Morgunblaðið - 18.04.2019, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 18.04.2019, Blaðsíða 22
22 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 2019 40 ára Alda Leif er Reykvíkingur og er kennari í Breiðagerð- isskóla. Maki: Sigurður Ágúst Þorvaldsson, f. 1980, starfar á fjármálasviði Rarik. Börn: Dagný Kara, f. 2006, Elín Eygló, f. 2008 og Jón Breki, f. 2010. Foreldrar: Jón Guðni Óskarsson, f. 1951, verkfræðingur hjá Orkuveitu Reykjavíkur, og Guðlaug Kolbrún Leifsdóttir, f. 1951, kennari í Breiðagerðisskóla. Alda Leif Jónsdóttir S igrún Sturludóttir fædd- ist á Suðureyri við Súg- andafjörð 18. apríl 1929 og ólst þar upp. Hún stundaði nám við Hér- aðsskólann á Núpi og við Hús- mæðraskólann Ósk á Ísafirði. Sigrún og eiginmaður hennar, Þórhallur Halldórsson, bjuggu á Suðureyri til ársins 1971 er þau fluttu til Reykjavíkur. Sigrún hefur miklar taugar til æskustöðvanna og fer til Súgandafjarðar nánast á hverju sumri. Á Suðureyri var Sig- rún mjög virk í félagsmálum, hún var m.a. í stjórn kvenfélagsins Ár- sólar og hélt uppi öflugu starfi í Barnastúkunni Vísi no. 71 í fjölda ára. Hún var öflugur liðsmaður í leikfélaginu á staðnum og tók þátt í fjölmörgum leiksýningum. Eftir að þau hjón fluttu til Reykjavíkur vann Sigrún ýmis skrifstofustörf og um tíma rak hún verslunina Sif á Laugaveginum ásamt vinkonu sinni. Síðustu starfsár sín var hún kirkjuvörður í Bústaðakirkju. Eftir að Sigrún flutti til Reykjavíkur sinnti hún félagsmálum af miklum dugnaði. Hún var m.a. um tíma í stjórn Póstmannafélagsins, sat í stjórn Bandalags kvenna í Reykjavík og í stjórn Kvenfélagasambands Ís- lands. Hún var í Orlofsnefnd hús- mæðra í Reykjavík og sá um or- lofsdvöl húsmæðra í mörg ár m.a. á Hvanneyri í Borgarfirði og á Hrafnagili í Eyjafirði. Sigrún var öflugur liðsmaður í starfi IOGT og sat m.a. í áfengisvarnarráði. Hún var einnig mjög virk í starfi Kven- félags Bústaðasóknar, sat þar í stjórn og var formaður um tíma. Sigrún hefur alla tíð verið mikil framsóknarkona og öflug í starfi flokksins. Hún sat í stjórn Félags framsóknarkvenna um árabil og einnig í stjórn Landssambands framsóknarkvenna (LFK) og var fyrsti formaður þess. Sigrún hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir störf sín að félagsmálum og árið 2006 sæmdi þáverandi forseti Ís- lands, Ólafur Ragnar Grímsson hana heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu fyrir störf sín að félags- málum. Sigrún hefur alltaf verið mikil hannyrðakona og hefur mikla ánægju af lestri bóka. Einnig nýt- ur hún þess að fá fjölskyldu og vini í heimsókn. Fjölskylda Sigrún giftist 17.4. 1949 Þórhalli Halldórssyni, verkstjóra og sveitarstjóra, f. 21.10. 1918, d. 23.4. 2015. Hann var sonur hjónanna Halldórs Jónssonar, bónda á Arn- gerðareyri við Ísafjaðardjúp og Steinunnar Jónsdóttur húsfreyju. Börn Sigrúnar og Þórhalls eru 1) Inga Lára, f. 1.9.1949, maki hennar er Elvar Bæringsson, bús. í Noregi. Börn a) Sigrún Arna, hún á fjögur börn, maki: Steingrímur Þorgeirsson. b) Þóra Björk, maki: Bjarki Þ. Jónsson, þau eiga tvö börn. c) Hrafnhildur Ýr, maki: Sig- urður P. Ólafsson, þau eiga eitt barn. 2) Sóley Halla, f. 11.7. 