Morgunblaðið - 25.03.2019, Blaðsíða 23
1993 rekur hún ásamt öðrum tal-
meinafræðingum stærstu talmeina-
stofuna á landinu, Talþjálfun Reykja-
víkur.
Bryndís starfaði við Naval Hospit-
al Keflavik 1999-2006 og hefur starf-
að fyrir Hjallastefnuna frá árinu
2000. Bryndís hefur haldið fjölda
námskeiða um allt land auk kennslu
við HÍ og starfar nú með fagfólki í
Fellahverfi í átaksverkefni tengdu
„Okkar máli“. Bryndís hefur gefið út
efni fyrir barnafjölskyldur sem þjálf-
ar undirstöðuþætti fyrir læsi:
„Lærum og leikum með hljóðin.“ Það
hefur þróast úr bókarefni yfir í smá-
forrit sem kenna íslensku málhljóðin,
orðaforða og hljóðkerfisvitund.
Áhersla er á að fræða foreldra og
fagfólk um mikilvægi málþroska og
læsi fyrir síðara nám. Nýjast er Ís-
lenski málhljóðamælirinn, skimunar-
forrit fyrir spjaldtölvur. Nýjustu
tækni er beitt til að skima og varð-
veita framburð íslensku málhljóð-
anna.
Bryndís fékk Barnabókaverðlaun
Menntaráðs Reykjavíkurborgar 2008
fyrir bókina „Einstök mamma“. Árið
1989 skrifaði hún bókina „Heyrnar-
lausir á Íslandi“ með föður sínum og
þau ritstýrðu auk þess fyrstu Tákn-
málsorðabók á Íslandi. Bryndís er
formaður málnefndar um íslenskt
táknmál skipuð frá 2017 til 2020.
„Fagið og fjölskyldan tengjast
mínum helstu áhugamálum, það er
spennandi að vera stöðugt að bæta
við sig þekkingu og reynslu sem nýt-
ist í starfinu og með barnabörnunum.
Svo hef ég gaman af hreyfingu og
lestri góðra bóka.“
Fjölskylda
Eiginmaður Bryndísar er Árni
Sigfússon, f. 30.7. 1956, stjórnsýslu-
fræðingur. Foreldrar Árna: Hjónin
Sigfús J. Johnsen, f. 25.11. 1930, d.
2.11. 2006, kennari og félagsmála-
stjóri, og Kristín S. Þorsteinsdóttir, f.
27.5. 1930 fyrrv. bankastarfsmaður
og húsmóðir.
Börn Bryndísar og Árna eru 1)
Aldís Kristín Árnadóttir Firman, f.
19.4. 1980, lögfræðingur og fram-
kvæmdastjóri í Bretlandi. Maki:
Ralph D. Firman fyrrv. kappakst-
ursmaður og fjárfestir. Börn: Klara
Kristín Margaret f. 14.7. 2013 og
Arthur Árni Michael f. 10.3. 2015; 2)
Védís Hervör Árnadóttir, f. 8.7. 1982,
tónlistarkona, mannfræðingur,
MBA, samskipta- og miðlunarstjóri
Viðskiptaráðs Íslands. Maki: Þórhall-
ur Stefánsson Bergmann lögmaður.
Börn: Árni Stefán, f. 14.7. 2009, og
Jóhann Vikar, f. 21.12. 2011; 3) Guð-
mundur Egill Árnason, f. 18.12. 1988,
forritari og frumkvöðull í Reykjavík;
4) Sigfús Jóhann Árnason, f. 15.8.
1990, kvikmyndaleikstjóri og M.A. í
listrænni stjórnun á Ítalíu.
Systkini Bryndísar eru Magnús
Þeysari, f. 11.7. 1960, ráðgjafi og
hestabóndi í Svíþjóð; Ragnheiður
Eygló, f. 19.6. 1962, verkefnastjóri og
kennari í Kópavogi; Guðjón Gísli, f.
27.10. 1963, viðskiptafræðingur í
Reykjavík; María Guðrún, f. 23.1.
1966, viðskiptafræðingur í Reykja-
vík.
Foreldrar Bryndísar eru hjónin
Guðmundur Knútur Egilsson, f.
15.10. 1928, fyrrv. verkstjóri og for-
stöðumaður Minjasafns Orkuveitu
Reykjavíkur, og S. Hervör Guðjóns-
dóttir, f. 27.1. 1931, fyrrv. formaður
Félags heyrnarlausra og sjúkra-
hússtarfskona á Landspítala.
