Morgunblaðið - 25.03.2019, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 25.03.2019, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. MARS 2019 Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | Sími 551 3366 | Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl. 10-14 Lærabönd eru til þess að lærin nuddist ekki saman þegar maður er berleggja 3.500 kr. settið Misty Rafhitarar í skip, hús og sumarhús Ryðfríir neysluvatnshitarar með 12 ára ábyrgð Hitöld (element), hitastillar, hitastýringar og flest annað til rafhitunar Við erum sérfræðingar í öllu sem Kaplahrauni 19 • Hafnarfirði Sími: 565 3265 rafhitun@rafhitun.is • www.rafhitun.is viðkemur rafhitun. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Um 8.700 fleiri karlar en konur bjuggu á Íslandi í byrjun ársins. Það er sennilega Íslandsmet en hlutfallið milli karla og kvenna hefur breyst mikið síðustu ár. Þetta má lesa úr nýjum mann- fjöldatölum Hagstofu Íslands. Sé litið aftur til ársins 2000 kemur í ljós að aðeins nokkrum hundruðum fleiri karlar en konur bjuggu á Ís- landi árin 2000 til 2005. Árin 2006 til 2008 breyttist þetta hratt. Þannig bjuggu rúmlega 6.300 fleiri karlar á landinu en konur árið 2008. Bilið minnkaði síðan árin 2009 til 2014 en fyrstu árin á því tímabili var efna- hagslægð. Frá 2015 hefur körlum síðan fjölgað mun hraðar en konum. Skýrist af aðflutningi Guðjón Hauksson, sérfræðingur hjá Hagstofunni, segir aðflutning erlendra karla vera skýringuna. „Búferlaflutningar erlends vinnu- afls er meginskýringin. Það flytja mun fleiri karlar með erlent ríkis- fang til landsins en konur. Það sama er að gerast núna og árin 2006 til 2008, þegar bilið breikkaði mikið. Eftir hrun fara karlarnir úr landi en konurnar eru stöðugri, ef svo má segja. Nú eru aftur fleiri karlar að koma til landsins en konur og þess vegna eykst bilið,“ segir Guðjón. Hann segir aðspurður að þessi munur milli fjölda karla og kvenna sé „sérstaklega mikill í íslensku samhengi“. Það sé fullvíst að mun- urinn hafi aldrei verið svo mikill. Fjöldi karla og kvenna á Íslandi, 2000-2019 200 190 180 170 160 150 140 130 120 8 7 6 5 4 3 2 1 0 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 281 379 325 103 232 763 2.513 5.480 6.333 4.768 2.242 1.560 1.153 1.019 965 1.272 2.011 3.717 6.750 8.683 Íbúafjöldi, þúsundir Karlar umfram konur, þús. Miðað við 1. janúar ár hvert 139,7 139,4 182,8 160,9 174,2 154,6 Íbúafjöldi á Íslandi Karlar Konur Fjöldi karla umfram fjölda kvenna Karlar eru orðnir mun fleiri en konur á Íslandi  Um 8.700 fleiri karlar en konur búa nú á Íslandi Morgunblaðið/Hari Á Arnarhóli Fjölmenni fór í bæinn á síðustu Menningarnótt í borginni. Líney Sigurðardóttir Þórshöfn Raflínur slitnuðu og staurar brotn- uðu á Melrakkasléttu þegar ofsa- veður gekk yfir sl. föstudag en norðanstórhríðinni fylgdi mikil ís- ing þarna við sjóinn og sligaði lín- urnar. Rafmagnslaust varð því rétt upp úr hádegi á föstudaginn og voru bæir á Melrakkasléttu án raf- magns í rúman sólarhring. Vatns- leysi fylgdi í kjölfarið þar sem vatninu er dælt í lagnir húsanna með rafknúnum dælum og renn- andi vatn því ekki í boði, hvorki heitt né kalt. Þurftu íbúar því að sækja vatn í bæjarlækinn meðan rafmagnslaust var. Starfsmenn frá Rarik reyndu að komast til viðgerða á föstudag en urðu frá að hverfa vegna veður- hæðar og mjög blint var í stórhríð- inni. „Veðrið var stjörnuvitlaust, staurarnir kubbuðust sundur og skoppuðu eins og eldspýtur, ísingin á línunum var um sjö sentímetrar, sem er mikið miðað við það sem ég hef séð þarna áður,“ sagði Hlynur Helgason, sem kom frá Rarik á Akureyri, en einnig voru starfs- menn Rarik frá Þórshöfn og Kópa- skeri í vinnuflokknum. Í landi Sigurðarstaða á Mel- rakkasléttu brotnuðu sex staurar og veðurhæðin var mikil á þessum slóðum, það stóð í 26 metrum nán- ast allan daginn á Rauðanúpi, sögðu Rarikmenn. Á Þórshöfn var veðrið ögn skárra þó ekki væri það gott en menn frá Rarik byrjuðu á föstudagsmorgni að berja ísingu af línum í Þistilfirði og gekk það vel. Íbúar á Melrakkasléttu létu ekki vatns- og rafmagnsleysi raska ró sinni og virðast almennt taka uppá- komum með æðruleysi, líkt og landsbyggðarfólki er tamt og ýmsir svo forsjálir að hafa komið sér upp öflugum gashiturum og öðru sem að gagni má koma þegar á bjátar. Íbúar þessa vatns- og rafmagns- lausa svæðis voru ánægðir með skjót og góð viðbrögð hjá vinnu- flokki Rariks, sem stóð sig vel við erfiðar aðstæður. Viðgerð á línun- um hófst strax laugardagsmorgni þegar veðrið var gengið niður og gekk þá vel og rafmagn var komið á bæina síðdegis á laugardag. Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Viðgerð Vinnuflokkur frá Rarik stóð sig vel við erfiðar aðstæður. Þær sjást vel á ísingunni á girðingunni í bakgrunni. Rafmagn komst aftur á á laugardag. Voru án rafmagns í rúman sólarhring  Ofsaveður gekk yfir Melrakkasléttu Mannréttindaskrifstofa Reykjavíkur- borgar gagnrýnir vinnubrögð aga- nefndar KSÍ í tilkynningu sem send var út í gær. Mannréttindaskrifstofan hvetur nefndina til þess að taka mál Þórarins Inga Valdimarssonar, leik- manns Stjörnunnar, sem fékk rauða spjaldið í leik Leiknis og Stjörnunnar vegna ósæmilegra ummæla í garð Ingólfs Sigurðssonar, leikmanns Leiknis, til endurskoðunar. Í tilkynningu Mannréttindastofu segir að ummælin hafi beinst að veik- indum Ingólfs en hann hafi sýnt það hugrekki að stíga fram opinberlega og fjalla um þunglyndi sem hann hafði átt við að stríða og hafi hann í þeirri umfjöllun sérstaklega fjallað um hversu erfitt það sé í karllægum fótboltaheimi. Aganefnd KSÍ dæmdi Þórarin Inga í eins leiks bann en Mannréttinda- skrifstofa tekur undir með Leikni að aganefndin hefði átt að dæma Þór- arin Inga í fimm leikja bann sam- kvæmt 16. gr. reglugerðar KSÍ um aga og úrskurðarmál. ge@mbl.is Mannréttindaskrif- stofa ósátt við KSÍ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.