Morgunblaðið - 18.04.2019, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 18.04.2019, Blaðsíða 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 2019 Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is Ekki bara jeppar 2012 -2017 Kerruöxlar og íhlutir ALLT TIL KERRUSMÍÐA HANDBOLTI Danmörk Úrslitakeppnin, 1. riðill: Skjern – Tvis Holstebro...................... 28:21  Björgvin Páll Gústavsson kom ekkert við sögu í marki Skjern. Tandri Már Konráðs- son skoraði 1 mark fyrir liðið.  Vignir Svavarsson hjá Holstebro er frá keppni vegna meiðsla. SønderjyskE – Aalborg ...................... 22:30  Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði 1 mark fyrir SønderjyskE.  Ómar Ingi Magnússon skoraði 9 mörk fyrir Aalborg og Janus Daði Smárason 3. Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari liðsins.  Staðan: Aalborg 4, Skjern 2, Tvis Hol- stebro 1, SønderjyskE 0. Umspilsriðill um sæti í deildinni: Kolding – Nordsjælland ..................... 32:35  Ólafur Gústafsson lék ekki með Kolding vegna meiðsla.  Staðan: Nordsjælland 3, Mors-Thy 2, Ribe-Esbjerg 2, Lemvig 1, Kolding 0. Svíþjóð 8-liða úrslit, fjórði leikur: Sävehof – Malmö ..................................29:28  Ágúst Elí Björgvinsson varði 5 skot í marki Sävehof.  Sävehof vann einvígið 3:1. Ungverjaland Komloi – Pick Szeged ......................... 24:34  Stefán Rafn Sigurmannsson skoraði 2 mörk fyrir Pick Szeged.  Efstu lið: Szeged 45, Veszprém 38, Ta- tabánya 34, Csurgoi 29, Balatonfüredi 28. Dominos-deild kvenna Undanúrslit, oddaleikur: Keflavík – Stjarnan .............................. 85:69  Keflavík sigraði 3:2 og mætir Val í úr- slitaeinvíginu. Úrslitakeppni NBA Austurdeild, 8-liða úrslit: Toronto – Orlando .............................. 111:82  Staðan er 1:1. Vesturdeild, 8-liða úrslit: Denver – San Antonio ...................... 114:105  Staðan er 1:1. Portland – Oklahoma City................. 114:94  Staðan er 2:0 fyrir Portland. KÖRFUBOLTI Liverpool og Tottenham komust í gær í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu. Liverpool vann 4:1 sig- ur á útivelli gegn Porto og mætir Spánarmeisturum Barcelona í undan- úrslitunum. Tottenham tapaði fyrir Manchester City 4:3 á Ethiad- vellinum í Manchester í hreint mögn- uðum og æsispennandi leik en komst áfram á útimarkareglunni og leikur við spútniklið Ajax í hinum undan- úrslitaleiknum. Leikur City og Tottenham verður lengi í minnum hafður en liðin buðu upp á fótboltaveislu af bestu gerði og sannkallaðan spennutrylli. Þrjú mörk litu dagsins ljós á fyrstu 10 mínútum leiksins og þau voru orðin fimm á fyrstu 21. mínútu leiksins. Raheem Sterling hóf veisluna á 4. mínútu en Heung-Min Son svaraði fyrir Totten- ham með tveimur mörkum. Bernardo Silva og Sterling komu City í forystu og staðan 3:2 í hálfleik. Sergio Agüero kom City í 4:2 á 59. mínútu en Spán- verjinn Fernando Llorente minnkaði muninn 20 mínútum fyrir leikslok. Dómari leiksins þurfti að skoða mark- ið á myndbandi áður en hann dæmdi það gilt en áhöld voru uppi um að Llo- rente hefði skorað með hendinni. Undir lok leiksins kom Sterling bolt- anum í netið við gríðarlegan fögnuð stuðningsmanna City en myndbands- dómarar gáfu dómaranum