Morgunblaðið - 18.04.2019, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 18.04.2019, Blaðsíða 29
Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is „Mig hafði alltaf langað til Íslands eftir að ég sá Nonna og Manna og fallega náttúru landsins sjö ára gömul,“ segir Sarah Schug, sem ritstýrir og gefur út bókina Isle of Art, ásamt ljósmyndaranum Paul- ine Mikó sem tók allar myndir í bókinni fyrir utan tvær. Viðtöl við og fróðleikur um yfir 50 listamenn og sýningarstaði eru í bókinni. Henni er skipt niður eft- ir landsvæðum og ljósmyndir af listamönnum, listaverkum, lands- lagi og sýningarsölum prýða bók- ina. Schug er þýsk og starfar sem blaðamaður, búsett í Brussel. Hún hefur starfað í lausamennsku og sérhæft sig í skrifum um listir, menningu, hönnun og ljósmyndun. Greinar eftir Schug hafa birst víða. Mikó er belgísk-ungverskur ljósmyndari sem sérhæft hefur sig í ljósmyndum tengdum listum. Hún rekur ljósmyndastúdíó í Brussel. „Ég kom fyrstu ferðina til Íslands 2009 og féll algjörlega fyr- ir náttúru landsins. Ég kom oftar og fann að það var mikil lista- starfsemi á landinu. Ég leitaði að bók þar sem ég gæti fundið upp- lýsingar um einstaka listamenn og sýningarstaði sem væru að störf- um, en fann ekki það sem ég leit- aði að,“ segir Schug sem ákvað að taka málin í sínar hendur og fá Mikó til liðs við sig en þær höfðu áður unnið verkefni saman. Schug dvaldi hér á landi í tvo mánuði árið 2017 og vann að undirbúningi bókarinnar á meðan kærasti hennar, sem er tónlistar- maður, notaði tækifærið og tók upp tónlistarmyndbönd. Listastarf um allt land „Ég byrjaði á því að tala við alla sem ég gat fundið á listasviðinu. Í fyrstu var ég hrædd um að ég fyndi ekki nógu marga. Sú hræðsla var óþörf og bókin hefði getað verið margfalt þykkari,“ segir Schug sem hafði engar væntingar í byrjun. Hún segir um- fang listastarfs alls staðar á land- inu hafi komið henni á óvart. „Það er alveg sama hvar á land komið er, það eru listamenn að störfum alls staðar. Tökum sem dæmi Hjalteyri lengst norður í landi. Þar búa 40 manns og á staðnum er rekin menningar- miðstöðin Verksmiðjan í gamalli síldarverksmiðju,“ segir Schug sem lagði mikla áherslu á fjölbreytta flóru lista- manna í bókinni. „Bókin er ekki um þekktustu eða bestu listamenn eða sýningaraðila á Íslandi. Bókinni er ætlað að kynna nýja sem gamla listamenn, þekkta sem óþekkta, í Reykjavík og á lands- byggðinni,“ segir Schug sem er ánægð með fyrstu viðbrögð við bókinni. Það er hægt að panta bókina á netinu og við erum þegar búnar að fá pantanir frá Banda- ríkjunum og Bretlandi. Schug seg- ir að nú sé unnið að því að koma bókinni í sölu í valdar lykilversl- anir og sýningarstaði í stór- borgum. Schug vonast til þess að halda útgáfuhóf vegna bókarinnar á Íslandi í júní. Hægt sé að kaupa Isle of Art í Listasafni Reykja- víkur, Máli og menningu og á Listasafni Akureyrar. Allar 150 bækurnar sem Schug kom með til landsins eru seldar eða komnar á sölustaði og nú vinnur hún að því að senda fleiri bækur til landsins. „Ég fann það strax í upphafi að bókaformið var rétti vettvang- urinn til þess að setja á einn stað allar upplýsingar um íslenska listamenn og sýningarstaði. Það er ákveðin tilfinning í því að hand- fjatla bók og enn betra þegar hún er úr góðum pappír með fallegum myndum,“ segir Schug, sem á ferðum sínum við vinnu bókar- innar hefur farið tvisvar sinnum hringinn í kringum landið. Schug segir Íslendinga hjálp- sama, gestrisna og auðvelt sé að leita sér upplýsinga. Fengu ómetanlega hjálp „Það voru allir tilbúnir að að- stoða okkur með því að benda á