Morgunblaðið - 18.04.2019, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 18.04.2019, Blaðsíða 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 2019 Smiðjuvegur 10, 200 Kópavogur - Sími 588 60 70 - hitataekni@hitataekni.is - www.hitataekni.is Anddyrishitablásarar Baðviftur Ein sú hljóðlátasta 17 - 25 dB(A) Umboðsaðilar á Íslandi loftræstikerfa fyrir heimili og fyrirtæki Bjóðum upp á mikið úrval Vatnshitablásarar Bjóðum upp á fjölbreyttan búnað svo sem loftræsingar, hitakerfi, kælikerfi, rakakerfi sem og stjórnbúnað og stýringar. Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Rétt fyrir borgar- stjórnarfund 2. apríl sl. mætti hópur rekstraraðila við Laugaveg og Skóla- vörðustíg í Ráðhúsið með undirskriftalista og afhenti borgar- stjóra, Degi B. Egg- ertssyni. Ástæða undirskriftanna var að til stendur, af hálfu meirihlutans í borginni, að loka alfarið þessum götum fyrir bílaumferð árið um kring. Ástæð- ur undirskriftanna voru áhyggjur þessara aðila af þróun mála í mið- borginni og afkomumöguleikum verslunar við þessar rótgrónu verslunargötur. Undirritaður lagði síðar fram tillögu á borgar- stjórnarfundinum um að borgar- meirihlutinn tæki upp nánara og víðtækara samráð við alla aðila sem hagsmuna eiga að gæta, svo sem hagsmunaaðila fatlaðs fólks, eldri borgara og rekstraraðila. Umræður urðu mjög snarpar og stóðu lengi yfir. Ljóst er að ýmsar breytingar hafa orðið í samfélaginu sem áhrif hafa á þörf íbúa fyrir þjónustu í miðborginni. Bílastæðavandinn er einn fælingarmátturinn og nú hin síðustu ár ört hækkandi leiguverð sem ræðst af tvennu, framboðs- skorti á húsnæði í miðborginni og hækkandi fasteigna- gjöldum. Má rekja þá hækkun m.a. til breytinga á fast- eignamati sem fer síðan beint út í leiguverðið. Þessar tvær meginástæður gera m.a. verslunar- rekstur við göturnar mun erfiðari. Dá- góður hópur rekstraraðila hefur ákveðið að flytja sig annað eða hreinlega hætta rekstri. Þegar er hluti þeirra fluttur og eftir standa auð rými. Þessir aðilar nefna aðallega flótta viðskiptavina vegna erf- iðrar aðkomu að verslunargöt- unum og hækkandi bílastæða- gjalda. Einnig nefna margir að sumarlokun fyrir bílaumferð um göturnar dragi úr komu við- skiptavina, en auki kannski flæði ferðamanna sem aftur á móti versla lítið. Túristaverslunum sem þjóna ferðamönnum hefur fjölgað verulega, en þjóna ekki borgarbúum nema að mjög tak- mörkuðu leyti. Engar haldgóðar rannsóknir né kannanir hafa verið gerðar til að átta sig á fækkun borgarbúa á þessum götum, sem hefur bein áhrif á viðskiptin. Það er ein könnun sem gerð var af Maskínu sl. sumar sem borgarmeirihlutinn hengir sig hvað mest í, en aðeins 768 Reykvíkingar svöruðu henni. Sú könnun gefur í raun ranga mynd af viðhorfi borgarbúa al- mennt, þar sem spurt var hvort íbúar væru sáttir við sumarlokun verslunargatna í miðborginni. Ekki var svarendum gert ljóst að til stóð að loka götunum árið um kring. Ef svo hefði verið má leiða getum að því að svörunin hefði farið á annan veg. Þó er hægt að lesa úr þessari könnun, þegar vel er gáð, að því fjær sem íbúar búa frá miðborginni því andvígari eru þeir sumarlokun, hvað þá árið um kring. Að hagræða staðreyndum með þessum hætti þýðir eingöngu að meirihlutinn vinnur aðeins fyrir þann hluta borgarbúa sem búa nálægt miðjunni. Hinir geta átt sig, en eitthvað á þá leið komst einn borgarfulltrúi meirihlutans að orði á fyrrnefndum borgar- stjórnarfundi: „Þeir koma hvort sem er aldrei niður í bæ.“ Hvers vegna skyldi það nú vera? Það er jafnframt á áætlun meirihlutans að loka svo kirfilega fyrir um- ræddar götur að fatlaðir og aldr- aðir einstaklingar komist ill- mögulega í göturnar. Það má nefnilega enginn bíll aka um þær eftir að lokað verður. Skoðum nokkrar staðreyndir: 90% rekstraraðila eru á móti heilsárslokun. Í skoðanakönnun Gallup 1. febrúar sl. er borgar- stjórnarmeirihluti Reykjavíkur neðstur á lista þeirra stofnana sem um var spurt með aðeins 16% traust af hálfu þjóðarinnar. Núverandi borgarmeirihluti kveðst vera að vinna samkvæmt vilja kjósenda en það er hins veg- ar ekki hafið yfir allan vafa að svo sé. Fyrir Reykvíkinga væri lítið að sækja ef þessara verslana nyti ekki við við göturnar. Ef áform meirihlutans verða að veruleika þá er það klárlega mik- ill skaði fyrir eitthvert rótgrón- asta og vinsælasta svæði borgar- innar okkar. Finna þarf leiðir sem geta sætt alla aðila. Ljóst er að þörf er á breytingum, til að gæða þessar götur meira lífi fyrir borgarbúa, en málin verða ekki leyst með gerræðislegri aðferða- fræði meirihlutans og skella bara í lás fyrir allri bílaumferð. Við búum á Íslandi þar sem válynd veður geisa. Verslanir flýja af Laugavegi verði áform meirihluta að veruleika Eftir Þór Elís Pálsson » Borgarmeirihlutinn ætlar að breyta verslunargötum borgar- innar í göngugötur allt árið. Flokkur fólksins berst gegn þessum vondu vinnubrögðum. Þór Elís Pálsson Höfundur er varaborgarfulltrúi Flokks fólksins. thor.elis.palsson@reykjavik.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.