Morgunblaðið - 18.04.2019, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 18.04.2019, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 2019 Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á BAKSVIÐ Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Isavia stefnir að því að selja Airbus A321-211-vél í eigu bandaríska flug- vélaleigufyrirtækisins Air Lease Corporation á uppboði, fallist félagið ekki á að greiða tæplega tveggja milljarða skuld WOW air við Kefla- víkurflugvöll innan „sanngjarnra tímamarka“. Þetta kom fram í bréfi sem lögfræðingur Isavia sendi ALC sama dag og WOW air varð gjald- þrota. Samhliða tilkynningunni kyrrsetti Isavia vélina og skipaði stórtækum vinnuvélum við stél og trýni vélarinnar þar sem hún stend- ur á flughlaði á Keflavíkurflugvelli. Kyrrsetninguna byggir Isavia á 136. gr. loftgerðalaga nr. 60/1998. Þar segir: „Samgöngustofu og þeim sem starfrækir flugvöll eða flugleið- söguþjónustu er heimilt að aftra för loftfars af flugvelli uns gjöld eru greidd eða trygging sett fyrir greiðslu vegna þess loftfars sem í hlut á eða annarrar starfsemi hlut- aðeigandi eða umráðanda loftfars- ins.“ Skuldir hrönnuðust upp Skuld WOW air við Keflavíkur- flugvöll, vegna lendingar- og yfir- flugsgjalda höfðu hrannast upp allt frá sumrinu 2018 og til þess dags er félagið varð gjaldþrota í lok mars síðastliðins. Í lok febrúar nam skuld félagsins við flugvöllinn tæpum tveimur milljörðum en frá því í júní í fyrra hafði félagið greitt inn á skuld sína rétt um milljarð króna. Að öðr- um kosti hefði skuldin numið 3 millj- örðum í lok febrúar síðastliðins. Þetta sýna gögn sem Morgunblaðið hefur undir höndum. Þetta mun ekki vera í fyrsta sinn sem flugvallaryfir- völd hafa krafið ALC um greiðslu vegna vangoldinna skulda þriðja að- ila. Hins vegar herma heimildir Morgunblaðsins að aldrei fyrr í sögu félagsins hafi það verið gert ábyrgt fyrir skuldum sem safnast hafi upp yfir jafn langt tímabil og reyndin var með WOW air. Heimildir Morgun- blaðsins herma að fulltrúar ALC hafi leitast við að ná sátt við Isavia svo félagið geti fengið vélina TF- GPA afhenta að nýju, en nýir leigu- takar munu bíða eftir því að fá hana í hendur. Isavia hefur hins vegar gert þá ófrávíkjanlegu kröfu að fé- lagið standi skil á allri skuldinni, jafnvel þótt hún sé til komin vegna umsvifa sem byggð voru í kringum fjölda farþegaþota sem ekki voru í eigu ALC. WOW hafði ekki umráðarétt Mun forsvarsmönnum Isavia auk þess hafa verið gerð grein fyrir að WOW air sé ekki lengur umráðandi vélarinnar sem um ræðir. Þannig hafi félagið sjálfkrafa misst umráða- réttinn þegar það lagði inn flug- rekstrarleyfi sitt til Samgöngustofu að morgni fimmtudagsins 28. mars. Þegar vélin TF-GPA var kyrrsett í Keflavík var búið að kyrrsetja allar aðrar vélar WOW air á erlendri grundu að beiðni flugvélaleigufyrir- tækja, að einni vél undanskilinni, en hún var einnig staðsett á Kefla- víkurflugvelli. Sú vél bar einkennis- stafina TF-SKY og er einnig í eigu ALC. Þegar ljóst var að Isavia myndi ekki láta vélina sem kyrrsett hafði verið af hendi, óskaði ALC eft- ir því að TF-SKY yrði fremur tekin sem trygging fyrir greiðslunni á skuld WOW air. Isavia varð ekki við þeirri beiðni þótt ljóst sé að vélarn- ar, sem báðar eru af gerðinni Airbus A321 séu mun verðmætari en sem nemur skuld WOW við Isavia. Í hinu óundirritaða samkomulagi milli Isavia og WOW air, sem gert var þegar vanskil síðarnefnda fé- lagsins námu orðið meira en millj- arði króna, var gengið út frá því að félagið greiddi upp skuldina í 13 að- skildum greiðslum. Fyrst með sjö gjalddögum frá nóvember 2018 og fram til 1. maí 2019 þar sem hver greiðsla hljóðaði upp á 30 milljónir króna. Þá fimm gjalddagar yfir sumarmánuðina, þegar fjárflæði er hvað mest hjá flugfélögum og að hver gjalddagi hljóðaði upp á 145 milljónir króna. Lokagreiðsluna átti svo að inna af hendi 1. nóvember 2019 upp á tæpar 99 milljónir króna. Lagði fram eignir þriðja aðila Í samkomulaginu milli WOW air og Isavia vekja tvö atriði sérstaka athygli. Annars vegar atriði sem lýt- ur að því að WOW air tryggi Isavia aðgengi að vél í eigu þriðja aðila til kyrrsetningar vegna skulda félags- ins við Keflavíkurflugvöll. Hljóðar það ákvæði á þessa leið: „Greiðandi tryggir a.m.k. eina flugvél á flug- rekstrarleyfi félagsins sé á Kefla- víkurflugvelli eða a.m.k. eina flugvél á flugrekstrarleyfi félagsins sé á leið til Keflavíkurflugvallar og komin með staðfestan komutíma á öllum tímum á gildistíma greiðslu- áætlunarinnar.