listamenn og koma okkur í sam- band við þá. Oft var okkur boðin gisting þegar við bönkuðum upp á hjá listamönnunum og aðra hjálp sem var okkur ómetanleg,“ segir Schug sem bendir á að í Isle of Art sé leitað svara m.a. við spurningunum um hvaða breytingar hafa orðið á listasenunni á Íslandi. Hvernig það sé að vera listamaður á lítilli eyju úti á ballarhafi, hvort það sé gott eða slæmt. Hvernig það sé fyrir er- lenda listamenn að stunda list á Íslandi og hvers vegna íslenskir listamenn sem læra erlendis skili sér flestir heim aftur. Aðspurð hvað greini íslenska listamenn frá öðrum svarar Schug eftir stutta umhugsun. „Það er eitthvert óttaleysi og sjálfstraust sem þeir búa yfir og gera hlutina sjálfir. Mörg galleríin og sýningarsalirnir eru rekin af listamönnunum sjálfum. Ég held að hugsanlega geti það verið að sumu leyti betra að vera listamað- ur á Íslandi en annars staðar,“ segir Schug sem telur að það sé erfitt að verða ríkur á litlum markaði eins og á Íslandi. Það sé hins vegar meira frjálsræði í list- inni á minni mörkuðum og minni pressa að framleiða í miklu magni. Schug finnst það merkilegt hversu margir listamenn komi aftur heim til Íslands að loknu námi eða starfi erlendis. Schug segir Börk Arnarsson lýsa því vel í bókinni þegar hann segir að íslenskir listamenn séu eins og laxar. Þeir syndi úr ánni og fari langt í burtu en komi alltaf aftur. Íslenskir lista- menn í Isle of art  Viðtöl við og fróðleikur um yfir 50 listamenn í nýútkominni bók  Heillaðist af Íslandi sjö ára fyrir tilstuðlan Nonna og Manna  Óttaleysi og sjálfstraust einkenna íslenskt listafólk Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Listunnendur Sarah Schug blaðamaður gaf ásamt Pauline Mikó ljósmyndara nýverið út bókina Isle of Art. Þar eru viðtöl, fróðleikur og myndir af listamönnum og sýningarsölum sem þær heimsóttu hringinn í kringum Ísland. MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 2019 Rauðagerði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · www.kaelitaekni.is Okkar þekking nýtist þér Varmadælur Hagkvæmur kostur til upphitunar Verð frá aðeins kr. 145.000 m.vsk Midea KMB-E09 Max 3,4 kW 2,65 kW við -7° úti og 20° inni hita (COP 2,85) f. íbúð ca 40m2. • Kyndir húsið á veturna og kælir á sumrin • Fyrir norðlægar slóðir • Fjarstýring fylgir • Hægt að fá WiFi sendi svo hægt sé að stjórna dælunni úr GSM síma Uppsetningaaðilar og umboðsmenn um allt land Wifi búnaður fylgir með öllum varmadælummeðan birgðir endast Mission Extreme Umhverfisvænn kælimiðill Renndu við hjá okkur í Tangarhöfða 13 FAI varahlutir Ódýrari kostur í varahlutum! stýrishlutir hafa verið leiðandi í yfir 10 ár. Framleiddir undir ströngu eftirliti til samræmis við OE gæði. TANGARHÖFÐA 13 577 1313 - kistufell.com BIFREIÐAVERKSTÆÐIÐ Listamaðurinn Margeir Dire lést 30. mars í Berlín, þar sem hann var búsettur. „Við tekur erfiður tími hjá fjölskyldu Margeirs, bæði að takast á við sorgina og missinn, en á sama tíma fylgir því mikill kostnaður að flytja hann heim og halda útför. Af þessum sökum hafa nokkrir norðlenskir myndlistarmenn tekið höndum saman og efnt til lista- verkauppboðs fjölskyldunni til stuðnings. Verkin verða sýnileg fram að uppboði í Mjólkurbúðinni, sal Myndlistar- félagsins í Listagilinu og á fésbókarsíðu uppboðsins, á síðu Kaktus,“ segir í tilkynningu. Þar kemur fram að hægt verði að bjóða í verkin á síðunni fram að uppboði sem og á uppboðinu sem haldið verður í Kaktus, Strandgötu 11b, laugardaginn 20. apríl kl. 14. Uppboð til stuðnings fjölskyldunni Margeir Dire

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.