Morgunblaðið - 18.04.2019, Qupperneq 24
24 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 2019
FYRSTA FLOKKS RÁÐSTEFNU- OG
FUNDARAÐSTAÐA UM ALLT LAND
– ÁRSHÁTÍÐIR, SÖLUFUNDIR,
NÁMSKEIÐ, VEISLUR OG VIÐBURÐIR –
Nánari upplýsingar: islandshotel.is/fundir
Bókanir: fundir@islandshotel.is
Meistaradeild karla
8-liða úrslit, seinni leikir:
Porto – Liverpool.................................... 1:4
Eder Militao 69. – Sadio Mané 26., Moha-
med Salah 65., Roberto Firmino 77., Virgil
van Dijk 84.
Liverpool áfram, 6:1 samanlagt.
Manchester City – Tottenham.............. 4:3
Raheem Sterling 4., 21., Bernardo Silva
11., Sergio Agüero 59. – Heung-Min Son
7., 10., Fernando Llorente 73.
Tottenham áfram, 4:4 samanlagt en
Tottenham skoraði fleiri mörk á útivelli.
Ítalía
Lazio – Udinese....................................... 2:0
Emil Hallfreðsson var ónotaður vara-
maður hjá Udinese.
England
Yeovil – Reading..................................... 0:5
Rakel Hönnudóttir lék fyrstu 78 mín-
úturnar fyrir Reading og lagði upp eitt
mark.
Danmörk
Umspilsriðill um Evrópusæti og fall:
AaB – Vendsyssel ................................... 1:1
Jón Dagur Þorsteinsson lék allan seinni
hálfleikinn með Vendsyssel.
Randers 41, AaB 38, Vendsyssel 28,
Hobro 23. Randers og AaB fara í umspil
um Evrópusæti en Vendsyssel og Hobro í
umspil um sæti í deildinni.
Svíþjóð
Linköping – Växjö .................................. 5:0
Anna Rakel Pétursdóttir lék allan tím-
ann með Linköping.
Mjólkurbikar karla
Bikarkeppni KSÍ, 2. umferð:
Fram – Ýmir ............................................ 6:0
Leiknir R. – Fjölnir................................. 1:4
KÁ – Berserkir ........................................ 4:2
KNATTSPYRNA
KÖRFUKNATTLEIKUR
Undanúrslit karla, oddaleikur:
MG-höllin: Stjarnan – ÍR (2:2) ............ 19.15
HANDKNATTLEIKUR
Umspil karla, undanúrslit, 1. leikur:
Laugardalshöll: Þróttur – HK ................. 16
KNATTSPYRNA
Lengjubikar kvenna, úrslitaleikur:
Eimskipsvöllur: Valur – Breiðablik......... 16
Meistarakeppni karla:
Origo-völlur: Valur – Stjarnan................. 20
Bikarkeppni karla, Mjólkurbikarinn:
Varmárvöllur: Afturelding – Selfoss ....... 13
Eimskipsvöllur: Þróttur R. – Reynir S ... 13
Reykjaneshöll: Keflavík – Haukar .......... 14
Leiknisvöllur: KB – Ægir......................... 14
Framvöllur: Kórdrengir – Vængir J ....... 14
Hertz-völlur: ÍR – KV............................... 14
Ólafsvík: Víkingur Ó. – Úlfarnir .............. 14
Vivaldi-völlur: Grótta – KFR ................... 14
Fylkisvöllur: Elliði – Mídas ...................... 14
Varmárvöllur: Hvíti ridd. – Njarðvík ...... 16
Fífan: ÍH – Augnablik............................... 16
Í DAG!
borg undanfarin fjögur ár og
þjálfað lið West Wien. Honum var
sagt upp hjá Vínarborgarliðinu í
byrjun janúar. Kom uppsögnin
eins og þruma úr heiðskíru lofti
en tveimur mánuðum fyrr hafði
honum óformlega verið kynntur
nýr samningur við félagið. Óhætt
er að segja að veður hafi þar
skjótt skipast í lofti.
Á krossgötum í janúar
„Ég stóð á krossgötum í janúar
eftir að hafa verið sagt upp starf-
inu í Vínarborg. Þá kom Selfoss
inn í myndina og ég ákvað að
skrifa undir samning við félagið
og flytja heim með fjölskylduna í
vor eftir 15 ára veru í útlöndum
og gerði það af heilum hug. Eftir
að málin voru frágengin við Sel-
foss kom tilboð frá Bietigheim,
sem var í þjálfaraleit, um að stýra
liðinu út keppnistímabilið fram í
júní í þýsku 1. deildinni. Ég stökk
á það en síðan ég byrjaði hafa for-
ráðamenn Bietigheim legið í mér
að skrifa undir lengri samning
sem nú er orðin raunin eftir að
forráðamenn Selfoss sýndu mér
ótrúlegan skilning sem ég ákaf-
lega þakklátur þeim fyrir,“ sagði
Hannes Jón.
Hannes Jón tók við Bietigheim í
erfiðri stöðu í byrjun febrúar í
næstneðsta sæti þýsku 1. deildar-
innar. Þótt batamerki séu á leik
liðsins situr liðið enn í 17. sæti af
18 í deildinni þegar átta umferð-
um er ólokið. Staðan fælir Hannes
Jón ekki frá því að halda áfram
hjá liði félagsins.