“ Þá vekur einnig eftirtekt að WOW air undigekkst þá kvöð að veita Isavia sömu fjárhagslegu upplýsing- ar til Isavia meðan skuldin væri til staðar og giltu í skilmálum skuldabréfaútboðs sem WOW air réðist í um miðjan septembermánuð í fyrra. „Skulu þær upplýsingar ber- ast Isavia a.m.k. á sama tíma og þær berast til eigenda skuldabréfanna. Upplýsingarnar skulu sendar á net- fangið sveinbjorn.indridason@isa- via.is.“ Fordæmalaus uppákoma Kyrrsett Isavia hefur hótað því að bjóða upp vél Air Lease Corporation á Keflavíkurflugvelli nema félagið greiði að fullu 2 milljarða skuld WOW air.  Forsvarsmenn ALC telja það ekki standast skoðun að Isavia geri félagið ábyrgt fyrir 9 mánaða, 2 milljarða uppsöfnuðum skuldahala WOW air á Keflavíkurflugvelli ● Eimskip og grænlenska skipafélagið Royal Arctic Line fengu í gær undan- þágu frá Samkeppniseftirlitinu um að fyrirtækjunum sé heimilt að hefja sam- starf. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eimskipi. Þá segir að í tengslum við fyrirhugað samstarf séu Eimskip og Royal Arctic Line með í smíðum þrjú 2.150 gáma- eininga skip sem gert er ráð fyrir að verði komin í rekstur undir lok þessa árs. Tvö af skipunum verða í eigu Eim- skips og Royal Arctic Line mun eiga eitt. Skipin verða notuð í vikulegum siglingum á milli Grænlands, Íslands, Færeyja og Skandinavíu. Nýju skipin verða stærstu gámaskip sem Eimskip hefur haft í sinni þjónustu. Samþykkja samstarf skipafélaga 18. apríl 2019 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 119.72 120.3 120.01 Sterlingspund 156.64 157.4 157.02 Kanadadalur 89.38 89.9 89.64 Dönsk króna 18.113 18.219 18.166 Norsk króna 14.08 14.162 14.121 Sænsk króna 12.917 12.993 12.955 Svissn. franki 118.96 119.62 119.29 Japanskt jen 1.0694 1.0756 1.0725 SDR 166.3 167.3 166.8 Evra 135.22 135.98 135.6 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 165.3489 Hrávöruverð Gull 1301.85 ($/únsa) Ál 1843.0 ($/tonn) LME Hráolía 71.21 ($/fatið) Brent ● Vísitala bygging- arkostnaðar, reikn- uð um miðjan apríl 2019, nam 142,7 stigum og hækkar um 0,2% frá fyrri mánuði. Þetta kemur fram á vef- síðu Hagstofu Ís- lands. Innflutt efni hækkaði um 0,5% á meðan flokkur véla, flutnings og orkunotkunar hækk- aði um 0,8%. Á síðustu tólf mánuðum hefur vísi- tala byggingarkostnaðar hækkað um 3,9%. Vísitalan gildir einnig fyrir maí. Vísitala byggingarkostn- aðar hækkar um 0,2% Vísitala Hækkar um 0,2% í apríl. STUTT Björn Óli Hauksson hefur látið af störfum sem forstjóri Isavia sam- kvæmt tilkynningu sem barst frá fé- laginu í gærkvöldi. Heimildir Morgunblaðsins herma að Birni Óla hafi verið sagt upp störfum sam- kvæmt ákvörðun stjórnar félagsins þar um. Elín Árnadóttir aðstoðarfor- stjóri og Sveinbjörn Indriðason, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, munu annast daglegan rekstur fé- lagsins þar til nýr forstjóri verður ráðinn. Í fréttatilkynningunni frá Isavia segir Björn Óli að hann hafi starfað hjá fyrirtækinu í meira en tíu ár, og að sá tími hafi verið viðburðaríkur og skemmtilegur. „Ég hef fengið að taka þátt í uppbyggingu á Isavia sem hefur verið einstakt. Einnig hef ég fengið tækifæri til að vinna með frá- bæru starfsfólki í umhverfi þar sem áskoranir eru og hafa verið miklar. Ég er þakklátur fyrir það hversu vel hefur tekist til og nú er að hefjast enn einn kaflinn í sögu Isavia. Í því ljósi tel ég að nú sé góður tími fyrir nýtt fólk til að taka við keflinu,“ segir Björn Óli í tilkynningunni. Orri Hauksson, stjórnarformaður Isavia, þakkaði Birni Óla fyrir starf sitt fyrir félagið um langt skeið. Segir í tilkynningu Isavia að stjórnin virði ákvörðun Björns Óla um að nú sé góður tímapunktur til að láta af störfum og verði hafist handa við að ráða nýjan forstjóra. Skammt stórra högga á milli Einungis er tæpur mánuður liðinn frá því að Ingimundur Sigurpálsson lét af starfi stjórnarformanns á aðal- fundi félagsins en hann hafði þá sinnt því starfi í sex ár. Vék hann um leið úr stjórn, en Orri Hauksson tók hans stað. Þá boðaði Björn Óli um síðustu mánaðamót hagræðingu í starfsemi Isavia og fækkun sumarstarfsfólks á Keflavíkurflugvelli í kjölfar gjald- þrots WOW air fyrr í vor. Björn Óli Hauksson lætur af störfum sem forstjóri Isavia Björn Óli Hauksson Orri Hauksson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.