Morgunblaðið - 24.04.2019, Blaðsíða 22
22 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 2019
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það er gott að eiga trúnaðarvin
sem maður getur deilt draumum sínum
og löngunum með. Ekki gefast upp, því
þú átt ýmsar innistæður að taka af.
20. apríl - 20. maí
Naut Nú er mál að standa með sínum.
Hæfni þín til að hugsa skýrt þegar kemur
að peningum er mikil.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú nýtur góðs af ríkidæmi ann-
arra í dag. Dagurinn í dag er kjörinn til
að hefja nýtt átak til betri heilsu.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Sérðu eftir að hafa ekki tekið
stökkið? Það er ekki of seint. Taktu þátt í
umræðunum ef þú telur að framlag þitt
skipti einhverju máli.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Svo kann að fara að þú þurfir að
taka upp gömul mál sem þú hélst að
væru gleymd og grafin. Ekki taka öllu
sem sjálfsögðu.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Farðu í gegnum eigur þínar og
spáðu í hvað þú átt og þarft ekki lengur.
Það er gott að sjá flísina í eigin auga.
23. sept. - 22. okt.
Vog Sönn vinátta er gulls ígildi. Leggðu
áherslu á að hitta fólk og taka þátt í um-
ræðum um þau mál sem eru í brenni-
depli.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Nú væri ekki vitlaust að
ganga frá fasteignaviðskiptum. Ekki
þreyta vinnufélagana með endalausum
sögum af einkahögum þínum.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú átt ýmsar hliðar til og get-
ur sýnt þær að vild. Hafðu langtíma-
markmið tengd heimili og fjölskyldu í
huga.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Gættu þess að einblína ekki á
eitt atriði þegar þú reynir að finna lausn
á málum þínum. Einbeittu þér að fjöl-
skyldunni í dag.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það er hætt við að áætlanir
sem tengjast ástamálum og börnum
breytist í dag. Gleymdu skyldunum og
sogaðu í þig upplýsingarnar sem þú
færð.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Enginn er alvitur og þú eins og
aðrir verður að viðurkenna að stundum
hefur þú á röngu að standa. Ekki taka
það til þín ef einhver virðist þóttafullur
eða óvingjarnlegur.
akstursfjarlægð frá golfvellinum
og umkringdur veiðiám.“
Fjölskylda
Eiginkona Inga er Valgerður
Jóna Gunnarsdóttir, f. 10. júní
1948, söngkennari. Foreldrar
hennar voru hjónin Ragnheiður
Jónsdóttir, f. 9. apríl 1929, d. 12.
janúar 2014, bankaritari, og Gunn-
ar Björnsson, f. 14. ágúst 1927, d.
28. október 1988, bóndi í Sól-
heimum í Blönduhlíð, síðar hús-
vörður í Reykjavík.
Ingi hefur átt sæti í stjórnum
körfuknattleiksdeilda Íþróttafélags
stúdenta og Fylkis, í knatt-
spyrnudeildar Ármanns og körfu-
knattleiksráðs Reykjavíkur. Frá
2001 hefur hann verið meðlimur í
rótarýklúbbnum Borgum í Kópa-
vogi, þar af eitt ár sem forseti.
„Helstu áhugamál mín síðustu
ár, auk golfsins, snúa aðallega að
stangveiði og að njóta lífsins með
fjölskyldunni í sumarhúsi okkar
hjóna í Borgarfirði, sem vill svo
vel til að er í sjö mínútna
I
ngi Kristinn Stefánsson
fæddist 24. apríl 1949 í
Neskaupstað og ólst þar
upp. Hann var í sumardvöl
í sveit á Hrauni í Reyðar-
firði hjá ömmubróður sínum, Ingv-
ari Olsen.
Ingi gekk í barnaskóla Neskaup-
staðar og tók svo landspróf frá
Gagnfræðaskólanum í Neskaup-
stað árið 1964. Þaðan lá leiðin í
Menntaskólann á Akureyri og lauk
hann stúdentsprófi úr stærðfræði-
deild 1968. Ingi hóf nám í tann-
læknadeild HÍ haustið 1968 og
lauk þaðan cand. odont.-prófi árið
1974. „Ég vann ýmis sumarstörf
samhliða námi, svo sem á síldar-
plani og í síldarbræðslu í Neskaup-
stað, byggingarvinnu í Reykjavík,
hjá Póstinum og í Hvalstöðinni
sem kjötmatsmaður. Ég er mjög
hamingjusamur að hafa verið uppi
á árum Bítlanna og síldarárunum
og hafa verið í heimavist á
menntaskólaárunum. Þetta voru
stórir áhrifaþættir í uppeldinu.
Bítlarnir hljómuðu öllum stundum
og ég er að sjálfsögðu Liverpool-
maður í fótboltanum.“
Frá prófi til 1977 var Ingi að-
stoðartannlæknir hjá Ólafi G.
Karlssyni. Setti þá upp eigin stofu
á Bergstaðastræti 52 í Reykjavík
og starfaði þar í 27 ár. Árið 2005
flutti Ingi tannlæknastofu sína í
Hamraborg 10 í Kópavogi og starf-
ar þar enn.