„Mér þykir verkefnið vera
spennandi þrátt fyrir stöðu liðsins
í dag. Ef við föllum niður í aðra
deild í vor ætla menn ekkert að
leggja árar í bát. Félagið hefur
vaxið og dafnað jafnt og þétt á
undanförum ár, jafnt utan vallar
sem innan.
Umhverfið hér er einstaklega
gott og tala ég þar af reynslu eftir
að hafa verið víða undanfarin 15
ár, í Þýskalandi, Austurríki, Nor-
egi og Danmörku. Hvort heldur
það sem snýr að þjálfun eða fjöl-
skyldunni. Þetta var tækifæri
sem var erfitt að sleppa,“ segir
Hannes, sem á þrjú börn á skóla-
aldri sem hafa alist upp í þýskum
skólum.
Ekkert eitt betra en annað
„Ákvörðunin snerist ekki aðeins
um að eitt væri betra en annað.
Við vorum farin að hlakka til að
flytja heim og takast á við að búa
á Íslandi og takast á við íslensku
deildina í viðbót við að komast í
sveitina,“ bætir Hannes við. For-
eldrar hans búa í Hrútafirði en á
þeim slóðum dvaldi Hannes Jón
með leikmenn West Wien í
nokkra daga að sumarlagi fyrir
tveimur árum.
„Margt spilaði inn í þegar við
tókum ákvörðun okkar um að
vera áfram úti. Ég er fyrst og
síðast þakklátur Selfossi fyrir að
þetta gekk upp. Ég geri mér al-
veg grein fyrir að hafa valdið fé-
laginu og forráðamönnum þess
miklum vonbrigðum enda eiga
menn að standa við gerða samn-
inga. Ég vona að skilningur sé
fyrir hendi á þessari ákvörðun
minni heima á Íslandi,“ sagði
Hannes Jón Jónsson, handknatt-
leiksþjálfari hjá Bietigheim í
Þýskalandi.
Tilboð og félag sem
var erfitt að hafna
Hannes hefur skrifað undir hjá Bietigheim Selfoss sýndi ótrúlegan skilning
Ljósmynd/EXPA/Sebastian Pucher
Fluttur Hannes Jón Jónsson var til skamms tíma þjálfari West Wien í Austurríki en nú er það Bietigheim.
HANDBOLTI
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
„Ég er fyrst og síðast þakklátur
forráðamönnum Selfoss fyrir að
koma til móts við óskir mínar um
að ég fengi að ganga út úr þeim
samningi sem ég gerði við þá
snemma árs,“ sagði Hannes Jón
Jónsson, handknattleiksþjálfari í
Þýskalandi, í samtali við Morgun-
blaðið. Óvænt pólskipti urðu á síð-
asta laugardag þegar handknatt-
leiksdeild Selfoss tilkynnti að
Hannes Jón kæmi ekki heim í
sumar og yrði eftirmaður Patreks
Jóhannessonar sem þjálfari karla-
liðs Selfoss eins og til stóð og frá-
gengið var í lok janúar.
Þess í stað hefur Hannes Jón
skrifað undir tveggja ára samning
um þjálfun þýska efstudeildarliðs-
ins Bietigheim í Stuttgart. Hannes
Jón tók við þjálfun Bietigheim í
byrjun febrúar og átti aðeins að
sinna starfinu út núverandi keppn-
istímabil. Að sögn Hannesar Jóns
fóru forráðamenn Bietigheim fljót-
lega að leggja að honum að skrifa
undir nýjan lengri samning þótt
þeir vissu að hann væri þegar
samningsbundinn handknattleiks-
deild Selfoss.
Settumst niður
fyrir tveimur vikum
„Það var síðan fyrst fyrir um
tveimur vikum sem ég settist nið-
ur með konunni minni til að fara
yfir hvort við ættum að ræða af
alvöru við Bietigheim eða að
standa við gerða samninga við
Selfoss,“ sagði Hannes Jón þegar
Morgunblaðið náði af honum tali
þar sem hann var í önnum við að
flytja frá Vínarborg til Stuttgart
en Hannes Jón hefur búið í Vínar-
Körfuknattleiksmaðurinn Jón Axel
Guðmundsson hefur tekið þá
ákvörðun í samráði við fjölskyldu
sína og þjálfara að reyna að komast
inn í nýliðaval NBA-deildarinnar í
sumar en frá þessu greindi hann á
Instagram-síðu sinni í gær. Jón Ax-
el hefur átt sérlega góðu gengi að
fagna með Davidson-háskólanum
þar sem hann skoraði 16,9 stig að
meðaltali í vetur, tók 7,3 fráköst og
gaf 4,8 stoðsendingar. Á dögunum
var greint frá því að Jón Axel hefði
verið tilnefndur fyrir góða frammi-
stöðu í efstu deild bandaríska há-
skólakörfuboltans en hann var val-
inn besti leikmaðurinn í sinni deild,
Atlantic 10. Nýliðavalið fer fram í
Brooklyn 20. júní í sumar.
gummih@mbl.is
Jón Axel ætl-
ar í nýliða-
valið í NBA
AFP
Spennandi Jón Axel Guðmundsson
verður í nýliðavali NBA í júní.