Morgunblaðið - 18.04.2019, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 18.04.2019, Blaðsíða 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 2019 Látinn er kær sveitungi, Stein- grímur Gíslason fv. bóndi og hrepp- stjóri, Torfastöðum, Grafningi. Þar ólst hann upp í ná- munda við fagurblátt Sogið og Álftavatn og svanasöng á fal- legum vor- og sumarkvöldum með víðáttumikið útsýni yfir tignarlegan fjallahring og nær- sveitir. Mannlífið á hreppnum breytist óneitanlega við fráfall þeirra sem þar hafa markað djúp spor til verka og framfara í áratugi og gert mannlífið lit- ríkt á ýmsa vegu. Á Torfastöðum ræktaði Steingrímur upp sitt ævistarf ásamt Birnu eiginkonu sinni og börnum með myndarlegu búi. Hann var léttur í lund og unni sveit sinni mjög. Steingrímur minntist þess oft þegar þeir ungir að árum, Ólafur Jóhann af næsta bæ, síðar stórskáld, fóru í hinar ýmsu ævintýraferðir um svæð- ið og í Tungá til veiða. Í þessum ferðum hefur bú- skaparáhugi Steingríms vænt- anlega vaknað sem og áhugi Ólafs Jóhanns að yrkja til Steingrímur Gíslason ✝ SteingrímurGíslason fædd- ist 22. september 1921. Hann lést 8. apríl 2019. Útför Steingríms fór fram 16. apríl 2019. náttúrunnar sem og til stangveiða. Steingrímur varð fyrir þungum áföllum um ævina við missi á eigin- konu sinni, um aldur fram, Birnu Jónsdóttur, og dætrum þeirra, Sigríði Maríu og Kristínu Rósu. Megi Guð vernda þær og minningu þeirra. Steingrímur unni börnum sínum mjög og fóstursyni og var aðdáunarvert að heyra hann segja frá lífshlaupi þeirra, krafti og velferð. Eftir að Birna lést og heilsu Steingríms hrakaði brá hann búi og dvaldi/bjó eftir það á Ljósheimum, Selfossi, þar sem honum líkaði dvölin afar vel. Steingrímur kom árvisst í áratugi ríðandi til haustleita að Nesjavöllum, þ.e. í fyrri og seinni leit, og gisti þá á bæ ásamt öðrum leitarmönnum smölunardaginn eftir á Mos- fellsheiði, Henglafjöllum, Dyr- fjöllum og dölunum þar í kring og síðan á syðri Grafningsfjöll- um í Selflatarrétt á þriðja degi. Hann var ávallt vel ríð- andi og með snyrtilegan búnað til hesta og annars leitarbún- aðar. Eitt þótti okkur krökkunum stórmerkilegt í farteski Stein- gríms, tóbaksbaukur sem gerður var úr stórri skotpa- trónu frá stríðsárunum. Um Steingrím væri hægt að skrifa langt ávarp, en þau skrif verða að bíða betri tíma. Í spjalli mínu við Steingrím á hans efri árum sagði ég gjarnan, að það væru forrétt- indi að fá að fræðast hjá manni eins og honum um fyrri tíma í Grafningnum sem víðar. Hann sagði þá gjarnan að það gæti vart verið gaman að spjalla við gamla kalla nema þá í hófi og kímdi við, sem sýndi léttleika hans og glettni. Steingrímur var léttur á fæti þrátt fyrir háan aldur og í síðustu skiptin sem ég heim- sótti hann á Ljósheima flaug hann nánast um gangana og var ern í spjalli sem fyrr. Með hækkandi vorsól og vorboðasöng þar sem berg- vatnið hjalar með bökkum Sogsins og Álftavatns kveðjum við kæran sveitunga með virð- ingu og þökk fyrir góðar sam- verustundir fyrr og nú. Við fjallavötnin fagurblá er friður, tign og ró. Í flötinn mæna fjöllin há með fannir, klappir, skóg. Þar líða álftir langt í geim með ljúfum söngva klið, og lindir ótal ljóða glatt í ljósrar nætur frið. (Hulda) Guð verndi Steingrím og minningu hans Börnum, fjölskyldum og vin- um Steingríms vottum við inni- lega samúð okkar. Fyrir hönd Nesjavallafjöl- skyldunnar, Ómar G. Jónsson. Fyrsta minning mín með Steingrími er þegar ég sem lít- il stelpa fór með honum með mjólkina á hesti og kerru nið- ur á brúsapall, þangað sem nágrannarnir komu einnig með sína mjólk. Þar mynd- aðist þá smá samkoma fyrir bændurna til skrafs og ráða- gerða. Steingrímur var hugmynda- ríkur, ráðagóður og skapandi bóndi. Hann ræktaði upp jörð- ina, byggði á Torfastöðum íbúðarhús, fjós og hlöðu, allt með handafli og hjálp vina og vandamanna. Grímur og Ólaf- ur Jóh. Sigurðsson voru vinir í æsku og er Grímur söguper- sóna hans í fyrstu bók hans, Við Álftavatn, sem Ólafur skrifar á fermingaraldri. Fyrsta sagan heitir Sumar- dagurinn fyrsti og þar lýsir Ólafur: Ingólfsfjalli háu og tignarlegu, með stórhrikaleg- um hamraborgum, engjarnar sefgrænar, fagrir hvammar, lautir og fell. Grími lýsir hann sem litlum og grönnum og einstaklega skemmtilegum dreng með síbrosandi andlit. „Við Grímsi erum uppfinn- ingamenn; foreldrar okkar kalla okkur fyrirtektar- ormana.