1953, fv. skólastjóri, maki hennar er Kristján Pálsson, fv. alþingis- maður, bús. í Kópavogi. Börn a) Hallgerður Lind, maki: Magnús Þórarinsson, þau eiga þrjú börn. b) Sigrún, maki: Guðmundur Arnar Sigmundsson, þau eiga þrjá syni. Börn Kristjáns og Aðalheiðar Jó- hannesdóttur eru a) Arndís, hún á tvo syni, maki: Ingólfur Ásgeirs- son. b) Ólöf, hún á tvær dætur, maki: Dave Meadows. 3) Auður, f. 28.5. 1958, mannauðsstjóri, maki hennar er Siggeir Siggeirsson Sigrún Sturludóttir, fyrrverandi kirkjuvörður – 90 ára Öflug framsóknar- og félagsmálakona Sigmund Sem for- maður Félags fram- sóknarkvenna barðist Sigrún fyrir því að kona yrði í öðru af tveimur efstu sætum á framboðslistum flokksins. Fjölskyldan Sigrún, Þórhallur og dætur þeirra, frá vinstri: Steinunn, Inga Lára, Auður og Sóley Halla. 50 ára Ósk er Reykvík- ingur. Hún er grunn- skólakennaramenntuð en er fjármálaráðgjafi í Landsbankanum. Maki: Hafþór Pálsson, f. 1969. Börn: Alexander Þór, f. 1995, Andrea Marín, f. 2000, og tvíbur- arnir Fannar Elí og Sara Mist, f. 2002. Foreldrar: Heimir Svansson, f. 1945, d. 2017, pípulagningameistari, og Jónína Ástráðsdóttir, f. 1950, húsmóðir í Reykja- vík. Ósk Laufey Heimisdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Láttu þér ekki bregða þótt eitt- hvað togni úr verkefni sem fyrst virtist einfalt mál. Ekki er allt sem sýnist en þú færð hjálp úr óvæntri átt. 20. apríl - 20. maí  Naut Einhver varpar skugga á drauma þína um æðri menntun, útgáfu verka þinna eða ferðalög. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Það er enginn heimsendir þótt þú fáir ekki allt það út úr samstarfs- mönnum þínum sem þú vilt. Næstu vikur verða áhugaverðar. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þótt gaman sé að njóta velgengn- innar skaltu muna að hóf er best í hverj- um leik. Vinnufélagar þínir munu reyna á þolrifin. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Lokaðu þig ekki af frá umheiminum þótt þú sért ekki upp á þitt besta. Vinir þínir munu leggja þér lið. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Ergelsi út í gamla vini er liðið hjá og þú getur einbeitt þér að því sem stend- ur þér næst. Einhver mun koma þér á óvart. 23. sept. - 22. okt.  Vog Búðu þig vandlega undir að taka ákvörðun í viðkvæmu fjölskyldumáli. Mundu samt að aðgát skal höfð í nærveru sálar. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Hlustaðu á það sem vinur segir um hlutverk þitt í lífi hans. Njóttu þess að eyða tíma með fjölskyldu og vinum. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Það er oft lærdómsríkt að vera baksviðs og fylgjast með því sem gerist á bak við tjöldin. Mundu að haga seglum eftir vindi. 22. des. - 19. janúar Steingeit Notaðu hvert tækifæri sem þú færð til þess að halda fram þínum mál- stað. Samstarfsfólk þitt mun reynast þér vel við úrlausn verkefna. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Ef þú hefur ekki varann á þér gæti farið svo að gömul sár sem aldrei hafa gróið að fullu opnist á ný. Leitaðu ráða hjá gömlum vini. 19. feb. - 20. mars Fiskar Gerðu ráð fyrir einhverju óvæntu frá yfirmanni þínum. Hugur þinn er leit- andi og þú hefur gaman af því að læra nýja hluti. Til hamingju með daginn Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.