Morgunblaðið - 24.04.2019, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 24.04.2019, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 2019 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Hörður Sigurgestsson, fyrrverandi forstjóri Eimskipafélags Ís- lands, lést að morgni annars í páskum, rúm- lega áttræður. Hann fæddist í Reykjavík 2. júní 1938. Hörður lauk stúdentsprófi frá Verslunarskóla Ís- lands 1958 og við- skiptafræðiprófi frá Háskóla Íslands 1965. Hann lauk MBA-prófi 1968 frá Wharton School, University of Pennsylvania í Banda- ríkjunum. Á árunum 1965-1966 var hann fulltrúi framkvæmdastjóra hjá Almenna bókafélaginu. Hann var ráðinn til starfa í fjármála- ráðuneytinu, fjárlaga- og hag- sýslustofnun, 1968 og var þar til 1974. Þá varð hann fram- kvæmdastjóri fjár- málasviðs Flugleiða og gegndi því starfi þar til hann var ráð- inn forstjóri Eim- skipafélags Íslands árið 1979. Hann lét af starfi forstjóra ár- ið 2000. Hann sat í stjórn Flugleiða 1984-2004, þar af sem formaður 1991-2004. Hörður tók um skeið virkan þátt í starfi Sjálfstæðisflokksins, sat í stjórn SUS, í stjórn Varðar og í stjórn fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík. Þá var hann formaður stúdentaráðs 1960-1962. Hörður sat í mörgum stjórnum, nefndum og ráðum fyrir hið opinbera, einkafyrirtæki og félagasamtök. Nefna má setu í stjórnum Stjórn- unarfélagsins, Verslunarráðsins, Vinnuveitendasambandsins og Sinfóníuhljómsveitarinnar, þar sem hann var formaður um skeið. Hörður lét sér mjög annt um mál- efni Háskóla Íslands. Hann sat í háskólaráði sem fulltrúi þjóðlífs skipaður af menntamálaráðherra 1999-2003 og var formaður stjórn- ar Landsbókasafns-Háskóla- bókasafns frá 2003-2008. Í nóvem- ber 2008 var hann gerður að heiðursdoktor við Háskóla Íslands. Eftirlifandi eiginkona Harðar er Áslaug Ottesen bókasafnsfræð- ingur, f. 1940. Börn þeirra eru Inga, f. 1970, og Jóhann Pétur, f. 1975. Barnabörnin eru fimm. Andlát Hörður Sigurgestsson Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Tímamót urðu í sögu Faxaflóahafna að morgni annars í páskum. Þá lagðist fyrsta skipið að nýj- um hafnarbakka utan Klepps í Sundahöfn, en framkvæmdir við hann hafa staðið yfir undan- farin þrjú ár. Það var hollenskt flutningaskip, Peak Breskens, sem varð fyrst til að leggjast að hin- um nýja bakka. Skipið var að koma með vinnu- búðir og stóran krana sem notaður verður til að reisa nýjan gámakrana Eimskips, en nýi bakk- inn verður aðalathafnasvæði Eimskips í fram- tíðinni. Nýi kraninn er væntanlegur til landsins í næsta mánuði og reiknað er með að hægt verði að taka hann í notkun seinni hluta þessa árs. görðum og taka við hlutverki Kleppsbakka með stækkandi skipum í gámaflutningum. Hafnarbakkinn er 470 metrar og kostn- aður við bakkagerð er áætlaður rúmar 3.000 milljónir króna. Faxaflóahafna sf. og að hluta verkefni skipa- félagsins, Eimskips, sem reka mun farmstöðina og nýta hafnaraðstöðuna. Þessum nýja hafnar- bakka er ætlað að verða helsti vöru- og gáma- flutningabakki fyrir farmstöð Eimskips í Vatna- Á undanförnum árum hefur bygging á nýj- um hafnarbakka utan