“ Grímsi var aldrei ráðalaus. Þessi lýsing Ólafs finnst mér passa sérlega vel við Grím. Margar góðar sögustundir hef ég átt með Grími í gegn- um tíðina, bæði í heimsóknum og símtölum. Nokkur síðast- liðin sumur höfum við Grímur farið saman í bíltúr og komum við þá fyrst og fremst við á Torfastöðum, Úlfljótsvatni og síðan mismunandi hvert ferð- inni var heitið eftir það. Þetta voru góðar samverustundir þar sem Grímur sagði sögur, deildi fróðleik og ég kem til með að sakna. Hvíl í friði. Árný V. Ingólfsdóttir. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (ÞS) Sigurður Magnússon ✝ SigurðurMagnússon fæddist 1. júlí 1930. Hann lést 6. apríl 2019. Sigurður var jarðsunginn 13. apríl 2019. Megir þú hvíla í friði, elsku pabbi. Þín Björk. Elsku afi minn. Þegar ég hugsa til baka þá er margt sem kemur upp í huga minn. Í mínum huga ertu góður, ljúfur, einlægur, fróður og klárlega algjör fyrirmynd, með hjarta úr gulli. Ég minnist tímanna í Bláskógum þar sem þú kenndir mér að fara á hestbak, keyra jeppann þinn þrátt fyrir glæfralegan akstur og fá að taka rúnt með þér í vöru- bílnum, það var toppurinn. Alltaf hlýjar móttökur og ekki má gleyma öllu bakkelsinu hjá þér og ömmu Möggu. Öll samtölin sem við áttum, einlæg og falleg. Alltaf hægt að tala um allt við þig. Takk, elsku afi minn, fyrir að vera alltaf til staðar, fyrir ástina og umhyggjuna sem þú gafst mér og börnunum mínum. Endalaus ást til þín. Inga Valdís og börn. Þorvaldur afi er dáinn. Hann var alltaf svo blíður og góður við mig þegar ég var lítill. Ég mun aldrei gleyma þeim góðu samverustundum sem við áttum saman á Sunnubrautinni. Þor- valdur afi var skemmtilegur og brosmildur, barngóður og myndarlegur maður. Við hittumst síðastliðið haust og er ég þakklátur fyrir það. Ég, ásamt konu minni og börnum, mun ávallt eiga góðar og hlýjar minningar um Þorvald afa. Með saknaðarkveðju frá Noregi, Svavar og fjölskylda. Góður vinur og samstarfsmað- ur til margra ára, Þorvaldur Hafberg, er fallinn frá 86 ára að aldri. Okkar fundum bar fyrst sam- an þegar ég var í sveit í Síðu- múla í Borgarfirði hjá þeim ágætu hjónum Ingibjörgu Guð- mundsdóttur og Andrési Eyj- ólfssyni. Yngsta barn þeirra hjóna, Adda, og Þorvaldur höfðu kynnst í Héraðsskólanum í Reykholti og fellt hugi saman. Var Þorvaldur þá nýfluttur í Síðumúla, glæsilegur og geð- felldur og virtist allt leika í hönd- um hans. Unnu þau bæði við bú- skapinn og að nokkrum misserum liðnum tóku þau við búinu. Þorvaldur Kristinn Friðriksson Hafberg ✝ ÞorvaldurKristinn Frið- riksson Hafberg fæddist 19. júlí 1932. Hann lést 30. mars 2019. Útförin fór fram 16. apríl 2019. Ári síðar ákváðu þau að flytja suður til annarra starfa og tóku bræður Öddu, Eyjólfur og Magn- ús, við búsforráðum í Síðumúla og keyptu jörðina. Ég minnist með hlýju þeirra sumra sem ég var í Síðu- múla og þess góða fólks sem þar var og bjó og er Þorvaldur þar engin undantekning. Heimilið í Síðumúla var stórt og gestkvæmt enda lá það í þjóð- leið og var gestrisni viðbrugðið. Þótt aldrei hafi sambandið við Þorvald slitnað liðu mörg ár þar til leiðir okkar lágu saman fyrir alvöru. Þorvaldur hafði frá því hann hvarf til starfa fyrir sunnan tekið sér ýmislegt fyrir hendur, m.a. starfað á Keflavíkurflug- velli, lært rafvirkjun og aflað sér meistararéttinda í þeirri grein, stundað