Ingi hefur löngum verið alæta á
íþróttir. Hann keppti í knatt-
spyrnu með Þrótti í Neskaupstað á
unglingsárunum og í frjálsum
íþróttum hjá ÚÍA 1964-1969. Eftir
að suður kom keppti hann með Ár-
manni í knattspyrnu 1969-1978, í
blaki með Íþróttafélagi stúdenta
(ÍS) 1968-1970, en þeir urðu fyrstir
meistarar á Íslandi í blaki, og
körfuknattleik með ÍS 1969-1982
og spilaði í lávarðadeild í körfu-
bolta eftir það. Í geymslunni hjá
Inga má meðal annars finna verð-
laun fyrir skíði, kúluvarp, hástökk,
langstökk og þrístökk, ýmis hlaup,
golf, blak, sund og fótbolta, hand-
bolta og körfubolta. „Síðari árin
hef ég aðallega stundað golf og læt
mér duga að horfa á aðrar íþróttir
í gegnum imbakassann.“
Börn Inga og Valgerðar eru: 1)
Gunnar Trausti, kjörsonur, f. 23.
febrúar 1982, framreiðslumaður,
búsettur í Kópavogi. Börn: Tristan
Ingi, f. 2002; Alexander Helgi, f.
2003; og Rúrik Árni, f. 2012. 2)
Jón Kristinn, kjörsonur, f. 14.
mars 1982, viðskiptafræðingur,
búsettur í Reykjanesbæ. Maki:
Fida Abu Libdeh framkvæmda-
stýra. Börn: Watan Amal, f. 2006,
Ragnheiður Tahrir, f. 2009, og
Valgerður Asalah, f. 2013. 3)
Hanna Ragnheiður, f. 6. mars
1987, sérfræðingur hjá atvinnu-
vega- og nýsköpunarráðuneytinu,
búsett í Kópavogi.
Systkini Inga: Hálfsystkini sam-
mæðra: Fjóla Bachmann, f. 13.
september 1950, d. 10. desember
2014, verslunarmaður á Selfossi;
Guðlaug Bachmann; f. 26. janúar
1952, sjúkraliði á Egilsstöðum;
Rósa Bachmann, f. 3. mars 1953,
bókari, lengst af búsett á Patreks-
firði og Húsavík; Inga Lára Bach-
mann, f. 3. janúar 1955, móttöku-
ritari, búsett í Hveragerði; Jónína
Bachmann, f. 1. júní 1957, hús-
móðir á Selfossi; Halldór Bach-
mann, f. 29. mars 1965, kynningar-
stjóri hjá Almenna lífeyris-
sjóðnum, búsettur í Reykjavík;
Jóhann Óli Hilmarsson, stjúp-
bróðir, f. 26. desember 1954, fugla-
Ingi Kristinn Stefánsson tannlæknir – 70 ára
Ljósmynd/Ragnar Th. Sigurðsson
Feðginin Ingi og Hanna Ragnheiður.
Full geymsla af verðlaunapeningum
Með synina Ingi og Valgerður ásamt Gunnari Trausta og Jóni Kristni.
Barnabörnin Talið frá vinstri: Rúrik Árni, Alexander Helgi, Ragnheiður
Tahrir, Valgerður Asalah, Watan og Tristan Ingi.
60 ára Gunnar ólst
upp á Reykjum í
Fnjóskadal en býr á
Akureyri. Hann er eig-
andi og framkvæmda-
stjóri SBA Norður-
leiðar, en hann keypti
Sérleyfisbíla Akureyrar
árið 1985 og Norðurleið árið 2001 og
rekur núna 80 rútubíla. Hann er búfræð-
ingur að mennt.
Maki: Erna Hildur Gunnarsdóttir, f. 1959,
framhaldsskólakennari í Verkmennta-
skólanum á Akureyri.
Börn: Guðmundur Egill, f. 1989, og
Magnús Árni, f. 1991.
Foreldrar: Guðmundur Gunnarsson, f.
1924, d. 2008, og Pálína Magnúsdóttir, f.
1924, d. 2014, bændur á Reykjum.
Gunnar Magnús
Guðmundsson
40 ára Íris er frá
Leirulækjarseli á Mýr-
um en býr í Borgar-
nesi. Hún er lands-
lagsarkitekt frá
Kaupmannahafnar-
háskóla. Hún vinnur
hjá Landmótun og
hefur aðallega fengist við hönnun á
skólalóðum og almenningssvæðum.
Sonur: Sindri Freyr Daníelsson, f. 2004.
Hundur: Kátur, f. 2016.
Systkini: Erla, f. 1976, og Þröstur, f.
1982.
Foreldrar: Reynir Gunnarsson, f. 1949,
d. 2008, bóndi í Leirulækjarseli, og Edda
Björk Hauksdóttir, f. 1956, fyrrverandi
bóndi í Leirulækjarseli, búsett í Borgar-
nesi.
Íris
Reynisdóttir
Til hamingju með daginn
Hella Kristinn Fannar
Guðnason fæddist 18.
ágúst 2018 kl. 5.50.
Hann vó 3.284 g og var
50 cm langur. Foreldrar
hans eru Hugrún Péturs-
dóttir og Guðni Guð-
jónsson.
Nýr borgari
Hamraborg 10, Kópavogi
Sími: 554 3200 Opið: Virka daga 9.30–18
VERIÐ VELKOMIN
Í SJÓNMÆLINGU
———