Morgunblaðið - 18.04.2019, Page 29
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
„Mig hafði alltaf langað til Íslands
eftir að ég sá Nonna og Manna og
fallega náttúru landsins sjö ára
gömul,“ segir Sarah Schug, sem
ritstýrir og gefur út bókina Isle of
Art, ásamt ljósmyndaranum Paul-
ine Mikó sem tók allar myndir í
bókinni fyrir utan tvær.
Viðtöl við og fróðleikur um yfir
50 listamenn og sýningarstaði eru
í bókinni. Henni er skipt niður eft-
ir landsvæðum og ljósmyndir af
listamönnum, listaverkum, lands-
lagi og sýningarsölum prýða bók-
ina.
Schug er þýsk og starfar sem
blaðamaður, búsett í Brussel. Hún
hefur starfað í lausamennsku og
sérhæft sig í skrifum um listir,
menningu, hönnun og ljósmyndun.
Greinar eftir Schug hafa birst
víða.
Mikó er belgísk-ungverskur
ljósmyndari sem sérhæft hefur sig
í ljósmyndum tengdum listum.
Hún rekur ljósmyndastúdíó í
Brussel.
„Ég kom fyrstu ferðina til
Íslands 2009 og féll algjörlega fyr-
ir náttúru landsins. Ég kom oftar
og fann að það var mikil lista-
starfsemi á landinu. Ég leitaði að
bók þar sem ég gæti fundið upp-
lýsingar um einstaka listamenn og
sýningarstaði sem væru að störf-
um, en fann ekki það sem ég leit-
aði að,“ segir Schug sem ákvað að
taka málin í sínar hendur og fá
Mikó til liðs við sig en þær höfðu
áður unnið verkefni saman.
Schug dvaldi hér á landi í tvo
mánuði árið 2017 og vann að
undirbúningi bókarinnar á meðan
kærasti hennar, sem er tónlistar-
maður, notaði tækifærið og tók
upp tónlistarmyndbönd.
Listastarf um allt land
„Ég byrjaði á því að tala við alla
sem ég gat fundið á listasviðinu. Í
fyrstu var ég hrædd um að ég
fyndi ekki nógu marga. Sú
hræðsla var óþörf og bókin hefði
getað verið margfalt þykkari,“
segir Schug sem hafði engar
væntingar í byrjun. Hún segir um-
fang listastarfs alls staðar á land-
inu hafi komið henni á óvart.
„Það er alveg sama hvar á land
komið er, það eru listamenn að
störfum alls staðar. Tökum sem
dæmi Hjalteyri lengst norður í
landi. Þar búa 40 manns og á
staðnum er rekin menningar-
miðstöðin Verksmiðjan í gamalli
síldarverksmiðju,“ segir
Schug sem lagði
mikla áherslu á
fjölbreytta
flóru lista-
manna í bókinni.
„Bókin er ekki
um þekktustu eða
bestu listamenn
eða sýningaraðila
á Íslandi. Bókinni er
ætlað að kynna nýja sem
gamla listamenn, þekkta sem
óþekkta, í Reykjavík og á lands-
byggðinni,“ segir Schug sem er
ánægð með fyrstu viðbrögð við
bókinni. Það er hægt að panta
bókina á netinu og við erum þegar
búnar að fá pantanir frá Banda-
ríkjunum og Bretlandi. Schug seg-
ir að nú sé unnið að því að koma
bókinni í sölu í valdar lykilversl-
anir og sýningarstaði í stór-
borgum. Schug vonast til þess að
halda útgáfuhóf vegna bókarinnar
á Íslandi í júní. Hægt sé að kaupa
Isle of Art í Listasafni Reykja-
víkur, Máli og menningu og á
Listasafni Akureyrar. Allar 150
bækurnar sem Schug kom með til
landsins eru seldar eða komnar á
sölustaði og nú vinnur hún að því
að senda fleiri bækur til landsins.
„Ég fann það strax í upphafi að
bókaformið var rétti vettvang-
urinn til þess að setja á einn stað
allar upplýsingar um íslenska
listamenn og sýningarstaði. Það er
ákveðin tilfinning í því að hand-
fjatla bók og enn betra þegar hún
er úr góðum pappír með fallegum
myndum,“ segir Schug, sem á
ferðum sínum við vinnu bókar-
innar hefur farið tvisvar sinnum
hringinn í kringum landið.
Schug segir Íslendinga hjálp-
sama, gestrisna og auðvelt sé að
leita sér upplýsinga.
