Morgunblaðið - 18.04.2019, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 18.04.2019, Blaðsíða 24
24 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 2019 FYRSTA FLOKKS RÁÐSTEFNU- OG FUNDARAÐSTAÐA UM ALLT LAND – ÁRSHÁTÍÐIR, SÖLUFUNDIR, NÁMSKEIÐ, VEISLUR OG VIÐBURÐIR – Nánari upplýsingar: islandshotel.is/fundir Bókanir: fundir@islandshotel.is Meistaradeild karla 8-liða úrslit, seinni leikir: Porto – Liverpool.................................... 1:4 Eder Militao 69. – Sadio Mané 26., Moha- med Salah 65., Roberto Firmino 77., Virgil van Dijk 84.  Liverpool áfram, 6:1 samanlagt. Manchester City – Tottenham.............. 4:3 Raheem Sterling 4., 21., Bernardo Silva 11., Sergio Agüero 59. – Heung-Min Son 7., 10., Fernando Llorente 73.  Tottenham áfram, 4:4 samanlagt en Tottenham skoraði fleiri mörk á útivelli. Ítalía Lazio – Udinese....................................... 2:0  Emil Hallfreðsson var ónotaður vara- maður hjá Udinese. England Yeovil – Reading..................................... 0:5  Rakel Hönnudóttir lék fyrstu 78 mín- úturnar fyrir Reading og lagði upp eitt mark. Danmörk Umspilsriðill um Evrópusæti og fall: AaB – Vendsyssel ................................... 1:1  Jón Dagur Þorsteinsson lék allan seinni hálfleikinn með Vendsyssel.  Randers 41, AaB 38, Vendsyssel 28, Hobro 23. Randers og AaB fara í umspil um Evrópusæti en Vendsyssel og Hobro í umspil um sæti í deildinni. Svíþjóð Linköping – Växjö .................................. 5:0  Anna Rakel Pétursdóttir lék allan tím- ann með Linköping. Mjólkurbikar karla Bikarkeppni KSÍ, 2. umferð: Fram – Ýmir ............................................ 6:0 Leiknir R. – Fjölnir................................. 1:4 KÁ – Berserkir ........................................ 4:2 KNATTSPYRNA KÖRFUKNATTLEIKUR Undanúrslit karla, oddaleikur: MG-höllin: Stjarnan – ÍR (2:2) ............ 19.15 HANDKNATTLEIKUR Umspil karla, undanúrslit, 1. leikur: Laugardalshöll: Þróttur – HK ................. 16 KNATTSPYRNA Lengjubikar kvenna, úrslitaleikur: Eimskipsvöllur: Valur – Breiðablik......... 16 Meistarakeppni karla: Origo-völlur: Valur – Stjarnan................. 20 Bikarkeppni karla, Mjólkurbikarinn: Varmárvöllur: Afturelding – Selfoss ....... 13 Eimskipsvöllur: Þróttur R. – Reynir S ... 13 Reykjaneshöll: Keflavík – Haukar .......... 14 Leiknisvöllur: KB – Ægir......................... 14 Framvöllur: Kórdrengir – Vængir J ....... 14 Hertz-völlur: ÍR – KV............................... 14 Ólafsvík: Víkingur Ó. – Úlfarnir .............. 14 Vivaldi-völlur: Grótta – KFR ................... 14 Fylkisvöllur: Elliði – Mídas ...................... 14 Varmárvöllur: Hvíti ridd. – Njarðvík ...... 16 Fífan: ÍH – Augnablik............................... 16 Í DAG! borg undanfarin fjögur ár og þjálfað lið West Wien. Honum var sagt upp hjá Vínarborgarliðinu í byrjun janúar. Kom uppsögnin eins og þruma úr heiðskíru lofti en tveimur mánuðum fyrr hafði honum óformlega verið kynntur nýr samningur við félagið. Óhætt er að segja að veður hafi þar skjótt skipast í lofti. Á krossgötum í janúar „Ég stóð á krossgötum í janúar eftir að hafa verið sagt upp starf- inu í Vínarborg. Þá kom Selfoss inn í myndina og ég ákvað að skrifa undir samning við félagið og flytja heim með fjölskylduna í vor eftir 15 ára veru í útlöndum og gerði það af heilum hug. Eftir að málin voru frágengin við Sel- foss kom tilboð frá Bietigheim, sem var í þjálfaraleit, um að stýra liðinu út keppnistímabilið fram í júní í þýsku 1. deildinni. Ég stökk á það en síðan ég byrjaði hafa for- ráðamenn Bietigheim legið í mér að skrifa undir lengri samning sem nú er orðin raunin eftir að forráðamenn Selfoss sýndu mér ótrúlegan skilning sem ég ákaf- lega þakklátur þeim fyrir,“ sagði Hannes Jón. Hannes Jón tók við Bietigheim í erfiðri stöðu í byrjun febrúar í næstneðsta sæti þýsku 1. deildar- innar. Þótt batamerki séu á leik liðsins situr liðið enn í 17. sæti af 18 í deildinni þegar átta umferð- um er