Morgunblaðið - 18.04.2019, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 18.04.2019, Blaðsíða 1
F I M M T U D A G U R 1 8. A P R Í L 2 0 1 9 Stofnað 1913  92. tölublað  107. árgangur  ÓTTALEYSI OG SJÁLFSTRAUST EINKENNANDI BRUNINN ER VÍTI TIL VARNAÐAR UPPSÖGNIN EINS OG ÞRUMA ÚR HEIÐSKÍRU LOFTI EFTIRMÁL ELDSINS 14 Á KROSSGÖTUM ÍÞRÓTTIRISLE OF ART 29 Gleðin skein úr hverju andliti á Ísafirði í gær þegar sprett- skíðaganga Craftsport hófst, en gangan markaði upphaf hinnar árlegu skíðaviku á Ísafirði. Keppt var í hefðbundinni skíðagöngu í tveimur flokkum, þar sem annars vegar krakkar undir ellefu ára aldri og hins vegar þeir sem voru tólf ára og eldri öttu kappi. Skíðavikan stendur fram yfir páska og verður ógrynni við- burða fyrir gesti og gangandi. Vikan er löngu orðin ómissandi í félagslífi Vestfjarða, en hún var fyrst haldin árið 1935. Sprett úr skíðaspori á Ísafirði í aðdraganda páskanna Ljósmynd/Ágúst Atlason  Færri leitar- beiðnir vegna týndra barna hafa borist lög- reglunni á höfuð- borgarsvæðinu í ár en á sama tíma í fyrra. Það sem af er þessu ári eru beiðn- irnar orðnar 65 talsins og varða þær 30 börn, en nokkuð er um að sama barnsins sé leitað oft. Guðmundur Fylkisson, aðalvarð- stjóri hjá lögreglunni á höfuð- borgarsvæðinu, sinnir þessu verk- efni. Hann segir að fimm af þessum 30 börnum sprauti sig með fíkniefn- um, eitt þeirra hafi gert það frá 13 ára aldri. Hann óskar eftir fjöl- breyttari úrræðum. »6 30 barna hefur ver- ið leitað í 65 skipti Börn Lögregla leit- ar færri nú en í ár.  Hafist verður handa við að skipta um lyftu í Hallgrímskirkjuturni eft- ir páska. Framkvæmdir hefjast 23. apríl og þeim á að ljúka 27. maí. Á meðan verður turninn lokaður, þar sem stiginn er aðeins notaður sem neyðarútgangur. Yfir standa um- bætur á brunavörnum í kirkjunni, sem framkvæmdastjóri hennar seg- ir að sé ekki síst jákvætt í ljósi þess sem kom fyrir Notre Dame í París á mánudaginn var. » 4 Huga að brunavörn- um í Hallgrímskirkju Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Í drögum að samkomulagi milli WOW air og Isavia frá því í lok september síðastliðins, sem Morgun- blaðið hefur undir höndum, er gengið út frá því að flugfélagið greiði upp vanskilaskuld við Keflavíkurflugvöll í 13 aðskildum afborgunum sem teygja myndu sig yfir síðustu tvo mánuði ársins 2018 og fyrstu 11 mán- uði ársins 2019. Vanskil félagsins á þeim tíma þegar unnið var að sam- komulaginu námu ríflega einum milljarði króna. Í frétt sem Morgun- blaðið flutti 15. september af skuld félagsins kom fram að skuld félagsins við Isavia næmi um tveimur milljörð- um króna og að u.þ.b. helmingur hennar væri þá þegar gjaldfallinn. Í reikningsyfirlitum WOW air, sem Morgunblaðið hefur séð, kemur í ljós að félagið stóð í skilum með greiðslur skv. samkomulaginu allt fram í febr- úar síðastliðinn en marsgjalddaginn, sem hljóðaði upp á 30 milljónir króna, var aldrei greiddur. Í fyrrnefndum drögum að sam- komulagi, sem samið var af þeim Karli Alvarssyni, yfirlögfræðingi Isavia, og Sveinbirni Indriðasyni, fjármálastjóra fyrirtækisins, er einn- ig kveðið á um að WOW air skuli, meðan á gildistíma greiðsluáætlunar samkomulagsins stæði, hafa til taks að minnsta kosti eina flugvél á flug- rekstrarleyfi félagsins á vellinum eða að vél á sama leyfi væri á leið til Keflavíkurflugvallar „og komin með staðfestan komutíma“ til vallarins. Á grundvelli samkomulagsins var vélin TF-GPA á Keflavíkurflugvelli, óhreyfð frá 18. mars, allt þar til WOW air var lýst gjaldþrota 28. mars síðastliðinn. Vélin var hins vegar ekki í eigu WOW air heldur bandaríska flugvélaleigufyrirtækisins Air Lease Corporation (ALC). Sama dag og flugfélagið varð gjaldþrota barst forsvarsmönnum ALC bréf þar sem þeir voru krafðir um greiðslu skuldar WOW air við Isavia. Nam skuld félagsins, eins og viðskiptareikningur milli aðila stóð í lok febrúar síðastliðins 1.953.625.714 kr. Heimildir Morgunblaðsins herma að Isavia og WOW air hafi á engum tímapunkti upplýst ALC um að sam- komulag væri í gildi um fyrrnefnt að- gengi Isavia að vélum félagsins. Því hafi efni samkomulagsins komið þeim í opna skjöldu þegar félagið féll. Mun ALC hafa haldið því fram í samtölum við forsvarsmenn Isavia að haldsrétt- ur síðarnefnda félagsins í vélinni hafi verið bundinn við það skilyrði að WOW air hefði umráðarétt yfir vél- inni TF-GPA en að sá umráðaréttur hafi fallið niður þegar WOW air skil- aði inn flugrekstrarleyfi sínu að morgni 28. mars síðastliðins. Sömdu um kyrrsetn- inguna í september  Isavia tryggði skuld WOW með taki í eign þriðja aðila WOW Félagið varð gjaldþrota að morgni 28. mars síðastliðins. MFordæmalaus uppákoma »12 Morgunblaðið/Hari Friðleifur Ingi Brynjarsson, sér- fræðingur hjá Vegagerðinni, segir það sæta tíðindum að umferðin á höfuðborgarsvæðinu í febrúar hafi verið meiri en sumarmánuðina 2016. Summa meðalumferðar á dag var 122.063 bílar í febrúar árið 2011 en 165.020 bílar í febrúar sl. Það er aukning um 43 þúsund bíla. Bílaleigubílum fjölgar ört Til samanburðar eru nú 48 þúsund fleiri fólksbifreiðar í umferð en árið 2013 og 12.600 fleiri bílaleigubílar. Um 224 þúsund fólksbílar voru í umferð fyrir páskahelgina sem sam- svarar um það bil 560 bílum á hverja þúsund íbúa í landinu. »10-11 Morgunblaðið/Hari Miklabraut Fólksbílum er að fjölga. Umferðin á uppleið  48 þúsund fleiri fólksbílar en 2013

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.