Bryndís
Guðmundsdóttir
Helga Einarsdóttir
húsfreyja á Vífilsmýrum
Guðjón Sigurðsson
bóndi á Vífilsmýrum í
Önundarfirði, frá Arnarfirði
Guðjón Gísli Guðjónsson
bóndi á Hesti
Hervör Guðjónsdóttir
fv. formaður Félags heyrnarlausra
Guðbjörg Sveinfríður Sigurðardóttir
húsfreyja á Hesti í Önundarfirði
Guðbjörg Einarsdóttir
húsfreyja á Eyri, frá Selabóli
Sigurður Jóhannsson
hvalskurðarmaður á Eyri í
Önundarfirði, frá Langadalsströnd
Ólafur Egilsson
múrari í Reykjavík
Egill Ólafsson
listamaður
Sveinbjörn
Guðjónsson
bifvélavirki hjá
teypustöðinniS
Guðrún
Sveinbjörnsdóttir
vélaverkfr. og margf.
Íslandsmeistari í
taekwondo
Sigríður Jónsdóttir
húsfreyja í Varmadal
Stefán Filipusson
bóndi í Varmadal á Rangárvöllum
Ragnheiður Rannveig Stefanía Stefánsdóttir
húsfreyja í Rvík
Jafet Ólafsson skipstjóri
Egill Ólafsson
stýrimaður og verkstjóri í Rvík
Elín Þorsteinsdóttir
húsfreyja í Njarðvíkum
Ólafur Egilsson
útvegsbóndi í Njarðvíkum á Suðurnesjum
Úr frændgarði Bryndísar Guðmundsdóttur
Guðmundur K. Egilsson
fv. forstöðum. Minjasafns
Orkuveitu Reykjavíkur
Með barnabörnunum Árni Stefán,
Arthur Árni, Jóhann Vikar, Bryndís
og Klara Kristín við Skessuhelli.
ÍSLENDINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. MARS 2019
Barnaumgjarðir
í miklu úrvali
Leyfðu barninu að njóta
frelsis í leik og starfi með
ÓBRJÓTANLEGUM
barnaumgjörðum
Göngugötunni Mjódd, Álfabakka 14a, s. 527 1515, gleraugnabudin.is, opið 10-18, laugardaga 11-16.
Persónu
leg
og fagle
g
þjónusta
Margir litir í boði
Hægt að breyta í íþrótta-
gleraugu með einu handtaki
90 ára
Hedwig Elísabet Meyer
Margrét Eiríksdóttir
85 ára
Ingunn Guðmundsdóttir
Samúel Alfreðsson
80 ára
Björn Þórðarson
Friðjón Pálsson
75 ára
Garðar Olgeirsson
Guðmundur Guðjónsson
Málfríður D. Gunnarsdóttir
Rafn Gunnarsson
70 ára
Jóna Jenny K. Waage
Kristbjörg Helgadóttir
Oddur Jónas Eggertsson
Svanlaug Halldórs
Árnadóttir
60 ára
Bryndís Guðmundsdóttir
Böðvar Hrólfsson
Deirdre Anne Kresfelder
Friðjón Guðmundsson
Gunnar Þór Geirsson
Hafþór Svendsen
Halldór Þorgeir
Jónatansson
Haraldur Steinn Rúriksson
Jamal Safari
Leyla Eve Gharavi
Malgorzata Maria Bystrek
Páll Ólafsson
Pétur Sævar Jóhannsson
Sigurlín Rósa Óskarsdóttir
Skúli Theodór Haraldsson
Sveinbjörn Lárusson
Zita Valiokaité
50 ára
Árni Baldur Ólafsson
Claudia Dobra
Guðjón Guðmundsson
Guðlaug Ólafsdóttir
Gunnar Guðmundsson
Hrund Rudolfsdóttir
Ivan Polusin
Sigrún Sveinsdóttir
Victoria Gotengco Larua
Waldemar Jan Kisielowski
40 ára
Arnar Þór Jóhannesson
Björg Jóhannesdóttir
Dröfn Harðardóttir
Heiðar Gunnólfsson
Hrafnhildur Ósk
Magnúsdóttir
Jóhannes Davíð Hreinsson
Jónas Árni Lúðvíksson
Ketill Árni Ketilsson
Piotr Brzozowski
Sif Mekkin Sverrisdóttir
Stefán Sverrir Hallgrímsson
Svetlana Skirta
30 ára
Agnes Dís Ágústsdóttir
Axel Karl Gíslason
Baldur Karl Magnússon
Gísli Matthías Auðunsson
Guðni Oddur Jónsson
Guðni Rúnar Jónsson
Guillermo Lopez Chacarra
Leon
Heiður Ósk Þorgeirsdóttir
Inga Dís Júlíusdóttir
Máni Kjartansson
Mudassir Nasir
Orri Kristjánsson
Ólafur Einar Skúlason
Páll Jóhannsson
Sandra Dögg Pálmadóttir
40 ára Arnar Þór er Akur-
eyringur og er stjórnmála-
fræðingur hjá Rannsókna-
miðstöð Háskólans á
Akureyri.
Maki: Valgerður S. Bjarna-
dóttir, f. 1982, doktors-
nemi við Háskóla Íslands.