ólokið. Staðan fælir Hannes Jón ekki frá því að halda áfram hjá liði félagsins. „Mér þykir verkefnið vera spennandi þrátt fyrir stöðu liðsins í dag. Ef við föllum niður í aðra deild í vor ætla menn ekkert að leggja árar í bát. Félagið hefur vaxið og dafnað jafnt og þétt á undanförum ár, jafnt utan vallar sem innan. Umhverfið hér er einstaklega gott og tala ég þar af reynslu eftir að hafa verið víða undanfarin 15 ár, í Þýskalandi, Austurríki, Nor- egi og Danmörku. Hvort heldur það sem snýr að þjálfun eða fjöl- skyldunni. Þetta var tækifæri sem var erfitt að sleppa,“ segir Hannes, sem á þrjú börn á skóla- aldri sem hafa alist upp í þýskum skólum. Ekkert eitt betra en annað „Ákvörðunin snerist ekki aðeins um að eitt væri betra en annað. Við vorum farin að hlakka til að flytja heim og takast á við að búa á Íslandi og takast á við íslensku deildina í viðbót við að komast í sveitina,“ bætir Hannes við. For- eldrar hans búa í Hrútafirði en á þeim slóðum dvaldi Hannes Jón með leikmenn West Wien í nokkra daga að sumarlagi fyrir tveimur árum. „Margt spilaði inn í þegar við tókum ákvörðun okkar um að vera áfram úti. Ég er fyrst og síðast þakklátur Selfossi fyrir að þetta gekk upp. Ég geri mér al- veg grein fyrir að hafa valdið fé- laginu og forráðamönnum þess miklum vonbrigðum enda eiga menn að standa við gerða samn- inga. Ég vona að skilningur sé fyrir hendi á þessari ákvörðun minni heima á Íslandi,“ sagði Hannes Jón Jónsson, handknatt- leiksþjálfari hjá Bietigheim í Þýskalandi. Tilboð og félag sem var erfitt að hafna  Hannes hefur skrifað undir hjá Bietigheim  Selfoss sýndi ótrúlegan skilning Ljósmynd/EXPA/Sebastian Pucher Fluttur Hannes Jón Jónsson var til skamms tíma þjálfari West Wien í Austurríki en nú er það Bietigheim. HANDBOLTI Ívar Benediktsson iben@mbl.is „Ég er fyrst og síðast þakklátur forráðamönnum Selfoss fyrir að koma til móts við óskir mínar um að ég fengi að ganga út úr þeim samningi sem ég gerði við þá snemma árs,“ sagði Hannes Jón Jónsson, handknattleiksþjálfari í Þýskalandi, í samtali við Morgun- blaðið. Óvænt pólskipti urðu á síð- asta laugardag þegar handknatt- leiksdeild Selfoss tilkynnti að Hannes Jón kæmi ekki heim í sumar og yrði eftirmaður Patreks Jóhannessonar sem þjálfari karla- liðs Selfoss eins og til stóð og frá- gengið var í lok janúar. Þess í stað hefur Hannes Jón skrifað undir tveggja ára samning um þjálfun þýska efstudeildarliðs- ins Bietigheim í Stuttgart. Hannes Jón tók við þjálfun Bietigheim í byrjun febrúar og átti aðeins að sinna starfinu út núverandi keppn- istímabil. Að sögn Hannesar Jóns fóru forráðamenn Bietigheim fljót- lega að leggja að honum að skrifa undir nýjan lengri samning þótt þeir vissu að hann væri þegar samningsbundinn handknattleiks- deild Selfoss. Settumst niður fyrir tveimur vikum „Það var síðan fyrst fyrir um tveimur vikum sem ég settist nið- ur með konunni minni til að fara yfir hvort við ættum að ræða af alvöru við Bietigheim eða að standa við gerða samninga við Selfoss,“ sagði Hannes Jón þegar Morgunblaðið náði af honum tali þar sem hann var í önnum við að flytja frá Vínarborg til Stuttgart en Hannes Jón hefur búið í Vínar- Körfuknattleiksmaðurinn Jón Axel Guðmundsson hefur tekið þá ákvörðun í samráði við fjölskyldu sína og þjálfara að reyna að komast inn í nýliðaval NBA-deildarinnar í sumar en frá þessu greindi hann á Instagram-síðu sinni í gær. Jón Ax- el hefur átt sérlega góðu gengi að fagna með Davidson-háskólanum þar sem hann skoraði 16,9 stig að meðaltali í vetur, tók 7,3 fráköst og gaf 4,8 stoðsendingar. Á dögunum var greint frá því að Jón Axel hefði verið tilnefndur fyrir góða frammi- stöðu í efstu deild bandaríska há- skólakörfuboltans en hann var val- inn besti leikmaðurinn í sinni deild, Atlantic 10. Nýliðavalið fer fram í Brooklyn 20. júní í sumar. gummih@mbl.is Jón Axel ætl- ar í nýliða- valið í NBA AFP Spennandi Jón Axel Guðmundsson verður í nýliðavali NBA í júní.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.