Morgunblaðið - 18.04.2019, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 18.04.2019, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 2019 Skeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi | Sími 588 0640 | casa.is COMPONIBILI Hirslur 3ja hæða – fleiri litir Verð frá 18.900,- BATTERY Borðlampi – fleiri litir Verð frá 21.900,- LOUIS GHOST Stóll – fleiri litir Verð 39.900,- stk. CINDY Borðlampi – fleiri litir Verð 32.900,- GHOST BUSTER Náttborð – fleiri litir Verð 47.900,- stk. TAKE Borðlampi – fleiri litir Verð 12.900,- Glæsileg gjafavara frá PLANET CRYSTAL Borðlampi – fleiri litir Verð 54.900,- BOURGIE Borðlampi – fleiri litir Verð frá 39.900,- KABUKI Borðlampi – fleiri litir Verð 52.900,- BAKSVIÐ Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Það sem af er þessu ári hafa lögregl- unni á höfuðborgarsvæðinu borist 65 leitarbeiðnir vegna týndra barna. Þetta er fækkun frá sama tíma í fyrra þegar beiðnirnar voru 85. Flest barnanna eru í einhvers konar neyslu og um fjórðungur þeirra sprautar sig, dæmi eru um að barn hafi byrjað á því innan við fermingu. Guðmundur Fylkisson, aðalvarð- stjóri hjá lögreglunni á höfuðborgar- svæðinu, sem sinnir þessari leit, segir að þetta sé í fyrsta skiptið í mörg ár sem marsmánuður hafi ekki verið sá mánuður þegar flestra barna er leitað. Á bak við þessar 65 leitarbeiðnir eru 30 börn á aldrinum 13-17 ára; 11 þeirra eru ný í þessum hópi og hefur ekki verið leitað áður og sumra er leitað margoft. Sex barna; fjögurra pilta og tveggja stúlkna, hefur verið leitað fjórum sinnum og eins pilts hefur verið leitað sex sinnum í ár. Börnin eru fædd á árabilinu 2001- 2005 og í flestum tilvikum eru þau með krökkum á svipuðu reki eða hafa fengið inni hjá einhverjum jafn- aldra sínum á meðan verið er að leita þeirra. „Það er undantekning að við séum að finna þau í einhverjum bæl- um eða grenjum,“ segir Guðmundur. Fimm barnanna sprauta sig Börnin finnast yfirleitt um sólar- hring eftir að leitarbeiðni berst og í 28 tilfellum var farið beint með barn í neyðarvistun Stuðla eftir að það finnst. Það er, að sögn Guðmundar, nokkur breyting frá því sem verið hefur. „Í gegnum árin höfum við ver- ið með eitt barn á Stuðlum á móti hverjum tveimur sem fara heim til sín eftir að við finnum þau. Þetta er aukning. Fimm af þessum 30 börn- um eru farin að sprauta sig, flest eru 16 og 17 ára og eitt barnanna í þeim hópi hefur sprautað sig frá 13 ára aldri,“ segir Guðmundur. „Þau eru ýmist í sterkum verkjalyfjum í æð eða hreinum fíkniefnum eða blanda þessu saman.“ Í fyrra var talsverð umræða um aðstæður barna í vanda eftir að 17 ára stúlka var látin gista í fangaklefa vegna þess að ekki var pláss fyrir hana á Stuðlum. Guðmundur segir að eftir það tilvik hafi tekist að vista öll börn á Stuðlum, sem á því hafa þurft að halda. „Þau eru þá látin vera á skrifstofu eða í einhverju öðru rými tímabundið ef ekkert annað er í boði. En við höfum því miður þurft að láta börn vera í skamman tíma í fanga- klefum á meðan verið er að ganga frá þeirra málum, en það er þá aldrei lengur en klukkutími eða svo.“ Um leið og ungmennin verða 18 ára, og þar með ekki skilgreind sem börn lengur, hefur lögregla ekki lengur heimild til að leita að þeim á þennan hátt. Það getur leitt til enn verri stöðu hjá mörgum þeirra að sögn Guðmundar. „Okkur vantar sárlega úrræði fyrir ungmenni sem eru orðin 18 ára, því um leið og þeim aldri er náð hverfur allt öryggisnet í kringum þau og þau verða upp á eig- in ábyrgð komin. En vandinn hverf- ur ekki neitt.“ Guðmundur segist hafa merkt það í sínum störfum að sífellt fleiri ung- menni, sem tekist hafi að hafa ágæt tök á vanda sínum, lendi hreinlega á götunni og verði virkir fíkniefna- neytendur þegar þau verði 18 ára. Fyrir nokkru stóð til að opna úr- ræði fyrir ungmenni í þessari stöðu í Norðlingaholti en íbúar í grenndinni mótmæltu þeim áformum, kröfðust þess að lögbann yrði sett á starfsem- ina og svo fór að það var samþykkt áður en starfsemin hófst. „Ég er sannfærður um að það myndi spara þjóðfélaginu svo mikið á svo margan hátt ef eitthvert úrræði yrði opnað sem gæti tekið á móti þessum krökkum sem þurfa enn þá aðstoð þó að þau séu ekki lengur skil- greind sem börn,“ segir Guðmundur. Meðferðarheimili árið 2022 Gangi áætlanir eftir mun nýtt meðferðarheimili fyrir börn í vanda verða opnað í Garðabæ síðari hluta ársins 2022. Mikil þörf er fyrir fleiri og fjölbreyttari úrræði fyrir þennan hóp að mati Heiðu Bjargar Pálma- dóttur, forstjóra