. Þessi sam- vinna stóð í ein þrjú ár og þurft- um við því að hittast oft og bera saman bækur okkar. Þarna kom fram góð hæfni Sigurðar til að tjá sig í rituðu máli þannig að enginn fór í grafgötur um skoð- anir hans á málefnum líðandi stundar í ljósi kristinnar trúar. Þessi samvinna var mér afar dýrmæt og gefandi. Þriðja atriðið sem ég vil nefna er svo árin sem við áttum sem prestar í Hallgrímskirkju. Þá vorum við báðir búnir að starfa við ýmis störf og safna reynslu sem gagnaðist okkur afar vel. Við tókumst á við hin mörgu og viðamiklu verkefni sem mættu okkur hvern einasta dag í kirkjunni og vorum einhuga um að vinna saman og treysta hvor öðrum. Við gerðum okkur fulla grein fyrir því mikla hlutverki sem Hallgrímskirkja hafði í borgarlífinu. Helgihaldið var krefjandi og reyndum við eftir megni að hafa það fjölbreytt og innihaldsríkt. Samstarfsfólkið í kirkjunni var margt og afar upp- örvandi, sóknarnefndin, sjálf- boðaliðar, messuhópar og hið fjölþætta listalíf. Sigurður var víðsýnn, heilsteyptur og kom til dyranna eins og hann var klædd- ur. Prédikanir hans voru margar minnisstæðar og vekjandi, enda var hann frábær prédikari. Þannig gæti ég talið upp mun fleiri atriði sem tengdu okkur Sigurð saman í innihaldsríku samstarfi og sannri vináttu. Ég þakka Guði fyrir Sigurð Pálsson og allt sem hann gaf mér fyrr og síðar á lífsleiðinni. Ég votta hans góðu konu Jó- hönnu Möller og fjölskyldunni samúð og bið Guð að blessa ykk- ur öll og styrkja. Jón Dalbú Hróbjartsson. Alltaf getur dauðinn komið manni á óvart. Okkur, fyrrver- andi vinnufélögum Sigurðar Pálssonar, var brugðið þegar til- Sigurður Pálsson ✝ Sigurður Páls-son fæddist 19. september 1936. Hann lést 2. mars 2019. Hann var jarð- sunginn 12. mars 2019. kynning birtist í Morgunblaðinu um að hann væri látinn. Við vorum starfs- félagar Sigurðar um langa tíð, sumir allt frá þeim tíma sem Ríkisútgáfa námsgagna var við lýði og aðrir hjá Námsgagnastofnun. Auk þess var mikið samstarf við hann meðan hann gegndi stöðu náms- tjóra hjá menntamálaráðuneyt- inu. Sigurður sinnti ýmsum trún- aðarstörfum hjá þessum stofn- unum; skrifstofustjóri, útgáfu- stjóri og síðast sviðstjóri náms- efnisgerðar. Hann var einstaklega ljúfur og góður samstarfsmaður og sanngjarn yfirmaður. Hann hafði þá kosti sem prýða góða yfirmenn að hann kallaði fram virðingu, en jafnhliða kom hann þannig fram að fólki þótti vænt um hann. Hann var sanntrúaður og samdi margar kennslubækur í kristnum fræðum. Allar voru þær sérstaklega vandaðar og lagði hann sál sína í samningu þeirra. Þrátt fyrir sína heitu trú, gerði hann aldrei tilraun til að predika hana yfir samstarfsfólki sínu. Sigurður var eins og áður seg- ir sanntrúaður og á miðjum aldri fór hann að læra guðfræði og eins og hann sagði sjálfur gaf hann sér prestinn í afmælisgjöf. Síðar bætti hann um betur og gaf sér doktor í afmælisgjöf. Var hann þá kominn á efri ár. Sigurður var skarpgreindur, rökfastur og fylginn sér þegar þess þurfti með. Hann var kannski alvörugefinn á sinn hátt en hafði gaman af gríni og jafn- vel smá fíflagangi þegar sá gáll- inn var á honum. Þegar starf- semi Ríkisútgáfunnar og síðar Námsgagnastofnunar var til húsa í Tjarnargötu 10 höfðu starfsmenn aðgang að mötuneyti Tollstjórans í Reykjavík. Eitt sinn í hádeginu þegar fólk mætti til hádegisverðar lá heljarstórt laufblað á gólfinu. Það gat þess vegna minnt á fíkjublaðið sem nefnt er í Biblíunni. Þegar Sig- urður gekk fram hjá laufblaðinu varð honum að orði: „Hér hefur einhver misst niðrum sig!“ Ekki var meiningin að skrifa langa grein, aðrir munu gera lífi og starfi Sigurðar betri skil, en við vildum minnast góðs starfs- félaga og vinar með nokkrum orðum. Ekkju Sigurðar og hans nán- ustu sendum við innilegar sam- úðarkveðjur. Fyrrverandi samstarfsmenn og vinir hjá Námsgagnastofnun, Eiríkur Grímsson. „Trúin er fullvissa um það sem menn vona, sannfæring um þá hluti sem eigi er auðið að sjá.