merki um að um rangstöðu hefði verið að ræða og draumur City um að vinna fernuna varð þar með að engu. Leikmenn mínir eru hetjur „Þetta var ótrúlegur leikur. Ég er svo ánægður og stoltur. Leikmenn mínir eru hetjur að vera komnir svona langt. Þessi leikur tók á taugarnar og maður var glaður og vonsvikinn til skiptis. Við sýndum frábæran karakt- er,“ sagði Mauricio Pochettino, stjóri Tottenham. Porto náði að stríða Liverpool fyrstu 20 mínúturnar og fékk þá færi til að skora mark eða mörk en eftir að Sadio Mané kom Liverpool yfir á 26. mínútu var undanúrslitasætið tryggt hjá Liverpool. Mohamed Sala, Ro- berto Firmino, og Virgil van Dijk skoruðu hin þrjú mörk Liverpool en í millitíðinni náði Eder Militao að minnka muninn í 2:1 fyrir portúgölsku meistarana. „Við vorum seinir í gang en eftir fyrsta markið leið mér vel. Ég hlakka mikið til að spila við Barcelona. Ég hef aldrei áður mætt því í keppnis- leik og það verður skemmtileg upp- lifun,“ sagði Jürgen Klopp, stjóri Liverpool, en hans menn töpuðu fyrir Real Madrid í úrslitum Meistara- deildarinnar í fyrra. gummih@mbl.is AFP Hetjan Spánverjinn Fernando Llorente fagnar marki sínu gegn Manchester City á Ehtiad-vellinum í gærkvöld sem réð úrslitunum í einvíginu. Draumur City er úti  Tottenham sló Man. City úr leik í spennutrylli  Liverpool mætir Barcelona Selfyssingurinn Þórir Hergeirsson hefur stýrt norska kvennalandsliðinu í handknattleik undanfarin tíu ár og nú bendir allt til þess að hann skrifi undir nýjan fjögurra ára samning við norska handknattleikssambandið. „Ég er mjög áhugasamur um að halda áfram,“ sagði Þórir í viðtali við norska blaðið Verdens Gang í gær en áður en hann varð aðalþjálfari var hann aðstoðarmaður Marit Breivik með liðið í átta ár. Núgildandi samningur hans gildir til áramóta 2020-21 en skrifi hann undir nýj- an samning mun hann gilda fram yfir Ólympíuleikana í París 2024. Undir stjórn Þóris hefur norska kvennalandsliðið unn- ið til níu verðlauna á ellefu stórmótum og þar af hafa Norðmenn unnið þrjá Evrópumeistaratitla, tvo heimsmeistaratitla og ólympíumeistaratitilinn einu sinni. Á Evrópumótinu sem haldið var í Frakklandi í desember höfn- uðu Norðmenn í fimmta sæti eftir að hafa fengið silfurverðlaunin á HM ár- ið á undan. gummih@mbl.is Þórir tilbúinn að framlengja Þórir Hergeirsson Landsliðsmaðurinn Ómar Ingi Magnússon átti sannkallaðan stjörnuleik með Aalborg þegar liðið hafði betur gegn SønderjyskE á úti- velli 30:22 í úrslitakeppni dönsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í gær. Ómar Ingi var markahæstur allra á vellinum með 9 mörk og kom aðeins eitt þeirra úr vítakasti. Þá gaf hann fimm stoðsendingar í leiknum en Ómar átti flestar stoð- sendingar allra í deildarkepnninni. Janus Daði Smárason skoraði 3 mörk fyrir liðið. gummih@mbl.is Stjörnuleikur Ómars Inga Morgunblaðið/Eggert Góður Ómar Ingi Magnússon fór á kostum með liði Aalborg í gær. Það ætlar að ganga brösuglega fyrir Paris SG að innsigla meistaratitilinn í frönsku 1. deildinni í knattspyrnu. Liðið fékk þriðja tækifærið í gær- kvöld til að tryggja sér titilinn en lið- ið varð að sætta sig við 3:2 tap á móti Nantes. Enn klúðrar Paris SG

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.