Klepps verið helsta ný- byggingarframkvæmd Faxaflóahafna. Á árinu 2013 lauk umfjöllun um matsskyldu hafnar- gerðar utan Klepps og í beinu framhaldi af því hófust rannsóknir og útboðshönnun bakka- gerðar. Útboð á stálþilsefni og burðarstaurum fyr- ir sporbita fór fram á árinu 2015 og var bygging bakkans boðin út í byrjun árs 2016. Fram- kvæmdir við bakkagerð hófust sumarið 2016 og verktaki var Ístak hf. Verklok samningsverks eru skilgreind í verksamningi 1. júní næstkom- andi. Allt útlit er fyrir að sú dagsetning verk- loka standist og útboðsverki verði skilað á rétt- um tíma, segir í minnisblaði Jóns Þorvaldssonar aðstoðarhafnarstjóra. Þá standa eftir ýmis verkefni á svæðinu sem að hluta eru verkefni Fyrsta skipið kom að nýjum hafnarbakka Ljósmynd/Steinþór Hjartarson  Bakki utan Klepps verður aðalathafnasvæði Eimskips Kleppsbakki Peak Breskens við bryggju. Eins og sjá má er frágangi bakkans ekki lokið. ANDY FLOSS POPP KORN ANDLITS MÁLUN ÓTRÚLEG LEIKFÖNG TILBOÐ MÖGNUÐSKEMMTIATRIÐI HOPPU KASTALI BLÖÐRU BRELLUR OPNUNARHÁT ÍÐ SUMARDAGIN N FYRSTA KL.1 2 Í KRINGLUNN I KRINGLAN • SMÁRATORG • GLERÁRTORG Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is 48 ára kona með undirliggjandi ónæmisbælingu smitaðist af listeríu í janúar. Lést hún hálfum mánuði síðar af völdum sýkingarinnar. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í nýjustu Farsóttafréttum, fréttabréfi Landlæknisembættisins, en þar segir jafnframt að sýkingin hafi verið rakin til þess að konan hafði borðað reyktan og grafinn lax um jólaleytið 2018, og leiddu rækt- anir á honum í ljós að bakteríuna var þar að finna, sem og í vörum framleiðandans. Í kjölfarið hafi framleiðslu verið hætt og öll mat- væli innkölluð. Segir að reyktar af- urðir frá sama framleiðanda hafi verið fluttar út til Frakklands en bú- ið sé að gera dreifingaraðilum þar viðvart. Í fréttabréfinu segir að ekki hafi borist neinar tilkynningar um sýk- ingar af völdum bakteríunnar vegna neyslu á íslenskum vörum innan Evrópusambandsins (ESB) eða Evrópska efnahagssvæðisins (EES). Þá hafi árið 2017 komið upp 2.502 tilfelli af listeríusýkingum inn- an ESB/EES-svæðisins. Létust 14% af þeim sem sýktust. Dán- artíðnin var öllu hærri hér á landi, en það ár greindust sjö tilfelli hér- lendis og létust fjórir af þeim sjúk- lingum. Kemur fram í fréttabréfinu að þrír af þeim hafi verið eldri ein- staklingar með undirliggjandi sjúk- dóma en einn hafi verið nýfætt barn. Svo virðist sem listeríusýkingar hafi færst í vöxt hér á landi undan- farna tvo áratugi, en í fréttabréfinu má sjá að tveir smituðust árið 1997, en svo greindist ekki tilfelli aftur fyrr en árið 2004. Hins vegar smit- uðust fjórir árin 2013 og 2015 og þrír árið 2018. Víðtæk leit að berklasmiti Lungnaberklar greindust hjá ís- lenskum miðaldra einstaklingi í febrúarbyrjun en talið er líklegt að hann hafi smitast í þróunarlandi. Umfangsmikil leit að hugsanlegu berklasmiti hjá þeim sem maðurinn hefur komist í tæri við stendur yfir og hafa um 300 manns verið rann- sakaðir með tilliti til þess, en loka- niðurstaða þeirrar rannsóknar ligg- ur ekki fyrir. Þá kemur