Börn: Rannveig Katrín, f.
2001, og Jóhannes Árni, f.
2007.
Foreldrar: Jóhannes
Bjarnason, f. 1949, og Þór-
ey Edda Steinþórsdóttir, f.
1950, bús. á Akureyri.
Arnar Þór
Jóhannesson
40 ára Jóhannes er
Grindvíkingur og er rafvirki
hjá TG Raf.
Maki: Margrét Erla Þor-
láksdóttir, f. 1982, hár-
snyrtir.
Börn: Frosti, f. 2009, og
Vikar, f. 2015.
Foreldrar: Hreinn Hall-
dórsson, f. 1960, ráðgjafi í
orkugeiranum, og Viktoría
Róbertsdóttir, f. 1960,
kennari í Grunnskóla
Grindavíkur. Þau eru bús. í
Grindavík.
Jóhannes Davíð
Hreinsson
30 ára Inga Dís er Akur-
eyringur en býr í Reykja-
vík. Hún er með meistara-
gráðu í alþjóðaviðskiptum
frá HR og er nemi í
flugumferðarstjórn.
Maki: Árni Brjánn Angan-
týsson, f. 1989, sjómaður
hjá Samherja.
Foreldrar: Júlíus Jóns-
son, f. 1961, matreiðslu-
meistari, og Hulda Haf-
steinsdóttir, f. 1961,
hársnyrtimeistari, bús. á
Akureyri.
Inga Dís
Júlíusdóttir
Til hamingju með daginn
mbl.is/islendingar
islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
Örnólfur Thorlacius hefur varið dokt-
orsritgerð sína í sálfræði við Sálfræði-
deild Háskóla Íslands. Ritgerðin ber
heitið: Mat foreldra á færni og aðlögun
barna á tilfinningasviði: Þróun á tveim
nýjum matstækjum og mat á áreiðan-
leika, réttmæti og skilvirkni skimunar
(Parents’ estimates of their children’s
emotional competence and adjust-
ment. Development of two new instru-
ments, reliability, validity and screen-
ing effectiveness). Leiðbeinandi: dr.
Einar Guðmundsson, prófessor við Sál-
fræðideild HÍ.
Atferlislistar eru mikið notaðir í mati
á hegðun og líðan barna. Við notkun
þeirra er athyglinni yfirleitt beint að frá-
vikshegðun eða geðrænum einkennum.
Gallinn er að þetta gefur takmarkaðar
eða engar upplýsingar um heilbrigðan
þroska. Tilgangur rannsóknarinnar er
annars vegar að lýsa þróun og próf-
fræðilegum eiginleikum frumsamins at-
ferlislista sem metur tilfinningastjórn
barna á grunnskólaaldri, auk leikskóla-
útgáfu hans. Við hönnun beggja mat-
stækjanna var stuðst við nýstárlega að-
ferð þar sem hegðun og líðan barna er
metin út frá heilbrigðum félags- og til-
finningaþroska í stað frávikseinkenna.
Þannig er fræðilegur grundvöllur mats-
ins styrktur og getur náð til allra barna.
Hins vegar að at-
huga skilvirkni
grunnskólaútgáfu
listans í skimun á
hegðunar- og til-
finningavanda
barna. Þátttak-
endur voru grunn-
og leikskólar í öll-
um landshlutum
og skilaði nothæfum svörum 3.502
barna á aldrinum 3-13 ára. Niðurstöður
sýna að þáttabygging bæði grunnskóla-
listans og leikskólaútgáfunnar eru
stöðugar milli óháðra úrtaka og að
grunnskólalistinn er gagnlegur í skimun
til að finna börn sem glíma við hegð-
unar- eða tilfinningavanda. Af niður-
stöðunum að dæma er skýr ávinningur
af því að þróa breiðar hugsmíðar sem
ná ekki aðeins til geðræns vanda hjá
börnum heldur einnig heilbrigðs félags-
og tilfinningaþroska. Matskvarðarnir
nýtast m.a. við að auka skilning á
undanfara geðraskana hjá börnum, t.d.
hvernig kvíði þróast á leik- og grunn-
skólaaldri. Þeir gagnast einnig vel í mati
og skimun á geðrænum vanda hjá börn-
um og gefa mikilvægar upplýsingar um
tilfinningastjórn, bæði styrkleika og
veikleika, sem nýtist í forvarnavinnu og
meðferð.
Örnólfur Thorlacius
Örnólfur Thorlacius lauk BA-prófi í sálfræði frá Háskóla Íslands 2008 og cand.
psych. prófi frá HÍ 2010. Hann er stundakennari í mælinga- og próffræði við Sál-
fræðideild HÍ frá 2009 og starfandi sálfræðingur hjá Sól sálfræði- og læknis-
þjónustu. Maki er Íris Lilja Ragnarsdóttir og eiga þau tvær dætur.
Doktor