Fengu ómetanlega hjálp
„Það voru allir tilbúnir að að-
stoða okkur með því að benda á
listamenn og koma okkur í sam-
band við þá. Oft var okkur boðin
gisting þegar við bönkuðum upp á
hjá listamönnunum og aðra hjálp
sem var okkur ómetanleg,“ segir
Schug sem bendir á að í Isle of
Art sé leitað svara m.a. við
spurningunum um hvaða
breytingar hafa orðið á
listasenunni á Íslandi.
Hvernig það sé að
vera listamaður á lítilli
eyju úti á ballarhafi,
hvort það sé gott eða
slæmt. Hvernig það sé fyrir er-
lenda listamenn að stunda list á
Íslandi og hvers vegna íslenskir
listamenn sem læra erlendis skili
sér flestir heim aftur.
Aðspurð hvað greini íslenska
listamenn frá öðrum svarar Schug
eftir stutta umhugsun.
„Það er eitthvert óttaleysi og
sjálfstraust sem þeir búa yfir og
gera hlutina sjálfir. Mörg galleríin
og sýningarsalirnir eru rekin af
listamönnunum sjálfum. Ég held
að hugsanlega geti það verið að
sumu leyti betra að vera listamað-
ur á Íslandi en annars staðar,“
segir Schug sem telur að það sé
erfitt að verða ríkur á litlum
markaði eins og á Íslandi. Það sé
hins vegar meira frjálsræði í list-
inni á minni mörkuðum og minni
pressa að framleiða í miklu magni.
Schug finnst það merkilegt hversu
margir listamenn komi aftur heim
til Íslands að loknu námi eða
starfi erlendis. Schug segir Börk
Arnarsson lýsa því vel í bókinni
þegar hann segir að íslenskir
listamenn séu eins og laxar. Þeir
syndi úr ánni og fari langt í burtu
en komi alltaf aftur.
Íslenskir lista-
menn í Isle of art
Viðtöl við og fróðleikur um yfir 50 listamenn í nýútkominni
bók Heillaðist af Íslandi sjö ára fyrir tilstuðlan Nonna og
Manna Óttaleysi og sjálfstraust einkenna íslenskt listafólk
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Listunnendur Sarah Schug blaðamaður gaf ásamt Pauline Mikó ljósmyndara nýverið út bókina Isle of Art. Þar eru
viðtöl, fróðleikur og myndir af listamönnum og sýningarsölum sem þær heimsóttu hringinn í kringum Ísland.
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 2019
Rauðagerði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · www.kaelitaekni.is
Okkar þekking nýtist þér
Varmadælur
Hagkvæmur kostur til
upphitunar
Verð frá aðeins
kr. 145.000 m.vsk
Midea KMB-E09
Max 3,4 kW
2,65 kW við -7° úti og
20° inni hita (COP 2,85)
f. íbúð ca 40m2.
• Kyndir húsið á veturna
og kælir á sumrin
• Fyrir norðlægar slóðir
• Fjarstýring fylgir
• Hægt að fá WiFi sendi
svo hægt sé að stjórna
dælunni úr GSM síma
Uppsetningaaðilar og
umboðsmenn um allt
land
Wifi búnaður
fylgir með öllum
varmadælummeðan
birgðir endast
Mission Extreme
Umhverfisvænn kælimiðill
Renndu við
hjá okkur í
Tangarhöfða 13
FAI varahlutir
Ódýrari kostur í varahlutum!
stýrishlutir
hafa verið leiðandi
í yfir 10 ár.
Framleiddir undir
ströngu eftirliti
til samræmis
við OE gæði.
TANGARHÖFÐA 13
577 1313 - kistufell.com
BIFREIÐAVERKSTÆÐIÐ
Listamaðurinn Margeir Dire lést 30. mars í Berlín, þar sem
hann var búsettur. „Við tekur erfiður tími hjá fjölskyldu
Margeirs, bæði að takast á við sorgina og missinn, en á
sama tíma fylgir því mikill kostnaður að flytja hann heim
og halda útför. Af þessum sökum hafa nokkrir norðlenskir
myndlistarmenn tekið höndum saman og efnt til lista-
verkauppboðs fjölskyldunni til stuðnings. Verkin verða
sýnileg fram að uppboði í Mjólkurbúðinni, sal Myndlistar-
félagsins í Listagilinu og á fésbókarsíðu uppboðsins, á síðu
Kaktus,“ segir í tilkynningu. Þar kemur fram að hægt
verði að bjóða í verkin á síðunni fram að uppboði sem og á uppboðinu sem
haldið verður í Kaktus, Strandgötu 11b, laugardaginn 20. apríl kl. 14.
Uppboð til stuðnings fjölskyldunni
Margeir Dire