Morgunblaðið - 18.04.2019, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 18.04.2019, Blaðsíða 32
Ævar Þór Bene- diktsson hefur samið við Þjóð- leikhúsið um að ný gerð af Þínu eigin leikriti verði frumsýnd á næsta leikári í leikstjórn Stef- áns Halls Stef- ánssonar. Nýja verkið byggist á bókinni Þitt eigið ævintýri – Tíma- ferðalag. „Tímaferðalagið verður lengra en Goðsagan, og það verða enn þá fleiri möguleikar, meira að segja geimferðir og grameðlur. Með tímavél að vopni eru möguleikarnir óendanlegir; allt frá upphafi al- heimsins til endaloka mannkyns,“ er haft eftir Ævari í tilkynningu frá Þjóðleikhúsinu. Tímaferðalag Ævars á svið á næsta leikári FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 108. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 670 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. Liverpool og Tottenham komust í undanúrslitin í Meistaradeild Evr- ópu í knattspyrnu í gær. Liverpool átti í engum vandræðum með að vinna Porto á útivelli 4:1 og mætir Barcelona í undanúrslitunum. Tott- enham tapaði fyrir Manchester City í mögnuðum leik 4:3 en komst áfram á útimarkareglunni og leikur við Ajax. »26 Liverpool og Totten- ham fóru áfram ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM Barokkverkið Stabat Mater eftir Giovanni Battista Pergolesi verð- ur flutt í Mosfellskirkju á morg- un, föstudaginn langa, kl. 17. Þórður Sigurðarson organisti Lágafellskirkju leikur á orgel og með honum syngja Erla Dóra Vogler mezzósópran og Lilja Guð- mundsdóttir sópran. Verkið var upphaflega samið fyrir sópran, alt og litla strengja- sveit. Tónsmíðin þykir eitt af höfuðverkum kirkjulegra tón- smíða. Að- gangur er ókeypis. Stabat Mater flutt í Mosfellskirkju ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is laugardaga og sunnudaga 12-18 mánudaga - föstudaga 11-18:30 BREYTTUR AFGREIÐSLUTÍMI UM PÁSKA 18. apríl - Skírdagur 12:00 - 18:00 19. apríl - Föstudagurinn langi LOKAÐ 20. apríl - Laugardagur 12:00 - 18:00 21. apríl - Páskadagur LOKAÐ 22. apríl Annar í páskum 12:00 - 18:00 Veronika Steinunn Magnúsdóttir veronika@mbl.is Bandaríski skákmaðurinn Christo- pher Yoo er 12 ára gamall og jafn- framt yngsti alþjóðlegi meistarinn í skáksögu Bandaríkjanna. Hann keppti á Reykjavíkurskákmótinu í Hörpu á dögunum og lauk keppni með 5½ vinning af 9 mögulegum. Christopher lærði að tefla 6 ára að aldri og skaust fljótt upp á stjörnu- himininn en það tók hann aðeins 1 ár að hækka úr 100 amerískum skák- stigum upp í 1.800 stig. Nú er hann með 2.414 Elo-stig og sá stigahæsti í heiminum á sínum aldri. Dugnaður og hæfileikar eiga stærstan þátt í velgengni hans á skáksviðinu, að eigin sögn, en Christopher segist stunda skák hátt í fjóra tíma á dag. „Þegar ég var byrjandi æfði ég mig mest í taktík og miðtaflinu en síðan komu byrjanir og endatöfl. Núna verð ég hins vegar að leggja áherslu á alla þætti skákarinnar,“ segir Christ- opher. Hann er að auki lunkinn við að búa til endataflsþrautir og hefur til að mynda keppt í endataflsþrautamót- um, þar sem keppendur eru verð- launaðir fyrir fallegustu endatafls- þrautina. Nýlega náði hann þriðja sæti af 23 keppendum í slíku móti, Helmut Steniczka-minningarmótinu, sem lauk fyrir skemmstu. Skemmtilegast að vinna Það sem heillar Christopher mest við skákina er einmitt meðal annars fegurð skáklistarinnar. „Það að vinna finnst mér skemmtilegast en líka feg- urðin. Ég hef kynnst því af endatafls- þrautunum og fleiru að skákin býður upp á svo margt áhugavert.“ Faðir Christophers, Young-Kyu Yoo, er mikill skákáhugamaður og kynnti honum skáklistina. Hann hóf að kenna honum mannganginn þegar hann var fimm ára, en þá var Christ- opher of ungur til að skilja skák- listina. Ári síðar, þegar Christopher varð 6 ára, fór hann að ná betri tökum á skákinni en tveimur mánuðum eftir að hann byrjaði í skáktímum eftir skóla fór hann að sigra föður sinn. Í janúar síðastliðnum landaði hann alþjóðlegum meistaratitli á skák- mótinu Bay Area International, og varð þar með yngsti alþjóðlegi meist- arinn í sögu Bandaríkjanna. Á mótinu varð hann jafnframt sá yngsti til að sigra ofurstórmeistara þegar hann bar sigur úr býtum gegn Víetnam- anum Le Quang Liem, sem var þá með 2.710 Elo-stig. Christopher segir úrslitin hafa komið flatt upp á sig. „Ég var ekkert svo upptekinn af því en ég hafði í huga að ég gæti orðið alþjóðlegur meistari,“ segir Christ- opher að endingu. Morgunblaðið/Eggert Skákmeistari Christopher Yoo, aðeins 12 ára, tefldi á Reykjavíkurskákmótinu sem lauk í Hörpu á þriðjudag. „Fegurð skákarinnar heillar mig mest“  Christopher Yoo yngsti alþjóðlegi meistari Bandaríkjanna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.