Morgunblaðið - 25.03.2019, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. MARS 2019
Demparar og gormar
Fjöðrunarbúnaður
Opið mánudaga til fimmtudaga kl. 7.45-17.00, föstudaga kl. 7.45-16.00
Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is
SAMEINUÐ GÆÐI
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Fjórða iðnbyltingin mun breyta
heilbrigðisþjónustu verulega,“
segir Sigríður Gunnarsdóttir,
framkvæmdastjóri hjúkrunar á
Landspítala. Á öllum sviðum sam-
félagsins er nú í deiglunni hvern-
ig best sé að mæta og hagnýta þá
nýju tækni sem er í þróun eða
komin í notkun. Mörg einföld
verk sem í dag er sinnt handvirkt
verða unnin af vélum, þegar slíkt
er mögulegt.
Bráðamóttökur sameinaðar
Nokkuð segir um nýjan
Landspítala að talað er um há-
tæknisjúkrahús. Á nýjum skurð-
stofum í meðferðarkjarna verður
verður öll nýjasta tækni en með
henni er til dæmis raskið sem
fylgir aðgerðum mun minna en
nú. Sjúklingur sem áður þurfti að
liggja inni í marga daga eftir að-
gerð getur nú í mörgum tilvikum
farið heim samdægurs. Allar
sjúkrastofur á nýjum spítala
verða einbýli þar sem allt sem til
þarf að sinna sjúklingi er að-
gengilegt inni á stofunni. Þetta
eykur öryggi sjúklinga, því tími
fagfólks við rúm sjúklings eykst
þar sem allt er til taks og eins
dregur það úr hættum á spítala-
sýkingum.
Í nýjum meðferðarkjarna
verða bráðamóttökur sjúkrahúss-
ins einnig sameinaðar í eina við
Hringbraut, það er móttökur
slysadeildar, geðsviðs, barnaspít-
ala og kvennasviðs, þar með talið
fæðingardeildar. Með því er enn
frekar hægt að tryggja að nauð-
synleg þekking sé til staðar til að
sinna bráðveiku fólki.
Hjúkrun færist í heimahús
„Þrátt fyrir nýja tækni og
breytt vinnubrögð mun störfum á
heilbrigðissviði ekki fækka.
Hjúkrun og aðhlynning snúast í
grunninn um samskipti við sjúk-
linga og fjölskyldur þeirra og
þörfin fyrir slíkt breytist aldrei.
Einnig kemur til að þörfin eftir
þjónustu er að aukast vegna
hækkandi meðalaldurs og að fólk
með langvinna sjúkdómar lifir í
dag miklu lengur en áður,“ segir
Sigríður og heldur áfram:
„Á hinn bóginn gætu ýmsir
þættir í starfi hjúkrunarfræðinga
breytist eða dottið út. Tiltekt á
lyfjum sem í dag tekur um 20% af
starfi hjúkunarfræðinga mun í í
framtíðinni verða mun meira vél-
vædd einnig mun nýr hugbún-
aður sem les og greinir upplýs-
ingar sem klínísk meðferð byggir
á styðja enn frekar við störf
hjúkrunarfræðinga. Í árdaga
heilbrigðisþjónustu á Vestur-
löndum var algengast að hjúkr-
unarfólk og læknar sinntu þjón-
ustu á heimilum fólks. Í fyllingu
tímans tók spítalavæðingin yfir
og hefur svo verið fram á síðari
ár. Núna er veruleikinn hins veg-
ar sá að á sjúkrahús fara þeir
helst sem eru allra veikastir og
þurfa meðferð og inngrip, svo
sem með aðgerðum eða flókinni
lyfjagjöf. Það er því fyrirsjáan-
legt að í framtíðinni mun aðeins
allra veikasta fólkið leggjast inn
á sjúkrahús. Þröskuldar vegna
innlagna verða hærri. Það er í
takt við þróun annars staðar og
ég tel mikilvægt að hjúkrunar-
fræðingar með öðrum stéttum
móti stefnu um þá þjónustu sem
veitt verður.“
Sjúkrahúsvist er aldrei
eftirsóknarverð
Sigríður rifjar upp að þegar
hún hóf störf í hjúkrun fyrir um
tuttugu árum lágu flestir krabba-
meinssjúklingar í lyfjameðferð
inni yfir lengri tíma. Nú sé hins
vegar algengast að fólk komi á
spítalann á til dæmis einnar til
tveggja vikna fresti, í lyfja-
inntökur en geti verið heima þess
á milli.
„Framtíðin er að æ fleiri
sjúklingum verður sinnt í dag- og
göngudeildarþjónustu og jafnvel
heima með tilkomu nýrra krabba-
meinslyfja sem jafnvel er hægt að
taka í töfluformi. Þjónusta við
sjúklinga með langvinna sjúk-
dóma færist því í síauknum mæli
á dag- og göngudeildir og heim
til fólks. Gott dæmi um slíkt á
Landspítala er þjónusta sem
byggð hefur verið upp fyrir sjúk-
linga með langvinna lungna-
sjúkdóma. Fjölmörg tækifæri eru
varðandi uppbyggingu á slíkri
þjónustu fyrir aðra sjúklinga-
hópa. Þetta er mikið framfara-
skref þar sem sjúkrahúsvist er í
eðli sínu aldrei eftirsóknarverð,
hvernig sem á málin er litið.“
Efla til sjálfshjálpar
Síðar á þessu ári verða skrif-
stofur Landspítalans fluttar í
Skaftahlíð í Reykjavík af Eiríks-
götu og sú bygging nýtt fyrir
göngudeildir sjúkrahússins. Sár-
lega hefur vantað rými til áfram-
haldandi uppbyggingar göngu-
deildarþjónustu þar sem hægt
verður að þróa áfram þverfag-
lega þjónustu. Uppbygging
teymisvinnu hefur verið mikil á
síðustu árum og slík vinna er al-
geng, til dæmis á geðsviði.
