Morgunblaðið - 18.04.2019, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 18.04.2019, Blaðsíða 23
tæknimaður, bús. í Kópavogi. Börn a) Sigríður Rún, maki: Hlynur Gylfason, þau eiga þrjá syni. b) Þórhallur. c) Vilhjálmur, maki: Edda Sif Pálsdóttir. 4) Steinunn, f. 16.10. 1966, ritari, maki hennar, Einar Þór Einarsson, lést árið 2014, bús. í Kópavogi. Börn: a) Steinar Þór. b) Fannar Þór. Barn Einars Þórs og Stellu Hafsteins- dóttur a) Ágústa Ósk, maki: Einar H. Jónsson, þau eiga þrjú börn. Dætur Þórhalls og Ásthildar Páls- dóttur eru: 1) Björg, f. 1.6. 1949, maki hennar er Gunnbjörn Ólafs- son, bús. í Reykjavík. Barn: a) Drífa, maki: Guðjón Ö. Þorsteins- son, þau eiga eitt barn. Börn Bjargar og Gunnars Garðarssonar: a) Ásgeir, maki: María Jensdóttir, þau eiga þrjú börn. b) Kristín Sif, maki: Ólafur P. Rafnsson, þau eiga þrjú börn. 2) Bryndís, f. 1.6. 1949, fv. bókari, maki hennar er Vil- bergur Stefánsson, fv. netagerðar- maður, bús. á Stöðvarfirði. Börn hennar og Bergþórs Hávarðar- sonar eru a) Ragnheiður Bergdís, maki: Þórarinn Jakobsson, þau eiga tvö börn. b) Páll Björgvin, maki: Rebeca Aquado Primo, þau eiga eitt barn. c) Kjartan Hávarð- ur, maki: Svanhvít Ingibergsdóttir. Systkini Sigrúnar eru Eva Sturludóttir, f. 7.9. 1927, fv. banka- starfsmaður, búsett í Reykjavík, Kristín Sturludóttir, f. 30.6. 1930, húsmóðir, búsett í Reykjavík, Jón Sturluson, f. 21.10. 1932, rafvirkja- meistari, búsettur í Reykjavík og Eðvarð Sturluson, f. 23.3. 1937, fv. bifreiðastjóri á Suðureyri og odd- viti, búsettur í Hafnarfirði. Foreldrar Sigrúnar voru hjónin Sturla Jónsson, f. 24.8. 1902, d. 2.10. 1996, hreppstjóri á Suðureyri, og Kristey Hallbjörnsdóttir, f. 22.2. 1905, d. 30.7. 1983, húsfreyja. Sigrún Sturludóttir Einar Jónsson bóndi á Meiri-Bakka Kristín Þorkelsdóttir húsfreyja á Meiri-Bakka í Skálavík, V-Ís. Jón Einarsson íshússtjóri á Suðureyri Einar Sturla Jónsson hreppstjóri á Suðureyri Kristín Kristjánsdóttir húsfreyja á Suðureyri Kristján Albertsson útvegsbóndi á Suðureyri Kristín Guðmundsdóttir húsfreyja á Suðureyri Cæsar Mar rithöfundur Eðvarð Sturluson fv. bifreiðarstjóri og oddviti á Suðureyri Eyþór Eðvarðsson stjórnendaþjálfari og ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun Sigrún Edda Eðvarðsdóttir formaður Heimilis og skóla Sturla Gunnar Eðvarðsson framkvæmdastjóri Smáralindar Þóra J. Hjartar húsmóðir á Suðureyri, Siglufirði og Akranesi Sigríður F. Hjartar húsfr. og húsmæðra- kennari á Ísafirði og Akranesi Friðrik Guðni Þorleifsson skáld og kennari OddurHallgrímsson prestur í Gufudal Valgerður Kristjana Benjamínsdóttir húsfreyja í Gufudal Hallbjörn Oddsson bóndi og sjómaður á Suðureyri Sigrún Sigurðardóttir húsfreyja á Suðureyri Sigurður Jónsson bóndi á Hofsstöðum Guðrún Níelsdóttir húsfreyja á Hofsstöðum á Barðaströnd Úr frændgarði Sigrúnar Sturludóttur Kristey Hallbjörnsdóttir húsfreyja á Suðureyri DÆGRADVÖL 23 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 2019 „EF ÞÚ ÞARFT HJÁLP SKALTU ÝTA Á HNAPPINN. HÆTTU AÐ HRINGJA Í 112.” „ÞÚ ERT SÁ FYRSTI SEM FLYTUR Í GÖTUNA SEM Á BORÐSÖG.” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að senda honum sms um miðja nótt. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ÞAÐ TÓK MIG KLUKKUTÍMA … EN ÉG GAT LOKSINS OPNAÐ HNETUSMJÖRS- KRUKKUNA ÞESSA TÓMU? ÞESSA TÓMU VEISTU HVAÐ ER AÐ ÞÉR?! ÉG TEK ÞÉR SEM SJÁLFSÖGÐUM HLUT! EITTHVAÐ ANNAÐ? JÁ! ÞÚ LEGGUR MÉR ORÐ Í MUNN! Guðmundur Arnfinnsson hugsartil landpóstanna á Boðnarmiði: „Fyrst linnir ei leiðindatíðinni, ég leita mér skjóls í hríðinni“, kvað pósturinn Pétur í póstferð um vetur, „og hjá henni Bjarghildi bíð inni.“ Margt er vel kveðið og skemmti- lega í Skagafirði. Jón Gissurarson skrifaði á fimmtudaginn: „Nú er hér sunnan gola og fimm gráðu hiti. Örþunn skýjaslæða breiðir sig um himinhvolfið og sólin er farin að verma landið góða í norðurhöfum. Útsýnið er fagurt héðan frá Víði- mýrarseli.“ Engin hrellir veðra vá, víkur klaka þeli. Vekur yndi okkur hjá útsýnið frá Seli. Þar sem fegurð gleður gest gott er að standa vörðinn. Er frá Seli útsýn best yfir Skagafjörðinn. Jón hafði orð á því að einn ágæt- ur vinur sinn segði, að það væri hvasst í Reykjavík: Í borginni er veðra vá, valda mun það skorðan. Bölvís tíð er brostin á, en blíða fyrir norðan Og bætti síðan við; „Það er stund- um sagt svona í gríni að lognið fari hratt yfir þegar hvassviðri geisa. Hér var allhvass vindur í gærkveldi og framan af nóttu, en nú hefur lægt og er aðeins sunnan gola og átta gráðu hiti. Allur snjór er far- inn á láglendi eftir góðviðri undan- farna daga. Hratt um landið lognið fer, lítt það veldur striti, þar sem núna úti er átta gráðu hiti. Halldór Guðlaugsson var með á nótunum: Þegar lognið hraðann hækkar hverfur burtu jarðar þeli og sjórinn hratt í lautum lækkar frá Löngumýri upp að Seli. Magnús Halldórsson byggir „á fornri reynslu“: Hormónarnir hal og víf hrífáá slóðir kunnar svo kynngimagnað kviknar líf af krafti náttúrunnar. Þetta er falleg vorstemmning hjá Steini Steinari í Hlíðar-Jónsrímum: Sama er mér hvað sagt er hér á Suður- nesjum. Svört þótt gleymskan söng minn hirði senn er vor í Breiðafirði. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af veðrinu norðan og sunnan heiða

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.