“ Þessi orð heyrði ég fyrst af munni sr. Sigurðar Pálssonar og hélt að þetta væri hans eigin skilgreining á trúnni. Í reynd var þetta um 2.000 ára gömul viska úr Hebreabréfinu. Þetta rifjaðist upp fyrir mér nýlega þegar það kom í minn hlut að lesa Hebreabréfið inn fyrir væntanlega hljóðútgáfu á Nýja testamentinu. Og ég fylltist djúpu þakklæti til Sigurðar fyrir að hafa á sínum tíma lokkað mig til þess að lesa Biblíuna. Hann var þá framkvæmdastjóri Biblíu- félagsins og Biblíuþýðingin nýja komin á það stig að gefin voru út nokkur tilraunahefti. Hann fékk mig til þess að lesa yfir eitt af þeim fyrstu. Þótt ég væri hvorki guðfræðingur né málfræðingur taldi hann að ég sem rithöfundur og almennur kirkjugestur væri fullfær um að leggja mat á hvort textinn hljómaði vel eða illa. Í framhaldinu vaknaði áhugi minn á þessu ævaforna riti sem liggur til grundvallar svo miklu í vest- rænni menningu. Í prédikun sem Sigurður flutti á pálmasunnudag fyrir löngu lýsti hann því „liði“ sem fylgdi Jesú á reið hans á ösnunni inn í Jerúsalem. Það voru ekki valda- menn og hefðarfólk þess tíma, heldur alþýða manna, fiskimenn, torgsölukonur, tollheimtumenn, ófullkomið fólk og syndarar, fólk í leit að leiðsögn í lífinu. Þannig var fólkið sem dróst að Jesú. Ég fann mig í þessu „liði“. Eitt sinn var ég stödd í messu þar sem ungbarn var borið til skírnar. Í inngangsorðum skírnarinnar talaði Sigurður um barnið sem „undur sköpunar- innar“. Síðan þá hefur mér fund- ist það mikilvægasta atriði skírnarathafnarinnar að undir- strika að hvert nýfætt barn er „undur sköpunarinnar“ og óendanlegt þakkarefni. Söfnuð- urinn er kallaður til vitnis um að helgun á lífi litla barnsins hafi átt sér stað. Hvert lítið barn á allt undir því að foreldrar þess og fjölskylda, söfnuðurinn og samfélagið í heild sinni taki sam- eiginlega ábyrgð á lífi þess og þroska. Þetta eru fáein dæmi um Sig- urð Pálsson sem kennimann og uppfræðara og varanleg áhrif orða hans á mig. Þó get ég að- eins vitnað um lítið brot af um- fangsmiklu ævistarfi hans á akri trúarinnar. Ný þýðing Biblíunnar, sem Sigurður var í forsvari fyrir lengi ásamt dr. Guðrúnu Kvaran og fleirum og kom út 2007 í bisk- upstíð Karls Sigurbjörnssonar, er að mínum dómi menningar- sögulegt afrek. Ein nýmælin vörðuðu málfar beggja kynja, eins og það var orðað. Með því var vikið frá orðréttri þýðingu, en í staðinn birtur sá veruleiki að konur voru alla tíð með í sög- unum og virkur hluti af hinum fyrstu kristnu söfnuðum. Nú er talað um bræður og systur og góð systkin, þar sem áður var einungis ritað bræður. Og við sem unnum Hallgrími Péturs- syni og arfleifð hans hljótum að þakka Sigurði Pálssyni af öllu hjarta Sögu Hallgrímskirkju sem hann skráði og út kom 2015. Eftirlifandi konu Sigurðar, Jóhönnu Möller, Margréti Krist- ínu, dóttur þeirra, og fjölskyld- unni allri votta ég einlæga sam- úð mína við fráfall þessa mæta manns. Steinunn Jóhannesdóttir. Elsku yndislegu vinkonur, Jó- hanna og Magga Stína. Farinn er sérlega skemmti- legur og góður maður með dásamlega kímnigáfu og hjartað á réttum stað. Leitun er að eins hugljúfum, sjarmerandi verald- armanni. Sigurðar verður minnst í hjörtum allra er þekktu, hann gaf svo mikið af sér. Sig- urður var heimsins besti eigin- maður, var stoltur af Jóhönnu sinni. Þau tvö voru lið sem stóð saman, hlið við hlið, nutu hvort annars, barna og barnabarna. Hann lét konuna í lífi sínu blómstra hvern dag enda giftur fallegustu konu Íslands. Mikill hlátur, gleði, umhyggja fylgdi Sigurði. Það var ávallt gaman í Frostaskjólinu. Minningarnar eru margar fullar af ánægju, hlýju, vinsemd. Sigurður var stoð og stytta allra er til hans leituðu. Við mæðgurnar sendum hug- heilar kveðjur frá hjartarótum og biðjum góðan Guð að vernda og blessa elsku Jóhönnu, Möggu Stínu og fjölskyldur. Þakklæti til elsku Jóhönnu fyrir að vera ein sú skemmtileg- asta sem við þekkjum, ávallt trú sér sjálfri, einstök kona. Nú erum það við öll sem verð- um að passa vel upp á Jóhönnu, standa vel við hlið hennar. Megi Sigurður hvíla í friði. Með þakklæti fyrir öll árin. Unnur Jensdóttir og Kristín.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.