„Þjónusta á göngudeildum
styður við sjálfstæði sjúklinga en
kallar jafnframt á eftirfylgd með
sjúklingum og mikilli fræðslu til
að auka þetta sjálfstæði. Sjúk-
lingur þarf að vera vel upplýstur
um eðli og áherslur meðferðar
sem hann gengur í gegnum til að
geta tekið ábyrgð á eigin heilsu.
Það er mikilvægur hluti af störf-
um hjúkrunarfræðinga að veita
slíka fræðslu og efla sjúklinga til
sjálfshjálpar.“
Aðeins allra veikasta fólkið leggst inn á hátæknisjúkrahús framtíðar
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hjúkrun Sjúklingur þarf að vera vel upplýstur um eðli og áherslur með-
ferðar sem hann gengur í gegnum, segir Sigríður Gunnarsdóttir.
Þjónustan færist heim
Sigríður er fædd árið 1969,
lauk BS-prófi í hjúkrunarfræði
1997 og er með meistara- og
doktorspróf í krabbameins-
hjúkrun. Er framkvæmdastjóri
hjúkrunar á Landspítala frá
2012 jafnhliða því að vera pró-
fessor við hjúkrunarfræðideild
Háskóla Íslands.
Hver er hún?
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
Afgreiðsla vegabréfa á Íslandi er
með því sem best gerist. Í dag tekur
það tvo virka daga að fá vegabréfin
afgreidd, samkvæmt upplýsingum
frá Þjóðskrá Íslands. Svíþjóð kemur
næst á eftir Íslandi með fimm daga
en það tekur fjórar til sex vikur að fá
vegabréf í Bandaríkjunum. Ný vega-
bréf voru tekin upp á Íslandi í byrjun
febrúar.
„Ekki hefur orðið markverð aukn-
ing í útgáfu vegabréfa hjá einstak-
lingum sem eru þegar með gild vega-
bréf frá því að ný
vegabréf voru
tekin upp í byrjun
febrúar en frá
þeim tíma hafa
3.554 almenn
vegabréf verið
gefin út,“ segir
Margrét Hauks-
dóttir, forstjóri
Þjóðskrár Ís-
lands.
„Við erum mjög ánægð með að
hafa getað haldið þessum stutta af-
greiðslutíma, sér í lagi í kringum
stórt verkefni eins og að skipta út
framleiðslukerfi vegabréfa. Eins og
sagt var frá við þessar breytingar
gilda eldri vegabréf áfram þar til
gildistíma þeirra lýkur. Almennt eru
Íslendingar nokkuð hagsýnir í þess-
um efnum og höfum við ekki tekið
eftir markverðri aukningu í útgáfu
hjá þeim sem eru með gild vegabréf.
Vegabréfin hafa fengið mjög góðar
viðtökur og höfum við heyrt af já-
kvæðum áhuga á erlendum landa-
mærastöðvum þar sem nýju vega-
bréfin hafa vakið athygli. Það er
gott, enda var mikið lagt upp úr því
að hönnun vegabréfabóka kæmi vel
út og væri okkur öllum til sóma.“
Hraðasta afgreiðslan er á Íslandi
Vegabréf afgreidd á tveimur dögum 3.554 ný vegabréf Afgreiðslutími vegabréfa
Danmörk 11-15 virkir dagar
Noregur 10 virkir dagar
Svíþjóð 5 virkir dagar
Bandaríkin 4-6 vikur
Kanada 10-20 virkir dagar
Bretland 3 vikur
Ísland 2 dagar Margrét
Hauksdóttir
Ökumaður olíuflutningabíls neyddist
til þess að beygja snögglega frá bif-
reið sem ók í veg fyrir hann á af-
leggjaranum við Hellisheiðarvirkjun
um níuleytið í gærmorgun. Mbl.is
greindi frá því að ökumaður olíu-
flutningabílsins hefði tekið ákvörðun
um að keyra út af veginum til þess að
forðast árekstur við fólksbílinn. Olíu-
flutningabíllinn fór út af án þess að
velta.
Hellisheiðinni var lokað til austurs
frá því um kl. 10.00 þegar ljóst varð
að það tæki nokkurn tíma fyrir
slökkvilið og aðra viðbragðsaðila að
dæla 40.000 lítrum af olíu úr flutn-
ingabílnum og koma honum aftur
upp á veg með öflugum tækjabúnaði.
Meðan á aðgerðum stóð blés og
gekk á með éljum en það hafði ekki
truflandi áhrif á aðgerðir.
Rúmum fimm tímum eftir að olíu-
flutningabíllinn fór út af Hellisheið-
arvegi var heiðin opnuð aftur fyrir
almennri umferð en umferð var
beint um Þrengslaveg á meðan heið-
in var lokuð.
Pétur Pétursson, slökkviliðsstjóri
Brunavarna Árnessýslu, sagði í sam-
tali við mbl.is í gær að það hefðu ver-
ið svolítil átök að ná olíuflutninga-
bílnum upp á veginn. Hellisheiðinni
var lokað í báðar áttir á meðan báðar
akreinar voru ruddar af snjó sem
safnast hafði fyrir meðan á aðgerð-
um stóð. ge@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Átök Gröfur og flutningabíll voru notuð til þess að koma olíuflutningabíl
aftur upp á Hellisheiðarveg. Áður var 40.000 lítrum af olíu dælt af honum.
Olíubíll fór út af
á Hellisheiðinni
Keyrði út af til þess að afstýra slysi