Morgunblaðið - 24.04.2019, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 2019
Verkalýðsfélög eru gríðarlegaáhrifamikil hér á landi og út
úr öllu samhengi við það sem
þekkist í flestum öðrum löndum.
Þátttakan er mjög mikil miðað við
önnur lönd, þar
með talið í saman-
burði við hinar
Norðurlandaþjóð-
irnar þó að þátt-
takan þar sé mun
meiri en almennt
gerist. Þátttaka í
stéttarfélögum hér á landi er
meira en þreföld á við það sem
tíðkast almennt í OECD.
Þetta er verulegt umhugsunar-efni, ekki síst þegar horft er
til lítils áhuga almennra félags-
manna á starfsemi verkalýðsfélag-
anna.
Formenn félaganna og stjórnirsitja yfirleitt í skjóli fáeinna
prósenta félagsmanna en geta í
krafti þess haft mjög mikil áhrif á
atvinnu- og efnahagslíf hér á landi,
eins og landsmenn hafa fengið að
kynnast á síðustu mánuðum.
Svo þegar forystumenn félag-anna hafa gert kjarasamning
og leggja í dóm félagsmanna, eins
og gert var á dögunum, kemur í
ljós að þátttakan í atkvæðagreiðsl-
unni er sáralítil.
Hvað veldur þessu áhugaleysi?Er verkalýðshreyfingin til-
búin að velta því fyrir sér og ræða
hispurslaust?
Getur verið að mikið vanti upp áað starfsemi verkalýðsfélag-
anna sé í takt við tímann?
Getur verið að launamenn teljihagsmuni sína liggja annars
staðar en hjá verkalýðsfélögunum?
Þora félögin að
ræða tilgang sinn?
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
83% Íslendinga fóru til útlanda á síð-
asta ári. Fjórðungur þeirra sem fóru
utan fóru fjórum sinnum eða oftar
og eftir því sem menntunarstig fólks
er hærra er líklegra að það hafi farið
til útlanda í fyrra. Meðal-Íslending-
urinn fór í 6,2 ferðir innanlands í
fyrra. Þetta er meðal þess sem kem-
ur fram í nýrri könnun Ferðamála-
stofu þar sem spurt var um ferðalög
Íslendinga árið 2018 og ferðaáform í
ár.
Könnunin hefur verið gerð frá
árinu 2009 og síðan þá hefur hlutfall
Íslendinga sem fara til útlanda farið
stigvaxandi, en fyrsta árið fóru 44% í
utanlandsferð.
Spánn og Portúgal vinsælust
Gistinætur erlendis voru að
meðaltali 20, sem var einni nótt fleiri
en árið á undan. Flestir fóru í
borgarferð, næstalgengast var að
fara í sólarlandaferð og einnig var
algengt að fara utan til að heim-
sækja vini eða ættingja. Vinsælast
var að heimsækja Spán eða Portúgal
þangað sem 41,5% svarenda fóru og
Bretland og Írland komu þar á eftir.
Einnig var spurt um ferðalög
innanlands. Um 85% Íslendinga
ferðuðust innanlands í fyrra og
hefur fækkað í
þeim hópi frá
árinu 2009. Að
meðaltali voru
ferðirnar sex
talsins og gisti-
nætur innanlands
voru 12,9 sem eru
marktækt færri
nætur en á ár-
unum 2012-’14.
Sá landshluti sem
flestir heimsóttu á ferðalögum sín-
um um landið var Norðurland og
Suðurland var næstvinsælast. Júlí
var sá mánuður sem flestir völdu til
þess að ferðast innanlands, en fæstir
ferðuðust um landið í janúar.
Sund og jarðböð var sú afþreying
sem flestir greiddu fyrir á ferðalög-
um innanlands og næst komu söfn,
sýningar, leikhús og tónleikar.
Spurt var um ferðaáform í ár og
um níu af hverjum tíu áforma ferða-
lög í ár. Ríflega helmingur sagðist
ætla í sumarbústað, álíka margir
hyggja á borgarferð erlendis og til
vina og ættingja innanlands. Um
43,5% ætla í sólarlandaferð.
Þá var spurt um ástundun útivist-
ar og sagðist um helmingur stunda
útiveru einu sinni í viku eða oftar.
Sífellt fleiri Íslend-
ingar til útlanda
Margir fóru fjórum sinnum eða oftar
Flugstöð 83% fóru
til útlanda í fyrra.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Kornbændur eru að plægja akra og
undirbúa sáningu. Sumir eru byrj-
aðir að sá, aðrir bíða eftir að það
stytti upp og búast má við að mjög
margir sái fyrir korni í þessari viku
og í byrjun næstu.
„Ég er að sá úr síðustu vélinni.
Þetta hefur gengið ágætlega,“ segir
Magnús Már Haraldsson, bóndi í
Belgsholti í Melasveit í Borgarfirði.
Hann byrjaði að sá um páskana.
Magnús segir að jörð sé klaka-
laus og sæmilega hlýtt í veðri.
„Vonandi heldur það sér.“
Útlitið gott
Sáningstíminn í ár er svipaður og
mörg undanfarin ár fyrir utan síð-
asta ár. Þá gátu bændur ekki sáð
fyrr en komið var fram um miðjan
maí, vegna bleytu og klaka.
Þórarinn Leifsson, bóndi í
Keldudal í Hegranesi í Skagafirði,
byrjaði að vinna flög um páskana
og segir hann útlitið gott þótt jörð
sé ekki alveg klakalaus. Hann sagð-
ist í gær reikna með að hefja sán-
ingu í dag, miðvikudag. Það er
nokkuð fyrr en oftast hefur verið á
þeim bænum.
Sömu sögu er að segja víðar af
landinu, til dæmis í Eyjafirði og á
Suðurlandi. Bændur eru að plægja
jarðveginn og sumir byrjaðir að sá.
„Við erum búnir að plægja allt en
það rignir alla daga og ekki hægt
að sá á meðan,“ segir Ólafur Egg-
ertsson, bóndi á Þorvaldseyri undir
Eyjafjöllum. Þá segir hann að flög-
in séu blaut eftir stórrigningarnar
á dögunum og þurfi að síga úr þeim
svo hægt verði að komast um.
Ólafur gerir sér vonir um að það
stytti upp um helgina og þá verði
hægt að hefja sáningu.
Kornbændur eru byrjaðir að sá
Vorar vel fyrir kornræktina Rigningar tefja sáningu á Suðurlandi
Opið virka daga 10.00-18.15, laugardaga 11.00-14.00 | Gnoðarvogi 44, 104 Reykjavík | Sími 588 8686
Gómsætir og girnilegir réttir
í fiskborði beint í ofninn
Glæný stórlúða
Glæný smálúða
Stór humar
Túnfiskur
Klausturbleikja
Humarsúpa