jafnframt fram í frétta- bréfinu að berklar hafi verið sjald- gæfir hér á landi á undanförnum ár- um, en átta tilfelli greindust af lungnaberklum á síðasta ári. Voru þau öll hjá einstaklingum sem eru af erlendu bergi brotnir. Dauðsföll orðið af völdum listeríu  Leitað að berklum hjá 300 manns Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Samgöngu- og sveitarstjórnarráðu- neytið hefur komist að þeirri niður- stöðu að álagning Orkuveitu Reykja- víkur á vatnsgjaldi ársins 2016 hafi verið ólögmæt. Úrskurðurinn var kveðinn upp 15. mars síðastliðinn og birtur á vef ráðuneytisins í gær. Í kjölfar úrskurðarins hefur ráðuneyt- ið ákveðið að taka til skoðunar gjald- skrár allra sveitarfélaga sem settar hafa verið á grundvelli laga um vatns- veitur. Úrskurðurinn er byggður á 10. grein laganna, en samkvæmt henni er með öllu óheimilt í gjaldskrá að ákveða hærra gjald en nemur meðal- kostnaði af því að veita þjónustuna. Segir í tilkynningu ráðuneytisins að samkvæmt skýru orðalagi 1. máls- greinar 10. greinarinnar „skuli vatns- gjaldi, ásamt öðrum tekjum vatns- veitu, aðeins ætlað að standa undir rekstri vatnsveitunnar. Undir það falli einnig fjármagnskostnaður, fyr- irhugaður stofnkostnaður samkvæmt langtímaáætlun veitunnar og kostn- aður við að tryggja nægilegt vatn til slökkvistarfs og fyrir sérstakan slökkvibúnað í samræmi við skyldur veitunnar“. Á hinn bóginn sé hvergi í lögum eða reglugerð að finna ákvæði sem heimili að arður sé tekinn af starfsemi vatnsveitu. Þá telur ráðuneytið einnig ljóst að arðsemi Orkuveitunnar umfram fjár- magnskostnað sé að lágmarki um 2%. Ákvæði gjaldskrár Orkuveitunnar vegna álagningar ársins 2016 séu að þessu leyti í andstöðu við ákvæði lag- anna, auk þess sem fyrirliggjandi gögn gefi til kynna að Orkuveitan hafi á undanförnum árum haft um- talsverðan arð af starfsemi sinni og muni hafa áfram. Hafa óskað eftir leiðbeiningum Í fréttatilkynningu sem Orkuveit- an sendi frá sér um málið segir að fyrirtækið hafi frá árinu 2016 lækkað vatnsgjaldið umtalsvert í tvígang, eða um 11,2% í byrjun árs 2017 og aftur um 10% í byrjun árs 2018. Þá hafi OR í framhaldi af úrskurð- inum „ítrekað óskað eftir leiðbeining- um frá ráðuneytinu um hvað leggja skuli til grundvallar við álagningu vatnsgjalds“. Er bent á að í lögunum um vatnsveitur sveitarfélaga sé sagt að nánar skuli kveðið á um þetta at- riði í reglugerð, en sú reglugerð hafi ekki verið sett. Segir enn fremur að sveitarfélög sem reki eigin vatnsveit- ur og veitufyrirtæki eigi talsvert und- ir því að reglur stjórnvalda séu skýr- ar hvað þetta varðar, að ekki sé bara sagt hvað megi ekki heldur að stjórn- völd veiti leiðbeiningar sem nýtist vatnsveitum og viðskiptavinum þeirra. Þá segir að þar sem gjaldskrár hafi verið lækkaðar í takt við batnandi af- komu vatnsveiturekstursins virðist sem fjárhagsleg áhrif úrskurðarins séu óveruleg við fyrstu skoðun. Álagning vatnsgjalds úrskurðuð ólögmæt  OR óskar eftir nánari leiðbeiningum frá ráðuneytinu Morgunblaðið/ÞÖK OR Álagning vatnsgjalds á árinu 2016 var kærð til ráðuneytis.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.