Barnaverndarstofu. „Það sem okkur vantar ekki síst er búsetuúrræði fyrir börn sem eru bú- in að ljúka meðferð og orðin stabíl. Þetta eru krakkar sem standa sig gríðarlega vel, sum eiga ekki aftur- kvæmt heim til sín af ýmsum ástæð- um og þurfa stuðning við að halda sér á beinu brautinni. Heimilið í Norðlingaholti átti að vera slíkur staður,“ segir Heiða Björg. Hún segir að sveitarfélögin veiti börnum í þessari stöðu þjónustu, ýmist með starfrækslu heimila fyrir þau eða með því að útvega þeim fóst- urheimili. „Okkar hugmynd með heimilinu í Norðlingaholti var að veita þjónustu sem er í raun umfram það sem ríkinu er skylt að veita. Við erum að leita að nýju húsnæði og stefnum enn þá á að opna þetta heimili því við teljum að það sé mikil þörf á þessari þjónustu.“ Guðmundur situr í stjórn Bergsins Headspace sem er nýtt stuðnings- og ráðgjafarsetur fyrir ungt fólk upp að 25 ára aldri og kom hann einnig að undirbúningi starfseminnar. Bergið er svokallað lágþröskuldaúrræði þar sem ungmenni í vanda fá stuðning, fræðslu og ráðgjöf en þar er engin eiginleg meðferð veitt. Guðmundur segist binda miklar vonir við þessa nýjung. „Ég hef horft upp á svo marga krakka sem hefur tekist að vinna vel í sínum málum og gengið vel í meðferð lenda aftur í sömu spor- um þegar þau koma út úr meðferð- inni vegna þess að það er fátt sem styður við þau að meðferð lokinni. Að leita að krökkum sem hefur gengið vel í meðferð en fara aftur í sama horfið á nokkrum mánuðum er ótrú- lega sár upplifun.“ Sprautað sig frá 13 ára aldri  30 barna leitað 65 sinnum  Færri en á sama tíma í fyrra  Guðmundur Fylkisson hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir gríðarlega þörf á fleiri úrræðum  Nýtt meðferðarheimili opnað eftir 2½ ár Morgunblaðið/Hari Unglingar Guðmundur og Heiða Björg eru sammála um skort á úrræðum. Týndu börnin Leitarbeiðnir til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna týndra barna það sem af er ári Heimild: Guðmundur Fylkisson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu 30 stelpur 35 strákar 15 stelpur 15 strákar 5 af þessum 30börnum sprauta sig með fíkniefnum 11 börn sem ekki hefur verið leitað áður 28 tilvik sem farið var með barnið beint í neyðarvistun á Stuðlum 65 beiðnir 30 börn Guðmundur Fylkisson Heiða Björg Pálmadóttir Rósa Margrét Tryggvadóttir rosamargrett@gmail.com Páskarnir eru tími sem fólk nýtir gjarnan í ferðalög um landið. En hvert liggur straumur Íslendinga í páskafríinu? Árni Gunnarsson, framkvæmda- stjóri flugfélagsins Air Iceland Connect, segir í samtali við Morgun- blaðið að straumurinn liggi út um allt land um páskana en mikið er um flug vestur, norður og austur. Hann segir áberandi marga fljúga til Ísafjarðar á tónlistarhátíðina Aldrei fór ég suður sem haldin verður 19.-20. apríl. Einn- ig finnst honum vera meiri spurn en áður eftir því að komast út á land á skíði. Lokað sé í Bláfjöllum og því virðist enn fleiri leggja leið sína á skíðasvæðin á Norður- og Austur- landi. Samkvæmt upplýsingum frá Ferðafélagi Íslands eru flestir Ís- lendingar á þeirra vegum að fara í gönguferðir á Snæfellsjökul sem er gríðarlega vinsæl á þessum tíma. „Fólk bíður í röðum eftir að fá að komast með,“ segir Heiðrún Ólafs- dóttir, verkefnisstjóri hjá félaginu. Ferðafélag Íslands er einnig með skála víða á hálendi Íslands, meðal annars í Landmannalaugum, en Heið- rún segir að lítil aðsókn sé í þá eins og er. Segir hún að veðrið og færðin hafi þar mikil áhrif. Fólk hafi þurft að af- bóka og skálunum verið lokað. „Það er bara ófært út af vatnsveðri. Það er ekki hægt að keyra þarna þegar það er svona blautt,“ segir Heiðrún. Páll Gíslason, framkvæmdastjóri Fannborgar sem rekur ferðaþjónustu í Kerlingarfjöllum, segir nánast enga aðsókn vera að ferðalögum um há- lendið um páskana. Hann segist finna fyrir því að hefðin fyrir því að fólk fari á fjöll um páska hafi minnkað. Þá hafi veðrið einnig mikil áhrif á það hvert fólk ferðist í fríinu en hlákan á hálend- inu sé ekki hvetjandi fyrir fólk. Áin Blákvísl, sem ferðalangar á leið á Kerlingarfjöll þurfa að fara yfir, geti auk þess verið erfið viðureignar og jafnvel ófær í svona veðri. Páll heldur að margir leggi leið sína upp í sum- arbústað í páskafríinu en veit um nokkra sem ætla á fjallaskíði. „Ég held að þetta rok og þessi mikla hláka hafi eyðilagt plön margra,“ segir hann. Færri fara á fjöll um páska en áður  Skíði, tónlist og göngur heilla í fríinu Skíði Vinsæl iðja um páska.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.