útgerð og verkstjórn hjá Landleiðum. Árið 1973 réðst hann sem út- gerðarstjóri hjá Ísbirninum hf. í Reykjavík, sem gerði á þessum árum út báta og togara. Kom sér vel hversu Þorvaldur var vel að sér um allt sem laut að útgerð og sjómennsku. Var í mörg horn að líta og á stundum jafnvel sólar- hringurinn undir. Störf sín leysti Þorvaldur ávallt vel af hendi og af trúmennsku. Þau Adda skildu á þessum ár- um og giftist hann síðar Nonní Björnsdóttur, en hún lést árið 2009. Að lokum þakka ég Þorvaldi einlæga vináttu og gott samstarf. Ég votta börnum, barna- börnum og öðrum aðstandendum innilega samúð. Blessuð sé minning Þorvaldar Hafbergs. Jón Ingvarsson. „Þannig týnist tíminn.“ Hugsanir sem þessar koma í hugann þegar sam- ferðafólk kveður eftir langa samleið. Leiðir okkar hjóna og Rúnu og Magga lágu saman frá því þeir hófu nám í tæknifræði fyrst hér heima og síðan var haldið til frekara náms til Dan- merkur. Þar myndaðist traustur vina- hópur sem hefur haldið. Á þess- um tíma voru engir námsmenn með síma eða bíla og var Maggi ólatur að bruna á vespunni þeg- ar á þurfti að halda að koma boðum á milli. Vespan var lúxusfarartæki þess tíma og fórum við í lang- ferð með þeim hjónum á Magnús Georg Siguroddsson ✝ Magnús GeorgSiguroddsson fæddist 1. desember 1941. Hann lést 9. apríl, 2019. Útför Magnúsar Georgs fór fram 16. apríl 2019. Himmelbjerget á slíkum farar- tækjum. Mörg okkar voru að stofna fjölskyldur og enn aðrir einhleypir. Þetta var upp til hópa glaðvær og kátur hópur. Við deildum hátíðisdögum og urðum eins og lítil fjölskylda. Eignuðumst börn og voru þau skírð saman. Eftir að heim var komið höf- um við átt margar góðar stundir saman sem við þökkum fyrir og alla vináttu í gegnum árin. Hópurinn okkar hefur þynnst nokkuð í gegnum árin og nú kveðjum við Magga með sökn- uði um leið og við minnumst þeirra sem hafa kvatt okkur. Elsku Rúna, Guðrún Anna, Fanney, Ragnheiður Hrefna og fjölskyldur, innilegustu samúðarkveðjur. Við kveðjum jákvæðan og hressan vin. Vala og Gestur. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGURJÓNA HARALDSDÓTTIR, Dalseli 31, Reykjavík, lést á Landspítalanum 11. apríl. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Við þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug. Örn Wilhelm Zebitz Haraldur Örn Arnarson Björg Stígsdóttir Hallborg Arnardóttir Tryggvi Leósson ömmubörn og langömmubörn Þökkum auðsýnda samúð við fráfall ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, JÓNS ÓLAFS BJARNASONAR fv. fjármálastjóra, sem lést fimmtudaginn 14. mars á Hrafnistu Hafnarfirði. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Báruhrauns fyrir umönnun og hlýhug. Þorgerður María Gísladóttir Sigríður Jónsdóttir Bentína Jónsdóttir Halldór Ármannsson barnabörn og barnabarnabörn Hjartans þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGURLAUGAR J. JÓNSDÓTTUR ökukennara. Sérstakar þakkir til þeirra sem önnuðust hana í veikindum hennar. Guðmundur Rúnar Ólafsson Linda Björk Magnúsdóttir Elínborg Jóna Ólafsdóttir Guðmundur Kr. Tómasson Kristín Ólafsdóttir Valur Einar Valsson Ólafur Erling Ólafsson Helma Ýr Helgadóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, stjúpfaðir, tengdafaðir, afi og langafi, GARÐAR BJÖRNSSON, fyrrv. skipstjóri og hafnarvörður frá Dalvík, Neðstaleiti 4, varð bráðkvaddur á heimili sínu 9. apríl. Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hins látna. Fjölskyldan þakkar auðsýndan hlýhug. Fyrir hönd aðstandenda, Sigurveig Sæunn Steindórsdóttir Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför systur okkar, mágkonu og frænku, ELÍNAR EYGLÓAR STEINÞÓRSDÓTTUR, sem lést miðvikudaginn 13. mars. Sveinbjörg Steinþórsdóttir Eiríkur Steinþórsson Steindór Steinþórsson Anna Marie Georgsdóttir systkinabörn og fjölskyldur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.